... úr dáinu?? Allavega farinn að busla all svaðalega í djúpu lauginni og líklegur til alls. Það sem varð fyrst á vegi hans var NFS. Úff og obbosí, þar runnu þeir á beran bossann blessaðir miðlarnir 365. Þetta er bara ekki að virka á landinu kalda í norðri að mínu mati. Hreinlega ekki markaður fyrir þetta. Heitasta fréttin í síðustu viku var kanadísk kona í leit að gamaldags slátturvél (svona sem maður ýtir á undan sér og gengur fyrir mannaflinu einu). Sirka klukkutími af klipptu efni.. meiriháttar alveg. Svo á að vera voða fansý og hafa svona borða niðri á skjánum þar sem heitustu fréttir líðandi stundar renna fram hjá áhorfandanum, svo hann missi nú ekki af neinu. En hvað??? Jú Sharkinn var með kveikt á kassanum í 1,5 tíma um daginn og yfir þann tíma voru tvær heitustu fréttirnar þær. "5 af þeim sem voru í stjórnunarstöðu í stóra olíumálinu enn við störf" og hin sem var enn svæsnari, "Starfsmenn KEA fá 6000 krónur í uppbót fyrir góða afkomu". Já þetta voru einu fréttirnar sem voru á renningnum yfir þennan tíma. Vei og jibbí.
Annars er Sharkinn dottinn í bernskubrekin þessa dagana. Keypti mér norskt sveitabrauð um daginn og borða það nú með smjeri og osti í hvert mál. Ohhhh og ísköld mjólk með. Dísess.
Að lokum hefur þessi dvöl haft þau áhrif á Hákarlinn að einangrunin er í hámarki og hákarlalýsið því á tilboði fram að jólum.