Já Sharkinn búinn að vera í nettum dvala. Svo sem ekki neitt sérlega merkilegt sem hefur drifið á mína daga síðan í síðustu færslu. Fór síðustu helgi á Starsailor á Nasa og var það hreint út sagt magnað max. Svo byrjaði EM um helgina og maður lifandi hvað það er unaðslegt þegar þessar keppnir detta inn. England - Frakkland átti náttúrulega hug minn allan og get ég sagt ykkur að mér leið eins og að fá tvær hnífstungur í mallakútinn þarna á síðust mínútunum... sjammán lee.. þetta særði all svaðalega og svíður enn. Er að sjá hann Becks minn rífa sig og sína uppúr þessu og taka 2 næstu leiki öruggt og inntú ðö korterfænals takk fyrir og góða ferð.
Náði að stúta á mér löppinni á Tunglaraæfingu á mánudaginn. Var vel haltur eftir æfinguna og svaf tiltölulega lítið þá nótt sökum þess að ég gat bara legið á einn hátt svo vel mætti vera. Eníveis vakna svo morguninn eftir og fór fram úr, nema þá gefur löppin bara eftir þegar ég ætla að stíga í hana... rosa rosa fínt og sá ég fram á 6-8 vikur á þetta. Nú sérfræðingar sögðu að gefa þessu allavega sólarhring í viðbót og hvíla löppina og sjá svo til og ráðlagt að vera heima við. Agalega sárt þegar það gerist á svona EM ári, að þurfa að liggja uppí sófa og góna á fótbolta.. óþolandi alveg hreint.
Jæja svo í morgun þá er löppin bara töluvert skárri, get svona tipplað á henni og lítur bara út fyrir nokkurra daga hnjask. En það er þó eitt sem ég þarf að hafa áhyggjur af. Enginn annar en Hlemmurinn Ógurlegi á afmæli á morgun og heldur uppá það í kveld. Þrítugur kappinn og innilega til lukku með það. Eníhá þá er hann með veislu og helsta áhyggjuefnið mitt er að eftir nokkrar vænar blöndur í barkann á mér með tilheyrandi mænudeyfingu, þá hættir maður að finna til og hættir að haltra og er fær í flestan. Þá á maður til að geta dottið í einhverja vitleysu eins og að twista á jakkanum hans Secca eða eh álíka og löppin verður 4 sinnum verri á morgun fyrir vikið. En þetta er áhætta sem ég er tilbúinn að taka.
Gott ef það var ekki Skepnan sem meiddi sig í einhverjum Tunglaraleiknum fyrir nokkrum misserum, smassaði á sér ökklanum. Svo var móralskur um kveldið og Skepnan alveg draghölt eins og Kosímótó. Tjah eftir nokkrar vænar skvettur í andlitið á sér og trúnó með Bakkusi, var Skepnan komin uppá borð á Hverfis að taka jazzballetspor ala Jilli Haffa. Vel gert það.
Í lokin, þá fer að sjálfsögðu veðbanki Sharksins í gang og nú er spurt um sigurvegara á EM. Sjálfur set ég England á þetta og segi því, go you english cunts.