nóvember 28, 2003 :::
Jæja, jólaharkið hefst um helgina. godhelvítisdamnit hvað ég er að nenna því. Var í 6 tíma í gær hoppandi og skoppandi að gera eh videó fyrir nýjasta jólalagið.... aaahaalveg hreint frábært. Jæja mar nennir ekkert að vera að grenja þetta, þarf bara að þrauka fram yfir áramót, og ef ég er ekki kominn í höfnina þá, þá verður þetta allt í gúddí.
Annars voða lítið títt. Er að spá í að hefja þessa jólavertíð með trompi bara og mæta grimmur rónasveinn á sunnudaginn. Eða hvað? maður sér til, svo sem ekkert planað, en það má alltaf læna eitthvað upp.
Annars hommiði bara í ræpuna á ykkur, ég er farinn að baaarðaaaa.
nóvember 27, 2003 ::: Nafninn og afmælisbarn dagsins
Já það fer vel á því að nafninn og afmælisbarnið séu einn og sami maðurinn. Bruce Lee fæddist á þessum degi fyrir 63 árum síðan. Ein mesta bardagahetja hvítatjaldsins og var valdurinn af því á sínum tíma að maður lét tré, brunahana, grindverk, strætóskýli og ég veit ekki hvað og hvað finna ærlega fyrir því, eftir að hafa horft á myndir hans. Ein af mínum helstu hetjum á pjakkaárunum. Eftir að hafa horft á Bruce Lee mynd, þá fannst manni maður getað sigrað heiminn... úff those wör ðe deis.
Hann lést langt um aldur fram 1973 aðeins 32 ára að aldri og hafa verið margar kenningar um dauða hans, mis krassandi þó. Til lukku með daginn nafni. Ríspekt men, ríspekt.
Jámm bara nokkrir sem eiga hrós skilið, framan á nýjasta S&H. Tveir Idol keppendur "smullu" saman eins og segir. Gott að fólk sé að fá sitt útá þetta.
"Einar Ágúst borðaði sushi með Justin Timberlake". Veit ekki nánar um það, gæti þess vegna hafa rekist á Justin í einhverri hrísgrjónaverksmiðjunni. Well dön engu að síður.
Þó á enginn meira hrós skilið en ljóshærða pían í Djúpu lauginni. Góð fyrirsögn þar, "Gift í 80 daga". Ahahahah, wodz wrong men? Hvernig er þetta hægt, að vera giftur í 80 daga? Maður hefði nú haldið að flestir hefðu vaðið fyrir neðan sig í þessum málum. Ég meina sjammón, hlýtur eitthvað að hafa ekki alveg verið í lagi þegar hún þrammaði inn kirkjugólfið stúlkukindin. Engu að síður, S&H hrós vikunnar fellur í hennar hendur.
Ætla nú bara að taka mér orð VIP hér í munn. Djefull hlýtur hún að vera trégáfuð.... ahahahahhaha.
Setti met áðan. Það var að kaupa 2 jólagjafir og það er enn nóvember takk fyrir. Hef aldrei verið tímanlega í jólagjafakaupum, yfirleitt gert á 2-3 síðustu dögunum fyrir jól. Það minnir mig á það þegar ég var 5 daga í Londres með Jilla Haffa og Dr.Nabba fyrir jólin ´97. Þá átti svo heldur betur að klára öll jólakaupin í útlöndum. Hver dagur byrjaði á því að sagt var, "jæja, nú klárum við jólagjafirnar.." og allir sammældumst við um það. Ca. hálftíma síðar var sagt, "fjandenn, klárum pakkana á morgun, förum og fáum okkur kollu." og þá var svarað um hæl, "sammála". Svona gekk þetta fyrstu 4 dagana og alltaf hafði Pöbbinn vinninginn yfir pökkunum. Síðasta daginn, þá voru menn sko ákveðnir, "jæja, nú klárum við helvítis pakkana, ekki seinna vænna" allir sammála um það. Hálftíma síðar, "æ fjandenn, við finnum eitthvað á Heathrow á morgun, förum á pöbbinn" og allir sammála um það. Á Heathrow var svo sagt, "við náum aldrei að finna eh almennilegt hérna, förum bara og fáum okkur kollu og við finnum eh í fríhöfninni heima", það var samþykkt. Í fríhöfninni heima: "Eigum við ekki bara að hittast í Kringlunni á morgun?", allir voru sammála um það.
Ójá, nú er öldin önnur, fyrstu pakkarnir komnir í hús í nóvember góðan daginn.
Hvað er málið. Er það tilfellið að helmingur stelpna séu komnar með sílíkon eller hvad. Mér finnst hreinlega flestar stúlkur vera mun barmmeiri heldur en þegar ég var í menntaskóla fjandenn. Eða er þetta bara tískan? Fyrir 10 árum voru stelpur í víðum fatnaði, peysum sem náðu fyrir rass og eh svolleis álíka glatað. En nú snýst allt um að vera í most tæt fatnaði að það hálfa væri miklu meira en andskotans nóg. Djæsess, þetta drepur mig á stundum, hvort sem maður er á rölti um bæinn eða á skemmtistöðum. En ég held það sé líka mikil aukning á að þær séu að dæla í belgina sína báða. Ég meina mar hefur heyrt að sumar séu að fá þetta í fermingargjöf, reyndar er varla að kaupa það. En það er klárt mál, að stelpur eru barmmeiri í dag, en fyrir 10 árum, hverju svo sem er um að kenna. Ekki það að mar sé á móti sílíkoni, síður en svo, þetta er bara búið að vera að naga mig fjandinn hafi það.
.... en það er nú kannski útaf því að mar er sár að þetta skuli ekki hafa verið svona á sínum tíma..., já sár segi ég.
Annars óska ég eftir símanúmerum hjá eftirtöldum:
Alexander Kio Briggs
Ívari Webster
Anthony Karl Gregory
2 Pac.... nei hann er dauður
Danny Glover
Franc Booker
Janet Jackson
Merleney Ottey
nóvember 24, 2003 ::: Slegið á þráðinn til blökkumanns - á prenti - vantar smá hjálp.
Lee: Hi *****, how are you?
Blökkumaður: I´m fine, you?
Lee: I´m, fine. So where are you??
Blökkumaður: I´m at home, on my way out.
Lee: Are you going by yourself or what?
Blökkumaður: Yeah, going by myself. I don't have a boyfriend, so I´m going by MYSELF.
Lee: Bwuahahaha
Blökkumaður: _______________????
Lee: ahahahah, So why don´t you have a boyfriend then??
Blökkumaður: My boyfriend???
Lee: Why dont you have a boyfrend, who can take you out then??
Blökkumaður: Because I dont want. I just want to be alone, I dont have a boyfriend.
Lee: You don´t.... yeah ok..... (hættur að skilja hana)
Bwuahahahahahha, þetta drepur mig. Fer fyrst á háa C-ið útaf engum kærasta. Svo snýst allt við og hún er ein og eh. Ohhhhh. En mig vantar semsagt hvað hún segir þarna sem eyðan er. Næ því hreinlega ekki. Endilega látið mig vita ef þið náið því. Gríðarlega spennandi alveg.
Tjah nú er litli Lee þreyttur. Arnaldur Indriða hélt mér vakandi í nótt. Gat ekki slitið mig frá bókinni hans Grafarþögn, sem er alveg hreint stór góð. Klukkan alltíeinu að verða fjegur í nótt, fráhábært alveg. Þannig er morkinn, ryðgaður sybbalingur núna, það get ég vottað.
Helgin nokkuð góð, eitthvað um afmælisveislur, partæ, dántáns, Kjallarinn, Hverfis, heim árla morguns.
Víkingar möluðu Valsarana, jeeeeeeeeeee, komma svooooo Víkinguuuurr.
Nokkur viðtöl tekin, einna skemmtilegast við blökkumanninn. Ef þið þekkið eh góða blökkumenn sem hægt er að hringja í, endilega láta mig vita, vantar fleiri númer.
Á einhver nokia 5110 sem hann vill losna við. Skal taka það að mér, ef svo er, að losa viðkomandi við þann hlunk.
Já heldur betur af nógu að taka. Topparnir í Kaupþingi BÍ að gera megadíla sem þjóðin er ekki að meika. Það er náttúrulega skandall að þeir fái að kaupa hlutinn á eldgömlum prís og var maður nú ekkert voða hrifinn af þessu sjálfur í gær. Svo sá ég í morgun að þeir eru bundnir til að eiga þetta í 5 ár. OK setjum þetta aðeins upp. Þeir kaupa 6 milljón hluta á genginu 156 = rúmlega 900 milljónir króna sem þeir þurfa að punga út fyrir því. Gengið í dag er 216 og því virði bréfanna tæpar 1300 mills takk fyrir. Allavega þá var talað um að ef þeir myndu selja strax í dag þá myndu þeir græða 365 mills hvor fjandakornið. Síðan kemur í ljós í morgun að þeir þurfa að eiga þetta í 5 ár. Gott og vel. Í fyrsta lagi, þá þætti mér gaman að sjá hvurnig þeir græjuðu lánið fyrir þessu, því það hljóta að vera einhverjar major reglur fyrir því að veita 900 milljón króna lán og óneitanlega hefur maður á tilfinningunni að þeir hafi fengið eh undanþágu. Í öðru lagi, þá væri gaman að vita vaxtaprósenuna af láninu. Ef við gefum okkur 7% vexti þá eru þeir að borga um 60 mills í vexti á ári. 60 mills í 5 ár eru 300 mills. Kannski verður gengið miklu hærra þá og þeir græði massann. En svo kannski lækkar það (vonandi segir maður bara) og þá koma þessir menn út á sléttu, eða tapi jafnvel. Allavega ef gengið helst óbreytt ca, þá græða þeir 60-80 mills á þessu. Væri alveg til í það.
Greyið Jackson vinur minn fær ekki breik. Djöfulsins blóðhundar eru þetta í ðe Steits. Er ekki einhver krakkakrakkmelluhóruanginn að kæra hann núna um eitthvað vesen. Þetta er skandall dómari. Ég míg á þetta lið. 3m$ í tryggingu, haldiði að þetta sé eðlilegt. Ríspekt Jacko, ríspekt men.
Úóúoóóó... Idol í kveld. Dómnefndin búin að velja 9 manns úr 32 manna úrslitum sem komust ekki áfram og fá annan séns í kveld, þjóðin kýs svo að venju, en það verður bara einn kosinn áfram í þetta skiptið. Ætla nú ekki að fara að tippa á þá 9 sem dómnefndin velur en tippa hins vegar á að þessi eða þessi klári þetta í kveld. Getið hlustað á alla hér.
Jámm afmælisbörn dagsins eru þrjú. Jón Nikkó, Gylfi Tíska og Bo Derek. Óska ég þeim öllum til hamingjum með daginn. Gaman að því að öll eru afmælisbörnin lausleikskróar eða ættleidd, en það er nú önnur saga. Húrra fyrir þeim.
"If loving you with all my heart is a crime, then I´m guilty!"
SJAMMMÓN HÉRNA EKKI DREPA MIG ÚR KJÁNA FJANDAKORNIÐ, smjörklessurnar í Blue alveg að meika það.
Ætla að semja sumarsmell næsta sumars, hann á að heita "Sekur". Viðlagið er svona:
"Ef það er glæpur að eeelska þig af öllu mínu hjartaaaaa, elskaaaaan. Þá er ég sekur skraaaaambeeeennnn. Úúújááá, seeeeekurrrr, ójá fjandennn seeekuuuurrr."
Jámm, kominn tími á að Lengja sig upp hérna, ókeypis peningar í gangi á lengjunni. Svona verður tippað í dag, segi ekki hvursu mikið ég legg undir, en það er sperneng að ná sér í 220 kall bara svona einn tveir og geir.
nóvember 17, 2003 :::
Þurfti að kippa hér út hljóðfælum vegna siðferðisafbrota, en þau eru geymd og verða notuð við tækifæri, það get ég vottað.
Idolið, jámm mar spáði rétt þar. Skil samt ekki hvað allir halda ekki vatni yfir þessum kauða sem burstaði þetta, mér fannst þetta bara lala hjá honum og vonlaust lag sem hann tók, svo ég tali nú ekki um lagaval yfir höfuð hjá þessum keppendum. Ég meina sjammón hérna. Vil sjá einhvern koma þarna inn og segja: "this is a song called Plush", telja í og láta Bubba krema í brækurnar.
Átti að verða rólegheitar helgi, en svo vorum við Samlokukrabbinn fengnir til að vera með eh nett sjów í árshátíðargilli Oasis tískuvöruverslunar, s.s kellingapartæ. Ekkert af ódýrari gerðinni skjáturnar þar og sérstök versjón af Ædol sem við settum upp vakti mikla kátínu og eyðilagði nokkur áklæði á stólunum sem þær sátu á.
Eníweis, þá mænaði maður sig aðeins upp og kíkti dántáns í nokkra g&t og hunskaðist svo heim uppúr kl. 5. Fínasta helgi alveg og mar úttekt í kventískuvöruverslun ríkari, frábært alveg hreint. Setjið á mig glassúr og kallið mig snúð.
Jámm nýr liður hér á Sharknum. Datt hann í hug í morgun þegar ég vaknaði, þá hafði ég sofið á hendinni á mér of lengi og gat hana hvergi hreyft og með þvílíkan dofa. Þá datt mér strax einn karakter í hug, og þar sem hann hefur sama nafn og ég þá ákvað ég að skella bara inn nýjum lið, sem fjallar um nafna mína í þessum heimi og öðrum. Gjeriðsvovel, Nafninn.
Það er í bók Einars Kárasonar, Heimskra manna ráð, sem þessa persónu er að finna. Las hana fyrir 8 árum og fannst bara þó nokkuð skemmtileg. Kobbi Skæler heitir hann og ég man reyndar ekki alveg nákvæmlega karakterinn, en hann var ekki alveg að finna fótfestu í lífinu, var óheppinn mjög, naut lítillar sem engrar kvenhylli og var ekki alveg sáttur við tilveruna. Hann ákvað því einn daginn að ljúka þessu bara, varð sér útum nokkur box af svefnpillum og líter af vodka. Nú hann hélt heim á leið og úðaði í sig vodkanum og í kjölfarið ca. 150 svefntöflur, reiðubúinn að kveðja þetta líf. Stuttu seinna dettur hann í gólfið, blanco. Hjá flestum hefði þessi blanda dugað til að hefja svefninn langa. En ekki með lukkuna hans Nafna, því svefninn var ekki svo langur (reyndar mjög langur á nætursvefnsmælikvarða en það skiptir ekki máli). Eftir 43 klukkutíma svefn byrjar hann að ranka við sér, af því hann er svo þyrstur. Hann liggur í einhverskonar grúfu á gólfinu, liggur á öðrum handleggnum og andlitið beint ofan í gólfið. Nú hann nær að stand upp með herkjum því önnur höndin er alveg máttlaus og fer inná bað að fá sér að drekka. Þá sér hann sér til skelfingar að nefið á honum er kolsvart og partur af kinninni líka, sökum þess að hann hafði legið akkúrat á þeim punktum með andlitið í 43 tíma og þar af leiðandi ekkert blóðstreymi komist til þessara líkamsparta. Svo ekki sé nóg með það, þá var höndin sem hann lá á, líka kolsvört og alveg máttlaus sem fyrr segir. Nafni hringir á doktor og doktorinn er ekki í vafa, það er komið drep í þessa líkamshluta og því verður að bjarga. Degi seinna er búið að skera af Nafna hluta úr kinninni og sarga af honum nefið og hægri höndina. Bwuahahahahahahahaha, lucky bastard, og kvenhyllin ekki mikil fyrir púfff. Nafninn
Júú góðan daginn kæru melir og merar. Wodzop?? Var útí sjoppu að fá mér pulsu og kók núna rétt áðan, og sá þá glitta í nýja Séð og Heyrt, og viti menn, Geir Ólafs búinn að dömpa hinni ástsælu útvarpskonu og ellismelli Önnu Kristine og kominn með einhverja svaka skutlu uppá arminn. OK, veit ekki alveg hvort hann hefur dömpað henni, en fyrirsagnirnar eru allavega "hættur með Önnu Kristine" og "söng sig inní ástina" eða eh álíka klént. Allavegana skilið sem svo að hann hafi brætt nýju píuna með eh lagi. Ætli hann hafi tekið Sinatra á þetta, stepp og læti. Allavega vel gert hjá kauða og fær hann hér með S&H hrós vikunnar, sem er vikulegur liður héðan í frá. Bara svona til gamans gert, fyrir þá sem vilja reyna sjarma eh beyglur með seiðandi söngvum, þá mæli ég með lögunum, Svenni Pönkari, My son is Gone eða Crazy Weather, hörku ballöður þar á ferð.
Annars talandi um nýja liði, þá er MSN ennþá niðri hjá mér, þannig sá liður er tengist því er enn á hold. Er hins vegar að vinna í öðrum lið sem mun bera heitið "Slegið á þráðinn til blökkumanns" sem verður einhverjar helgar á næstunni hér á Sharknum. Sá liður helst reyndar algjörlega í hendur við það hvunær ég fæ mér í glas, þannig við verðum bara að bíða og sjá.
Vil endilega svo hrósa þessum íslenska Idol þætti. Alveg hreint stórskemmtilegt efni í gangi þar. Fannst reyndar að káta stelpan með Akrafjallið á enninu og söng "river deep mountain high" hefði mátt slysast þarna inn í úrslit. Hægt að skoða þetta allt saman hér.
Svo í lokin ætla ég að spá í hvurjir af þessum hér fara áfram á morgun, en ég tippa á Tinnu, Helga Rafn eða Jón.
nóvember 10, 2003 ::: Svar við gátunni kemur hér. En ef þið lesið þetta hratt yfir "Hva, hva, hva, hvað nú??" Þá fáið þið fullt nafn á engum öðrum en Herra Hollywood, eða NwguaNwgua Kanu, eða whatever hann heitir. Til hamingju með það.
Og það er enginn annar en Jongmen sjálfur sem giskar á rétt úrslit í annað sinn. Kolla á leiðinni þar. Hann verður búinn að vinna sér inn kassa, áður en mar veit af. Til lukku með þetta Jongmen.
Já, kalkúnaveisla í vinnunni í kveld og Sharkinn ætlar að mæta og tæta allt í sig, hvort sem það er kalkúnn, brennivín eða kellingar. Jæja allavega kalkún og brennivín skrambinn. Þetta er fyrsta svona "vinnu-djamm" sem ég fer á hérna og löngu kominn tími til. Hef lúmskan grun um að nokkrar týpur hérna gætu verið ansi skrautlegar. Fréttir segja að einhver virðulegur karlmaður um fimmtugt hafi verið að dansa uppá borðum á síðasta skralli, þannig mar er kannski bara mættur á rétta staðinn. Svo verður haldið dántán í nokkra g&t og nikka kellingar að hætti Skagamanna.
Ó fargans já. Stórleikur um helgina og því ekki úr vegi að setja leik í gang. Sömu reglur sem fyrr, þ.e. ef giskað er á rétt úrslit, þá fær sá aðili kollu frá Sharknum og öfugt. Ætla að leyfa mér að vera djarfur núna og setja 1-4 fyrir mína menn. Forlan með 2, Giggs og Cristiano með sitthvort. Sammy Lee setur hann fyrir púlara.
Sé að Skúti sænski er byrjaður með einhvern áróður í kommentinu. Níðsöngvar um Púlara eru vel þegnir.
Verð að koma inná eitt hérna. Fjandans Djúpu laugina sem var um helgina for helvete. OK bryddað uppá nýjungum því að Skjárinn átti afmæli. Jónsi og Gitta Haukdal sáu um þáttinn að þessu sinni, sem var svo sem fínt múv hjá stjórnendunum og ekkert útá framistöðu Grís-parsins að setja. EN fjandenn hafi það, þátttakendurnir voru gjersamlega að fara með mig. Spyrillinn fannst hann vera svo sniðugur og það átti hreinlega hver einn og einasti stafur sem komu út úr honum að vera fyndinn... pfufff. Og stelpurnar 3 voru svo hressar og vanar og frægar og fyndnar og allt að ég er að kjánast upp hérna fjandahelvítiskornið við að tala um þetta. Nenni ekki að fara nánar útí þetta, en þetta gaf mér semsagt krónískan kjána.
Annars má þessi þáttur muna sinn fífil fegurri, t.d. þegar Jilli Haffa var með hann. Og svo náttúrulega hápunktur Djúpu laugarinnar þegar Örn Þjálfi sjálfur steig á stokk og heillaði þjóðina. Það var geysilega falleg vinna.
Freezing my bollox off hérna sko. Djefull er hroðbjóðslega kalt, þetta er ekki hægt Bragi. Ég mótmæli þessu Kári, farðu nú í naflaskoðun og gerðu eitthvað róttækt í málunum.