Jahháá, haldiði ekki að Sharkinn dúndri niður nokkrum línum svona í tilefni dagsins og hækkandi sól og hvað eina, en þó aðallega útaf einum grimmasta kjána sem ég hef fengið lengi yfir Survivor í fyrradag. Ó mæ fjandans gad. Þrjú eftir í einhverri þol-óþolinmóðs-kjána-vatnsþraut og beyglan gefst náttúrulega fyrst upp, sem bæ ðe wei hefur ekki gert rafsgat í þessum þáttum, og var örugglega sú eina sem hefur smyglað með sér ca. 210 mars súkkulaðistykki í þáttinn, því ekki grenntist hún blessunin eins og aðrir, ónei sankallaður hlunkur bara allan tíman, eða klunni eins og Sef myndi segja. Jæja, eníveis, tveir gaurar eftir og annar fórnar sér svo tjellingin komist í úrslitin, svo hann öðlist virðingu aftur og eh skrambans mambó djambó... dísesss, ekki drepa hérna.
Annars er þetta nú hálf endasleppt þessi þáttur, þótt mar góni á þetta. Segi það aftur og enn, þarna eru þær svoleiðis nýrakaðar undir höndunum dag eftir dag eftir dag og ný vaxaðar á bífunum og ný plokkaðar á augabrúnunum. Neinei, það er ekki útaf því að þær eru með rakvélar með sér. Ó nei,auðvitað nota þær áhöld náttúrunnar í þessa hluti, eins og sólþurrkaðan þara, ferska krabbakló eða 3ja daga gamlan trjábörk með vel þurrkuðu harpixi. Jújú, gott ef þær raka ekki bara ekki á sér peeekuna þarna til dundurs líka. Djefulsins bollox.
Annars vil ég biðja þá sem eru með umboðið fyrir súkkulaðibúðing um að vinsamlegast senda eins og 1-2 gáma í kaupfélagið á Egilstöðum og þar í nágrennið. Hjössi er víst búinn að tæma lagerinn þarna fyrir austan. Passaðu þig bara Hjössi minn, það er erfitt að þurfa að vera á innsoginu í 2 vikur straight þarna á Majorka.