Svör við Pælingum!
Myndir
Afmæli Lee
Tarfagleði 2003
Hunangstunglið
Complex
Gee-Huzzl
VIP
Haglabyssan
Youngmen
Brekkan



Apríl 2004
Mars 2004
Febrúar 2004
Janúar 2004
Desember 2003
Nóvember 2003
Október 2003
September 2003
Ágúst 2003
Júlí 2003
Júní 2003
Mars 2003
Febrúar 2003
Janúar 2003
Desember 2002
Nóvember 2002
Október 2002



febrúar 25, 2004 :::
 
Myndabanki

Var að henda inn myndabanka, hérna vinstra megin. Eitthvað fokkast upp gæðin á myndunum þegar ég hendi þeim inn, en best er að gera þetta þannig að fara inní albúmin og klikka á fyrstu myndina. Klikka svo aftur á hana (fer þá í þá stærð sem gæðin verða betri, sumar hjúds sko fj...) og nota svo örvarnar uppi hægra megin til að fara áfram. En þetta ætla ég að fixa hið snarasta. Drasl. Vantar forrit til að minnka myndirnar hérna fjandenn.

Lee

::: posted by Lee at 17:06


 
And another

A huge muscular man walks into a bar and orders a beer. The bartender hands him the beer and says, "You know, I'm not gay but I want to compliment you on your physique, it really is phenomenal! I have a question though, why is your head so small?"
The big guy nods slowly. He's obviously fielded this question many times. "One day," he begins, "I was hunting when I got lost in the woods. I heard someone crying for help and finally realized that it was coming from a frog sitting next to a stream." So I picked up the frog and it said, "Kiss me. Kiss me and I will turn into a genie and grant you 3 wishes." So I looked around to make sure I was alone and gave the frog a kiss. POOF! The frog turned into a beautiful, voluptuous, naked woman. She said, "You now have 3 wishes." I looked down at my scrawny 115 pound body and said, "I want a body like Arnold Schwarzenneger." She nodded, whispered a spell, and POOF! there I was, so huge that I ripped out of my clothes and was standing there naked! She then asked, "What will be your second wish?" I looked hungrily at her beautiful body and replied, "I want to make sensuous love with you here by this stream." She nodded, laid down, and beckoned to me. "We then made love for hours!" Later, as we lay there next to each other, sweating from our glorious lovemaking, she whispered into my ear, "You know, you do have one more wish. What will it be?" I looked at her and replied, "How about a little head?"


Bwuahahahahahah, þennan kann lee að meta.


::: posted by Lee at 15:50


 
Einn til

Kínverjinn hringir í vinnuveitandann og segir: -"Ég ekki koma í vinnu, ég veikur."
Yfirmaðurinn svarar: - "Þegar ég er veikur, þá r** ég konunni minni og þá lagast ég, þú ættir a prófa það."
Eftir tvo tíma hringir kínverjinn: - Þetta virka, ég koma vinna, þú eiga flott hús!!!


JOK

::: posted by Lee at 10:57


 
Fyrstu gamansögurnar dottnar inn

Já, fólk ekki lengi að taka við sér í gleðinni. Bárust strax um hæl 2 sögur og vil ég hvetja sem flesta að senda inn hingað ->Brandarakeppni.

Verðlaunin verða í glæsilegri kantinum, en þau verða á svipuðu kalíberi og voru í ljóðakeppni Mr.Lee hérna um árið. Skúti Rustikus getur botnað allt um það.

Hér koma fyrstu tvær gamansögurnar, undir dulnefni.

Jónas og Magga eru sofandi þegar allt í einu heyrist bankað á dyrnar hjá þeim. Jónas veltir sér við, og lítur á klukkuna: hún er hálf fjögur. "Ég ætla sko ekki að fara á fætur á þessum óguðlega tíma," hugsaði Jónas og hallar sér aftur. Þá er aftur barið og nú fastar en áður. "Ætlar þú ekki að fara til dyra?" spyr Magga. Svo Jónas drattast framúr og að útidyrunum. Hann opnar og þar stendu rmaður, greinilega mjög drukkinn. "Góða kvöldið," drafar sá drukkni. "Mætti ég biðja þig um að ýta mér dálítið??" " Nei, farðu til fjandans. Klukkan er hálf fjögur. Ég var sofandi!" segir Jónas og skellir hurðinni aftur. Hann fer upp í rúm og segir Möggu hver þetta var. Magga segir "Þetta var nú ekki sérlega kurteislegt af þér. Manstu kvöldið þegar bíllinn okkar bilaði í rigningunni og þú þurftir að banka hjá manninum og fá aðstoð við að koma honum í gang aftur? Hvað heldurðu að hefði gerst ef hann hefði sagt þér að fara til fjandans?" "En hann er blindfullur," mótmælir Jónas. "Það skiptir ekki máli," segir Magga. "Hann þarfnast hjálpar og það væri ómannúðlegt að bjóða honum ekki aðstoð." Svo að Jónas neyðist til að klæða sig og fara fram. Hann opnar dyrnar, en þar sem hann sér ekki manninn, þá kallar hann. "Hey, viltu ennþá láta ýta þér?" Og hann heyrir rödd sem drafar "Já takk!" Jónas getur enn ekki komið auga á manninn, svo hann kallar "Nú, hvar ertu þá?" Og maðurinn svarar "Ég er hérna í rólunni þinni."

Hawk
....

Ég er með skemmtisögu af vini mínum honum Secca, þannig er mál með vexti að ég var eitt sinn staddur í sundi með Selnum síkáta og öðrum góðum manni eftir 3 daga drykkjutörn á Hallveigastígnum sáluga. Nú allir lágum við í disknum sem allir þekkja og það gerist svo eftir dulitla stund að tvær 19 stúlkur á bikiníum labba framhjá (við erum að tala um kroppa og masssa sætar) og þessu tekur selurinn eftir. Selurinn snýr sér að þeim, með hárin á öxlunum og móðuna á gleraugunum og segir þessa gullnu setningu " Halla stelpur, egiði nokkuð segó"

Djonní Kokksökker




::: posted by Lee at 09:14



febrúar 24, 2004 :::
 
BRANDARA- OG SKEMMTISÖGUKEPPNI SHARK LEE

Já það er komið að því. Brandara- og skemmtisögukeppnin er hér með formlega sett. Það eina sem þið þurfið að gera kæru lesendur er að senda mér brandara eða skemmtisögu og hafa það undir dulnefni. Ekki skal setja brandarann í kommentakerfið, heldur mun ég birta þá á síðunni þegar ég fæ þá senda.

Þetta skal sendast hingað Brandarakeppni

Reglurnar eru einfaldar. Nú á næstu dögum mun ég taka á móti skemmtisögum og bröndurum og einnig tilkynna hvunær deadline er á að senda inn. Mun ég svo hafa könnun sem mun hafa 45% vægi á móti skoðun Sharksins á bestu sögunni eða brandaranum.

Verðlaunin verða stórglæsileg en þau verða tilkynnt síðar.

Lee

::: posted by Lee at 13:47



febrúar 19, 2004 :::
 
Styttist í brandarakeppni Mr.Lee

Jámm, nú fer að styttast í brandarkeppni þessarar síðu, þar sem glæsileg verðlaun verða í boði. Nánar útlistað síðar, en á meðan er hér einn góður:

Íslendingur, Englendingur og Skoti sitja saman á bar í Ástralíu. Útsýnið er frábært, bjórinn frábær og maturinn æðislegur.

"En," segir Skotinn, "pöbbarnir heima eru betri. Í Glasgow er lítill bar sem heitir McTavish''s. Barþjónninn þar gerir vel við fastagestina og fimmti bjórinn er alltaf ókeypis."

"Jæja," segir Englendingurinn, "á hverfisbarnum mínum, Tonys, þá er þriðji hver bjór frír."

"Það er nú ekkert," segir Íslendingurinn. "Heima í Reykjavík er bar sem heitir Blásteinn. Um leið og þú stígur fæti inn fyrir dyrnar er þér boðið upp á bjór.. og annan... og annan. Eins mikið og þú getur í þig látið. Þegar þú ert búinn að fá nóg af bjór, þá er farið með þig upp þar sem þú færð nóg að ríða. Allt í boði hússins."

Englendingurinn og Skotinn horfa vantrúaðir á Íslendinginn, en hann sver að þetta sé dagsatt. "Nú..," spyr Englendingurinn "kom þetta fyrir þig í alvörunni?"

"Ekki mig persónulega," segir Íslendingurinn. "En þetta kom fyrir Sallý systur..."

Lee


::: posted by Lee at 15:59


 
Lee farinn yfir móðuna miklu??

Tjah samkvæmt nýjustu fréttum þá er ég död.

Takk fyrir það.

Lee

::: posted by Lee at 12:42



febrúar 13, 2004 :::
 
Hlustendaverðlaun FM 957

Jámm, horfði á þetta í gær með öðru. Gæti tekið vænan pistil en ætla að hafa þetta í punktaformi. Ekki það að ég hafi eitthað á móti Fm-hnökkum eins og það er kallað og þessi framkvæmd í gær var bara til fyrirmyndir, það er bara sumt sem kjánaði mig og ég áttaði mig ekki á.

1. Unglingaskari hafður fyrir framan sviðið þar sem böndin voru að spila. Stóðu þarna 30 hræður að dilla sér og læti. Ég meina ekki var verið að leita eftir ballstemmningu, þetta var verðlaunahátíð fjandenn hafi það.

2. Böndin sem spiluðu voru flest slök að mér fannst. Nema náttúrulega Jagúar. Þessi lög sem þessi "heitustu FM bönd" voru að spila voru beinlínis leiðinleg og ekkert sérlega vel flutt. Sá reyndar ekki Quarashi. Idol skipperinn kom og tók eitt lag þarna og stóð sig lang best, besti söngvarinn þarna á svæðinu klárlega.

3. Uppfylling. Ég meina sjammón. Í flokknum besta söngkonan var Íris í Ber tilnefnd. Ég man bara ekki eftir að hafa heyrt í þessu bandi í 1-2 ár. Nema kannski eitt lag í sumar. Þarna er greinilega um uppfyllingu að ræða. Hlustendur FM 957 þekkja einfaldlega ekki nógu mikið af söngkonum. Sjammón hér.

4. Jónsi og hans band MIB voru sigurvegarar kvöldsins. Unnu eh 5-6 verðlaun. Það kjánaði mig til dauða að sjá svipinn á Jónsa þegar var tilkynnt í hvert sinn um verðlaunin. Fyrst setti hann upp drama lúkkið (ég á etta ekki skilið lúkk), svo hristi hann hausinn og svo tók hann hæperaktívasitteðliegalúkk. Ohhhh. Með dramalúkkið vil ég segja eitt. Gera þessir menn sér ekki grein fyrir því að þeir sem kjósa þessi verðlaun eru að lang mestu leiti unglingar. OK virðingarvert að fá þessi verðlaun og allt það, þetta er nú líka markhópur, en aðeins að slaka sér hérna.

5. Pétur Jóhann fannst mér sniðugur og framkvæmdin mjög góð. Mér finnst bara þessi bönd einfaldlega slök og kann að jafnaði lítið að meta músíkina þeirra. En svona breytast tímarnir. Þetta vill unga fólkið í dag. Maður er að vera hundaður hérna. Þeim finnst Jónsi vera betri en Stebbi, MIB vera betri en Sálin og Love Gúrú besti nýliðinn. Jámm, af hvurju ekki að kalla þetta bara Krakkaverðlaun FM 957.

Lee

::: posted by Lee at 10:53



febrúar 11, 2004 :::
 
Hljóp á mig

Já var víst búinn að lofa Tísku Gilla á skjánum í gær í Smart & lekkert eins og hann kallar það. Vala og co. sáu sér ekki fært að henda honum og frú inní þáttinn í gær, en það er komin tímasetning á þetta. Næsti þriðjudagur kl.21 á skjá einum. Þá mun Gilli taka á móti Völu og sjarma hana uppúr skónum. Sameinumst sjónvarpssjúklingar. Smart & Lekkert í næstu viku, ekki gleyma því. Mun vera með rímænder á þetta.

Meira af skjá einum. Hvað gengur þeim til, hreinlega eru að drepa mig úr kjána með auglýsingu dagsins. Engin önnur en Sirrý á heilsíðu auglýsingu í mogganum, klædd upp eins og Uma Thurman í Kill Bill, með samúræ sverð og læti. Og þetta á að vera töff sko. Það er naumast sem markaðsdeildin hefur nóg af seðlum, heilsíður í mogganum trekk í trekk.

Þess má nú geta að það eru tveir menn, sem ætla að reyna nýja taktík á næstunni. Skrá sig í áhorfendahóp í þættinum hjá Sirrý, þar sem 90% áhorfenda í sjónvarpssal er kvenfólk, og heilla þær hverja af annarri. Góð vinna það, virkilega virðingavert drengir.

KA-Víkingur í kveld, undanúrslit bikarsins. Úff, KA menn gríðarsterkir þessa dagana. Vonast eftir toppleik hjá mínum mönnum og við vinnum 27-29. Þeir sem spá rétt fá sem fyrr kollu frá Lee.

Lee



::: posted by Lee at 10:07



febrúar 10, 2004 :::
 
Kjáni, Gleðikona, Durgur

Horfði á Grammy í gær. Úff ef ég fékk ekki einn þann grimmasta kjána sem ég hef lengi fengið. Kristína Agílera var að syngja lagið I´m so beautiful, á hnjánum svoleiðis berjandi á brjóstið á sér, hjartað sko og segja hvað hún sé falleg. Úfff, ekki nóg með það þá er hún fokuð í kaupbæti. Ánægður samt að sjá Prince þarna, djöflast um þarna á sviðinu 140 cm dvergurinn sem hann er, alveg magnað.

Gleðikona vikunnar er nýtt. Ákvað að stofna þennan lið þegar ég var að lesa Moggann áðan. Tjah ég mæli með að þið flettið á bls.7 þar eða smellið hér. Tjah þar er sem sagt þessi mynd af ungfrú smart & lekkert, Völu Matt, uppástríluð eins og glamúr gleðikona from ðe 40´s. Nóta bene, þetta er heilsíðuauglýsing í Mogganum og þar er þetta helmingi verra en hér á netinu. Pjúfff. Þess má nú til gamans geta að Tískan sjálf verður gestur Völu í kveld. Já aðeins á Skjá einum kl.21. Þetta er ekki grín.

Durgurinn verður að vera einn gaurinn í Survivor, sem drepur mig. Sá aðeins þáttinn í gær og þá er gamall skarfur, sem tætir sig úr öllum fötunum alltaf þegar er keppni, vona reyndar að það sé bara þegar þau eru í vatni. Eníveis, þarna er hann allsber, flaggandi sínum 3 tommum í smettið á kellingunum Bwúahahahahahahahah. Svo faðmast þau eftir sigurinn allir saman og hann að klína sér utan í þau.... þetta er svo falleg vinna. Ungar skjátur þarna sem ég gæti trúað að séu ekki að meika hann. Þess má nú geta að það eru tvær í þessum þætti sem hafa komið fram í Playboy og er það vel. En durgurinn er vel að þessu kominn, það er ljóst.

Lee

::: posted by Lee at 16:35



febrúar 05, 2004 :::
 
Durgar vikunnar

Var að lesa á blogginu hjá Ausu Pönk eitthvað lesbíugrín, sem ég botna ekkert í. Allavegana þá minnti það mig á svoldið sem ég var búinn að gleyma að ég ætlaði að blogga um strax og ég kæmi heim frá Dansku.

Var frekar þreyttur þegar ég datt inní flugvélina á Kastrup eftir 3 tíma lestarferðalag og nokkuð vel þétta skjálftavakt nóttina áður. Fer snemma inní vél og sé heldur betur fyrir mér að sofa á leiðinni heim. Fæ sæti við ganginn og rígheld svoleiðis í vonina um að sætin fyrir innan mig yrðu ómönnuð. Sá draumur varð fljótt úti því innan skamms birtust tvær kellingar, beyglur á miðjum aldri með þetta týpíska "égerlesbíaverðaðflýjatilköbenþvíenginnkannvelviðmigáíslandi-lúkk". Þið vitið svona stutthærðar, vel óheppnar í framan með gleraugu og frekar grannar. Jæja fjandinn hafi það hugsaði ég og lét þær hlamma sér. Var ekki lengi að fá grun minn staðfestan, þegar, strax í flugtaki, önnur hreinlega var að skíta á sig úr hræðslu (sú sem var við hliðiná mér) og hin hélt í hönd hennar, strauk og kyssti og ég veit ekki waddevahh. Jæja ég hélt nú ró minni og ætlaði að taka nettan legg á þetta fyrir matinn. Eftir 7 mínútur byrjaði hún (þessi í miðjunni) að reyna að klifra yfir mig. Ég stóð upp og hleypti framhjá og stóð svo upp aftur þegar hún kom til baka eftir 5 mín. Til að gera langa sögu stutta fór þessi flughrædda við hliðiná mér 4 sinnum á dallinn og hin 2svar = Lee þurfti að standa upp 12 sinnum í þessari bloddí 3ja tíma flugferð. Já ég var foj. Ekki veit ég hvort þær fóru þarna inn til þess að klóra sér á peekunni eða hvað. Gæti nú trúað að þessi flughrædda hafi farið reglulega til að þrífa skítinn sem var kominn lengst upp á bak eftir flugtakið og hefur væntanlega logsviðið og brunnið undan. Allavega vona ég það. En þær verða að taka sér tak og eru hér með valdar durgar vikunnar.

Aldrei hef ég haft neitt á móti lesbíum. En af hverju gastu ekki góði guð haft þær ungar og foxí í þetta sinn. Þá hefði Lee splæst í öl og lengt ferðina um nokkra tíma.

Lee

::: posted by Lee at 16:09



febrúar 03, 2004 :::
 
Tæm flæs when jor hevin fön

Óþolandi alveg hreint þegar svona atburðir sem maður er búinn að hlakka til lengi eru á enda. Það var alveg hreint stórskemmtilegt í Árósum hjá Jilla, Hrönnsu og Júlían og þakka ég hér með kærlega fyrir mig. Er búinn að útlista nett hvurnig miðvikudagur og fimmtudagurinn voru. Á föstudag fórum við svo út að baarða, Lee, Jilli og Hrönn. Hrikalega góðar steikur, sem skolað var niður með öl, red og loks irish. Svo var haldið á einhvern púb, þar sem svo óheppilega vildi til að þar var tilboð á gini. Voðalega sárt þegar svolleis gerist. Nú svo var haldið í Karókí þar sem var tekið lagið, nokkrum sjússum skvett í andlitið á sér og svo bara komin heim um kl 3.

Laugardagurinn. Ómægod, þvílík snilld. Mættir á pöbbinn kl.14. Horft á nokkra leiki og ófáum öl skolað með. Svo var mens night out partæ hjá Jilla. 11 fullvaxta tarfar sameinuðust í því sem þeir gera best, drekka brennivín. Orð frá þessum atburði ná engan vegin að fanga þá stemmningu sem þarna var, þannig að myndir sem birtast hér á næstunni, munu segja allt sem segja þarf. En þetta var M A G N A Ð.

Nú er Lee sem sagt kominn heim og græt ég það. Jámm, tæm flæs when jor hevin fön.

Tak for mig, kære familie på Stavnsvej 136.

Lee

::: posted by Lee at 13:48