Óttalega lítið í gangi eitthvað. Vor, snjór, vor, snjór.... ég meina sjammáán. Er sumarið komið og farið barasta? Skamm Kári, skamm skamm.
Fundur hjá Veiði- og lionsklúbbnum Smaart í kveld. Læna upp veiðiferð í sumar,... hólí mólí. Þetta eru með betri ferðum sem til eru, svo einfalt er það.
Pístlarsaga Krists tekin á þetta í gær. Óhætt að segja að mar hafi dæst við á stundum, vægast sagt brútal atriði þarna úfff. Hreinlega veit það ekki með þennan Jesú dúd. Tjah ekki er ég allavega bókstafstrúarmaður. Nú fer ég að lesa biblíuna í eitt skiptið fyrir öll. Hvað er annars málið, ekki getur maður valið hverju maður trúir um hann og hverju ekki. ""Uhhm ok, ég trúi því hann hafi læknað blindan mann (með því að skafa stýrurnar úr augunum á honum) en ég ætla ekki að trúa að hann hafi breytt vatni í vín"". Allavega þá fer biblían á borðið hjá mér á næstu dögum. Myndin,, tjah, gef henni 2 stjörnur.
Af steinbítnum. Ekki nóg að hann sé týndur, þá er hann með skæting og leiðindi og fer með fleypur þegar hann syndir úr ástarhreiðrinu af og til. Hvaða fiskar eru það aftur sem skipta um kyn?? Eru það ekki örugglega steinbítar?? Nei mér er spurn.
30.000 gesturinn rauk í gegn eins og eldibrandur og skyldi ekkert eftir sig nema reyk og ómerkta slóð. 40.000 gesturinn fær því þau veglegu verðlaun að vera gestapenni á Sharknum.
Angelina Joilee dreeeeptu mig ekki kona. Sáuð þið hana hjá Jay Leno í gær. Ohhhh Amor því vinnur þú svona á mér fjandenn. Svo er hún ekkert að fara í felur með að hún sé með nokkra í takinu, já bara svona til að reeeða. Ánægðir þarna þið??
Aðeins af Steinbítnum. Nú er hann gjörsamlega búinn að brenna allar brýr að baki sér. Hvorki svarar símtölum né hringir til baka, sama hvað mar reynir. Held hann hafi gefið námið uppá bátinn líka, til þess eins að sinna tilhugalífinu. Það verður gaman að sjá þegar hrygnan dömpar honum, þá stendur hann einn, snauður og vinafár. Vel gert Steinbítur, virkilega vel gert.
Góðvinur minn Fabian Barthez ætlar að sjá um Púlarana í kveld. Go you french cunts.
Þrjátíuþúsundasti gesturinn dettur inn í dag eða á morgun. Sá sem getur fært sönnur fyrir því að vera sá heiðursgestur, fær að skrifa gestapistil á Sharkinn takk fyrir og góða ferð.
Jamm búnað heyra Júróvisjónlagið. Sagði nú við einhvern um daginn að ég héldi að RUV væri að veðja á vitlausan hest með því að senda Jónsa þarna út. Bæði, þá hef ég aldrei haft mikið álit á þessum manni sem söngvara og líka, þá virkar hann ofvirkur og nett samkynhneygður á margan manninn og ekki tel ég það vera þjóðinni til framdráttar í keppni sem þessari. Eníveis þá heyrði ég lagið, sem er bara hin fínasta ballaða, kannski eiginlega túmöts ballaða, jámm ballaða ala Celeine Díon if jú nó what æ mín. Kannski venst það, kannski ekki. Textinn fór óheyrilega mikið í taugarnar á mér þar sem klisjan endalausa, you og blue rímingin, er í hávegum höfð. Svo finnst mér þetta reyndar drulluflott flutt hjá Jónsanum og ég skal lofa að endurskoða afstöðu mína gegn þessum manni sem söngvara, ef hann nær screamer-unum í laginu fölsknalaust í Miklagarði. Helst til mikil stúdíólykt af þessu, en hann hefur tækifæri á að sanna annað blessaður.
Jámm, greinilegt að ég á óvildarmann/konu í netheimum. Í kommenti við "Meira um Dagný" er ég kallaður heimskt grey. Þykist ég nú eiga það góða vini að þeir kalli mann seint heimskan. Geri ég því ráð fyrir að þetta sé einhvur sem ég þekki ekki, eða allavega lítið. Það breytir því ekki að ég er alveg búinn að læna þetta upp og skilgreina þessa kellingu. Mjóa kellingin er að mínu mati ekki mjó, heldur feitlagin kvenmaður eða svokölluð Rjómabolla. Leiðinlegt fyrir hana. Ráðlegg henni að fara að ráðum Dagnýar. Ráðlegg henni líka að dissa ekki Sharkinn á heimasíðunni hans, það endar bara á einn veg.... illa.
Hér getið þið svo fylgst með dagbók Dagnýar. Mæli sérstaklega með degi 6, þar sem hún tekur nammidaginn, tjahhh sannarlega með trompi og engum afslætti.
Eins og fram kom hér um daginn þá fann Steinbíturinn sér hrygnu. Tilhugalíf steinbíta ku vera frekar harkalegt. Fyrst synda hængurinn og hrygnan saman og safna sjávafangi og þara og einhverju álíka veseni og bjóða hvort öðru. Þessu má líkja við fyrstu bæjarferð hjá mannfólkinu, þar sem maðurinn býður konunni uppá kaffi eða kleinur eða jafnvel rjómabollu.
Því næst synda þau niðrá mölgrýttan botn þar sem hængurinn spænir upp mölina til þess að hafa aðstæður sem bestar. Þessu má líkja við þegar maðurinn og konan fara heim og tæta ábreiðuna af rúminu.
Þá gerist nokkuð merkilegt. Hængurinn gerist nokkuð ágengur og hrygnan flýr undan. Það varir í stutta stund, því hængurinn nær henni og læsir skoltinum í hnakkadrambið á henni, svo hún geti sig hvergi hreyft. Þá hrygnir hún í botninn og hann smúlar svilum sínum yfir. Því næst rótar hængurinn möl yfir allt gúmelaðið og þau synda í sitt hvora áttina. Þessu má lýsa þannig að þegar maðurinn er orðinn keng hólkaður, æsist hann mjög og gerist kannski full ágengur. Konan hefur gaman af og lætur hann elta sig. Hann nær henni fyrir rest og tekur steinbítstakið svo hún getur sig hvergi hreyft. Leikar standa í 2-3 mínútur. Þá fer maðurinn út.... án þess að kveðja.
Steinbíturinn er hættur að svara símtölum eftir að hann kynntist hrygnunni. Hann hvorki svarar né hringir til baka. Hvað þýðir það??
Jámm, þá er það klárt. Lee að kaupa í KR hverfinu, ómæ ómæ. Afhending síðasta lagi 1.maí, er að vonast eftir að fá hana um 20 apríl. Innflutningspartæ uppúr miðjum maí. Tjah jafnvel Innflutnings/júróvisjónpartæ hvur veit.
Eníveis þá er lýsingin í stuttu máli þannig.
Tæp 60 fm efsta hæð með 20 fm svölum og gufubaði á þakinu.
Enser: ánægður? Enser: þær eru hættar við Gylfi Steinn: eh? Gylfi Steinn: þær hverjar? Enser: nú beibsin gilli (Sugababes, innsk. Lee)
Gylfi Steinn: haltu rassgatskjafti Enser: www.mbl.is/folk Gylfi Steinn: það er ekkert þarna Enser: veitða Enser: smá léttasláttur í morgunsárið bara Gylfi Steinn: ohhhhh Gylfi Steinn: eshól Gylfi Steinn: fékk fyrir hjartað skoo
Já, svo virðist sem síðuhaldari Haglabyssunnar aka. Steinbíturinn sé sestur í helgan stein. Ekki hefur heyrst múkk frá honum í dágóðan tíma og er það sárt. Gárungarnir segja að hann sé á kafi í vinnu sem aðstoðar-lektor. Aðrir segja að hann sé að finna sjálfan sig og enn aðrir segja að hann sé hreinlega genginn út, já kominn á fast. Þær heimildir virðast við fyrstu sýn nokkuð áreiðanlegar. Ef svo er þá má ýmislegt týna til sem mun teljast kostur. T.d. kynlíf á hverjum degi og ..... öhhmmm, já þá er það upp talið. Gallarnir eru þeir að ekki hefur hann lengur tíma fyrir skrif á Haglabyssunni og allur knæpudólgur virðist farinn úr honum. Það særir.
Eftir stendur minning um góðan dreng. Já þennan hérna dreng.
mars 09, 2004 ::: ´cause it is... crazy focking weather yeah yeaahhh
Þvílíkur hroðbjóður sem þetta veður er. Á þetta engan enda að taka fajandenn.
Held ég sé tábrotinn eftir boltann í gær, alveg hreint frábært.
Allavega var helgin góð og róleg. Dottið íða í hádeginu lau og sun en pollaður bæði kveldin.
Survivor í gær, ahahhaah drottinn minn eini. Þið sem fylgist með þessu hafið séð fimmtuga hommann sem var kosinn út síðast og var alltaf á delanum. Einhver kellingin þarna var alveg kreisí í gær og sagði að hann hafi misboðið henni á kynferðislegan hátt og ákvað að hætta í leiknum og súa hann um 10 milljón dollara takk að mér skilst. Ahahahahha. Svo kom ekkert fram hvað hann hafði gert, hún sagði bara að hún hafi verið niðurlægð og eitthvað. Ég meina sjammón, hann er búinn að vera að flagga delanum á sér allan þennan tíma framan í alla. Þetta er bara feministasokkabuxusteik. Sem gafst upp á leiknum. Biyatchhhh.
Skrifaði pistil hérna fyrir ca. ári síðan þar sem ég var að dissa að mennt væri máttur. TJah ég tek það til baka hér með. Átt helmingi betri möguleika á góðu lífi með menntun á bakinu, það er bara fact. Já það er bara margt í mörgu þessa dagana. Stórir hlutir að gerast.. ó já.
leiðinlegasti þáttur, er þátturinn Landsins snjallasti, með Hálfdáni djúpu laug. Ómægod hvílík hörmung sem þetta er, kjánahrollur niður eftir mænu takk.
leiðinlegasta lag er nýja lagið með Jóni Sig úr Ædol. Aaargghgh, þýðing á Words, heitir nú Ást og er eitt allra versta lag sem ég hef heyrt lengi. Bæði texti og flutningur glatað, eins og hann fór nú ágætlega með þetta í keppninni. Gaman að sjá hvað Ausa pönk, Jóna-aðdáandi, segir við þessu.
flottasta tungl er Hunangstunglið, komið í bikarinn og sísonið að byrja á sunnudag. Yeahhhh.
lélegasta brandarakeppni er á Sharknum. Biðst afsökunar á því, stendur til bóta.
Já það hljóta að vera ljótar leikkonur, þ.e. náttúrulega ófríðar konur sem eru í leiklist. Nú er það í tísku hjá flottu leikkonunum að þyngja sig og gera ljótar fyrir einhver hlutverk, svo þær séu nærri óþekkjanlegar. Svo verða þær slimm og flottar aftur á eftir, sbr. Charlize Theron sem fékk óskarinn núna. Geðveikislega flott pía sem þyngdi sig um 15-20 kg. fyrir hlutverkið og gerði sig sjabbí. Allar þær ljótu leikkonur sem sóttu um þetta sama hlutverk, hljóta að vera foj í dag. Var það ekki svo líka í fyrra að Nicole Kidman vann fyrir eh hlutverk þar sem hún var fokljót og með langt nef?? Held að akademían sé að missa það yfir þessum útlitsbreytingum. Vorkunnsemi mína fá þessar sem teljast í óheppnari kanntinum í framan og eru að reyna fyrir sér í leiklist. Nú munu allar vel lúkkandi leikkonur leitast eftir að fá svona hlutverk til að vera ljótar í og eitthvað vesen. Náttúrulega ljótar leikkonur fá ekki hlutverk flottu leikkvennanna á móti, það er alveg ljóst, nema með miklum tilkostnaði. Þetta hlýtur að særa. Ljótar leikkonur verða því bráðlega útdauður ættbálkur. Ójá.