Svör við Pælingum!
Myndir
Afmæli Lee
Tarfagleði 2003
Hunangstunglið
Complex
Gee-Huzzl
VIP
Haglabyssan
Youngmen
Brekkan



Apríl 2004
Mars 2004
Febrúar 2004
Janúar 2004
Desember 2003
Nóvember 2003
Október 2003
September 2003
Ágúst 2003
Júlí 2003
Júní 2003
Mars 2003
Febrúar 2003
Janúar 2003
Desember 2002
Nóvember 2002
Október 2002



september 27, 2004 :::
 
There´s something about Miriam og Heimi Guðjóns

Tjah þetta er þáttur sem mig langar að sjá, þ.e - Heimi Guðjóns, allavega lokaþáttinn. Hér eru það 6 gaurar sem keppast um hilli einnar þvílíkrar kellingar. Tjah, en það er einn hængur á, hún Miriam er með tettleng, já dela sagði ég. Nú má gera ráð fyrir að mennirnir fari eh í sleek við hana, á almanna jafnvel og tjái sig við myndavélarnar að þeir elski hana Miriam sína og vilji giftast henni. Úff ég ætla að sjá það móment þegar þeir fá fréttirnar beint í andlitið á sér, það er klárt. Skulum bara vona að Miriam kenghólkist ekki þegar hún/hann/það er að slumma gaurana og komi upp um allt saman.


Svo er einn maður sem má fara í grimman eiginbarmalíting þessa dagana, Heimir Guðjóns í FH. Hvað er málið með manninn. Fyrir hvern leik sem þeir vinna ekki, er hann með endalausar "afsakanir", varðandi það að FH liðið sé betra þótt þeir hafi ekki unnið. Þessa setningu held ég að ég hafi heyrt allavega 2svar í sumar, "það var bara eitt lið að reyna að spila fótbolta á vellinum." Svo núna eftir bikarleikinn á móti KA, "við fengum 30 færi í 2 leikjum og skoruðum 2 mörk, þeir fengu 4 færi og skoruðu 2 mörk... blabla og meme". Svo voru nú einhverjar fleiri sem ég man ekki hvað var. Vill svo skemmtilega til að ég var á leik fimleikafélagsins við Víking í sumar þar sem hann sagði einmitt að aðeins eitt lið væri að reyna að spila fótbolta á vellinum. Það var hreinasti bollox, Víkingar spiluðu ágætlega á köflum þótt vissulega FH hafi verið sterkari aðilinn í leiknum. Heimir sjammán hér, ryksugaðu á þér naflann.




::: posted by Lee at 13:44



september 23, 2004 :::
 
Americas next top model

Varð svo frægur að sjá þennan þátt í fyrsta skiptið í gær. Tjah get nú ekki sagt annað en að þær séu nokkrar vel fokaðar þarna. Svo kom mynd af Tyru Banks ótilhafðri og hún var bara eins og liðið lík eða úldin gúrka. Sjammán hér segi ég nú bara.

Ég meina af hvurju fær þetta fólk ekki bara Kollu frænku í þetta?

Mér er spurn.

::: posted by Lee at 09:53



september 21, 2004 :::
 
Manjú - Liverpúl

Já nokkuð sannfærandi sigur hjá mínum mönnum í gær, 2-1. Garcia, Cisse, Kewell og eh fleiri pappakassar sem eiga að hefja þetta Liverpúl-lið eitthvað upp, var pakkað saman. Svo meiðist Gerrard í ofanálag og það særir, maður finnur nú til með svoleiðis.

Burt séð frá því, þá virðist þetta vera enn einn veturinn sem að stuðningsmenn Púlara sjá gull og græna skóga í upphafi leiktíðar, en eru síðan farnir að skæla svona um janúar - febrúar.

Ójá


::: posted by Lee at 10:12



september 17, 2004 :::
 
Hrósið

Fær frægasti róni landsins hann Hringur. Menn hafa haldið því fram að hann sé dauður en svo er nú aldeilis ekki. Í DV í dag kemur í ljós aðHringur, sem heitir Tryggvi, er búinn að vera á snúrunni í 4 ár núna og keyrir um í sínum leðurbuxum á sínu fjallahjóli og safnar dósum. Ástæðan fyrir því að hann hætti að drekka var sú að hann hné niður og var kominn með 7 cm stórt gat á lifrina. Það var líka eftir að hann hafði drukkið 2 lítra af brennsa á dag í rúmt eitt ár, eða sem samsvarar einu tonni af brennivíni. Hann viðurkennir þó að honum langi að detta í það og er það vel. Hringur is sprell alive.

Gat á lifrina, PÚAjajaahahahahhhahahhahaahah, þetta kallar maður að vinna vinnuna sína.

Lee


::: posted by Lee at 10:29



september 14, 2004 :::
 
Hreinlega veit það ekki....

... á maður að nenna þessu...

Rakst á ansi skemmtilega fyrirsögn í DV áðan. "Endaþarmsboxarinn játaði í jakkafötum" búahahahahaha, þetta er ekki hægt hérna... sjammán.

Vil líka þakka Skjá einum fyrir að byrja að sýna aftur Judging Amy, The providence, Fólk með Sirrý og Innlit útlit. Kemur til með að bjarga vetrinum.

Aigghht.

Lee


::: posted by Lee at 13:24