Svör við Pælingum!
Myndir
Afmæli Lee
Tarfagleði 2003
Hunangstunglið
Complex
Gee-Huzzl
VIP
Haglabyssan
Youngmen
Brekkan



Apríl 2004
Mars 2004
Febrúar 2004
Janúar 2004
Desember 2003
Nóvember 2003
Október 2003
September 2003
Ágúst 2003
Júlí 2003
Júní 2003
Mars 2003
Febrúar 2003
Janúar 2003
Desember 2002
Nóvember 2002
Október 2002



nóvember 26, 2004 :::
 
Þáttaskil

Já það er margt í mörgu. Dagar mínir sem ríkisbubba verða senn taldir. Fullveldisdaginn mun Sharkinn synda á ný mið og mæta til nýrrar vinnu. Lúkkar helvíti fæn. Lee er massa sáttur í dag, það get ég botnað.

::: posted by Lee at 15:41



nóvember 18, 2004 :::
 
Fokuð, fokaðri, fokuðust

Ekki get ég séð mikið við þessar píur í Americas next topmodel. Sá þáttinn í gær og nú eru einungis 3 eftir og get ég sagt það með hreinni samvisku að mér finnst 2 þeirra hreinlega vera fokaðar (svo það sé alveg á hreinu þá er fokuð stytting á fok ljót). Já ekkert varið í þær segi ég.

Tjah þó gaman að því að það komu ítalskir graðnaglar í heimsókn og farið var í pottinn. Ein missti sig alveg, fór í grimman sleik á almanna og endaði svo á því að láta reeeða sér. Svo sem í góðu lagi ef hún ætti ekki kærasta í einhverju sveitafylkinu þarna. Nú hún hringdi strax í kærastann og lét hann vita að hún hafi verið að reeða og þau grenjuðu saman í hálftíma sem endaði svo á því að hann kallaði hana belju og meri og skellti á. Sannarlega óvænt og skemmtilegt innlegg í þáttinn.

Og svo eitt í lokin. Er það bara ég, eða er Tyra Banks nett fokuð??

::: posted by Lee at 09:10



nóvember 17, 2004 :::
 
Partæ og andvaka

Jammsí you dæks. Hélt ammælispartæ á helginni sem lukkaðist bara svona ljómandi vel. Fékk fullt af pökkum og læti og kann ég öllum bestu þakkir fyrir. Þetta var fjer.

Sunnudagurinn var erfiður og fór í nettan heiladauða. Jæja svo leið og beið og kvöldið kom og nóttin kom, en aldrei gat ég sofnað. Var sem sagt andvaka... og það varði til kl. rúmlega fjegur... ánægð þarna þið?? (erfið þrenna reyndar að baki)

Eníveis þá fór ég að spá í þetta orð "andvaka". Ef við tökum þetta forskeyti -and- og kíkjum á það í öðru samhengi, eins og tildæmis andstæða, en það, eins og fólk veit flest, hefur akkúrat öfuga meiningu við samstæða. Andstæða þýðir það sama og "ekki samstæða", það neitar því enginn. Það er því deginum ljósara að þetta forskeyti -and- breytir merkingu orða í akkúrat öfuga meiningu... ekki satt??

Ef maður er vaka, þá hlýtur maður að eiga að vera vakandi...word? Ef maður er andvaka, þá hlýtur maður fjandakornið að eiga að vera sofandi (andvaka = ekki vaka)... double word má ég heyra??

Af hvurju í fjandanum er þá talað um að maður sé sofandi (andvaka) þegar maður er glaðvakandi uppí rúmi og getur ekki sofnað?? Ætlar einhvur að svara mér því.

Pæling

::: posted by Lee at 13:50



nóvember 11, 2004 :::
 
Sharkinn á undan sinni samtíð??

Já Þórhallur nokkur Ágústsson benti mér á, í ljósi olíu-umræðunnar þessa dagana, 2ja ára gamlar færslur frá Sharknum, þar sem er lýst viðskiptum við einn olíurisann. Gjeriðisvovel.

October 31, 2002
Sko, nú er ég búinn að vera með bílpróf í 11 ár og 13 daga, nei fyrirgefiði, gleymi einu, 10 ár og 13 daga og aldrei hef ég lent í því að fá svo mikið sem einn auka dropa þegar ég set bensín á bílinn. En vitiði hvað, fer á bensínstöð í hádeginu, hendi þússara í dælumanninn og loka aftur. Tjah kemur ekki einhver skutla og biður hann um að kíkja á olíuna hjá sér á eftir og er eitthvað að spjalla við hann. Haldiði ekki að gaurinn gleymi sér. Bankar hjá mér þegar hann er búinn, og segir "heyrðu, ég setti óvart rúmlega tvöþúsundkall yfir" (nákvæmlega bensín fyrir 3.476.-kr.)
Lee:"Haaaa, nei er það"
Dælari:"Jámm (frekar foj)"
Lee: "Veistu ég er bara ekki með seðil á mér núna"(sem var ekki alveg satt).
Dælari: "Jæja þetta er mín sök, haltu bara áfram vinur".
Lee:"Jæja þá, takk fyrir", er náttúrulega alsæll með að hafa stungið undan olíurisanum, en heyri þá í dælaranum, "Ég borga þetta bara sjálfur". Fjjaaaandeeennn, rúmlega fimmtugur kall, með gott viðmót að dæla bensíni fyrir Olís í þessum geðveika kulda, ætlar að borga brúsann fyrir mig. Nú er ég með nagandi samviskubit. Var sigri hrósandi fyrst, en er ekki að meika þetta núna. Skelli mér til hans á eftir og læt hann fá tvo þússara. Þetta er engin pæling, heldur góðverk vikunnar skrambinn hafi það.


Eins og sjá má er ég næstum fallinn í valinn þarna fyrir Risanum. En Sharkinn sér að sér daginn eftir.

November 1, 2002
Mig langaði að láta ykkur vita af því að ég dissaði dælukallinn frá bensínstöðinni í gær. Ætla sko ekki að borga honum neinn fjandans 2000 kall. Er alveg búinn að sjá þetta. Í fyrsta lagi, þá voru þetta hans mistök, menn þurfa að bæta fyrir sín mistök sjálfir. Í öðru lagi, hvað haldiði að þessir kallar kunni ekki að svindla á kerfinu, hann er þaul vanur þessi örugglega og þarf ekki að punga út einum einasta eyri sjálfur. Í þriðja lagi, þá var hann að reyna að höfða til samvisku minnar með því að segja með sorgmæddum róm "ég borga þetta bara sjálfur" til þess að fá auka aur í vasann....hann var að reyna að hözzla mig helv.. melurinn. Þetta er bara glæpamaður. Ég stakk undan olíurisanum og er stoltur af því.... viva la islandia.

Nú segi ég bara eitt:

Sharkinn í borgarstjórann, burtu með þessa kvensu þarna.


::: posted by Lee at 10:26



nóvember 10, 2004 :::
 
Hingað og ekki lengra

Birgitta Haukdal að láta búa til dúkku eftir sér. Er þetta ekki tú möts?? Segir manni kannski margt um þessa stúlku. "Hmmm, djö er ég orðin ógisslega fræg, best að láta búa til dúkku eftir mér... þú áttða alltaf skilið."

Sjammán hér.

::: posted by Lee at 13:26



nóvember 09, 2004 :::
 
Kann Bond ekki að fara í sleik?

Alveg finnst mér það magnað í þessum Bond-myndum sem er verið að sýna á Skjá einum þessa dagana, þegar njósnari hennar hátignar er búinn að narra píurnar uppí rúm hjá sér. Þá á sér stað alveg með eindæmum eggjandi atriði, sem ég vil flokka undir rembingskoss dauðans.

Það fer þannig fram, að 007 er kominn uppí rúm með píunni og allt að fara í gang. Þá setur hann stút á munninn, setur svo á munninn á henni og kreistir hana og þrýstir að sér í korter, einn rembingskoss í korter já. Væntanlega ekkert ósvipað því og að kyssa vegg. En þær falla fyrir þessu trekk í trekk, vel gert James.

Svo er spurning hvernig þetta er í nýjustu Bond-myndunum. Ég hef nú enga trú á öðru en að hann sé farinn að lauma tungunni uppí þær. Já gott ef hann hafi ekki verið að slumma Halle Berry í síðustu mynd. Er samt ekki klár á því.

Hvað ætli Þyngri segi við þessu?


::: posted by Lee at 10:20



nóvember 05, 2004 :::
 
Borgarstjóri í bobba

Eins ágætur og Þórólfur Árna hefur komið mér fyrir sjónir sem borgarstjóri, þá er þetta hreinlega orðið pínlegt hvað hann kemur illa útúr öllum viðtölum þessa dagana. Eins og rispuð plata bara að skella alfarið skuldinni á aðra. "Hefði átt að ganga út" var vinsælasta setning gærdagsins hjá honum. Sjammán, ok ekki er mar búinn að lesa þessa skýrslu, en þetta virðist vera þarna svart á hvítu. Þegar öllu er á botninn hvolft, þá tók hann meðvitandi þátt í þessu samráði... punktur. Hvort honum hefur liðið illa yfir því á sínum tíma, skiptir ekki máli. Hann verður að koma hreint fram og viðurkenna þetta fjandenn hafi það. Endalaust að reyna að fara í kringum málin, það kemur aldrei vel út fyrir neinn.

Reyndar fannst mér hallað á hann í gær, þegar Jóhanna Vilhjálms og Þórhallur voru búin að lofa honum að koma sínu á framfæri. Þau svoleiðis tóku fram í fyrir honum trekk í trekk (reyndar sennilegast út af því að hann var að tala í kringum hlutina, en samt), svo impraði Jóhanna á því að fólki fyndist að hann ætti að segja af sér. Þá svaraði hann, "hvaða fólk, pabbi þinn" .. ahahahha, missti sig aðeins kallinn. Og Jóhanna endurtók held ég í þrí eða fjórgang "þetta var mjög ósmekklegt"... ohhh ahahaha drama á stöð 2 takk.

Þarna slökkti ég á sjónvarpinu og hélt útí Háskólabíó á Sinfó og Ný dönsk. Það var magnað. Maður var reyndar ekki alveg sáttur við allt, en waddðahell, massa kúl og lagið "Þá kemur þú" er eitt það allra magnaðasta, hef imprað á því áður hér. Nýtt lag líka sem heitir "Sökudólgur óskast"... tjah það er að gera hluti takk fyrir það og góða ferð.

::: posted by Lee at 10:03



nóvember 04, 2004 :::
 
Gáta

Hvað er það sem drepur úr hressleika?

Svar: Morgunhanarnir á FM957.

Sjammán, þetta er rosalegt alveg. Er farinn að vinna í því að stilla á þetta þegar ég keyri í vinnuna. Kjánar mig svo mikið upp að ég glaðvakna alveg. Hver að reyna rembast ofan í annan að vera hress. Úff.

Eiginbarmalítingur takk.

Lee

::: posted by Lee at 16:09



nóvember 01, 2004 :::
 
Af hverjur....

...heitir "Queer eye for the straight guy" ekki frekar "Hommar á hlaupum" ?? Veit ekki alveg með þennan varíant hjá þeim að vera á hlaupum endalaust. Hlaupandi úr bíl og inní búð og úr búð og hingað og þangað. Alveg sem það drepur mig.

Var nú frekar fönní í síðasta þætti, þá voru þeir með einhvern gaur sem ætlaði að fara að biðja kærustunnar sinnar. Nú hann var nokkuð síðhærður og með svona hökutopp og mottu. Tjah svo fór einn hommalingurinn með hann í klippingu og vildi láta taka af honum skeggið. Gaurinn var svona hálf hikandi, en lét til leiðast. Það hefði hann betur ekki gert.... enda hálf hökulaus melurinn, eins og íkorni bara... búahahahahah... hlýtur að særa.

Sá ekki hvernig þetta endaði, hvort hún vildi giftast honum eða hvað. Hafði hreinlega fengið nóg.

Lee

::: posted by Lee at 13:03