Svör við Pælingum!
Myndir
Afmæli Lee
Tarfagleði 2003
Hunangstunglið
Complex
Gee-Huzzl
VIP
Haglabyssan
Youngmen
Brekkan



Apríl 2004
Mars 2004
Febrúar 2004
Janúar 2004
Desember 2003
Nóvember 2003
Október 2003
September 2003
Ágúst 2003
Júlí 2003
Júní 2003
Mars 2003
Febrúar 2003
Janúar 2003
Desember 2002
Nóvember 2002
Október 2002



febrúar 23, 2006 :::
 
Helvítis morgunþátturinn

Verð aðeins að koma inná þá félaga Weddah og Gonnah á X-977. Morgunþátturinn þeirra milli 7 og 10 er hreint afbragð. Þar fara þeir félagar um víðan völl og láta öllum illum látum, agnúast út í þjóðfélagið, fanta og fúlmenni svo eitthvað sé nefnt. Færri vita þó að frægðarsól þessarra kumpána byrjaði að skína fyrst hér á Sharknum fyrir nokkrum misserum. Síðan þá hefur leiðin legið 9° uppá við, með ýmsum hnökrum þó. Ný heimasíða þeirra morgunógleðisdrengja er hér.

Það var nú svo já.

Lee

::: posted by Lee at 16:36



febrúar 15, 2006 :::
 
Gaman að djæva á netinu

Jamm, var að sörfa aðeins og kíkti á myndaleitarvélina á Google. Sló inn nokkur nöfn, þar á meðal mitt eigið og jújú, mar var á nokkrum síðum. Skemmtilegast var þó að slá inn nafn þeirra feðga Júlíusar yngri og þyngri. Það var ekki að spyrja að því að það komu upp nokkrar virðulegar af þeim þyngri. Einnig skaut einni upp af langafa frá Húsavík með Hannesi Hafstein, fyrsta ráðherra vor. Og jú, það fylgdi ein af þeim yngri líka, sver sig í virðuleikann sá. Sjá hér. Púwahahahahah.

Lee

::: posted by Lee at 17:45



febrúar 02, 2006 :::
 
Svo sárt - Em leikur Sharksins

Fjandenn hafi það, þessi leikur í gær á móti Króötum... en fjandenn nennum ekki að grenja það. Horfum fram á við og tölum um gamlara mellur, eins og Kollu frænku. Neinei, nú eru það Nojararnir, byrjum á að vinna þá og raða nokkrum mörkum í plús á Baunana og svo vona það besta.

Það liggur fyrir að ef við förum í undanúrslit, þá splæsi ég í partæ á Glyðrunni, þar sem verður horft á leikinn og drukkinn öl, allir velkomnir nema Eddi ógeð frá Hellissandi. Lee spáir 35-29 fyrir Ísland og vill fá spá frá mönnum. Kippa af tékkneskum bud í verðlaun. Kommmmaasvooooo. ÁFRAM ÍSLAND.... DÓMARINN ER FULLUR og allt það.

Lee

::: posted by Lee at 12:11