Svör við Pælingum!
Myndir
Afmæli Lee
Tarfagleði 2003
Hunangstunglið
Complex
Gee-Huzzl
VIP
Haglabyssan
Youngmen
Brekkan



Apríl 2004
Mars 2004
Febrúar 2004
Janúar 2004
Desember 2003
Nóvember 2003
Október 2003
September 2003
Ágúst 2003
Júlí 2003
Júní 2003
Mars 2003
Febrúar 2003
Janúar 2003
Desember 2002
Nóvember 2002
Október 2002



nóvember 29, 2006 :::
 
Vinklafólkið

Sá í fréttum um daginn fólk sem gekk á höndum og fótum. Þetta var ættkvísl í Úzbekistan eða einhvur fjandenn og afkomendur hjónakorna þaðan. Það var sem sagt vinklað og gekk um eins og skepnur. Vísindamenn unnu baki brotnu við að reyna að hjálpa þessu fólki að ganga upprétt með lyfjum, göngugrindum, heillaráðum og ég veit ekki hvað og hvað. Það gekk fremur illa. Kannski útaf þeirri staðreynd að hjónakornin góðu voru systkin og afkomendur þeirra héldu uppteknum hætti í tilhugalífinu. Meiriháttar.

Passa sig á ættarmótunum hérna.

-lee

::: posted by Lee at 15:12



nóvember 24, 2006 :::
 
Beverly Hills níunúlltveireinnnúll

Það er margt forvitnilegt í henni veröld okkar. Þó fátt jafn áhugavert og amerísk unglingamenning. Sá mæti þáttur Beverly Hills 90210 hefur verið tekinn til sýninga á ný. Þar er alveg magnað að sjá hvursu stálpaðir 16-17 ára unglingar eru. Sérstaklega er gaman að fylgjast með ástarmálum þessara táninga. Ójá þeir eru mjög svo grimmir að segja "æ lov jú" frá dýpstu hjartarótum við einhverja sem þeir hittu kannske í fyrradag. "I think I love you" eða "you are the one for me" eða eitthvað í þessum dúr kemur iðulega frá fyrirmyndar unglingunum að vestan. Er ekki að sjá þetta hérna á fróni. Helstu línurnar hjá manni á þessum tíma voru kannske "til í sleik?" eða "viltu vanga" eða "átt þú þessa kókómjólk" sem bæðevei gríðarsterk lína til að brjóta ísinn. Nóg um það. Það er aldur aðalleikaranna í þáttunum sem slær mig svona nett. Flestir voru kannske rúmlega tvítugir sem er svo sem allt í lagi. Þó eru tveir leikarar þarna sem skara framúr í aldri. Að sjálfsögðu kyntröllið með krumpuennið hann Luke Perry. Ætli hann hafi ekki verið eitthvað rúmlega þrítugur. Gott og vel. Svo er það eftirlæti allra, en það er sú sem leikur hana Andreu (dúxinn/nördinn með gleraugun, grimmt óþolandi týpa). Hvað erum við að tala um þar? 52ja ára að leika 18 ára stúdent. Mergjað alveg og (h)rós í hnappagatið þar hjá henni Andreu minni. Innilega alveg með þetta.

Svo muna nú allir eftir honum Ralph Macchio í Karate Kid. Hvað var hann?? 36 ára eða eitthvað??

Lýk þessu nú á einni alvöru línu sem Bond, þ.e.a.s. James, tekur í nýjustu myndinni. "whatever I am, what ever is left of me. I´m yours". Nota þessa næst. Gæti trúað að viðkomandi stúlkur slædi oggupons í sætinu sínu þegar ég tek hana.

Roger over end ád

-lee

::: posted by Lee at 20:41