Svör við Pælingum!
Myndir
Afmæli Lee
Tarfagleði 2003
Hunangstunglið
Complex
Gee-Huzzl
VIP
Haglabyssan
Youngmen
Brekkan



Apríl 2004
Mars 2004
Febrúar 2004
Janúar 2004
Desember 2003
Nóvember 2003
Október 2003
September 2003
Ágúst 2003
Júlí 2003
Júní 2003
Mars 2003
Febrúar 2003
Janúar 2003
Desember 2002
Nóvember 2002
Október 2002



október 31, 2003 :::
 
Hetja vikunnar

Mæli með að fólk kíki framan á nýjasta Séð og Heyrt. Tjah, það er forsíða sem drepur. Tjokkósmjörklessa sem heitir Böddi kveður niður kjaftasögurnar. Titlarnir ekki af ódýrari gerðinni. "Lenti í framhjáhaldi." og "Framhjáhald er fíkn." Úff greyið Böddi, lenti bara í framhjáhaldinu og gat ekkert gert í því. Svo varð hann svo háður því að hann lenti í því trekk í trekk. Obbolobbosí, verð að sjá inní þetta blað og fá þetta á hreint.

Engu að síður, hetja vikunnar er Séð og Heyrt strákurinn Böddi.

::: posted by Lee at 11:16



október 30, 2003 :::
 
Shark Lee – the beginning

Það er ekki úr vegi að fara yfir það, svona með nýju lúkki og nýju nafni á síðunni, hvaðan nafnið Shark Lee kemur. Eins og flestir vita, þá hefur nafnið Lee verið viðloðandi undirritaðs um þónokkurt skeið, og festist þetta það við mig fyrir nokkrum árum þegar asískar yngismeyjar voru eitthvað að fara á fjörurnar við mig á KFC í Faxafeninu, sælla minninga. Nú síðan þá hafa mörg nöfn skotið upp kollinum, eins og Mr.Lee, Ká Lí, Dibuffala Lee, Sjammón Lee og ég veit ekki hvað og hvað.

Það var svo sumarið 2002 sem Veiði –og lionsklúbburinn Smaart fór í veiði austur í Stóru Laxá í Hreppum, aka. Tóma Laxá, aka. Stóra Gabbá. Smaartarar eru miklir gleði menn og eru óragir við að bjóða Bakkusi gamla uppí trylltan dans hvenær sem þeim hentar, og skiptir þá engu hvort það er Salsa eða Tangó. Í þetta skiptið sem aldrei fyrr var boðið uppí maraþon dans, jámm, dansað til styrktar Bakkusi takk fyrir.

Í veiðiferðum sem þessari hefur það oftar en ekki komið fyrir að menn gera öðrum grikk og oftast er sá sem verður fyrir barðinu, sá sem sofnar fyrstur. Veit ég nú ekki hvort ég sofnaði fyrstur, alla vega veit ég það að ég sofnaði á undan honum frænda mínum Jilla Haffa.

Með í þessari veiðiferð, var dolla full af vel kæstum, yfir mignum og nett úldnuðum hákarli, sem einn okkar hafði með í för. Man ég að þessi dolla var ekki húsum hæf vegna ólyktarinnar... ómægod, það var veðbjeður. Jæja ég geng til rekkju einhvern tíman á milli 01 og 04 og sef á mínu væra.

Jæja fjandinn hafi það, ég vakna um morguninn, og þá er líka þessi netta HROÐBJÓÐSLEGA stækja inní herberginu. Þá hafði snillingnum honum Júlíusi dottið í hug að loka glugganum, setja ofninn í botn, opna hákarladolluna og setja undir rúm hjá mér. Og svo til þess að krydda þetta aðeins, þá smellti hann nokkrum vel kæstum bitum inná rassinn á mér. Nú ég fer fram úr herberginu og Smaartararnir forðast mig eins og heitan eldinn útaf lyktinni sem btw var sú versta sem ég hef fundið ever, og þá heyrðist það fyrst... “Shark Lee”.

Lyktin fór ekki næstu vikuna og gott ef ekki næsta mánuðinn, en hún fór fyrir rest. En nafnið, tjah... það er eilíft.

Sharkinn – flottari og grimmari en áður.


::: posted by Lee at 12:07



október 29, 2003 :::
 
Og það er komið.

Góðan helvítis daginn hérna. Ef þetta er ekki killer lúkk þá veit ég ekki hvað.

Það er enginn annar en Gee-Huzzl sem sér um þessa vefhönnun og kann ég honum bestu þakkir fyrir.

Og vefheimar skjálfa.

Shark

::: posted by Lee at 19:22


 
Fjandinn sjálfur. Lúkkið á síðunni tefst eitthvað lengur og vil ég biðjast afsökunar á því. Svo er MSN-ið ennþá í fokki, þannig að nýr liður sem tengist því slæst á frest líka. Gleðifréttirnar eru hins vegar þær að samningar tókust sl. helgi við Gunnar Samlokukrabba aka. Steinbíturinn um að sitja fyrir í næsta kynlífshorni hér á Sharknum og mun það detta inn í næstu viku.

Svo vil ég benda fólki á ansi skemmtilegar nýjungar í netheimum. Þar ber fyrst að nefna nýjan lið hjá Gee-Huzzl, sem ber heitið "Össahornið". En það felur í sér samtöl við þjálfaran knáa og annað slík tengt honum. Í öðru lagi vil ég benda á nýjan lið hjá Samlokukrabbanum sjálfum sem ber heitið "Sækjum gesti heim". Þar flakkar Gunnar um netheima og reynir að mynda tengsl við annað fólk. Ansi skemmtilegt hjá þeim kumpánum.

Svo á Hilla Haffa afmæli í dag, innilega til lukku með það Hilla mín. Lúkkíng fæhææn.

Blzzz

::: posted by Lee at 12:08



október 25, 2003 :::
 
OHHH, GÓÐIR GESTIR, GUNNAR STEINBÍTUR ER ALVEG MEÐ ÞETTA...

"... ég hreinlega veit það ekki Kobbi, hvað vorum við að tala um???"

Bwuahahahahahha þetta er að drepa mig hérna.


Shark Lee
Sent með GSMbloggi Og Vodafone

::: posted by Lee at 01:18



október 24, 2003 :::
 
Þessi drengur stendur undir nafni, það er klárt


Shark Lee
Sent með GSMbloggi Og Vodafone

::: posted by Lee at 23:35



október 23, 2003 :::
 

Shark Lee
Sent með GSMbloggi Og Vodafone

::: posted by Lee at 16:10


 
Djefull er ég brjaaalaaaður yfir því að hafa ekki keypt mér myndavélasíma um daginn. Hvaða rugl er í gangi. Ef ég hefði gert það þá gæti maður tekið viðtöl á símann á djamminu og tekið mynd um leið og sent beint á síðuna, það væri magnað max. Ohhh ætla að fara að kanna alvarlega myndavélasíma, það er klárt.

Ætla annars að gera eitt einhverntíman á næstunni. Það er að stilla símann á reminder þegar ég fer á djammið. Láta hann bípa á klukkutíma fresti og í hvert sinn sem hann bípir þá mun ég hringja inn á bloggið og melda mig inn. Fólk getur síðan fylgst með hvurnig þróunin verður. Gæti trúað því að þetta yrði nokkuð skrautlegt þegar maður er að leita að mænunni kl. 6 um morguninn... úfff. Hahahah þetta er svo mikil snilld. Tala nú ekki um ef maður verður kominn með myndavél á símann og sýna hvurnig maður krambúlerast frá einum klukkutíma til annars vegna áreitis Bakkusar. Þvoglumæltur og útlítandi eins og gúrka. Vel gert það.

Lee

::: posted by Lee at 12:34


 
Samkvæmt mjög háþróuðum útreikningum takk...

Kemur þetta á óvart?? Veit það hreinlega ekki.

::: posted by Lee at 09:46



október 22, 2003 :::
 
Jamms, smá meldingar í gangi. Nú getur maður bloggað hvar og hvenær sem er, bæði með voice-mail og sms. Gaman að því. Á næsta djammi verður einhver fenginn til að lesa pistil inná síðuna það er klárt. Ohhh það verða gullin móment sem heyrast hérna fjandenn, það hlakkar hreinlega í mér hérna. Svo einni sekúndu síðar er hægt að hlusta á þetta um allan heim. Alveg er þetta merkilegur fjandi. Hvunær ætli maður geti farið að skeina sér með gemsanum? Nei ég meina mér er spurn.

Lee

::: posted by Lee at 11:27


 

Sharkinn talar gestur
Sent með GSMbloggi Og Vodafone

::: posted by Lee at 10:24


 

Skilaboð sendi ég
Sent með GSMbloggi Og Vodafone

::: posted by Lee at 10:05


 
GSMblogg prufa

::: posted by Lee at 10:01



október 20, 2003 :::
 
Rusty monday

Já fjandenn, er ekki uppá mitt hressasta núna. Nett kvikasilfursflæði í æðum mínum. Rosa fínt alveg. Nenniggi að vinna. MSN-ið ennþá niðri fjandenn þannig ekki nær maður að bögga einhvern. Helgin annars fín, nenni ekki útí eh smáatriði. Skulum bara segja að ég hafi mætt með mænuna í rassvasanum heim um morguninn, þónokkuð skaddaða.

Verð að gefa Idol þáttunum prik, þetta er hin mesta skemmtun. Tékkið á þessu, tilvalið til að stytta sér stundir á mánudegi.

Jeg er tröt.



::: posted by Lee at 12:26



október 17, 2003 :::
 
Afmælisbarn dagsins

Já það þarf ekki að koma neinum á óvart að afmælisbarn dagsins er þessi síða. 1. árs góðan daginn takk fyrir það. Það átti nú að opinbera nýtt lúkk á þessum degi, en sökum óviðráðanlegra aðstæðna og afskiptasemi íslensku mafíunnar þá dregst það um nokkra daga því meður. Með nýju lúkki koma nýjar áherslur og verður Sharkinn beittari fyrir vikið, engu verður til sparað.

Svo á Lee sjálfur náttúrulega afmæli á morgun og þá verður unnið aðeins á mænunni það er klárt. Veit ekki enn hvað verður gert og er bara eitt víst í þeim málum. Bakkusi gamla drulludela verður boðið.



::: posted by Lee at 12:15



október 16, 2003 :::
 
Fjandans drasl....

MSN-ið í tómu fokki. Kerfið hrundi víst í gærkveldi og grimmar varnir í gangi núna þannig ég kemst ekki inná þetta spjall drasl. Tjah bót í máli þó, að mér verður meira úr verki það get ég vottað.

Veit ekkert hvað maður á að bralla um helgina. Nenniggi að spá í það. Nokkrir búnir að melda sig í fótboltamótið, stefnir í gríðarsterkt lið sem er mjög gott.

Samt spurning um að eyða deginum bara á pöbbnum, yfir bolta. Fínasta dagskrá alveg frá 11 - 19 í boltasparki í kassanum. Úða bara í sig öl í þessa 8 tíma fara svo heim að horfa á Gísla Martein og í háttinn. Frábært alveg.

Nú er fokkans skandall að vera ekki kominn með eigið pleis til að halda partæ. Eeen það styttist og þá lofa ég partæ það er deginum ljósara.

"Suck my dick" - Ron Jeremy 1985

::: posted by Lee at 14:16



október 15, 2003 :::
 
Hátíðardagar á næstunni... Afmælismót Mr.Lee

Jámm mínir kæru, aldeilis stórir dagar framundan. Á föstudaginn verður þessi blessaða síða 1. árs. Jamm Lee búinn að blogga í eitt ár, að nokkrum mánuðum undanskildum reyndar. Það verður eitthvað gert í tilefni af því, en ég vil ekki láta það uppi hvað verður. Kemur í ljós á fös.

Svo á laugardag á undirritaður afmæli. Hólí maccaróní, er að verða huuundaður fjandenn. Tuttuguogfokkingníuára. Það breytir ekki því að maður verður að reyna að gera eh skemmtilegt á afmælisdaginn. Það vill svo skemmtilega til að það er fótboltamót í Fífunni þennan dag, sem ég vil nefna afmælismót Mr.Lee. Þar hef ég hug á að taka þátt, og auglýsi hér með eftir meðspilurum sem vilja skipa úrvalslið Sharksins. Ég þarf 10 manna hóp, þar sem spilað er í 8 manna liðum á hálfan völlinn, með STÓRUM MÖRKUM takk fyrir, sem er mjög vel. Sem sagt vantar 9 manns. Svona lagað kostar 1700 krónur, en innifalið í því, er að spila bolta við bestu hugsanlegu aðstæður í dag og möguleiki á glæstum verðlaunum. Svo er aldrei að vita nema einhverjir samningar takist við mótshaldara og þetta verði niðurgreitt að einhverju leiti.

Hafir þú áhuga kæri lesandi, að gefa kost á þér í þetta lið, þá endilega plöggaðu þig inn hér í kommentin að neðan.

Svo er ég ennþá að spá í hvað skuli gera um kveldið, en ef þetta mót vinnst, þá er klárt að við förum út að borða gratís á Fridays, en það er óráðið hvað gera skuli eftir á. Nú ef allt fer í hart, þá getum við alltaf hist á Hlemmi og drukkið kardimommudropa.

Lee

::: posted by Lee at 09:13



október 14, 2003 :::
 
Hrós vikunnar.


Fær enginn annar en kær frændi minn J.Haffa. Sá var að gera gott mót í Hamburg á helginni. Þessi mynd af honum á dansgólfinu með engum öðrum en Dúdda Tísku, segir meira en þúsund orð. Vel gert þetta Gutti minn.

Ekki nóg með það, þá tók hann líka lagið með S.Hilmars og félögum fyrir fullu húsi, sem má sjá

::: posted by Lee at 11:42



október 13, 2003 :::
 
Spakmæli dagsins.....
....og í raun einkunnarorð mín og leiðarljós í gegnum lífið.

Læknar og sérfræðingar segja að brennivín sé óvinur þinn. Jesús sagði "Elskaðu óvininn".

Það skal ég gjöra.

Pís át.
Lee

::: posted by Lee at 15:40



október 10, 2003 :::
 
Stærsti leikur Íslendinga frá upphafi....

















Og ég missi af seinni hálfleik, sem sæhæhæriiiirrrrr.

Spáiði í þennan fokkans leik, sami díll, kolla undir.

Lee spáir 1-2 fyrir Islandia. Eiður og Doddi skora.

::: posted by Lee at 12:22