ágúst 29, 2003 :::
Læknirinn lagði ekki til atlögu í gær, lagði bara ekki í það "fagurt fés" sagði hann bara og rukkaði mig um tvöogfimm fyrir ca 5 mínútna spjall og eitt káf á vörtunni góðu. En það þurfti aðeins meiri tíma í þetta, á að mæta aftur eftir 3 vikur þá gerist þetta. Má til gamans geta þess að Enrique Iglesias er að fara í nánast samskonar aðgerð. Gangi þér vel böddý.
Helgin að detta inn. Rólegheit núna bara þar sem loksins ekkert er í gangi, svo eru næstu 5 helgar bissí, dísiss, haldiði að það sé nú, þvílíkt búið að vera kreisí dúin þetta sumar sem er mjööög gottt.
Þessar myndir af Madonnu, Britney og Christinu eru enn að drepa mig. Ég barasta höndla ekki svona, þetta gerir mig alveg BRJÁLAÐAN. JÁ BRJÁLAÐAN SEGI ÉG SKRAMBAHELVÍTISKORNIÐ.
Verð að syrgja ykkur með því að nýi liðurinn Kynlífshornið frestast örlítið vegna utanaðkomandi ástæðna, en hann dettur inn á næstu dögum, æ promís.
Svo má ég til með að koma inná velgengni kærs frænda míns og nafna Jakobs Marínó í Noregi. Mynd sem hann var að skjóta er að meika það bigtæm hjá frændum vorum. Myndin heitir United, endilega tékkitát.
ágúst 28, 2003 ::: Lee í Lee-taaðgerð Já kæru lesendur, það er ekki flóknara en það, Sharkinn sjálfur á leið í lýtaaðgerð í dag fjandakornið. Mér var vinsamlegast bent á að gera það svo ég myndi ekki enda hreinlega hér inni. Jámm, kl.15:30 í dag sest ég undir hnífinn fræga, og get þar með sett mig á stall með ekki ómerkari fólki en Jackson, Cher, öllum sílikontúttum í heimi, Mike Tyson, Sævari Cisielzki (sem btw er kominn með gult hár og vöfflur í dag... ahahahahha magnað alveg), Robbie Fowler, Össa Grétars o.fl ofl. Jamm hér eftir verða þau öll kölluð kollegar. Er að fara að skera burt úr andlitinu á mér fæðingarblett/vörtu sem hefur verið þar í rúm 20 ár og því partur af minni sál svo ég tali nú ekki um tilhugalífinu, þar sem ég hef notað þetta grimmt í að tæla heim kellingar með orðum eins og "ohhh mér er svo illt í vörtunni, viltu koma heim að hjúkra mér??" jepps, klikkaði sárasjaldan. Reyndar er lýtalæknirinn búinn að segja að ég verði helmingi huggulegri fyrir vikið og eigi eftir að njóta gríðarlegrar kvenhylli, úff eins og maður eigi ekki fullt í fangi með hana fyrir. En það verður sem sagt gaman að þurfa að hrinda þeim frá blessuðum beyglunum, ykkur er guð velkomið að mæta í fráköstin drengir. Allavega þá verð ég spreyjaður með einhverju frystidrasli og svo verður bara farið með hnífinn á bólakaf í andlitið á mér fjandeennn, og maður glaðvakandi á meðan.... frábært alveg, get ekki beðið. Surning um að ég nýti tækifærið og láti sprauta harðplasti í belginn á mér og eins og 3 tommum af sílíkoni í tettlenginn á mér, svo ég nái nú 15 tommunum fjandahelvítiskornið.
Ef ég skyldi deyja í þessari aðgerð, þá bara bið ég að heilsa og fer á djammið með Elvis í kveld... Yeahhhhhhh
ágúst 26, 2003 :::
Tjah, get ekki sagt annað en ég sé spenntur fyrir Idol hérna heima. Mæli með að þið hitið upp með því að tékka á þessum kauða hér. Bwuahahahahahahaahahahahahahahahahah..... þetta hlýtur að særa.
Heimasíða vikunnar Ég fagna því að Gunnar nokkur Sigurðsson, hefur tekið aftur upp skrif sín við Haglabyssuna. Þar er mælskur maður á ferð og með mjög svo skemmtilegar og athyglisverðar pælingar, sem hafa glatt mig og margan manninn í gegnum tíðina. Vel að því komin að vera valin fyrsat heimasíða vikunnar á Sharknum.
Annars lítið að gerast. Er aðallega í undirbúningi fyrir Kynlífshornið, en það dettur inn seinnipart vikunnar.
Þvílíkur snilldardagur á lau, Pripps CLosed 2003 fór fram og maður búinn að eyða dágóðum tíma sl daga að skipuleggja þetta. Það var óvissuferð á golfvöllin sem var í Svínadal þar sem var leikið meistaragaaalf. Undirritaður var að leika glimrandi vel fyrri 9 en missti flugið á þeim seinni og kostaði það hann gullið. Endaði með silver og það var enginn annar en Feiti Bak sem sigraði þetta með eins höggs mun á 64 netto, well dön það og til lukku. Svo var þessi líka svaðalega veislan um kveldið, þar sem rif og lobster voru senuþjófarnir, auk þess sem Bakkus sjálfur var með skemmtiatriði. Svo var haldið á hina ýmsu staði og vaktin staðin til að verða sjö, þá var þetta orðið gott eftir 20 tíma sessjón.
Svo var skírn í gær hjá Hillu og Six og var maður þar alveg eins og nýtýndur áðnamaðkur maður var svo ferskur. Ólafur var nafnið, glæsilegt það og alnafni pabba hans Six. Klassa veisla og Óli tarfur að gera gott mót.
Mínir menn í boltanum að dansa grimmt. Man Utd. á sigurbraut og annað sem gleður mig meira er að Víkingarnir eru á góðri siglingu þessa dagana, rústuðu Þórsurum og stefna hraðbyr upp.
Nýr liður dettur inn í vikunni á Sharknum en það er Kynlífshornið. Þar mun ég útlista náið nokkrum frægum og vinsælum stellingum sem fólki er bent á að nota í tilhugalífinu. Það verða myndir með og var ég einmitt í gær að semja við karlmódel eitt sem mun sitja fyrir og sýna ykkur hvurnig skal bera sig að. Gæti trúað að þetta yrði mjög svo athyglisvert og ráðlegg ykkur að fylgjast með.
Var að æla áðan, það kom eitthvað óeðlilegt útúr mér. Fróðir menn segja að það sé Skeifugörnin. Er það hættulegt???
Já sigurvegarar í EM-leik Lee í gær voru engir aðrir en Þröstur Laxdal og Steini Youngmen og skulda ég þeim þar með sitt hvora kolluna, sem verður borguð við fyrsta tækifæri. Eins og glöggir sjá þá er mynd hér af Laxa, en ég fann ekki svona litla og netta mynd af Yongmen, þannig þið getið séð hann hér, en það er drengurinn í miðjunni með framrúðurnar. Fjandinn hafi það, ég verð hreinlega að velja hann Fagurkera dagsins fyrir þessi gleraugu, jamm tvöföld gleði þar á bæ.
ágúst 20, 2003 ::: Þetta kallar maður að gera góða hluti
Já ég hef svo sem sagt það áður að drengirnir í 70 mínútum séu sniðugir. Nú er reyndar einn þeirra hættur, annar í fríi, þannig Auðunn Ósyndi nokkur situr einn eftir í einhvern tíma. Hann deyr ekki ráðalaus, heldur fær með sér landsþekkta einstaklinga í hvern þátt, meðan Sveppi er í fríi. Sá lokin á þættinum með Gísla Marteini á mánudaginn og var það fönný. Sá svo þáttinn í gær þar sem Sigurjón Kjartansson var gestastjórnandi. Drrrottttinnn minn djefulsins dýri, hvað þetta var fyndið mar. Til að mynda ætlaði Sigurjón að slá íslandsmet í því að sippa með bundið fyrir augun, tússpenna uppí sitthvorri nösinni og epli uppí sér aaaaaaaaahahahahahah, ekki gekk það vel. Svo fékk hann áskorun uppá það að láta Audda hella líter af súrmjólk uppí (æadsklfjaælkdjfahahahahahahah er að kafna hérna við þessa umhugsun) sig og reyna að kyngja henni um leið BWUAHAHAHAHAHAAHAHAHAHAAH, það var ekkert eðlilegt, hélt hreinlega að ég myndi láta lífið af hlátri. Þessir drengir, þ.e. Auðunn er að gera virkilega gott mót með þessu uppátæki sínu. Mæli eindregið með að þið fylgist með þessum þáttum þessa vikuna og þá næstu, því daglega er nýr gestastjórnandi. Topp skemmtun, lofa því.
Færeyjar - Ísland í kveld. Er ekki rétt að setja smá veðmál í gang. Sömu reglur og á HM í handbolta í vetur. Kolla undir. Ef einhver ykkar getur rétt, þá splæsi ég kollu. Ef ég get rétt þá splæsið þið kollu á mig, jámm kollu bjössa. Sharkinn segir 3-1 fyrir Ísland. Allir að vera með.
Sísonið búið hjá Tunglurum, frábært alveg. Eftir að hafa sýnt fanta bolta í upphafi sumars og verið komnir á gott skrið, þá gerðist það sem aldrei fyrr, að beltið losnaði og við enduðum með buxurnar á hælunum. Vorum vægast sagt lélegir seinnipart sumars og áttum ekkert annað skilið en að lenda um miðjan riðilinn, sem særir, því þvílíkur klassabolti sást á köflum, þegar Tunglið skein sem skærast. Nú tekur bara við eiginlítabarmingur, skjaldarendabítingur og buxnaupphysjingur. Já Tunglarar komnir í vetrarfrí.
Annars stendur maður í ströngu við að undirbúa Pripps CLosed 2003 þessa dagana, já eitt glæsilegasta golfmót norðan Alpanna. Þetta er ekkert smá batterí orðið og farið að velta ansi háum summum árlega. Maður er búinn að vera að redda Bjór, humri, rifjum, rútuferðum, vallargjöldum, verðlaunum, mellum og kókaíni svo ekki sé meira sagt, já PC rúlar.
Svo ætlar gleðin engan endi að taka, maður fær bara ekki breik. Enn eitt brúðkaupið að detta inn, Joð búinn að skella sér á skeljarnar í þetta skiptið, ómægod segi ég bara. Aldeilis sem búið er verið að gerast í sumar, hólí moðer of jósefff:
4 steggjanir, 4 brúðkaup, Akureyri, Egilsstaðir, Húsafell, Iða, Gljúfurá, Mývatn, Menningarnótt og ég veit ekki hvað og hvað. Eins gott að maður sé milljarðamæringur til að eiga fyrir þessu öllu.
Annars er merkilegt hvursu gríðarleg kvenhylli er í gangi þessa dagana.
Menningarhelgin - Fagurkeri vikunnar - Kynlífsstellingar Jámm, nokkrar kollur á fös, blásaklaust alveg. Laugardagur mjög svo góður. ManUtd-Bolton yeahhhhh, snilldin ein, Cristiano, tjah það verður eittthað að sjá þann mel í framtíðinni. Á meðan voru Víkingarnir mínir að misstíga sig aðeins á móti Njarðvík, ekki nógu gott það, háspenna fram í síðustu umferð þar, gott ef mar skellir sér ekki bara til Keflavíkur í síðustu umferðinni og fylgist með mínum mönnum tryggja sig upp... yeaaahhahahah, við erum víkingar já við erum víkingar. Jæja svo var farið á apótekið kl 16 setið þar og sötrað Irish til að verða 20 þá skellt sér í afmæli til DjonDjan, þar sem veitingar voru á heimsmælikvarða fjandenn hafi það. Þá var haldið á Mohitos og nokkur vel valin dansspor tekin, tjahh þar voru tveir menn fremstir í flokkir, sei nó mor, þeir eru ánægðir með sjálfa sig í dag. Viðar nokkur Ingi fær titilinn Mæna helgarinnar, vel gert það.
Fagurkeri vikunnar er enginn annar er Gunnar Sigurðsson aka Gönnah. Þetta fær hann fyrir það að sýna óhemju færni á dansgólfinu á Mohitos, vera með hneppt alveg niður. svoleiðis löðursveittur og með hattinn, en þetta vakti gríðarlega kvenhylli og á drengurinn allt lof skilið fyrir þetta allt saman. Svo bara til þess að toppa þetta þá fór hann í sleik við 8 manns á Lækjartorgi, þar af 2 karlmenn. Þetta er virkilega góð vinna vil ég bjóða hann velkominn í elítuna "Fagurkeri vikunnar".
Loftpressan, skeiðin, Steinbíturinn.... hvað er það?? Jú kæru gestir, þetta eru kynlífsstellingar. Vel þróaðar stellingar af mjög svo góðum mönnum. Þótti bara rétt að koma þessu að, þar sem Durex er að tröllríða öllu þessa dagana með sínum stellingum, en þessar eru algjerlega ótengdar Durexinu. Kannski ég reyni að útlista þessum stellingum nánar við tækifæri. Steinbíturinn Bwuahahahahahahah, það drepur mig alveg sko.
ágúst 14, 2003 :::
Þá er nú skárra að hafa sólargeislana úti fyrir heldur en fokkans Gotham yfirbragðið, massa þungskýjað sko, er að sjá þrumur og eldingar á þetta á eftir. Talandi um eldingar þá kemur uppí hugann ein saga. Þannig var það nú (gerðist örugglega í USA) að eh hópur fólks var á ferðalagi. Eins og vera ber fór Amor að vinna á einhverjum þeirra sem endaði með því að það fóru tvö útí rómantíska gönguferð í skóginum. Það var þungskýjað og drunur í loftinu, en Amor sá til þess að þau tóku ekki eftir neinu slíku. Ekki leið á löngu þar til þau voru farin að veltast um í grasinu í sleek og læti og allt að verða vitlaust, þegar stelpan heimtar smokk á þetta. Viti menn stráksi var með smokk á sér og endalaus hamingja í gangi. Jæja, takturinn þyngist hjá unga parinu, sem og þyngist upp í veðrinu, en þau verða þess einskis vör, skiljanlega, enda að fara að klæmaxa innan skamms. Brestur ekki þá á þetta líka þrumuveður, eldingar og fínerí og vill svo ekki betur til en að neistir einni beint í hausinn á kauða þar sem hann er að hamra stúlkuna. Blanko. Já það líður yfir hann og þegar hann vaknar, sér hann það strax að stelpugreyið er dáin undir honum. Tettlengurinn hafði sem sagt leitt áfram rafmagnið inní stelpuna, en hann sjálfur sloppið nokkuð vel, eða svo hélt hann. Hann er náttúrulega í sjokki drengurinn og ætlar að fara af henni, en viti menn. Við öll þessi gíga-volt sem eldingin setti í hann, bráðnaði smokkurinn inní leggöngum stelpunnar og var þar nú allt bráðið fast saman og harnað, og hann getur sig hvergi hreyft. Sjokkið eykst skiljanlega hjá drengnum og í lostinu ælir hann beint á andlitið á stúlkunni, svo líður aftur yfir hann. Tjah þegar hann rankar við sér, þá heyrir hann þungan andardrátt og frekar vonda lykt. Hann lítur upp, þá er skógarbjörn að sleikja æluna af andlitinu á stúlkunni ahahhaah og byrjar svo að narta í það. Nú það þarf ekki að koma neinum á óvart að það leið enn og aftur yfir drenginn og næst þegar hann vaknaði þá var verið að bera hann inní sjúkrabíl, fastan við stúlkuna sem var búið að éta hálft andlitið af. Úff raunir sumra segi ég bara. Ég man nú ekki hvernig tókst til með að bjarga tettlengnum á honum, en held það hafi gengið skítsæmilega og hann geti stundað sæmilegt kynlíf í dag og fagna ég því, enda á hann það skilið blessaður...bwuahahahahahah.
Man ekki alveg hvar ég las þessa sögu en hún er sönn.... að mestu held ég. Boðskapurinn er allavegana sá, að sólskinsveður er betra en þungskýjað og allir ættu að njóta frjálsra ásta, henda öllum smokkum til öryggis, ég meina maður veit aldrei...
Ahaahahahahha, éta andlitið á henni, drepur mig gjersamlega.
ágúst 13, 2003 :::
Sólin að steikja mig hérna sko, og ég að vinna frameftir kveldi..... eeeekkkkiii að meika það. Erfitt að koma úr svona viku fríi, þar sem allt er búið að vera mergjað og smergjaðslega gaman og detta síðan í vinnu aftur ohhhh. Fékk netta skólafílínginn áðan, hugsaði bara "djefull væri næs að vera að fara í sveitina eftir nokkra daga í skólalíf og chill og drykkju og pílu á fimmtudögum" ohhhh það voru móment, áhyggjuleysi dauðans, já get nú ekki sagt annað en maður öfundi aðeins Bifrastarfólk núna.
En að öðru. Óléttar feeetaar stelpur. Þá er ég ekkert að tala um þybbnar stelpur, eða sem fitna óeðlilega af óléttunni, heldur vel klumpaðar ca.250 punda (já ég tala í pundum af því að ég er veiðimaður) natjúral feetar, sem byrja að klæða sig massa tæt þegar þær komast að því að þær beri barn undir bumbu. Þetta er alveg magnað. Það sér ekki nokkurn mun á þeim fyrstu 5 mánuðina, en þær byrja að klæða sig í óléttufötin við fyrsta tækifæri, ca. 2 mánuðum áður en fer að sjá á þeim. Gaman að þessu og gott að þeim líður vel, en samt, ég meina sjammón. Ég meina nú er ég ekkert grannur sjálfur og með nokkur smjörlíkisstykki á belgnum á mér, en ef ég yrði óléttur einn daginn, eftir kynmök við Þórunni Lár, þá myndi ég aldrei klæða mig tæt, fyrr en einhverntíman (er kominn með sólsting hérna fjandinn og tala tungum).
Pærats of ðe Karabbíen, fór á hana í gær, svaka fín ræma og mikið lifandi skelfing er pían flott í henni, ohhh Amor var að vinna á mér grimmt. Depparinn líka magnaður og allt krúið bara. Fær hiklaust 3 stjörnur frá mér.
Annars er maður bara í undirbúningi á Pripps Closed 2003, stórgolfmóti sem fer fram 23. ágúst þar sem ég hef titil að verja. Þá verða læti.
Ætla að enda þetta á einni línu sem kom upp í samtali milli mín og eins aðila sem kallar sig Hr.Rass, og umræðuefnið var endaþarmsmök við konur og hvort þær væru að fíla það yfir höfuð. "...maður verður bara að gera þetta rétt, þá fíla þær þetta langflestar. En svo koma menn sem vita ekki neitt og reyna að vaða beint í bossann á þeim og þær fíla það engan vegin og vilja aldrei prófa aftur og eru þar með að eyðileggja fyrir mér og þér....." ahahahhah einlægt var það.
ágúst 11, 2003 :::
Djefull er ég ekki að meika að þessi helgi sé búin. Sumarið búið bara. Reyndar Pripps Closed eftir þann 23. ágúst en einhvernveginn finnst manni eins og sumarið sé búið, farið að dimma og læti,.... fæjandenn mánudagsþunglindið dottið inn. Nú þarf ég bara að vinna í lottó, fá mér íbúð, jeppa, konu og viðhald, þá verð ég ánægður.
Veit einhver hvað markaðsverð á nýrum er í dag??? Er með eitt til sölu, svoldið sjúskað og 33% starfhæft, annars í fínu lagi.
Vóóóo, þvílík snilldarhelgi. Brúðkaupsfestival á Mývatni, hjá Nonna og Berglindi, og var það í alla staði frábært. Innilega til lukku kæru vinir. Brúðkaupið á fös kvöld og gleði fram eftir og svo bara annar í brúðkaupi á laugardeginum, þetta var bara tærasta snilld.
Alveg merkilegt hvað er verið að gefa vörur og þjónustu þarna í þjónustumiðstöðvunum. Hamborgari og franskar á 1100 kr. og fleira í þeim dúr.
Svo var farið í Gjánna, en það er magnaður staður sem maður labbar að úti í hrauni, klifrar einhverja 5-6 metra niðrí hraunið og þar er heit uppspretta og læti, þvílíkt flott dæmi. Svo var bara öl og gleði fram eftir öllu og vil ég bara þakka kærlega fyrir mig. Algjör klassi Jón Bassi.
Skjálftavakt í gangi núna, verður hlaupið úr í kveld á æfingu hjá Tunglurum, en þar þurfa menn að líta í eigin barm.
Nei, hvað er þetta hérna, skeifugörnin í mér, úpps, var að hósta henni úr mér. Frábært.
ágúst 05, 2003 :::
Verslunarmannahelgin hefur ekki verið jafn róleg í mörg ár takk fyrir. Tekið á því á laugardeginum bara í bænum, annars barar rólegheit. En það þýðir ekki það að maður sé að fara að setjast í helgan stein, óóófokkans nei. Mósi Lee er að koma að pikka mig upp eftir rúman hálftíma, svo verður brunað í Gljúfurá í Borgarfirði. Það er víst lítið um lax þar núna og mjög lítið vatn, en það verður bara að hafa það. Ég er líka svo geðveikislega góður í að drekka brennivín á árbakkanum að það er ekki fyndið, einn sá besti í því á landinu sko ;o), þannig að ég hef engar áhyggjur af þessari ferð.
Bruna reyndar í bæinn annað kveld, að keppa með Tunglinu í Fífunni góðan daginn, en svo bara aftur uppeftir eftir leik og veiða á fim morgun. Svo í bæinn og svo aftur þessa leið á fim eftirmiðdag, þá liggur leiðin á Mývatn. Þar verður brúðkaupsfestival um helgina, þvílík snilld, og þar verður fjer. Votta það hér með.
En nú eru 3 tímar í ölitz hjá mér og bið ykkur því barasta vel að lifa kæru vinir.
ágúst 01, 2003 :::
Tjahh, þetta var veiðiferð. Einn dagur, 13 laxar frá 4 uppí 16 pund, allt saman á flugu. Þar af fengum við 11 á morgunvaktinni, þvílík snilld. Sjáið aflann hér.
Verslunarmannahelgi dottin inn. Bærinn bara á þetta, enda verður maður á faraldsfæti frá þriðjudegi til sunnudags fjandenn. Ætli maður skvetti nú ekki samt aðeins í sig hérna fjandenn. Nennisiggi. Góða helgi samkynhneigða fólk.