Svör við Pælingum!
Myndir
Afmæli Lee
Tarfagleði 2003
Hunangstunglið
Complex
Gee-Huzzl
VIP
Haglabyssan
Youngmen
Brekkan



Apríl 2004
Mars 2004
Febrúar 2004
Janúar 2004
Desember 2003
Nóvember 2003
Október 2003
September 2003
Ágúst 2003
Júlí 2003
Júní 2003
Mars 2003
Febrúar 2003
Janúar 2003
Desember 2002
Nóvember 2002
Október 2002



september 26, 2003 :::
 
In Memoriam












Ef það á að vera með læti á annað borð, þá er eins gott að gera það almennilega.

Lifi Kóngurinn

::: posted by Lee at 09:02



september 25, 2003 :::
 
ummerkin að verða engin...
... eftir vörtuna góðu. Var hjá lækninum áðan þar sem hann kippti saumunum úr. Nú er bara plástur og mér líður undarlega. Þetta var svo sem í lagi á meðan saumarnir voru í, þá fann ég ennþá fyrir einhverju á staðnum og fólk varð vart við að eitthvað var þarna í nef-hlíðunum á mér. Setningar eins og "ertu með könguló í andlitinu" eða "nú er þetta bara eins og loðin varta" eru því til staðfestingar. Já sárt en satt, ég er fallinn í hóp almúgans með sléttu smettin, þetta særir gífurlega. Mér til huggunar, þá mætti ég Sævari Cizielski hjá lýtalækninum þar sem hann var að láta rétta á sér ranann í 70. skiptið og hann bauð mig velkominn í elítuna, þ.e. þásemhafafariðtillýtalæknis-elítuna. Ég þakkaði og sagði að það væri ekki ónýtt að vera kominn í hóp með ekki ómerkari mönnum en Jackson og Enrique. En Sævar var ekki alveg að fylgja mér þá, því hann átti víst við Lalla Johns og Sigga Sjálfskeiðung eða hvað það nú var..... frábært alveg.

Eníveis, pís át bara.

Moal Lee

::: posted by Lee at 17:01



september 22, 2003 :::
 
Gee fer vel um þessi atvik í gær, lesið það hér. Breska pressan á sama máli, hægt að lesa það t.d. hér og hér. Hef alltaf sagt það og ég segi það en. MÉR LEIÐIST ARSENAL OG ÞÁ SÉRSTAKLEGA TVEIR MENN INNAN ÞEIRRA RAÐA. WENGER OG KEOWN. ÞEIR ERU LAUSLÁTAR MELLUR, ÞAÐ ER AKKÚRAT SEM ÞEIR ERU.

::: posted by Lee at 09:11



september 19, 2003 :::
 
Það er farið....

...já trademarkið er farið. Vartan sem hefur heillað svo margar meyjarnar í gegnum tíðina er farin á fund forfeðra sinna í Vörtulandi. Veit ekki alveg hvað skal segja, en mér finnst ég berstrípaður, en fyrst og fremst særður. Þetta er eins og að missa góðan vin og það er sárt. Ég meina við höfum gengið í gegnum allt saman, ferðalög, bolti, lóðarí... æ mín evríthing. Og nú er þessi litli vin farinn. Farvel min ven, farvel.

Nú ætla ég aðeins að upplýsa ykkur hvurnig þetta fór fram. Ég mætti til læknisins í gær og hann segir "jámm heyrðu við staðdeyfum þig bara.." ég bara "ok klassi" og leggst á bekkinn. Þá tekur hann upp þessa líka 20 cm langa sprautu og dúndrar á bólakaf í smettið á mér. Ég skal segja ykkur það að þetta var ca. versti sársauki sem ég hef nokkurntíman fundið (vartan á milli nefs og auga sko, mjög viðkvæmt og blóðríkt svæði). Jæja fokkit ég dofna allur upp og hann fer að ná í eitthvað hnífasett og byrjar að vinna á andlitinu á mér grimmt. Ég finn ekki neitt, en ég heyri saghljóðið þegar hann er að sarga í sundur húðina á mér fjandenn, tjah svo sá ég bara rautt spítast upp og dælast úr mér af krafti, voðalega fínt alveg. Og doktorinn að segja brandara á meðan og Lee eh að reyna að fylgjast með og hlæja meðan blóðið huldi allt mitt andlit og fór í augun og læti... stórkostlegt alveg. Svo saumaði hann fyrir 3-4 spor og þurrkaði smettið á mér, límdi einhvern plástur yfir saumana og sagði "ef það fer eitthvað að blæða, en það gerist örugglega ekki, þá bara haltu við í smá stund og það reddas". Auðvitað blæddi svo allan seinnipartinn í gær og eitthvað fram eftir kveldi og á tíma voru lífslíkur mínar 50-50.

Nú er ég hins vegar stál sleginn, hætt að blæða og með þennan fína plástur í andlitinu, lúkkar mjög vel. Eina sem ég má ekki gera er að fara í sund eða heitan pott, sem særir all svaðalega þar sem ég er að fara í Húsafell á eftir í bústaði með fansý pottum og læti, fjandenn, ég hanna bara eitthvað gúmmí á smettið á mér.

Annars fansý helgi í sveitasælunni bara framundan, sem er mjög vel og svo Bifrost Open á sunnudag. Lúkkar fjandi vel.

Má til með að koma inná tvo linka hérna sem ég ætla að smella inn. Annars vegar er það Brekkan sem er komin á skrið með sýna hugjónarmenn í fararbroddi. Hins vegar er það síðan hans Youngmen, en þar er ansi skemmtileg könnun í gangi, þar sem hann ræðst enn á ný á Bumbó vin sinn og nú með grimmari hætti en nokkru sinni fyrr. Gaman að þessu.

Leiter on og sjúkheit.

Sjarkúmóníl.

::: posted by Lee at 09:42



september 18, 2003 :::
 
Já skal segja ykkur það. Lee-feðgar voru foj í gær. Fóru á þriðjudagskveld austur fyrir fjall þar sem skyldi slútta veiðisumrinu við Syðri-Brú í Soginu í gær. Sátum þarna á þriðjudags kveld í 10 fermetra vinnuskúr og slátruðum 3 red auk úrvals osta og heimsmálin rædd. Sannarlega góð byrjun og lofaði góðu fyrir komandi dag, þar sem loks átti að rjúfa 20 punda múrinn. Nú ætla ég aðeins að kynna ykkur fyrir aðstæðum. Syðri-Brú er efsti veiðistaður Sogsins ca. kílómeter fyrir neðan Írufoss virkjun. Má eiginlega segja að virkjunin hafi orðið til þess að þessi veiðistaður þ.e. Syðri-Brú varð til, þar sem aðstæður breyttust og árrennslið minnkaði til muna við virkjunina og myndaðist þessi fíni veiðistaður sem stendur og fellur með því að þessir Pappakassar uppá Írufossi standi sína pligt. Eníveis þegar við feðgar vöknum í gærmorgun haldiði þá ekki að þeir séu að tæma uppistöðulónið og hleypa óteljandi rúmmetrum af vatni niður gamla árfarveginn sem verður að sjálfsögðu til þess að veiðstaðurinn okkar fokkast algjörlega upp sökum vatnselgs og drullu og verður algjerlega óveiðandi. Þetta átti víst að standa í stutta stund en svo var ekki þannig Lee-arnir pökkuðu bara saman um fjegur og héldu heim á (áttum að veiða til kl.21). Svo er eitt í þessu, að við prísum okkur sæla yfir því að hafa ekki farið út kl.7 um morguninn. Því ef maður hefði verið útí við veiðar þegar þeir hleyptu vatninu á, þá væri maður ekki hér, heldur væri eflaust verið að draga líkið af manni upp einhversstaðar við Ölfusárósa akkúrat núna. Já það er eitt að hleypa vatninu á og rústa veiðinni fyrir manni, heldur að tilkynna ekki það nokkrum manni er náttúrulega fyrir neðan allar helvítis hellur. Ekki veit ég hvur djefulinn hefur komist í vinstra heilahvelið á þessum durgum þarna við virkjunina, spurning hvort það sé þar yfir höfuð. Já allavega þá vorum við mest svekktir yfir að hafa ekki getað veitt og held ég sé rétt að enda þetta á orðunum hans Mósa þegar ég var að bölva þessum talíbönum við Írufoss fyrir að hafa tekið af okkur veiðina. Tjah hann svaraði: "Já, þetta var sárt.." hahaha ég glotti við tönn.

Tjah svo fer Lee undir hnífinn í dag, jámm það er komið að því, mín fyrsta lýtiaðgerð. Skafa úr andlitinu á mér einhvern óþverrablett, þú kannast við þetta Enrique.... word??

Familý-get-to-geððer í Húsafelli um helgina. Frýða og Dýrið búin að fá eh tvo massa fansý bústaði þar sem við verðum rúmlega 10 manns. Þar ætla ég að drekka svoldið af brennivíni, borða humar og naut og meððí, spila gaalf og chilla.

Svo er það Bifrost Open á sunnudaginn. Þess má til gamans geta að ég sigraði þetta mót fyrir tveimur árum og hlaut forláta ferðagasgrill að launum. Var ekki með í fyrra en nú er komið að því að endurheimta fyrsta sætið. Jamm, meistaragaaalf.

Shark




::: posted by Lee at 11:17



september 16, 2003 :::
 
Helgin, Víkingar, Leiðinlegasti maður heims... á MSN!!

Dúndur helgi alveg. Nenniggi að fara í gegnum hana, bara beint tú ðe beisiks....

VÍKINGUR Í ÚRVALSDEILD 2004 JEEEEEAAAAAAHHHHHHH, well dön þar hjá þeim. Kíkti á seinni hálfleikinn í Kef og voru mínir menn mun betri þar. Til lukku með þetta Víkingar nær og fjær. Og ekki nóg af þeim, því þá hefst Re-Max deildin í handbolta í kveld með stórleik Víkinga og Gróttu/KR. Víkingar verða sterkir í ár það er klárt. Festeval í Víkinni í kveld, grill og skemmtiatriði og læti. Nýtt Víkingslag ómar, fyrir þá sem ekki geta beðið eftir að fá að hlusta á það er bent á að hlusta á útvarp Sögu milli uppúr kl 13:30 í dag, en þar verður lagið frumflutt... vonandi. Allir í Víkina að styðja okkar menn....

Merkilegt hvað menn geta verið leiðinlegir. Þið skuluð ekki halda að þetta sé mér auðvelt mál, því það er síður en svo, en ég verð hreinlega að kjósa súpermódelið Gönnah Six leiðinlegasta mann heims á MSN. Hann poppar upp hjá manni og annaðhvort talar tungum, hellir sér yfir mann eða fer strax aftur offline. Óþolandi hreint, ekki séns að tala við hann á eðlilegan máta. Ég vona að hann taki þennan titil alvarlega og athugi sinn gang, því buxurnar virðast vera lengst niðrá hælum með vænum skammti af kleprum í.

Shark

::: posted by Lee at 11:06



september 12, 2003 :::
 
Þetta kann ég að meta... koma svo strákana.....









::: posted by Lee at 09:26



september 11, 2003 :::
 
Ég man hvar ég var.....

... fyrir akkúrat tveimur árum. Þá var ég í tíma, í Fjármálum og fjármálamörkuðum uppá Bifröst. Allt í einu sagði einhver "Það er búið að fljúga á WTC". Ekki var lært meira þann daginn, það er klárt.

... þegar Díana dó. Þá var ég í leigubíl með einni stúlku á leiðinni heim eftir djamm þegar leigubílstjórinn sagði hálf klökkur: "vitiði að hún Díana er dáin". Frétti síðar að á sama tíma hafi hópur Eyjamanna labbað inná Glaumbar og öskrað fagnandi í kór "Díana er dauð, Díana er dauð..", já eðlilegir þessir Eyjamenn. Einnig er vert að geta að Lee kynntist Skeiðinni í fyrsta skiptið þessa nótt.

... þegar Freddy Mercury dó. Þá var ég í Versló í Dönsku tíma. Það fékk sérstaklega á einn mann í bekknum, sem ég man ekki lengur hver er. En það splittar ekki diff. Blessuð sé minning F.M.

... þegar leiðtogafundurinn var í Höfða. Þá var ég á Fróðá og ég og Dr.Nabbi stálum bíl foreldra hans (vorum 13 og 14 ára) og keyrðum niðrí fjöru og festum hann í læk og það flæddi inní hann allan, ekki vinsælt. Ég hljóp nokkurra km leið til að ná í hjálp og það er til á video þegar ég kem í hús ótalandi ég er svo móður, frekar fönný.

... þegar Ítalía vann Brasilíu á HM´82. Var staddur á hótelinu á Laugarvatni í kaffistofunni að horfa á leikinn. Man ég grét yfir því að Brasilía væri úr leik, líka vegna þess að nokkrum dögum áður hafði ég hætt að halda með Argentínu þegar Brasilía unnu þá og byrjaði að halda með Brasilíu. Tók ástfóstri við þessa sambaþjóð þá sem hélst allt til nítjánhundruðníutíuogeitthvað. Hef alltaf sagt að þetta lið Brassanna þá er það skemmtilegasta ever. Á þessum tíma kynntist ég líka Maradona fyrst og var hrifinn.

Jamm, bara svona nokkrar dagsetningar þar sem fast er í manni hvað maður var að gera á þeirri stundu. Tjah og að muna eftir eh frá 1982 telst bara ansi gott.

Man einhver eitthvað frá þessum stundum. Sá sem kemur með skemmtilegustu söguna fær kollu í boði Sharksins.

Lee

::: posted by Lee at 11:18



september 10, 2003 :::
 
Setning vikunnar

Já gleymdi að setja hana inn um daginn, en þessa setningu átti enginn annar en Fesjón Gjí þegar við vorum í golfi á sunnudaginn. Nú Gjí hafði ekki gengið sem skildi og fannst golfkúlan ekki hafa unnið með sér á grínunum, og hann var að taka enn eitt púttið, sem virtist vera of stutt. Þá sagði Gjí, þegar kúlan var á miðri leið:

"Hunskastu nú áfram hvíta hóran þín þarna....."

Bwuahahahahah, þetta er lína gott fólk. En ekki dugði það, nískur var hann í þetta skiptið.

Lee

::: posted by Lee at 13:56



september 09, 2003 :::
 
Já kæru vinir, ef þið skylduð hafa gleymt því hvurnig Víkingsmerkið lítur út, þá skuluð þið leggja þetta á minnið. Mínir menn á hraðbyr uppí úrvalsdeildina í fótbolta. Leggjum Keflvíkinga suður með sjó á laugardag og klárum dæmið bara. Við erum Víkingar já við erum Víkingar... trallalalalalala.

Ekki nóg með það heldur þá er handboltinn að fara af stað eftir viku líka og það verður í meira lagi fróðlegt. Hópurinn búinn að styrkjast til muna og nú verður gamla stórveldið rifið upp með trompi, bæði í leik og starfi. Svo verður nýtt Víkingslag frumflutt eftir viku, best að fara að vinna í því.

Sjanst.

K.

::: posted by Lee at 16:23



september 08, 2003 :::
 
Úfff þvílík helgi. GK kveld á fös og var það náttúrulega snilldin ein þótt svo Efnið hafi ekki alveg staðið fyrir sínu. Tjah svo leikurinn á laugardag, það var fjer drottinn minn eini. Strákana voru bara helv góðir og það hefði verið ansi hreint sweet að ná að troða eins og einu marki í andlitið á þeim, klárum þetta bara í landi Hamborgara eftir mánuð.

Það var enginn annar en Julio DiCaprio sem vann í EM leiknum að þessu sinni, spáði rétt og vann sér þar með inn 1 stk kollu í boði Ká Lí. Sá drengur er að fara á fjandans leikinn í Hamburg með fullri rútu af Íslendingum frá Danmörku, úfff, það verður eitthvað. Ég treysti því nú að hann haldi uppi drykkjumenningu og heiðri Íslendinga með því að múna skrílinn með sínu hairy ass.

Gaalf í gær, með Tískunni og Skepnunni. Var ekki að leika vel, en gerði það sem til þurfti til þess að vinna.... again.

Stórleikur í kveld í Víkinni, þegar Grænir koma í heimsókn. Kolla uppá úrslitin þar. Lee segir 4-1 og þannig fara langleiðina með að tryggja sig í úrvalsdeild að ári....yyyeeeeeeeeaaaaaaaaaahhhhhhhhhhhhhh ælækjormoððerrr.



::: posted by Lee at 15:00



september 05, 2003 :::
 
EM leikur Sharksins heldur áfram

Jamm leikurinn skemmtilegi heldur áfram. Það er sami díll og áður, ein kolla lögð undir. Ef ég tippa á rétt úrslit þá splæsiði á mig kollu og öfugt. Þið getið unnið eina kollu ég maaargar. Sharkinn spáir 2-1 fyrir Ísland og að Eiður og Veigar setj´ann. Jæja allir með svo. Kommmaaaa svooooooo.

Góða helgi og allt það, Lee ætlar á Lee-fið um helgina það er klárt.

The Shark


::: posted by Lee at 11:41


 
Vóóó, það er aldeilis sem Steinbíturinn var að vekja lukku. Settur á Batman.is og allt verður kreisí bara, fjegurþúsund heimsóknum ríkari á einum degi. Vona að einhverjir hafi komið frúm sínum á óvart í gær og tekið grimman Steinbít á þær. Ef svo er þætti mér vænt um að heyra hvurnig fór.

Annars vill Lee þakka kærlega kærum vini og dreng góðum Gönnah Six fyrir mjög svo glæsta frammistöðu í leikrænum tilburðum. Hann er með ansi hreint skemmtilega síðu sem ber heitið Haglabyssan og þar kemur hann einmitt inná Steinbítinn í nýjustu færslu sinni. Gönnah bað mig sjálfur um að koma á framfæri kveðju til ykkar allra og þakkar hlýjar móttökur. Einnig vildi hitt módelið, sem ekki vill láta nafn síns getið strax, koma kveðju á framfæri. Hún sagðist koma fram á sjónarsviðið þegar réttur tími væri til.

Lee

::: posted by Lee at 09:38



september 04, 2003 :::
 
Kynlífshornið - Steinbíturinn
Já kæru vinir, það er loksins komið að því, Kynlífshornið er komið í gagnið. Í þessum nýja lið mun ég byrja á því að kynna ykkur fyrir hinum framandi kynlífsstellingum sem Lee sjálfum þykir nauðsynlegt að alþjóð fái að kynnast og jú, einnig umheimurinn.

Mér til aðstoðar í þessum fyrsta þætti er engin annar en auglýsinga stórstjarnan Gönnahh Six, en eins og alþjóð veit þá hefur Gönnahh gert garðinn frægan m.a. í Magic og Lottó auglýsingunum svo eitthvað sé nefnt. Einnig var annað módel mér til halds og trausts í þessum fyrsta þætti kynlífshornsins, en það vildi ekki láta nafn síns getið til þess að byrja með allavegana.

Þess ber að geta að höfundarréttur er að myndunum og er öllum óheimilt að nota þær á einn eða annan hátt, öðrum en Shark Lee.

Góðir gestir. Það er mér sönn ánægja að kynna ykkur fyrir fyrstu stellingu Kynlífshornsins á Sharknum, hinn ógurlegi.........

...............STEINBÍTUR

Steinbíturinn er ættaður frá Ólafsvík. Þessi annars framandi stelling krefst mikillar einbeitingar, sálarorku og styrks. Nauðsynlegt er að hita sig aðeins upp áður með því t.d. að gæla við geirvörtur sínar, maka sig í olíu eða 100 armbeygjur. Sé ekki hitað upp er líklegt að illa geti farið.

Ef maður ætlar að taka Steinbítinn á annað borð, þá þarf að gera það af fullum krafti, ekkert hálfkák takk. Í hita leiksins þá snýr maður rekkjunautnum við, þannig hún snúi baki í þig og leggur hana fram á við, getur verið rúm, borð, stóll eða annað. Þú smellir öðrum handlegg þínum undir magann á rekkjunautnum og herðir vel að. Þá er komið að lykilatriði, en það er steinbítstakið sjálft.

Þetta krefst gífurlegrar hæfni að gera rétt, er ættað frá sjómönnum að vestan. Eins og sjá má er þetta ekki eðlilegt tak, heldur snýr maður uppá úlnliðinn og klemmir í hnakkadrambinn á mótspilaranum. Þetta er nákvæmlega sama tak og Vestfirsku sjóararnir notuðu á steinbítinn þegar þeir fengu hann í trollið og fyrir þá sem ekki hafa fattað það ennþá, þá er nafnið á stellingunni þaðan komið.

Hægt er að nota ýmislegt til hjálpar við að æfa Steinbítstaktíkina. Best af öllu þó er að nota 1 stk steinbít, sem hægt er að verða sér úti um með því að múta trillukörlum niðrá bryggju. (Ég er að sjálfsögðu ekki að tala um kynferðislega athöfn, bara æfa tökin). Best er að hafa steinbítinn lifandi, þá fyrst skilur maður hvurslags átök þetta eru. Einnig er hægt að nota feitan þorsk eða bara dúkkur. Æfingin skapar meistarann. En við skulum líta á hvurnig þetta kemur út með annarri manneskju.

Já greinilegt á öllu að bráðin á sér ekki viðreysna von, liggur bara og nýtur Steinbítsins til hins ýtrasta. Miskilningur hefur verið að konum þyki þetta kvennaníð, en það er síður en svo svo. Þær leyfa bara manninum að ráða í smá tíma, já eða gerast undirgefnar eins og maður segir. Ég meina maður getur svo sem gerst undirgefinn á móti og leyft þeim að putta sig í rassalinginn eða eh álíka... bwuahahahahh, nefni engin nöfn.

Hérna sjáum við svo hvurnig hálstakið er gert. Greinilegt að það er tekið á öllu sem til er og er það vel, árangur næst ekki öðruvísi. Einn af þessum hlutum eru líka fokk-feisið, en það er nauðsynlegt til þess að koma sér í almennilegan karakter. Menn eiga að sýnast grimmir, ná lúkki steinbítsins, en hann er með eindæmum grimmur fiskur og tekst Gönnahh það einstaklega vel upp hér.

Já, nú ættu flestir að vera færir í flestan sjó með að taka Steinbítinn á þetta. Tilvalin leið til þess að koma konum ykkar eða rekkjunautum á óvart. Ég hef reyndar ekki prófað Steinbítinn sjálfur, en ég æfi mig reglulega og er bara að bíða eftir rétta mómentinu að láta til skarar skríða.

Steinbíturinn er líka gríðarlega orku- og streitulosandi og því hollur ástundunar. Menn hefðu haldið að maður væri búinn á því og andlaus eftir svona átök, en það er nú öðru nær. Þessi mynd hér lýsir því kannski best.

Kynlífshorninu er lokið í bili.

Shark


::: posted by Lee at 10:02



september 02, 2003 :::
 
Athyglisverð stjörnuspá

Vogin 1.sept 2003
Þetta er uppskerutími í lífi þínu. Vonandi hefurðu sáð af örlæti, þolinmæði og velvild.

Auglýsi hér með eftir þeim sem ég hafði holdlegt samræði við í kringum 1. des í fyrra. Þótt ég sé ekki beint að sá af lífsins sálarkröftum, þá er ég að vinna vinnuna mína fjandenn og maður veit aldrei. Man reyndar ekki í fljótu bragði hvurjar þetta voru fyrir 9 mánuðum, en allavega Tóta Lár, en það er nú liðin tíð, gömul saga og ný.

Lee

::: posted by Lee at 10:28



september 01, 2003 :::
 
Jammm, maður bara óvenju ferskur á mánudegi. Ekkert svo sem markvert frá helginni. Golf í gær þar sem Tískunni sjálfri var skellt nokkuð örugglega. Lee var að leika nokkuð gott gaalf framan af, en svo fokkaðist þetta náttúrulega upp undir restina og það er sárt. Nú ef það særði hjá mér hvurnig ég spilaði í gær, þá hlýtur Gee að logsvíða undan skítnum sem er væntanlega lengst uppá bak á drengnum eftir spilamennskuna í gær, tjah sá skeit ærlega í sig og þarf að fara að skola á sér rassalinginn eftir ófarirnar. Þykir líklegt að það verði ríari á næstunni, en staðan allavega 1-0 Lee í hag.

Kvikmyndahús í gær, Angelina Joi-Lee tekin á þetta... aaarrghhhh hvað sú gerir mig kreisí, segi það og skrifa að það liggur við að ég myndi gefa af mér vinstra eistað fyrir að skella kvekendenu. Minni enn og aftur á það að hún hefur ekki stundað kynlíf í 13 mánuði, en það er nú gaman að segja frá því að það er akkúrat sami tími og Gönnah hefur þurft að þola án kynlífs, eða voru það 23 mánuðir, man það ekki alveg. Allavega það segir mér bara eitt, hann og Joi-Lee eru meid fyrir hvort annað. Til lukku Gunnar minn, þér hefur tekist að rífa úr mér hjartað og smellt því í hakkavélina, takk, takk takk.

Lee

::: posted by Lee at 12:40