Já það liggur fyrir að þær eru að fara að meika það oggupons stúlkurnar í Nylon. Hita upp á Bretlandstúr fyrir eitt stærsta boy-bandið í dag er ekki slæmt. Jújú, við skulum samfagna þeim, sannarlega vel gert hjá Einsa Bangsa og hans krú. Hér kemur þó aðal pælingin. Mér skilst að þær séu allar í sambandi í dag, við hina indælustu menn. Sumir þeirra eru jafnaldrar stelpnanna, aðrir helmingi eldri og enn aðrir fastagestir á Hrafnistu borðandi barnamauk og mysing. En það er önnur saga, indælis drengir væntanlega allir saman. En nú skal ég leggja bolloxinn minn undir. Smátt og smátt með aukinni frægð fer grasið að verða grænna hinumegin við og karlpeningurinn í samræmi við það. Ríkari, frægari og myndarlegri menn fara að reyna að fara í sleik á almanna við þær og þær sjá ekki, né hugsa almennilega sökum frægðarljómans. Spáin er sú að fyrir árs lok verður helmingur Nylon búinn að sparka núverandi melum. Hinn helmingurinn gerir það á næsta ári... gjersamlega alveg pottað. Það eina sem gæti fokkað þessu upp er að þær myndu allar slíta sig lausar á þessu ári, sem er alveg eins í inni í myndinni og myndi kannski ýta heldur undir náðargáfu mína á þessu sviði. Allavega bíð ég spenntur.
Hef ákveðið að setja saman strákabandið Smile-On. Leita því eftir 4 mönnum sem geta sungið, raddað, dansað, horft getnaðarlega í myndavél, grátið og leikið. Einn þarf að vera hommi. Þetta verður svona í anda Take That, Boyzone, Blue og N´sync og svo verður lagt í frumleg verkefni eins og að taka coverlög eftir Maríu Carey, Elton John, Phil Collins og Geira Ólafs. Skothelt dæmi. Garenteruð kvenhylli og ríðing. Endilega hafið samband við Franklín Stæner varðandi frekari upplýsingar.