Svör við Pælingum!
Myndir
Afmæli Lee
Tarfagleði 2003
Hunangstunglið
Complex
Gee-Huzzl
VIP
Haglabyssan
Youngmen
Brekkan



Apríl 2004
Mars 2004
Febrúar 2004
Janúar 2004
Desember 2003
Nóvember 2003
Október 2003
September 2003
Ágúst 2003
Júlí 2003
Júní 2003
Mars 2003
Febrúar 2003
Janúar 2003
Desember 2002
Nóvember 2002
Október 2002



desember 31, 2003 :::
 
Gleðilegt ár

Tjahh, þetta sagði ég hér fyrir ári síðan:

5. janúar 2003
"Jæja, er búinn að ákveða nokkur áramótaheit. Bara þetta beisik, slípa á sér belginn eitthvað, verða ríkur, verða markahæstur Tunglara í sumar og haldið ykkur fast....finna mér konu, já konu fjandahelvítiskornið... "

Staðan í dag:
Búnað bæta á belginn, ekki orðinn milli, skoraði 0,0 mörk í sumar og enn piparsveinn, gríðarlega vinsæll þó.

Já maður er maður orða sinna það er deginum ljósara.

Ný markmið á nýju ári. En núna...

GLEÐILEGT BLODDÝ ÁR YOU CUNTS

Sharkinn

::: posted by Lee at 11:11



desember 30, 2003 :::
 
Steinbítur ársins

Ekki var það sérlega flókið heldur að velja Steinbít ársins, sem er Gunnar Sigurðsson. Óhætt er að segja að þessi drengur hafi unnið hug og hjörtu lesenda Sharksins á sínum tíma, vegna gríðargóðrar túlkunnar á Steinbítnum. Það sem meira er að þá eru verk hans ekki einungis í orði heldur einnig á borði, eins og má heyra í þessu viðtali hér.



Lee

::: posted by Lee at 14:23


 
Blökkumaður ársins

Já það var svo sem ekki erfitt heldur. Það var einungis hringt í einn blökkumann. Ef einhver skildi hafa gleymt þeim merka atburði, þá er hægt að tékka á því hér.

Gríðarlegt fagnaðarerindi er þó, að hún er komin með kærasta, þrátt fyrir að vilja verða ein, þrátt fyrir að vera brjáluð á sínum tíma að vera ein... ahahahahahah. Þetta er svo fallegt.

Það verður nýr liður á nýju ári....

Slegið á þráðinn til kærasta blökkumanns

Lee

::: posted by Lee at 11:27


 
Durgur ársin

Það var ekki flókið mál, þegar kom að því að velja durg ársins 2003. Í fyrsta lagi er hann eini durgurinn sem hefur verið valinn oftar en einu sinni Durgur vikunnar auk þess að uppá síðkastið hefur hann verið með endalausan moðreyk, uppþot og skæting. Hann hefur meðal annars lagt undirritaðan í einelti á síðustu dögum, með símtölum, sms-sendingum og á msn-inu. Það eru hlutir sem ég læt ekki eftir hér, enda ekki birtingarhæft. Það er sárt að sjá svona ljúfmenni eins og Tísku Gísla leysast upp í þann vandræðaungling sem hann er orðinn. Veit ég ekki hvað ollið hefur þessu, en menn hafa misjafnar skoðanir. Viðri það hver við sig. Engu að síður óska ég honum velfarnaðar á nýju ári og hann taki einhver lyf við unglingabólunum. Þessi framkoma er engum sæmandi. Vil ég benda honum á að stækkunargler, axlabönd og skeinipappír er á tilboði hjá Kron í vesturbænum.

Öðrum þeim sem voru valdir durgar vikunnar á liðnu ári, óska ég velfarnaðar og til hamingju með góðan árangur.

Lee


::: posted by Lee at 10:53



desember 29, 2003 :::
 
She´s a sure thing Gib, a sure thing

- Anthony Edwards, 1985

::: posted by Lee at 15:54


 
Júúú gleðilegan daginn kæra fólk. Fínir dagar að baki, þar sem maður er nokkrum gjöfunum ríkari, nokkrum pundunum þyngri og nokkrum sögunum ríkari, en þær fara ekki á prent hér, já nokkur ógleymanleg móment um helgina sem fá að fjúka í góðu tómi.

Blizzard úti hérna. Bíllinn pikkfastur, sé ekki framá að komast heim fyrr en fer að hlýna, because it´s, crazy focking weather yea yeahhhh. Jólaböllum bara frestað útaf veðrum, djefull leiðist mér það... how about no you crazy dutch bastard.

Vil ég vinsamlegast biðja þann Tunglara að gefa sig fram, sem var að taka upp jólaball í gær í Fóstbræðraheimilinu. Þar var kollegi minn og fyrisætan Gönnah Six að leika sveinka og skilst mér að þetta hafi verið nokkuð spes svo ekki sé meira sagt.

Það er gott að míga með esinu.

Lee

::: posted by Lee at 13:11



desember 23, 2003 :::
 
Subway Peningar Jólin

Já alveg eru þau mögnuð þarna á Subway. Var þar áðan að fá mér einn 12" með skötu, þegar stúlkan segir "fleira?"

Lee: Já eina kók takk
Stúlka: Hvaða stærð?
Lee: Er ekki frí áfylling
Stúlka: Jú
Lee: Skiptir það þá einhverju máli
Stúlka: Já, smekksatriði sko
Lee: Held ég taki litla kók þá
Stúlka: Ok
Lee: Ef ég hefði keypt mér stóra, hefði ég þurft að borga meira?
Stúlka: Já
Lee: En það er frí áfylling
Stúlka: Ég veit
Lee: Hvað er eiginlega málið?
Stúlka: Bara

Já, gaman að þessu.

Mér til mikillar gleði, þá gerði Tískan mér grein fyrir því að það er hægt að tippa bara á einn leik á lengjunni, sér merkta leiki. Tjah ég prófaði það á laugardag og lagði þússara undir á einn leik, setti á útisigur, stuðul 3,35 og það datt inn. 3350 krónur fékk ég útúr því. Í gær setti ég svo þessa peninga, þ.e. 3000 kall á annan leik, City-Leeds. Þar tippaði ég á jafntefli, stuðulinn 2,75 og viti menn, jú, það duttu inn 8250 krónur takk. Ísí way tú meik moný. Næsta mál á dagskrá er að setja þennan 8 kall á einhvern fansý leik um jólin og fara uppí 20 kallinn og svo koll af kolli. Jámm, ég ætla að koma mér upp vænum tipp sjóð.

Þar sem ég er heimsins aktívasti maður í að senda jólakort og sendi á hverju ári 0,0 kort að meðaltali, þá ætla ég að óska ykkur öllum gleðilegra jóla og hamingju og gleði á nýju ári.

Snarhaldiði síðan ræpunni á ykkur saman.

Lee

::: posted by Lee at 13:19



desember 22, 2003 :::
 
Rokk og rólegheit

Já djefull var mar spakur um helgina, djammlega séð. Grimmur sveinki reyndar og gaman að því að þar snérust hlutverkin við í gær, Lee var ferskastur með tvo rónasveina í kringum sig. Annar þeirra, hann Þvörusleikir, hafði lent í ógöngum nóttina áður og sýndi gríðarlega tilburði í gær, þrátt fyrir það að það síðasta sem hann man frá laugardagsnóttinni var þegar hann var spúandi eins og múkki ehstaðar í Hafnarfirði. Ef þið rekist á myndir af honum af djamminu, vinsamlegast látið vita, það vantar nokkur púsl í spilið.

Það er nú alveg eins hægt að míga á þessa dómnefnd í Idolinu maður lifandi. Svoleiðis í húrrandi mótsögn við sjálf sig. Dísess, segjandi að skipperinn sé að velja örugguleiðina, þegar hann tekur allt frá væmna skalanum upp í rífandi rokkara. Og krema síðan í brækurnar þegar "trallarinn frá Akureyri" tekur auðveldasta lag í heimi til að syngja,.. þau þurfa nú að fara í naflaskoðun og það nokkuð grimma. Svo segja þau alltaf við hana "þetta var kannski ekki það besta hjá þér, en þú hefur bara svo margt að bera...."" gaaarghhh, maður fer að hætta að horfa á þetta. Þau virðast ekki átta sig á því að hún hefur ekki það sem skiptir aðal máli, almennilega rödd. Kemst ekkert á háa C-ið og bara þröngt raddsvið, það er ekki flóknara en það. Út með hana. Ætla að fara persónulega með pampersbleijur til dómnefndarinnar næst, svo þeim líði nú betur í sófanum þarna svona útskitin eins og þau eru.

Lee

::: posted by Lee at 11:19



desember 19, 2003 :::
 
Djefull væri ég til í...

að vera með 600 mills á mánuði eins og Tiger Woods. Úffs meen ... "hmmm, hvað á ég nú að gera um mánaðamótin þegar ég fæ útborgað. Hey ég veit, best að skella sér í kringum jörðina... svona fjandans 300 sinnum. " þetta er barasta rugl.

Tók nokkrar kollur í gær eftir bolta og það var vel. Bara nokkuð ryðgaður núna. Mikið lifandi skelfingar ósköp er til mikið af flottum kellingum mar. Vorum á Vegó og þar hrúguðust þær inn hver annarri flottari. Ungfrú Ísland í fyrra var þarna. Og fjandans helvítis kræst, hún hlýtur bara að vera búin að dæla í belgina á sér.... hólý moððer of jóseff halelúja. Ef ekki þá er það bara mjöhhöööög gott.

Svo var núverandi ungfrú ísland í tennishöllinni í gær og ég segi það og skrifa, þetta er hrikalega myndarleg pía, fyrirmyndareintak af góðum kvenmanni eins og skáldið sagði.

En nóg af mellum...

Helgin framundan og það verður ekki tekið á því, nema í grimmum sveinka. Klára bara gjafir og allt það dótarí, borða mandarínur og hafa samfararir..... við sjálfan mig..... gegn mínum vilja. "Nei þýðir já, nauðgun er kækur".

Verður maður svo ekki að góna á Idol í kveld og sjá hvort dómnefndin kremi aftur í brækurnar eins og síðast. Pfúff, skyrtan rifnaði næstu utan af mér sökum kjána, þegar Búbba stóð upp og klappaði. Allir svo frábærir og allt ,.... phuuuuuu (gubb). Kom í ljós að litla Akureyraróskabarnið hefur ekkert raddsvið og vil ég fá hana barasta út. Sá sem vinnur þessa keppni er matrósadrengurinn knái, það er ekki flókið. Allir aðrir geta dottið út í kveld.

Eftir tvo daga er dimmasti dagur ársins, eftir það fer dag að lengja á ný. Jeiiiiiii

Lee

::: posted by Lee at 10:53



desember 18, 2003 :::
 
Fyrsta jólagjöfin

Jamm, var að fá fyrstu jólagjöfina í hendurnar og það ekki frá slæmum manni, Dabba Kóng sjálfum og frú. Hann veit greinilega hvar hann hefur mig. Ég ætla nú ekki að segja hvað er í pakkanum, en það er allavega rétt rúmlega 40%. Gleðileg jól Dabbi minn sömuleiðis, gleðileg jól.

Lee

::: posted by Lee at 14:29



desember 16, 2003 :::
 
Steikur vikunnar

Lill í Survivor - Díses hvað þessi skátabeygla fór í taugarnar á mér. Komst í úrslit í Survivor, en það hefði ekki skipt máli hvern hún hefði valið með sér, hún hefði alltaf tapað. Eins og rispuð plata. Grimmt bergmál í gær "skátabúningurinn minn, buhuuhuh". Scouts honour my ass. Grenjiskjóðuskátisemgatekkineittogerbestgeymdinníeldhúsiámcdonaldsaðsteikjamcnuggets- ískátabúningnumsínum.

Gerrar Houllier - Hvað er með þennan mann. "Við eigum svo erfitt núna, buhuhuh I think we deserved to win this game. Enginn gæti þolað þessi meiðsli sem við erum búnir að ganga í gegnum. æjæjjæ hjartatruflun... aaarghhh - slut."

Vinir og vandamenn Keikós - Ég meina sjammón. Útför á þurru landi, þið hljótið að vera að grínast í mér. Búið að henda grilljónum í keikó, eða Sigga eins og hann hét einu sinni. Hmmm, best að draga hann lengst uppá land og jarða hann með sæmd. Í kyrrþey..,.. bwuahahahhaha, þetta er ekki hægt. Hallur, naflaskoðun takk.

Fangaverðir á litla hrauni - Dragandi ungan dreng inn í herbergi gegn hans vilja, berstrippa hann og káfa á honum. Þegar strákurinn sagðist ekki vilja þetta, þá sögðu þeir að það væri ekki hægt annað, þar sem væri búið að loka hurðinni. Dísesss kræst, njúkum litla hraun.

Lee

::: posted by Lee at 12:06



desember 15, 2003 :::
 
Þvílíkt stuð...

sem var á Motown showinu á laugardag. Alveg hreint magnað. Tjah það voru skemmtilegar týpur þarna á Breiðvangi ómægod, og það var tær snilld að fylgjast með sumum. Magnaðasta lína kvöldsins kom nú við barinn, bara uppúr kl.21, þegar við Feiti Bak vorum að fá okkur einn laufléttan G&T. Þá birtast tveir menn og ætla aldeilis að fara á fjörurnar við barpíuna. Hér kemur það sem fór þeim á milli.

Maður 1: Hey skvís, leymmér að sjá á þér höndina.
Barpía: Nei, afhverju??
Maður 1: Bara mér sýnist þú hafa svo fallegar hendur.
Barpía: Nei, hvað er þetta, jæja allt í lagi. (sýnir honum á sér höndina)
Maður 1: Sko þetta eru fallegar hendur.
Maður 2: Ég vil ekkert sjá á þér hendurnar. Ég vil aftur á móti sjá þig fara úr þessum buxum og úr þessum topp.

BBBwwwuaaauahahahahahaha...... Svona lagað kann ég að meta.

Lee

::: posted by Lee at 10:04



desember 12, 2003 :::
 
Idol - Smædol

Jæja, diskóþema í kveld í Idolinu. Hvurnig ætli það leggist í mannskapinn. Páll Óskar verður gestadómari, þannig þetta verður rennandi spennandi í boði Ernu Haks.

Erfitt að átta sig á hvur fer að skæla í kveld, án þess að hafa heyrt þau syngja. En ég tippa á hann eða hana. Jájá, sæt stelpa og syngur vel og allt það, en það er eh í röddinni sem hæfir ekki poppara. Held svo að strákurinn ætti að taka með sér axlabönd og skeinipappír í kveld, svo litla trú hef ég á honum.

SjakkúmÓ Lee


::: posted by Lee at 14:32


 
"en þjóðverjinn þurfti að lúta í laug..."
- Adolf Ingi að segja frá EM í sundi á RUV í gær.

::: posted by Lee at 13:26


 
Rosa fínt...

Var í bolta í gær í Sporthúsinu á nýja grasinu sem var vel. Það sem verra er, að þegar ég var að fara þá var búið að kippa skónum mínum. Einhver drulludeli, hefur nappað þeim, eða þá ruglast, því það var eins par þarna rétt við hliðiná, sem ég náttlega kippti í staðin. Helv mörðurinn hefur séð að mínir voru betur farnir en hans og hreinlega skipt á þeim. Auglýsi eftir hvítum Adidas með svörtum röndum. Ef þið þekkið þennan mann, þá látið mig vita heimilsfangið hjá honum svo ég geti sent honum nokkrar dínamíttúpur og ögn af Miltisbrandi.

Jólaglögg í vinnunni í kveld. Einnig hlaðborð hjá Nonna Nikkó, sem hann er búinn að bjóða í, gott framtak það. Veit ekki alveg hvurnig mar tæklar þetta, sveinki eitthvað fram á kveld, svo verður maður spakur, 1-2 ölitz. Svo verður tekið á því á morgun. Grimmur sveinki til kl. 18, þá verður brunað til Feita Bak í fordrykk og þaðan á Breiðvang í jólahlaðborð og Motown showið, þar sem Samuel Jackson og félagar í Jagúar eru að jæva grimmt. Svo ball með Millunum sem fylgir í kjölfarið, fjer það. Mjög gott holl sem er að fara saman, Lee, Feiti Bak, Golíat, Sixmaster Six og frúr þeirra svo einhverjir séu nefndir. Spurning um að redda sér deiti fyrir þetta, er búinn að týna númerinu hjá blökkumanninum. Spurning að maður hringi í Tótu Lár yet again.

Skáldsagan "Hjörtur og bleiki blazerinn" er í undirbúningi. Má gera ráð fyrir að fyrsti kafli birtist á netinu áður en árið er úti.

Annars bara grjóthaldiði ræpunni á ykkur saman.

Lee


::: posted by Lee at 10:48



desember 10, 2003 :::
 
Allt að gerast..

Kíkti á Fesjón-Gee og frú í gær uppí 5 herbergja Sólarsalina uppi á öræfum. Það var vel. Gilli splæsti í börger, svo var gónt á ManU taka þýskarana nokkuð létt. Ruud Van og Brian Riggs í aðalhlutverkum, glæsilegt það. Svo var komið að hápunkti kvöldsins, pílukast, 301 double out góðan daginn. Jámm Gilli er búinn að setja upp píluspjald í strákaherberginu, þar sem nú er hægt að kasta pílum og horfa á kálm í tölvunni og drekka hélaðan ölitz. Eníhú, þá fór hörku rimma í gang í pílunni og svo jafnt var það á köflum að menn muna ekki eftir öðru eins. Þó fór svo að leiðir skildu og sigraði Lee 5-2 í ansi hreint skemmtilegum leik. Gilli var sár (var á svipinn eins og Han Solo var á svipinn í Star Wars II þegar Lilja prinsessa fór í sleik við Loga fyrir framan nefið á honum), en tók þessu vel. Það verður hins vegar að koma hér fram að tölurnar gefa ekki rétta mynd af viðureigninni, hún var jafnari en það. Það komu góðir kaflar á köflum en nokkuð ljóst að tvöfalt útskot þarf að æfa betur, word Gee?? Það verður fjer þegar verður boðið í næsta pílumót í Sólarsölunum, það get ég botnað.

4 jólahlaðborð sem standa til um helgina, spurning hvurnig maður tæklar það.

Julefrokost í hádeginu áðan hérna í vinnunni ohhhh, það er svo leiðinlegt að baaaaarðððaaaaaaa. Mikið djefull var það gott. Hambhryggur, kjetbollur, hjemmelavet lifrakæfa, lax, malt og appelsín, schnapps og ég veit ekki hvað og hvað. Magnað max.

Svo var verið að henda í manni launahækkun áðan, ekki hatar maður það. Jámm, desember er ekkert svo slæmur eftir alllt saman.

Er maður annars orðinn of seinn að senda jólapakka til útlanda??

Lee

::: posted by Lee at 13:51



desember 08, 2003 :::
 
Að klemma

Já, það er margt í þessu. Verð bara að koma einu að hérna. Nú var ég að ræða við einn mann um helgina og talið barst að kvennafarssögum og tilhugalífi hans. Það kom á daginn að hann átti vingott við eina stúlku á dögunum sem ég kann ekki nánari deili á, enda skiptir það ekki máli. Ég spurði hann hvort hann hafi ekki farið varlega, þ.e. notað verjur, svo hann væri nú ekki að kvitta undir 18 ára víxil með því að smúla inní hana. Hann kváði svo ekki vera, en að allt væri engu að síður í stakasta lagi. Ég spurði þá hvort hann hafi ekki klárað, hann sagði svo vera. Hér kemur svo samtalið eins og það var cirkabát.

Ónefndur: Ég bara hélt fyrir.
Lee: Hélst fyrir??? hvað ertað tala um??
Ónefndur: Hélt bara fyrir Jakob.
Lee: Klemmdirðu á þér tettlenginn???
Ónefndur: Vill nú kannski ekki kalla það að klemma, en jú, eitthvað svoleiðis.
Lee: Hvað meinarðu maður, og hvað??? dísesss.
Ónefndur: Hvað er þetta, klemmdi bara forhúðina saman, það var fínt sko.
Lee: Og dældirðu þá bara öllu veseninu þangað??
Ónefndur: Jámm
Lee: Dísess, þetta er nú bara eins og að dæla í lófann á sér sko.
Ónefndur: þetta er ekkert eins og það þarna Kobbi.

Já, mínir kæru. Þegar ég svo hugsa til baka, þá man ég reyndar eftir því að ég hef heyrt þetta einu sinni áður frá einum manni, þ.e. að hafa klemmt á sér tettlenginn. Nú spyr ég, hvað er málið?? Eru menn almennt að þessu. Ég bara hreinlega neita að trúa því fjandahelvítiskornið. Klemma á sér tettlenginn. Það var og.

Lee

::: posted by Lee at 13:21


 
Já, eriggi allir í stuði bara. Sko þetta Idol dæmi. Var ekki alveg nógu sannspár en það munaði litlu. Jæja, langar að koma inná óskabarnið í þessari keppni, njálginn hann Helga. Hvað er málið. Þú tekur ekkert rokkslagara með Helga Björns og trallar í gegnum hann eins og þú sért að syngja bloddý vögguvísu, dísess kræst, mar verður bara foj. Hann var glataður og er kominn á seinasta séns, ef hann girðir sig ekki í brók fyrir næsta gigg. 500 kallinn ekki að gera góða hluti heldur, slapp fyrir horn þarna, en þarf að taka sig á fyrir næsta lag. Ekker vera að fokka með Ný dönsk í þessu, reyna að grípa salinn og læti, kjánast allur upp hérna. Talandi um það, þessi snót alveg í tómu fokki með Horfðu til himins, djæsesss. Það segir sig sjálft að fólk fær nóg af svona attitude persónum. Grimmur kjáni þar. Skipperinn er langbesti söngvarinn af strákunum, og þessi litla hnáta hér, er líka helvíti góð. Já svei mér þá ef ég spái þeim ekki bara tveimur efstu sætunum hér og nú. Getið kíkt á þetta allt hér.

"it´s summer you know..." - ónefndur blökkumaður, september 2003

Lee

::: posted by Lee at 12:42



desember 05, 2003 :::
 
Úóúóóúúúú....

Jábbs, þjóðin að ganga af göflunum vegna Idol-stjörnuleitar. Orðið uppselt í smáralind og ég veit ekki hvað og hvað. Sharkinn er með þetta nokkurnvegin á hreinu, tvær af þessum þremur detta út í kveld.








Svo er gott trix, fyrir þá sem ætla á djammið í kveld, að fylgjast með þáttunum, sjá hverjar tapa, fara svo niðrí bæ þar sem þær fara væntanlega að drekka sorgum sínum og taka GRRRIIMMMMMAAA sjólder tú cræ on á þetta. "svona svona esskan mín, þetta verður allt í lagi, koddu til pabba."

Lee

::: posted by Lee at 14:36


 
HM 2006

England
Holland
Skotland
Ísland
N-Írland
Færeyjar

Eru þið að sjáða????

::: posted by Lee at 13:32



desember 04, 2003 :::
 
Auglýsing (lausleg þýðing úr þýsku blaði árið 2001)

Auglýsi hér með eftir einstakling sem er tilbúinn í að láta kála sér og láta borða sig eftir á. Áður en hann deyr er þó ekki úr vegi að sarga af honum tettlenginn, steikjann uppúr hvítlauk, salti og pipar og gæða sér á honum í sameiningu. Sá sem er tilbúinn í þetta, vinsamlegast hafi samband.

Já, það er ekki allt með felldu í sumum hausamótum, tékk ðis.

::: posted by Lee at 15:55


 
FC Köln er hommalingur.

Fótboltagarpurinn Helgi Sig. átti línu gærdagsins, þegar hann var spurður um framtíð sína í boltanum.

"það er heilmargt í járnunum"

Ef það er heilmargt í járnunum og svo líka mörg járn í eldinum, þá er greinilega allt í gangi.

Lee

::: posted by Lee at 09:09



desember 03, 2003 :::
 
Kreisí fokkíng veððer jee jeeee,....

Ójá, djefulsins hroðbjóður er úti maður lifandi. Það er akkúrat á svona stundu sem ég óska þess að vera útigangsmaður og róni og blökkumaður. En það er annað mál. Vækararnir tryggðu sig örugglega í semi-finale í gær og er það vel. Sjáumst bara í höllinni einhverntíman eftir áramót og drekkum saman kampavín úr dollunni, ójá.

Annars er verið að gefa peninga á lengjunni í dag. Ég hef bara ekki göts í að leggja 12 kall undir strax, þannig ég er að byggja upp smá sjálfstraust áður en ég hendi inn alvöru seðlum. EN sjáiðið þennan, ansi líklegur sko!!!

Gefins peningar
19 KÖLN-GREUTHER F. 1 1.45
42 READING-CHELSEA 2 1.35
46 R.MADRID-A.MADRID 1 1.35

Heildarstuðull : 2.64

Verð: 500 KR
Skilar: 1.320 KR

Djefullinn, ef ég myndi þora að henda 12 kalli á hann, myndi ég fá 31.680 kr til baka. Jæja fokkit.

Svo einn hér, sem gæti alveg eins dottið.

Næstum því gefins peningar sko..
31 MALAGA-BARCELONA 2 1.90
35 NOTT.FOREST-IPSWICH 2 2.25
37 TOTTENHAM-MAN.CITY 2 2.80
39 HAUKAR-ÍR 2 2.30
41 MIDDLESBRO-EVERTON 1 1.70
45 SAMPDORIA-MILAN 2 2.00

Heildarstuðull : 93.61

Verð: 500 KR
Skilar: 46.805 KR

Allir sem eru búnir að míga með esinu sl. daga segi jeeeeeaaahhh!!!

Lee

::: posted by Lee at 11:14



desember 02, 2003 :::
 
Fékk þetta sms í gærkveldi

"Hi it´s me ***** I was thinking if u and I could hook up tonight?"

Þessu var svarað á mjög einfaldan máta. Með þögninni.

Lee

::: posted by Lee at 16:01


 
Að leika tveimur skjöldum

Já hann Gylfi Steinn er ekki allur sem hann er séður. Svo fljótt sé farið yfir stöðu mála, þá erum við nokkrir drengir í fótbolta á mánudaskveldum. Þar er stigakeppni í gangi og gríðarleg barátta. Í gær meldar Gylfi sig off, vegna þess að hann þarf að sinna einhverjum sérverkefnum, gott og vel það. Í dag hins vegar, ber við annan tón. Á heimasíðu sinni, segist hann hafa horft á gott sem eitt stykki Dawsons Creek þátt í gær, sem svo skemmtilega vill til að er á akkúrat sama tíma og fótboltinn hjá okkur drengjunum er. Fansý sérverkefni það.

Annars hefur hann nú aðeins verið að reyna að draga í land með þetta og segist hafa ruglast á dögum og hann sé með stöð 2+ og þess vegna náð Dawson, þ.e. kl. 21 í stað kl.20. Frábært alveg.

Einnig var hann með nettan kommenta moðreyk tengdan Sálinni og segir þar blákalt að vissir menn séu að skrækja eins og fimmtán ára stúlkur, vitandi það að það er helber lygi. Skamm Gilli. Og það hlýtur nú að skjóta skökku við, að Gilli skuli vera að segja þetta, þegar hann sjálfur svífur um í jazzballet sporum heima hjá sér með Belindu Carslile eða T´Pau á fóninum.

Nú er Gilli nýbúinn að segja sögu, þegar hann tók bílakallinn í bakaríið, sem var vel og sýndi fram á sanna karlmennsku. Því er gaman að sjá að hann hafi að geyma þennan mjúka mann líka.

Meðan við strákarnir veljum okkur Sálina og fótbolta, þá velur Gilli sér Belindu Carslile og Dawsons Creek. Góð blanda þar.

Lee

::: posted by Lee at 13:34


 
Bland í poka

Dobrí den. Waddafakkizzapp?? Lítið hérna megin. Reyndar á hún Britney mín víst afmæli í dag, boy would I like to get some of that.... grrrrrrr. 22ja ára skjátan sú, til lukku með það sskan.

Víkararnir í 8-liða úrslitum í kveld í handboltanum vs. Aftureldingu. Nú er komið að því að valta yfir þessa kjúklingabændur þarna og tryggja sig í semis... jeeeee. Ætla nú að styðja hann Laxa minn í kveld þótt svo hann hafi verið með tóm leiðindi uppá síðkastið. Hann og tísku Gilbert ættu síðan að skella sér saman austur á Egilsstaði næstu helgi, þar sem stórsveitin Sú Ellen er með dansiball. Myndu sóma sér vel þar.

Það er eitt sem kjánar mig öðru fremur þessa dagana, en það er í hvert sinn sem ég sé hana Heru söngkonu. Ég meina hvað er málið með að mála sig svona í smettinu. Hvort sem hún var skiptinemi í Nýja Sjálandi eða ólst þar upp eða hvur djefulinn, þá segi ég bara sjammón. "Er að reyna að halda í ræturnar..." eða hvað það er sem hún segir, ohhhh já ég endurtek, sjammmón hér.

En ég meina, svo eru einhverjir sem fíla hana og hennar músík. Ég ætla ekkert að segja nein nöfn en mér dettur svona helst í hug Laxi og Tískan.

Lee

::: posted by Lee at 11:05



desember 01, 2003 :::
 
Kvikmyndatökumaðurinn, Norsarinn og kær frændi Jakob Ingimundarson aka. Jack Marino aka. Doktor Nabbi á afmæli í dag, þrítugur blessaður drengurinn. Óska ég honum innlega til lukku með daginn. Hipphipp, húrra ´húrra húrra húrraaaa..

Lee

::: posted by Lee at 15:39


 
Sálin, Sveinki og Man U.

Já það verður seint sagt að sálin sé slök á balli, úfff, var farið á Gaukinn á lau. aka Hesthúsið, þar sem var sungið með ófáum slögurunum.... Úfff, held að kjúklingaböndin geti bara pakkað saman og lokað sjoppunni, þeir eiga aldrei breik í Sálverja.

Jólabolloxið byrjaði um helgina. Nýja jólalagið virðist stefna í hittara hjá litla fólkinu, Jólahopp og viðlagið er svo: "jólahopp, jólabeygja, jólateygja, jólaskokk" með tilheyrandi hreyfingum. Þarna er maður svo hoppandi og skoppandi í flísbúningum, svoleiðis löður sveittur að það er alveg hreint unaðslega frábært. Það var tekinn nettur rónasveinn á sunnudaginn. Ekkert edik var til þannig ég húrraði í mig gúlpsopa af sweet&sour-chilli sósu, sem var ekki að gera neina hluti.

Það er alveg ljóst að Becks er sárt saknað á Old Trafford. Það bara virðist vanta neistann í þetta lið núna. Sá bara seinni í gær og var ekki par hrifinn. Sýndist þetta nú varla vera víti, en waddafakk, áttum þetta bara skilið. Eiginbarmalítingur strákar mínir, ryksuga kuskið úr naflanum hérna.... sjammmóóónnnn.

Lee

::: posted by Lee at 11:39