Svör við Pælingum!
Myndir
Afmæli Lee
Tarfagleði 2003
Hunangstunglið
Complex
Gee-Huzzl
VIP
Haglabyssan
Youngmen
Brekkan



Apríl 2004
Mars 2004
Febrúar 2004
Janúar 2004
Desember 2003
Nóvember 2003
Október 2003
September 2003
Ágúst 2003
Júlí 2003
Júní 2003
Mars 2003
Febrúar 2003
Janúar 2003
Desember 2002
Nóvember 2002
Október 2002



mars 22, 2006 :::
 
Fallin stjarna eða slæmur árgangur bara...

Í DV í dag er fjallað um Arnór Diego, herra Ísland 1988, að það hafi fundist kókaín hjá honum og læti og hann dæmdur í skilorð í 3 daga eða eh álíka kjánalegt. Það skiptir svo sem ekki máli. En fyrir nokkrum misserum rakst ég á hann á Hverfisbarnum, þar sem hann virtist helvíti "hress" á því, gangandi utan í hvern karlmann á svæðinu að reyna að snapa fæting, og nuddandi sér utan í hverja einustu skjátu á gólfinu með gífurlega þokkafullum hreyfingum. Allt féll þetta í fremur slæman jarðveg hjá staðargestum og Arnór valinn vinsælasti maður kveldsins með miklum meirihluta.

Allavega þá var hann þarna nokkuð breyttur frá myndinni sem er í DV í dag. Búinn að raka af sér allt hár og massa sig upp um ca.20 kg. Sagan sagði að hann væri að búnta sig eitthvað upp á einhverjum lyfjakokteilum, en ég sel það ekki dýrara en ég keypti það. Ég man hann reyndi að stela einverri drottningunni sem var að dansa við Sharkinn, en eitt augnaráð og gott glefs frá Hákarlinum létu hann taka góða u-beygju og vatt hann sér þá að næstu stúlku á gólfinu. Það næsta sem ég veit er að hann er að hamra á einhverjum gaurnum þarna og loks koma 5 dyrarverðir og ná að halda honum út, með miklum herkjum þó. Þar strax huxaði ég "þetta er sannarlega fallin stjarna, dottinn í fen lyfjakokteilanna".

Er ég rýndi svo í myndina frá Herra Ísland 1988 í DV í dag, sé ég glitta í hinn ágæta dreng Ívar Hauksson. Ívar þessi er í dag golfkennari og fasteignasali á Spáni að ég held, með góðum árangri.

Mín fyrsta minning af Ívari er sú þegar ég var að stjórna tónlistinni um verslunarmannahelgina 1987, að mig minnir, á Hótel Eddu á Laugarvatni. Ég hafði þá sett Johnny Hates Jazz á fóninn, en hann hafði beðið um eitthvað með Whitney Houston. Það var ekki flóknara en það, að hann reif tjaldið frá og sagði við Shrakinn, þá rétt 13 ára plötusnúð, "á ég að lemja þig helvítið þitt" - fúlasta alvara svoleiðis. En ekkert gerðist þó blessunarlega.

Svo var hann nú tekinn með uxa- og hrossastera á sínum tíma, einhversstaðar í austurlöndum fjær og þar með sennilegast komin skýring á óeðlilegum árangri í vöðvaíþróttum... (sel það ekki dýrara sko).

Nú þekki ég ekki fleiri á þessari myndi í DV, en var svona að spá, hvort þessir keppendur þarna í Herra Ísland 1988 hafi allir verið ólukkumenn upp til hópa. Eða eins og gárungarnir segja... hreinlega slæmur árgangur bara.

Lee

::: posted by Lee at 10:09