Jepps, komið að því, flutt inn á Flyðruna í dag. Svo sem nóg stússerí eftir en mar verður bara að vesenast í því næstu daga og vikur og ekkert til fyrirstöðu að fleygja sér inn. Máltækið segir föstudagur til frægðar og laugardagur til lukku, þannig maður velur sennilegas ekki betri nótt til að starta á. Veit nú ekki alveg hvort lukkan verði í kellingaformi eða lottóvinningi en ég er alveg klár á því hvað það verður sem verður mér til frægðar þarna fyrst í vesturbænum. Það verður 27. eða 28. maí þegar Víkingar mæta í Frostaskjólið. Þann dag ætla ég að hengja á hliðina á einni alræmdustu KR-blokkinni, nokkra stóra Víkingsfána, sem munu blasa við KR-stúkunni. Það verður gaman að vera vesturbæingur þá.
Jámm held það sé lag fyrir flesta fótboltaáhugamenn að leita uppi þá sjónvarpsstöð sem sýnir Ítalíu - Spán í kveld. Búið að fá Roberto Baggio í hópinn á ný og er rætt um þetta sem kveðjuleik hans með landsliðinu, en hann hefur ekki leikið með þeim í ca. 5 ár. Tjah það þarf engum orðum að fara um Baggio, magnaður leikmaður alveg hreint. Það sem er áhugavert í þessari pælingu eru þau orð Trappatoni um framhaldið, lesið það endilega hér. Ég er hreinlega að sjá að Baggio galdri fram eitthvað í kveld og verði svo fenginn í fjandans hópinn í sumar. Tjah, þá held ég með Ítölum... og Englandi of kors. Sé reyndar ekki leikinn en ég bíð spenntur .... það er sem ég sagði já, spenntur.
Glyðrugrandinn að taka á sig fæhæææn mynd. Endanlega komin dagsetning loksins, fer inn á frædei. Gæti svo sem farið með sængina í nótt, en meika ekki að taka fyrstu nóttina og þurfa að vakna eldsnemma í vinnu. Því verður frædei tekinn á þetta. Svo var mér sagt í gær að mar ætti alltaf að muna fyrsta drauminn í nýju húsnæði, því hann myndi rætast. Tjahhh, þá er klárt að það verður horft á Tomb Raider og einhverja mynd með J.Lo og farið yfir búnka af klámblöðum fyrir svefninn og dreymt eitthvað svaðalegt skrambakornið. Mun síðan láta það rætast, tjahhhh.,.. bara daginn eftir.
Datt inní ædol á sunnudagskveld. Drottinn minn eini. Hvurn djefulinn er rauðbirkni drengurinn að gera þarna.... djæsesss, hann er hörmungslega lélegur alveg hreint. bÚÚÚU´á amerísku þjóðina.
Já góðir gestir, enginn annar en Hlynur Morthens hirti veðmálið í dag. Með glöðu geði skal ég fagna með þessum dreng, sem án efa er næzti maður í hópinn hjá "gallabuxxnarottunnisemtókhandahlaupárið1986þegarviðálpuðumsttilaðsigraRúmenaoglentumísjöttasæti"... Motti, þú ert maðurinn....
ps. ég x-aði Einsa Thordar áðan, hann var ekki sáttur sá og kallaði á Begga heimsfræga.
Sá hafði aðeins eitt að segja:
"Strákar.... þegar ég var ungur eins og þig, þá þekkti ég ekki orðið að skjóta í stöng eða slá,.... ég fór bara alla leið.... og skaut beint í skeitin..!!"
Já sumarið bara búið að bjóða upp í dans. Hólý shift hvað þetta gerir mikið fyrir mann. Maður er bara fær í flestan sjó ef að hitinn fer yfi 7°. Eníveis þá var hitinn í gær og fyrradag á bilinu 12-15 gráður, sem er helv gott miðað við apríl hér lengst norður í ballarhafi. Ungur maður af Skaganum sagði mér reyndar að það hefði verið 25° hiti í forsælu þar í gær. Það stór efast ég um þar sem Skaginn hefur ekki verið þekktur fyrir neitt annað í gegnum tíðina en rok og rigningu og Röggu Run. Fótbolti kemur í 26. sæti yfir það hvað Skaginn er þekktastur fyrir.
Ekki vantar leikinn á morgun. Man.Utd - Liverpool. TJah veðbanki Sharksins fer hér yet again í gang. Sami díll, kolla undir. Ég set 4-1 á mína menn. Ólafur Gunnar með 2 og Bryan Riggs og Ray King með sitt hvort. Herra Ginger Bollox setur hann fyrir púlara úr innkasti.
Tefst örlítið að ég flytji inná Glyðruna. Endalaust snatterí. En hólí mólí hvað var mikil steik á svölunum þarna. Tjah þetta toppar svalirnar í Grunninum érað segja ykkur það. Tærasta snilld. Gefessu 2-3 daga í viðbót, þá verð ég dottinn inn... pottað.
Eins og flestir vita þá er ég og hef verið frá 1989 aðdáandi Ný danskrar. Ófá lögin hefur maður glamrað á gítarinn og tekið ástfóstri við í gegnum tíðina. Svo fyrir ca. tveimur árum heyrði ég lag í útvarpinu sem mér fannst helvíti magnað með þeim. Hef svo heyrt það af og til síðan og alltaf er það að ná mér. Það var svo að ég rakst á diskinn hjá honum Secca um daginn. Tjah fékk diskinn lánaðan hjá honum, diskinn Pólfarir með Ný dönskum, sem geymir nokkur mjög slök lög að mínu mati, en perlur líka. Flugvélar þekkja allir, en þetta lag "Þá kemur þú" er alveg hreint magnað, klassísk ný danskra melódía í hnotskurn. Getið nálgast það á www.tonlist.is. Ef þetta er ekki flottur texti þá veit ég ekki hvað.
Þrýstingurinn í loftinu
er veðrið inní mér.
Þó ég lækki um eitt millibar
get ég ekkert sagt, á ekkert svar.
Stormurinn á undan logninu
er biðin eftir þér.
Nú spáir roki og spáir kvíða
áframhaldandi kuldum víða.
Hvenær get ég hætt að skríða
og gengið uppréttur.
Svo kemur þú.
Þá rofar til á milli hríða
Þú ert friðurinn á milli stríða
Svo kemur þú.
Þér fylgir jafnan logn og blíða
sunnanátt og almenn þíða.
Þótt ég biðji um nýja veðurspá
er ekkert víst að úr henni rætist.
Ég er áhugasamur um eigin gróður
en hef þó aldrei verið veðurfróður
Lægðirnar sem leggjast á mig
koma í veg fyrir að ég kætist.
Þegar dagurinn verður aldrei bjartur
og hugurinn orðinn bikarsvartur
eins og óbotnaður fyrri partur,
órímaður.
Svo kemur þú.
Þá rofar til á milli hríða
Þú ert friðurinn á milli stríða
Svo kemur þú.
Þér fylgir jafnan logn og blíða
sunnanátt og almenn þíða.
Það á ekki af honum að ganga honum Becks mínum. Hver glyðran af fætur annarri að gorta sig yfir því að hann hafi hamrað þær. Tjah ég myndi líka fara í viðtal fyrir 60 mills og segjast hafa reeðið Angelinu Joilee. Nei, annars myndi ég aldrei gera henni Angie minni það. Eníweis þá segir Loos glyðran núna að hún geti sagt um einhver kennimerki á Becks sem einungis kellingar sem hafa átt í ástarleikjum við hann geta vitað um. Jæja já, þarna geri ég ráð fyrir að hún sé að tala um tettlenginn á kauða. Það er auðveldlega hægt að húkka svoleiðis upplýsingar upp. Hafa samband við einhverja gamla kærustu hans og bjóða henni 10 mills fyrir að segja frá einhverju kennimerki á tettlengnum á honum, þ.e. hvort hann sé lítill eða stór, eða eins og gúrka eða banani, hver veit. Ég veit allavega að ég stend með honum Becks í þessu máli. Stattu þig strákur.
Jámm páskarnir búnir og voru þeir með rólegra móti. Korteri áður en Sugabeibs tónleikarnir byrjuðu á Skírdag hringdi #15 í mig og bauð mér með sér (skilst að mjög stór hluti af miðunum hafi verið gefnir en sel það ekki dýrara). Sharkinn sló til og mætti í Höllina og slóst í hópinn með þúsundum 14-15 ára stúlkna sem kepptust um að vera í sem minnstum, þrengstum og fæstum fötum.. djæsess kræst. Eníveis þá loks mættu þær á sviðið og tóku nokkur lög. Alveg ágætis poppsmíðar svo sem og allt það en sjóið var lítið sem ekkert og þær gerðu lítið annað en að veifa höndunum.
Sharkinn lét sér þó nægja klukkutíma af prógraminu þeirra og hélt þá heim á leið að æfa pikköpplínur á útlensku. Tískunni hafði nebblega hlotnast 2 miðar í "privat aftershow" eins og stóð á miðanum, eða bara einkapartæ og þar átti að láta ljós sitt skína og fá númerið hjá frægri poppstjörnu. Nú það er skemst frá því að segja að þetta var eitt það glataðasta partæ sem undirritaður hefur farið í. Haldið á Mojitos og þegar komið var þarna rúmlega 11 þá var nú slatti af fólki þarna, engin tónlist í gangi og einn bar opinn, þar sem ýmist vour 1 eða 2 að afgreiða á. Svo tífaldaðis mannfjöldinn og það var stappað þarna og einungis borð og stólar fyrir brotabrot af fjöldanum. Restin stóð samanþjöppuð eins og hrúga af villisveppum. Svo loks sáum við eina þeirra (þessa mexíkönsku) mæta í fylg 5 300 punda lífvarða og var henni fylgt beinustu leið inní eh einkaherbergi sem var rammgirt vaxtarræktarsteratröllum.
Nú við Tískan létum þetta ekki á okkur fá og ætluðum að heilsa upp á stúlkukindina, og Sharkinn þess fullviss að ná að fara í sleik á almanna við celebrity at last. En nei þá var engum hleypt inn nema bandinu og kannski Bo, ef hann hefði verið á svæðinu. Það var útilokað að nálgast þær og því létum við þetta gott heita eftir nokkrar skvettur af G&T og hunskuðumst út. Já þetta var ekki ferð til fjár.
Svo fékk maður lyklavöldin af Glyðrugrandanum á laugardag, og ekki var það verra. Nú er bara að gera og græja næstu daga og svo flutt inn á allra næstu dögum. Ó fargans já.
Jamm kvittað undir í gær, Flyðrugrandi 2 er svona mestmegnis að færast undir Sharkinn, hægt og öruggleg. Getur farið að kallast Glyðrugrandi eftir nokkra daga. Og fæ sennilegast afhent á laugardag. Æjæjæ hvað það særir, þau sem höfðu alveg tíma til 1.maí að tæma. Ohhhhhh.