janúar 30, 2004 ::: Bakkus, sá forni fjandi, sleppir ekki takinu
Jámm góðir gestir, það er einn maður sem er búinn að bjóða upp í dans hér í Danaveldi, Bakkus heitir sá. En svo það fari ekki á milli mála þá verður sá dans stigin til enda, enda annálaður á gólfinu sem Lee er.
Hér er búin að vera mikil gleði, þvílíkt fansý dinner í gær að hætti Hrönnsu Skara og Jilli Haffa stóð vaktina við blenderinn og það gerði hann gríðarlega vel. Nokkrir kokteilarnir fuku ofan í barkann á manni á mettíma og var stanslaus gleði á okkur þangað til einhverntíman í nótt. Um klukkan tvö virtist vera kominn óeðlilega mikill bassi í músíkina, en þegar svo betur var að gáð þá var þetta granninn á efri að hamra í gólfið með kúst eða höggbor. Ekki voru nú lætin mikil en hann var að eipa þarna uppi og öskraði einhver ósköp. Það skipti engu því það var á útlensku og Lee skildi ekki neitt og Jilli hækkaði í græjunum. Well dön það.
Er farinn í löns, 130% líkur á að ein ísköld kolla fylgi með, 120% líkur á að þær verði tvær.
Já kæru lesendur, þetta er ekki flóknara en það að Danaveldið er fallið. Mr.Lee er mættur í fang Jilla Haffa og fjölskyldu. Þessi mynd segir allt um það.
Þessi hér og líka þessi segja allt sem segja þarf.
janúar 27, 2004 :::
Já það er óhætt að segja að strákarnir okkar hafi gert í brók þarna í Slóveníu maður lifandi. Eitt orð varðandi það, eiginbarmalítingur, það er ekki flókið.
Næsta mál á dagskrá er hins vegar það, að stefna á landvinninga. Eftir rúman sólarhring sit ég í Leifsstöð með öl í annarri og Srew driver (ala secci) í hinni. Jámm, Danmörk er það heillin, 5 daga túr í landi okkar fyrrum konungsríkis. Ég vil kalla þetta Hilmir snýr heim, því skv. Íslendingabók þá er ég réttur arftaki dönsku krúnunnar. Jejejejeeeee. Þarna verð ég í góðu yfirlæti Jilli Haffa, Hrönnsu Skara og Júlíans Haffa og það verður sjálfsagt skálaði í einum tveim. Óójáá.
Jámm, held ég vitni bara í bóndafærsluna mína frá því fyrir ári síðan:
Bóndadagur í dag. Ég er ekki bóndi á nokkurn hátt. Ekki bý ég útí sveit með mitt bú, enda væri ég kafnaður þá sökum ofnæmis, og ekki á ég konu, þannig að þessi dagur kemur mér í raun ekkert við og ég míg á hann. Vona samt að bændur nær og fjær fái sitt í dag, og þá vitiði hvað ég meina fjaaanndeeennn.
Til lukku með daginn kæru bóndar, látiði nú konur ykkar fara í vinnuna í tilefni dagsins.
Já, skrambinn stórtap í gær. Sá bara seinni og þar var heldur betur skitið í brækurnar, spurning um að fá Pampers sem styrktaraðila barasta. En það var greinilegt að taugastríðið tapaðist í gær og það er ekki gott. En við skulum vona að drengirnir girði sig í brók fyrir leikinn í dag við Ungverja. Laxi var hvað næst úrslitunum, með sigur hjá heimamönnum og réttan markamun meira að segja, en er ekki með skoruð mörk rétt. Þó vel gert hjá Laxa.
En við hengjum ekki haus og höldum áfram að veðja grimmt. Nú er það Ungverja leikurinn, algjör lykilleikur ef við eigum að eiga séns á einhverju fansý sæti. Það verður háspenna lífshætta í kveld það er ljóst. Ungverjar eru víst helvíti góðir (enda í 5. sæti á HM í fyrra), unnu Tékkana í gær með stæl og færir í flestan. Sharkinn er samt hvergi banginn og spáir sínum mönnum 32-29 sigri. Sami díll, kolla undir. Place your bets nooowww. Banzai.
Svo vil ég sjá kringlu, menn fara inn af demantnum, kokteilsósuna x-a, menn stimpla og taka rússa, kommmma svooo Ísland.
Jámm vil byrja á því að koma með rétta fyrirsögn úr S&H í gær: "Fyrirsætan Erna G. lamin í klessu - nýkomin úr brjóstastækkun" ahahahah jamm. Minnið aðeins að floppa í gær, en meiningin var sú sama fjandenn.
Tjah svo á heimasíðu hennar þá er linkur sem heitir djamm myndir (ekki hægt að linka á það fjandinn, þannig hunskist inná síðuna hér og tékki?). Vildi bara vekja athygli á törfunum sem eiga athygli hennar.
Svo er linkur sem heitir E-mail, tékkið á honum líka. Þar setur hún inn innsenda pósta til hennar, hvað hún sé frábær og allt. Bwuuuuahahahhahahahahahahahahah.
Jámm, herlegheitin byrja í kveld, stórleikur við heimaþjóðina Slóvena. Sharkinn býður öllum sem vilja að taka þátt í einum vinsælasta veðbanka á landinu. Leikreglur eru einfaldar, einn bjór lagður undir á hver úrslit. Ef þið giskið á rétt (markatölu að sjálfsögðu), þá splæsi ég kollu á ykkur. Ef ég giska á rétt, þá splæsið þið kollu á mig... comprende??
Sharkinn spáir sínum mönnum að sjálfsögðu sigri í kveld, lokatölur 26-31.
janúar 21, 2004 ::: Séð og heyrt hrós vikunnar og heimasíða vikunnar
Já um að gera að sameina þetta. Séð og heyrt hrósið fær Erna G., fyrirsæta nokkur. Kannski hvað frægust fyrir að vera dóttir hennar Ellý í Q for U. Splittar ekki diff. Jæja hún er semsagt framan á S&H með líka þetta fína glóðarauga ala Össi. Fyrirsögnin er eitthvað á þessa leið: "Erna G. kýld í framan - nýkomin úr silikonaðgerð". Bwuahahaha, þeir eru nú ekki hægt þarna á S&H. Virðingavert skúbb, engu að síður, Buffuð og nýbúin að dæla í belgina sína báða tvo sem ekki voru svo litlir fyrir skal ég segja ykkur.
Já hún er ófeimin við að sýna þá. Þar kemur nebblega heimasíða vikunnar til sögunnar. Það er einmitt síðan hennar Ernu G. þar sem má finna ýmsan fróðleik um þessa stúlku og myndir af henni á peeekunni, eins og af nöfnu hennar á sínum tíma.
janúar 20, 2004 :::
Já, það fór sem fór. Skipperinn vann þetta örugglega í Idolinu. Er búinn að vera með lagið sem Stebbi Hilmars og Jón Ólafs sömdu fyrir þessa lokakeppni á heilanum síðan. Allavega þá er hann vel að þessu kominn blessaður drengurinn. Akureyrarpían var söm við sig og maður fann bara hreinlega til með henni þegar hún var að syngja. Hólý sjæt. Allavegana svona 10-12 feilar í þessum tveimur lögum, það er ekki gott.
Næsta laugardag er árleg tarfagleði Bifrestinga. Keilumót, tekíla, Amigos og heljarinnar tjútt. Þar verður fjandans tekið á því það er deginum ljósara. Vann keilumótið 2002 en skeit í mig í fyrra og mun mæta eitursterkur til leiks núna. Tjah, maður fékk að finna aðeins fyrir tekílanu í fyrra eins og má sjá hér.
Annars er EM að fara í gang og fagna ég því. Tjah sú staða gæti komið upp að við lendum á móti Dönum í undanúrslitum laugardaginn sem ég er í Dansku. TJah þá verður allt gert kreisí það votta ég hér og nú. Þá mun ég fara inná danskan púb og öskra HÓÓHÓÓÓRRRUUUUUUURRRRRRRRRRRRR.
Veðbanki fer að sjálfsögðu í gang yfir keppninni og verður honum stýrt héðan heima fyrst en síðan frá Danaveldi í milliriðlum og úrslitum.
Þó er annar veðbanki að fara í gang, miklu mun meira spennandi og er hann í þróun núna og mun vera við lýði næstu 30 daga.
janúar 19, 2004 ::: Hjörtur og Bleiki Blazerinn - 5. kafli
“Það er að renna í pottinn” sagði Unni við Hjört þegar hann mætti til hans um kvöldmat á föstudagskvöldinu. Það var búið að láta allar flottustu píurnar í skólanum vita og fullt af öðru liði líka, þannig það yrði svaka partý í kveld. “Ég er að segja þér það Hjörtur, þetta verður alveg magnað þegar við verðum búnir að ná þeim allsberum í pottinn, já magnað segi ég”. Hjörtur hafði náð að stela einni vodkaflösku frá pabba sínum og Unni hafði fundið eitthvað brennivín í skápnum heima hjá sér, þannig að ekki myndu þeir verða uppiskroppa með brennsa, það var klárt. Drykkur kvöldsins var ákveðinn. Tvöfaldur vodki í appelsín.
Stuttu seinna kom Faxi Helgason á svæðið. Stór hrokkinhærður strákur sem var með þeim í Víking. Hann hafði fengið viðurnefnið “Foringinn”, vegna þess að hann var fyrstur af strákunum að fá hár á punginn á sínum tíma og var alltaf að sýna þau og telja fyrir framan strákana sem ennþá voru með eistun lengst uppí maga. “Eigum við ekki að fá okkur í glas strákar?” sagði Faxi. Þeir héldu nú aldeilis að svo væri. “Upp með brennivínið strákar, nú verður fjer í kveld”. Jámm, tvær vodkaflöskur, 4 lítrar af appelsín og salem lights var á borðinu. Partý ársins var að fara í gang.
Já úrslitin í kveld. Búinn að segja það í langan tíma að Skipperinn vinnur þetta, annað væri hneisa. Var svo að að sjá lagavalið áðan hjá þeim og líst ekki á blikuna. Hann tekur Mustang Sally, leiðinlegt lag að mínu mati og treystir á ráman rokkara á þetta. Það gæti fokkað þessu upp, fólk kannski ekki alveg að fíla það. Á meðan tekur Akureyrarskjátan Imagine með John Lennon. FLott lag og ef henni tekst loksins upp þá á hún jafnvel eftir að vinna þetta, sem ég er ekki að meika. 500 kallinn tekur Words með Bee Gees. Klassísk ballaða sem maður notaði nú sjálfur á sínum tíma með grííííðarlegum árangri (slær þó ekkert út I dont want to miss a thing). Það er eiginlega ekki hægt að reikna þennan mann út, svona wildcard, gæti þess vegna unnið þetta.
Eníweis, svona á þetta að fara. 1.Skipperinn 2.Jón Sig 3.Akureyri
Hræddur um að fari svona. 1.Akureyri 2.Skipperinn 3.Jón Sig.
janúar 15, 2004 ::: Hjörtur og Bleiki Blazerinn - 4. kafli
Hjörtur lét Unnar vita af sögum pabba síns daginn eftir, og báðir voru þeir komnir á það að nú væri þeirra tími, já það yrði sko riðið þessa helgi og loks komist þar með í fullorðinna manna tölu. “Djöfull verður gaman um helgina maður, brennivín, pottur og kellingar... úlúgaga” hlakkaði útúr Unna þegar þeir félagarnir voru á leið á æfingu í Víkingsheimilinu. Hjörtur var sammála, það yrði geðveikt stuð, þetta gat bara ekki klikkað. Það átti nú að bjóða félögunum úr Víking í partíið og öllum sagt að bjóða sem flestum stelpum. Allir tóku mjög vel í það, nema það heyrðist úr horninu, “djefullinn danskur, ég kemst ekki”. Þetta var hann Björn Viðar, snaggarlegur strákur úr Árbænum, sem þeir höfðu nýlega kynnst. Hann var búinn að plana annað og meira fyllerí og það átti sko að taka á því. “Já, ég var búinn að lofa krökkunum úr skólanum að taka ærlega á því með þeim, það verður svaka partý líka”. Strákarnir spurðu þá útí hvort hann væri búinn að redda sér víni og hvar partýið væri.
“Tjah, búinn að redda mér hálfum líter af landa og hef eina litla kók með. Svo verður bara haldið í Ártúnsbrekkuna”.
Vóóó, tæm át hérna. Sá restina af Íslensku tónlistarverðlaununum í gær og gott og vel með það. TJah svo kom söngatriði með þeim þremur sem eftir eru í Idolinu, sungu Ekkert breytir því eftir Sálina. Drottinn minn eini. Þetta var svo lélegt að það var ekki sniðugt. Þau voru hvert öðru lélegra. Heyrðist reyndar lítið í skippernum fyrst, akureyrin var bara söm við sig, þ.e. í ruglinu, og 500 kallinn, úfffff, var gaddavír vafinn um bolloxinn á honum maður lifandi, nei mér er spurn?? Þetta var pínlegt hreint út sagt og skömm að hafa þetta á þessum verðlaunum meðal atvinnumanna. Svo var lagið sytt um 2/3, þannig ekki veit ég alveg hvað gekk til. En lélegt var það, það botna ég hér og nú.
Eftir sléttar 2 vikur verð ég að vakna upp í Köben, mjög svo líklega örlítið ryðgaður af öl og ákavíti. Jámm miðvikudaginn 28.jan flýg ég út til dansku í smá gleðiferð...úúúújeeeeeeeeeeee. Nánar að því síðar.
Mér hafa borist þónokkrar spurnir varðandi skáldsöguna Hjörtur og Bleiki blazerinn. Það skal tekið hér fram að þetta er skáldsaga byggð á sönnum atburðum, óháð tíma og rúmi. Fyrir þá sem eru ekki skráðir í rithöfundasamband Íslands þá þýðir þetta það að einhverjir atburðir sögunni eru sannir aðrir ekki, gætu verið 10 og gætu verið 100. Einnig þýðir þetta það að þeir hlutir sem gerast í sögunni, þurfa ekki endilega hafa gerst á þeim tíma þ.e. fyrir 14 árum. Gætu allt eins hafa átt sér stað fyrir 2 árum. Söguhetjur eru byggðar á vissum manneskjum, nöfnum hefur verið breytt á flestum þeirra.
Eftir að hafa spjallað við Henný í smá tíma, varðandi bleika blazerinn og hreinlega verið að berjast við að halda hlátrinum inni, bað Unnar um að heyra aðeins í Hirti. Nú var gósenttíð. Settið hans Unnars var að fara útá land um helgina og Unni (en hann var kallaður Unni unk af einhverjum ástæðum) myndi því hafa einbýlishúsið útaf fyrir sig þessa helgina. Og það besta var, heita pottinn líka. “Nú skal potturinn fylltur af einhverjum flottum píum, við bjóðum þeim bara í partý, svo þegar líða fer á kveldið þá förum við í pottinn og segjumst ekki eiga neina sundboli, þannig þær koma allsberar oní með okkur. Yeeeaahhhh, þetta verður magnað”- sagði Unni í símann við Hjört. Hjörtur var orðinn spenntur í símanum og fann út undan sér að það var greinilegt að pabbi hans sensaði hvað var í gangi. “Heyri í þér á morgun” sagði hann í símann og skellti á Unna.
“Hva, bara partæ um helgina??” umlaði Bjöggi. “Þú ætlar kannski í bleika blazernum” hló hann útúr sér og Hjörtur skellti uppúr líka. En einni manneskju var ekki jafnt skemmt og þeim, Henný. Hún heyrði til þeirra. “Hjörtur fer ekkert í jakkann fyrr en í næstu viku., og hættið að gera grín að honum, þetta er smart blazer, alveg í tísku núna”.
Hjörtur var lagstur undir sæng, þegar pabbi hans bankaði. “Hva segirðu, bara partæ hjá Unnari um helgina, og fullt af flottum píum”. OK, þeir voru nú góðir vinir feðgarnir en höfðu svo að segja aldrei rætt samband kynjana og þess háttar, hugsaði Hjörtur og fannst frekar óþægilegt að sjá í hvað samtal þeirra feðga stefndi. “Ég var nú eitthvað farinn að eiga við kellingarnar þegar ég var á þínum aldri. Þær voru alveg vitlausar í mann þú skilur. Maður var náttúrulega útá landi og þær hreinlega soguðust að manni, borgarbarninu sjálfu” sagði hann með nettu glotti. “Já maður var algjört sjarmatröll.”
Hjörtur lá bara og starði útí loftið og ætlaði ekki að þora að bera fram spurninguna, en lét til skarar skríða. “Og og hvað varstu gamall, þegar þú gerðir það fyrst???”. “12 ára Hjörtur minn, 12 ára pjakkur með þónokkuð eldri stelpu, hún hefur örugglega verið komin með bílpróf. Ég skakaði mér á henni inni á einhverjum kamri í veislu hjá afa hennar, frekar ómerkilegt”. Í þann mund kom Henný inn. Bjöggi stóð upp og þau buðu Hirti góða nótt og fóru út, Henný á undan. Þegar Bjöggi var að loka hurðinni, stoppaði hann aðeins, setti hausinn aftur inn og hvíslaði “nei ég er að rugla, ég var 11, ég var 11 ára Hjörtur, góða nótt vinur”.
“Djöfulinn ertu með í höndunum kona?” – sagði Bjöggi Magg, pabbi hans Hjartar, en hann gekk inn úr dyrunum, þegar Henný hélt á blazernum og var að sýna Hirti. “Varstað versla föt fyrir eitthvað skrípókvöld eða hvað” hélt hann áfram og blikkaði til Hjartar. Hjörtur glotti við tönn. “Æji hættessu Bjöggi minn, var að versla þennan fallega blazer á hann Hjört fyrir ballið í næstu viku, finnst þér hann ekki lekker??”
Hjörtur og pabbi hans voru fínir vinir og stóðu saman þegar eitthvað bjátaði á. Bjöggi hafði þagað yfir því þegar Hjörtur hafði óvart pissað undir fyrir nokkrum árum. Og Hjössi sagði mömmu sinni aldrei frá video mynd sem hann fann inní skáp hjá pabba sínum, sem var með allsberum konum framan á. Já, þeir voru svona eins og maður kallar það, böddís.
“Þú sendir strákinn ekkert í þessum jakka, eða blazer eða hvað þú kallar þetta á ballið. Ég meina hvað heldurðu að stelpurnar haldi. Geturðu ekki hent honum í vélina og litað hann eða eitthvað álíka” sagði Bjöggi, gallharður á að sonur sinn myndi ekki sýna sig í bleikum blazer á skólaballi. “Ekki satt Hjörtur??”. “Jú dísess marr” sagði Hjörtur og hristi hausinn. “Það er enginn strákur sem klæðist bleikum jakka í dag mamma, kommon hérna”.
“Viltu ekki gera þetta fyrir mig Hjörtur minn, það verða allir voðalega hrifnir, ég skal bara hringja í Unnar og spyrja hann útí þetta”. “Í guðanna bænum mamma, Unnar á eftir að æla sko” sagði Hjörtur nokkuð pirraður. “Nei, nei hvað er þetta Hjörtur minn, hvað er aftur númerið hjá honum?”
“Hjörtur minn, Hjörtuuuurr, komdu aðeins hérna elskan, ætla að sýna þér svoldið” kallaði Henný mamma hans þegar hún kom heim úr miðbænum. “Hvað nú mamma” svarði Hjörtur, “þú ert þó ekki að fara að gefa mér enn eitt parið af nærbuxum, ég er orðinn 14 sko, þetta gengur ekki lengur mamma, þær voru alltof litlar, bláar og meira að segja loðnar síðustu nærbuxurnar sem þú keyptir handa mér”.
Hjörtur var á viðkvæmum aldri, ný fermdur og hafði verið í mútum síðastliðna mánuði. Áhuginn á veikara kyninu var að vakna og margt var býsna viðkvæmt á þessum tíma, sérstaklega ef skólasystkin hans kæmust að því að mamma hans keypti enn á hann nærbuxur. Unnar vinur hans var líklegur til leiðinda ef hann kæmist að því.
“Láttekkisvona Hjörtur minn, varstekki að tala um að það væri skólaball í næstu viku, ég keypti smá sörpræs fyrir þig, endilega stökktu niður og kíktu á þetta” sagði mamma hans hress í bragði. “Jæja þá, kíki niður eftir smá.”
Þetta var rétt hjá Henný. Það var svaka ball í næstu viku og höfðu Hjörtur og Unnar mikið spáð í það hvurnig ætti að heilla sætustu stelpurnar í skólanum. Það skyldi sko mætt í einhverju eitruðum fatnaði, gallabuxum og leddara og hreinlega látið þær skjálfa á beinunum yfir töffaraheitum. Jafnvel átti að reyna að smygla inn smá vodka og hella í skvísurnar, þær verða víst svo léttar á því þá höfðu þeir heyrt, og verkefnið yrði því helmingi auðveldara að ná sér í kærustu. Þetta var allt saman í vinnslu.
“Tadaaaa” heyrðist í mömmu hans þegar hann kom niður, “hvernig líst þér á, finnst þér hann ekki æði??” Hjörtur var ekki alveg viss hvort þetta var grín eða ekki, en sannarlega leist honum ekki á blikuna. “Bíddu, hvað er í gangi hérna eiginlega” sagði hann nokkuð hissa. “Ekkert í gangi Hjössi minn, fékk hann á útsölu hjá Guðsteini, 2500 kall” sagði hún alveg himinn lifandi með nýju kaupin. “Þú skellir þér í honum á ballið og allar stelpurnar eiga eftir að verða skotnar í þér”.
janúar 12, 2004 :::
Það er náttúrulega lyginni líkast að henni hafi ekki verið fleygt útúr Idolinu á föstudaginn og beinustu leið á haugana. Hún er löngu búin með sinn séns. En waddafakk. Bubbi alltaf í essinu sínu. "það geta allir stælað Bono" sagði hann við skipperinn. Hahahahah, hvað er uppí esinu á Bubba þessa dagana, hassmoli eða hvað?? nei bara spyr?? Er að sjá hann sjálfan reyna við Bono. Svo er það alltaf þetta endalausa væl að þetta sé stæling/kóperíng á lögunum. Ég meina sjammón, þetta er nú barasta stór Karókí keppni fjandinn hafi það.
Já það er gaman að sjá að menn leita sér ráða. Rétt í þessu var fréttaritar Sharksins að smyrja stólalyftuna í Kóngsgilinu í Bláfjöllum og rakst þá á þennan ágæta Sherpa. Uppúr krafsinu kom að hann er staddur hér á landi í boði Gylfa Steins. Sherpinn, sem heitir Abu Naki sagði að Gylfi hefði beðið sig aðstoðar vegna flutninga nýverið. "Honum fannst það sjálfsagt heillandi að ég hef klifið Everest 23 sinnum án súrefniskúts og þar af einu sinni undir 10 klukkustundum" sagði Abu, og hann hélt áfram. "Ég lifi og nærist í þunnu loftslagi og það er svoldið sem Gylfa langar að læra. Þetta er rétt að hefjast, en hann stendur sig vel" sagði Sherpinn um leið og hann kvaddi, gróf sér holu og hafði hægðir... í fljótandi formi.
Are you hungry tonight Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Jámm skellti mér á el generalo á Eldað með Elvis í gær, leikrit í Loftkastalanum og alveg hreint hin fínasta skemmtun. Stykkið er amerískt og nafnið er dregið af bókinni Are you hungry tonight, sem eru uppáhalds réttir Elvis sjálfs (gott ef þetta er ekki Ken þarna hægra megin og skýrir það áhuga manns á þessum besta skyndibita í heimi, þar sem maður er jú, komin af Elvis í beinan karllegg). Það er alveg sársaukalaust af Lee að mæla með þessu stykki. Elvis lifir.
Sá smá part úr Ísland í dag þar sem þau hjú Þórhallur og Jóhanna ætluðu að reyna að hakka Hannes Hólmstein í sig. Dísess þetta var nú pínlegt fyrir þau þarna, eins og gamlar rispaðar plötur að væla um næstum því að hvert orð væri ekki fútnótað... plís hérna. Haldiði virkilega að þessi maður myndi láta nappa sig á einhverju svona. Ekki er ég nú sérfræðingur í þessum málum, en held nokkurn veginn að hann sé með þetta á hreinu hann Hannes blessaður.
Idol í kveld og ég vona að Bubbi mæti með bleiju ef hann ætlar að halda áfram á sömu braut, drottinn minn einasti. Sagði það fyrir nokkru og stend við það að Skipperinn vinnur þetta, vona að Akureyrarskjátan fari út í kveld. Og ég get svo svarið fyrir það, að sú sem datt út síðast hafi fengið blástur í blöðrurnar á sér í jólagjöf. Já blástur í blöðrur segi ég.
Sælt veri fólkið til sjávar og sveita. Sá einhvern gamlan 70 mín. þátt um daginn þar sem Bubbi Morthens var gestastjórnandi. Tjah það var verið að fara á gamla vinnustaði og Bubbi fór með þá í mjölvinnslu, þar sem hann vann í slorinu á sínum tíma. Ohh maður lifandi hvað kom útúr honum. "Já hérna óð maður sko í peningum. Hérna fékk ég 3-4 mánaða laun á 2ja vikna fresti." ahahahaaa. "Svo voru svo stórar rottur hérna alltaf, að þær voru eins og kettir. Og rotturnar eru svo grimmar að þær ráðast á mann. En maður var náttúrulega alltaf útúr jónaður þannig maður kippti sér ekkert upp við þótt þær reyndu að ráðast á mann, þetta var alveg yndislegt." Ahahahah, magnaður hann Bubbi. En svo mætir hann í Idol og mígur í sig af kæti yfir Akureyrarskjátunni. Þetta er skandall Bubbi, taktu þér tak.
Annars þarf ég að leita ráða hjá ykkur kæru lesendur. Hvað tekur langan tíma fyrir menn að aðlagast þynnra loftslagi? Einn drengur sem ég þekki var að flytja í ca. 1000 metra hæð yfir sjávarmáli og hann hreinlega hefur ekki ráðið við sig síðan. Það er nú alþekkt að menn mígi með esinu í þynnra loftslagi, en hefur þetta líka svona mikil áhrif á almenn samskipti og hegðun.?? Nei mér er spurn.