júlí 30, 2003 :::
Er farinn í lax. Öllu undir 20 pundum verður sleppt. Ætla að quote-a hérna í Feita Bak, á leiðinni heim úr Refasveitinni um daginn: "Ég er orðinn fokking þrítugur og ekki ennþá búinn að fá lax. Lífið er ekki fokking endalaust fjandinn hafi það.." AAAaaahahahahahah, þetta var fönný.
Já eins og við vitum öll, þá hefur Bakkus gamli margar hliðar. Ein er sú, að villa fyrir manni sýn, eða öllu heldur sjónhverfing. Þegar maður drekkur úr hófi þá nefnilega brenglast fegurðarskynið og manni finnst fokuðustu píur vera barasta hin mesta myndar smíði. Þetta er satt, það hefur hver einasti kjaftur lent í þessu, að sjá einhverja kellingu á djamminu, sem manni finnst svaka fansý (þarna er ég að tala um að maður sé búinn með svona 10-15 g&t), svo sér maður hana einhverjum dögum seinna í daglegu lífi, tala nú ekki um ef menn draga þær með sér heim, þá er hún bara fokuð (fokuð=fokljót). Mjög góð lýsing er á þessu hér. (Ýtið á next til að sjá útkomuna).
Já Bakkus getur verið grimmur. Einn er þó maður sem Bakkus vinnur hvað mest á í brenglun fegurðarskyns og ætla ég nú ekki að nefna nein nöfn hér, en fyrsti stafurinn er Arnfinnur Teitur Ottesen frá Skaganum, 187 cm. á hæð, 77 kg. góðvinur minn og fyrrum skólabróðir frá Bifröst. Ég hef sjálfur orðið vitni þegar Bakkus fer að eiga við hann og er það með ólíkindum. Á augabragði eru hin mestu sköss búnar að breytast í fegurstu fljóð og drengurinn tapar sér alveg í gleðinni. Já máttur vínsins fer víða.
Í tilefni þess vil ég tilnefna Arnfinn, fagurkera vikunnar.
júlí 28, 2003 ::: Rólegheit, menning, tískulögga o.fl.
Jamm, kærkomin helgi í rólegheitunum, þar sem þetta var fyrsta helgin síðan í maí einhverntíman, sem ekkert var planað. Það var gripið fegins hendi og ákveðið að taka grand afslappelsi. Má eiginlega segja að helgin hafi byrjað á fimmtudagskveld þegar Tunglið vann gríðarlega mikilvægan sigur í d-riðli utandeildarinnar. Maður var búinn að vera frá í þónokkurn tíma sökum hnjasks og helvíti gaman að koma inní þetta aftur og klúðra einu mesta dauðafæri sem ég hef fengið á ævinni. Harðsperrur dauðans daginn eftir og maður finnur jafnvel fyrir þeim enn í dag, rosa fínt. Leikurinn var búinn um 23:30 þannig maður lá bara uppí rúmi upp tjúnaður til fjegur eða fimm, ægilega gaman alveg. Kom heim úr vinnu á fös, kría, dinner, svo dottið í Ghost ship með VIP, úff, mæli ekki með henni fjandenn.
Laugardagur. Vaknað, aðeins þrifið og hent svörtum ruslapoka af fötum, jepps use it or loose it (reyndar fær eh fólk í afríku eða einhvern fjandan send þessi föt, sem minnir mig á það, einhversstaðar í afríku gengur eh um í grænum lívæs gallabuxum sem lee átti á sínum tíma.... úfff og obbosí, þær voru hroðbjóður, tískulöggan sem maður var skrambakornið). Allavega þá var síðan ákveðið að versla sér skó. Var búinn að hafa augastað á einum, en þeir virðast vera einu skórnir í RVK sem eru ekki á útsölu, þannig ég ákvað nú að taka púlsinn á þessu. (mellur dauðans hérna fyrir utan núna..... aaaarghghhhh) Eníveis, þá fór ég í Kringluna, tók nokkra hringi, ákvað síðan að kíkja á Hillu sys og dvergana, meikaði ekki verslunarleiðangur sko. Jæja ákvað að fara aftur í Kringluna eftir Hillu og klára dæmið, en nei, var ekki nógu sjúr, brunaði útí Smáralind fjandenn og tók hring þar en hunskaðist síðan aftur í Kringluna til að græja skóna sem ég ætlaði alltaf að fá, en þá var náttúrulega endalaust vesen að fá rétta númerið, en það reddaðist fyrir rest for helvete, allur dagurinn í þetta. Svo var þrisvar haldið að ég væri starfsmaður í þessum búðum og ein gekk svo langt að kalla mig tískulöggu. Muniði áðan, þegar ég var að segja frá grænu gallabuxunum, ÞAÐ ER HISTORY FJANDINn HAFI ÞAÐ....ánægð?? Laukveld = ekkert, dinner smá red og campari, koja kl 01.
Sunnudagurinn hófst eins og venjulega, vaknað um hádegi og skellt sér á Ítalíu í pizzu og red. Ok þetta er kannski ekki týpískur sunnudagur en ljúft var það. Þetta var í boði Fríðu og Dýrsins, svaðalega fínt. Svo datt þarna inn vinur Dýrsins með vinkonu sína sem er nokkuð vel þekktur einstaklingur, og henni leist líka svona vel á litla Lee, var með símann á lofti og sagðist (djæsess, Dísella er hérna fyrir utan, lýg ekki.......fjaaandeeennnnn) ætla að fá systur sína yfir sem væri most bjútífúl görl in ðe world. Hvað gerði Lee?? Úðaði í sig pizzunni og redinu og hóf svo að vinna á timbrinu. Frábært, en þetta er open choice for cræin át lád.
Svo var ákveðið að taka menninguna á þetta. Eitt orð. Drottinnminndjöfulsinsdýri. Þessi fýr hérna, Matthew Barney, kallinn hennar Bjarkar á að vera eh voða fansý listamaður. Þetta eru einhverjir vídeógjörningar og mambódjambó bollox, sjitt hvað ég meika ekki svona. Svo eru einhverjar ljósmyndir og eitthvað drasl. Ég meina horfiði á manninn, sjáiði hvernig hann er. Gott ef þessi mynd er bara ekki tekin af honum í djeilinu. Já djeilinu segi ég. Echo. Segi og skrifa það sem ég hef alltaf sagt, listamannspakk.
Svo bara eitt að lokum. Angelina Joilee hefur ekki stundað kynlíf í rúmt eitt ár og hún er ekki að meika það og hlakkar geðveikt til næsta skiptis. AAAAAAAAAAAARRRRRRRRRRRRRRFFFFFFFFFFFGGGGGGGGGGGGHHHHHHHHHHHHHH. Spáiði í þeim sem lendir í því, hún á eftir að gera útaf við hann. adsfæakjsdhflakdjfhalkdjfhæakl. Ég skal taka þetta verkefni að mér, það er gjörsamlega sársaukalaust af minni hálfu.
júlí 23, 2003 ::: Caught in the act - Sjaldséðar myndir af Tarfi í "vinnunni".
Já kæru hálsar, nú eru heldur betur tíðindi. Um helgina náðist nefnilega mjög svo sjaldséð mynd af markaskorararnum og kvennagullinu VIP, vera að vinna með sitt helsta vopn, símann. Ef rýnt er í þessa mynd hér, má sjá í kauða í fjarska vera í grimmri vinnu á símanum, en eins og alþjóð veit þá er drengurinn galdramaður með símann, hvort sem það sé í formi sms-skilaboða eða bara beinna símtala. Hans vinna á þessum vígstöðvum er svo hárnákvæm að þær stúlkur sem lenda í honum fá ekki rönd við reist. Skiptir þá engu hvort hann sé að lesa þeim pistilinn eða að sjarma þær uppúr skónum, vinna hans á símanum er gríðarlega góð og árangursrík. Hann hefur þó farið dult með þetta og engan veginn verið hægt að fá hann til að deila þessum leyndardómum "símahözzlsins". Alltaf nær hann að skella sér í eitthvað skúmaskot og "setja eitt í gang" eins og það er kallað af atvinnumönnunum. Því er þessi mynd gríðarlega stór biti fyrir fréttamiðilinn Shark-Lee og vill undirritaður þakka paparazzi-ljósmyndurum Sharksins vel unnin störf.
Sjáiði villidýrið. Hann er greinilega að skila góðri vinnu þarna. Tjah sú sem er á hinum enda línunnar hefur væntanlega kremað í brækurnar, það er morgunljóst.
Það var og, að þegar maður byrjaði að blogga eh aftur þá er náttúrulega allt í fokki, blogger.com ekki að meika íslensku stafina. Splittar ekki fokkans diff.
Tjah árleg veiðiferð Veiði- og lionsklúbbsins Smaart, var dagana 16.-18. júlí. Sem aldrei fyrr lentum við í bongóblíðu og litlu vatni og þeir fiskar sem við sáum voru ekki á þeim nótunum að gæða sér á þeim kræsingum sem við settum fyrir þá. Sem sagt laxlausir annað árið í röð fjandenn. En mikið óhuggulega var gaman, djæsess. Menn voru þarna hálf naktir á bökkum árinnar, sökum veðurblíðu, þar sem félagi Bakkus stóð með okkur vaktina, og gerði hann það vel. Svo var sungið, trallað, etið og drukkið af miklum dug, svo um glumdi um dalina í norðri. Úff, þvílík gleði og verður strax byrjað að huga að ferð næsta árs.
Maður lenti svo í bænum á föstudagskveld og svo brúðkaup á lau hjá Jut og Helgu sem var helvíti fansý. KLassa dagur í alla staði og vil ég óska þeim aftur innilega til hamingju með þetta allt saman. 4 af góðvinum mínum búnir að gifta sig í ár og enn eru tvö brúðkaup eftir á árinu. Dísess, það eru bara allir að detta í "það heilaga" meðan maður er bara sjálfur alltaf að detta í "það". Er að sjá að maður taki bara síðasta móhíkanann á þetta. En mikið djefull er til mikið af flottum kellingum mar. Djæsess. Það er sama hvert litið er. Er að vinna hérna við hliðiná LÍN húsinu í Borgartúni, og þangað inn fara amk 5-7 úrvalsdeildarpíur inn daglega. Er að sjá mig sitja fyrir þeim á næstunni. Svo virðast þær bara vera útum allt saman fjandenn. JÆja held mig við áramótaheitið, finna eina væna á árinu, þedderbarasona (og nú er ein as wí spík hér fyrir utan... AAARGGGHHHHH). Reyndar bað ein pía mig um númerið hjá mér á þriðjudaginn síðasta, það er bara nokkuð vel dönn og ég gaf henni það, en málið er að ég er ekki með síma þessa dagana, þar sem ég er búinn að týna tveimur á sl 2-3 mánuðum ÁNÆGÐ NÚNA ÞARNA ÞIÐ???'
júlí 14, 2003 :::
Má til með að hripa aðeins hérna niður. Hilla systir var að gjóta sínu þriðja á laugardag. Yet again var það kk dvergur og er það vel. Hún er umvafin huggulegum törfum, það er deginum ljósara. Fór og kíkti á kauða í gær og hann er huggulegur sá, það get ég vottað. Nettur Lee í honum að sjálfsögðu :). Magnað max, hvernig tilveran virkar fjandenn.
Var í Húsafelli um helgina, úff, Bifröst CLosed 2003. Hrein snilld. Lék lélegasta golf frá því að ferill minn hófst og var í grimmri botnbaráttu. En klassa helgi í alla staði. Menn voru sérstaklega edrú, nefni engin nöfn en Arnfinnur Té og VIP fóru þar fremstir í flokki og minntu mann á það hvurnig ætti að skemmta sér án áfengis og fara bara að sofa uppúr miðnætti......bæði kvöldin sko.... takk takk strákar.
MIðvikudagur 16. júlí. Ójá kæru vinir, þá hefst sennilegast einn svaðalegasti veiðitúr sem sögur fara af. Veiði- og Lionsklúbburinn Smaart, mun þá halda norður yfir heiðar, n.t.t. Laxá í Refasveit og dvelja þar í tvo sólarhringa. Líklegt er að laxinum verði mokað upp og hef ég þess vegna pantað einn frystigám undir aflann. Svo verður hann fluttur sjóleiðis til Azerbadjan eftir veiðitúrinn og hungruðum færður aflinn að gjöf. Við erum nú einu sinni Lionsklúbbur líka for kræin át lád.