Svör við Pælingum!
Myndir
Afmæli Lee
Tarfagleði 2003
Hunangstunglið
Complex
Gee-Huzzl
VIP
Haglabyssan
Youngmen
Brekkan



Apríl 2004
Mars 2004
Febrúar 2004
Janúar 2004
Desember 2003
Nóvember 2003
Október 2003
September 2003
Ágúst 2003
Júlí 2003
Júní 2003
Mars 2003
Febrúar 2003
Janúar 2003
Desember 2002
Nóvember 2002
Október 2002



október 27, 2004 :::
 
Maður vikunnar...

.. er Sævar Ciesielski. Var að fletta nokkurra daga gömlu DV í gær og las þar örstutt viðtal við kauða, en hann er í Kóngsins Köben og er að spjalla um hvað hann kann vel við götunnar líf þarna úti. Jæja eníveis, ég ætla að gefa Sævari orðið þegar hann var að segjast vera að skutla kærustunni sinni útá flugvöll. (Man þetta reyndar ekki alveg orðrétt, en þetta er í þessum dúr)

"Ég var að skutla henni Dagnýu minni útá flugvöll og ætlaði að senda hana heim. Út á flugvelli sá ég þessa svo líka gullfallegu konu. Ég vatt mér uppað henni og kynnti mig. Hún var rússneskur strippari á leið til Madrid og þetta var ást við fyrstu sýn hjá okkur báðum. Hún var alveg óð í mig, sagðist eiga fullt af peningum og það böggar mig ekkert að hún er strippar, kannski best að hún sé ekki blásaklaus. Við eigum örugglega eftir að hittast aftur."

Svo fer hann eitthvað að réttlæta það að hann sé að fara dömpa Dagnýu sinni og segir:

"Svo á ég vin hérna úti sem er nákvæmlega eins og Lalli Johns, og hann var að skutla okkur Dagný einhverju sinni í veislu og ég held að Dagný sé ástfangin af honum, þau voru voðalega upptekin af hvort öðru."

Bwuahahahahah, þetta er alveg magnað. Útigangsmaður rekst á moldríka gullfallega píu og það takast með þeim ástir á nó-inu, eins og Bjartmar myndi segja það. Tjahh þetta er bara eins og í ævintýri eftir H.C. Andersen.

En ég segi nú bara eitt. Þetta er illa farið með hana Dagnýu. Púahahahahahahah....

Lee

::: posted by Lee at 10:13



október 25, 2004 :::
 
Það hlaut að koma að því..

og ekki var það verra að það skildi gerast á Old Trafford. Já skelltum Arsenal í gær 2-0 og það var eins og við manninn mælt, væl um ósanngirni og önnur leiðindi með Arsene Wenger fremstan í flokki, of course. Jújú, það særir að fá á sig svona vafasama vítaspyrnu í stórleik sem þessum, tala nú ekki um í leik sem tapast. Hann náttúrulega tekur á öllum vafaatriðum sem United átti að hafa hagnast á, en að sjálfsögðu minnist ekki á þau atriði sem Arsenal hagnaðist á.

Í fyrsta lagi óð hann upp til handa og fóta snemma leiks, þegar hann vildi að Henry fengi víti útá ekki neitt.. ok, hann ætti að dissa Rooney aðeins meira. Augljóst er vítið sem dómarinn sleppti þegar Cole sópaði undan Ronaldo, burt séð frá því að henda á hann gulu spjaldi líka, seinna gula og þar af leiðandi rautt.

Man reyndar ekki fleira í bili, en ætla að horfa á þennan leik aftur, það er klárt. Svo kvartar hann yfir grófum leik, jájá, en þetta var svipað á báða bóga, þótt ég viðurkenni það fúslega að Ruud sýndi fólskubragð þarna á Cole einhverntíman og fær væntanlega sína refsingu fyrir það.

Þegar öllu er á botninn hvolft, þá var þetta krúsíal leikur sem hefði hæglega getað dottið á hvorn veginn sem var og datt hann með mínum mönnum núna. Að skella skuldinni á dómarann er hreinasti barnaskapur, þetta er sannarlega ekki í fyrsta skiptið í sögunni sem vafasamir dómar koma við sögu.

Ég ætla að senda Arsene Wenger stækkunargler í ábyrgðarpósti, svo hann geti skoðað betur á sér naflann.

Lee

::: posted by Lee at 10:33



október 21, 2004 :::
 
Setning vikunnar

"Hoppaðu láréttur uppí endaþarminn á þér, ég er hvort eð er besti leikmaðurinn hérna"

Craig Bellamy við Greame Souness á æfingu hjá Newcastle í fyrradag.

Þetta er falleg útfærsla á annars rótgróinni setningu.

Púahahahahahah,... láréttur, tjah það er challenge.

Lee

::: posted by Lee at 15:55



október 19, 2004 :::
 
Hálf sextugur kappinn

Átti afmæli í gær. Big three O thank you very much. Það er spurning hvort maður eigi að fara að ljúka þessu núna, beint í bæjarlækinn??. Varla. Samt má maður þakka fyrir það að hanga undir fimmtugu bara, djöfull sem þetta líður áfram. Þakka samúðarkveðjurnar frá ykkur þarna úti, ég míg á þær.

Sharkinn á líka afmæli þessa dagana, 2ja ára sá melur.

Mæli annars með þessari mynd hér. Held svei mér þá að hún sé sú allra versta sem ég hef séð.

Crazy fucking weather yeah yeahhhhh.

::: posted by Lee at 13:30



október 14, 2004 :::
 
"Vonbrigði að vissu leiti..."

Ég meina sjammán Geiri Sig. Þessu svaraði hann þegar Adolf Ingi spurði hvort úrslitin á móti Svíum hafi ekki verið vonbrigði. Þau voru sem sagt ekki vonbrigði að öllu leiti þessi slátrun 1-4, neinei, það var nú vitað að Svíarnir væru svo helvíti góðir og gætu alveg rústað okkur, þess vegna voru þetta bara vonbrigði að vissu leiti. Þetta kálar mér. Svo voru klisjurnar alveg á reiðum höndum eftir leik, "klassanum betri", "ein besta þjóð Evrópu" og ég veit ekki hvað og hvað. Þetta er engu að síður skandall, menn voru einfaldlega á hælunum. Svo var eh verið að tala um að þeir hafi verið betri í seinni hálfleik og unnið hann og það væri það eina góða í þessu. Jújú, svo sem allt í lagi, ef Svíar hefðu ekki verið komnir í chillið og hættir að reyna á sig í stöðunni 0-4.

Ég meina, það eina sem maður gat beðið spenntur eftir í seinni hálfleik, var hvort Dolli myndi reyna að fara í sleik við Henke Larsson eftir leik.

Lee

::: posted by Lee at 09:06