Sæl verið þið elsku vinir nær og fjær. Fyrir nokkrum mánuðum ákvað ég að gerast bloggari. Veit ekki af hvurju en einhvernvegin fannst mér tilvalið að deila mínu lífi á vissan hátt með umheiminum. Ég hafði aldrei haldið dagbók, utan þess að ég hélt drykkjudagbók 1995 í nokkra mánuði, tjah og það voru fönný móment sem festust á blað þar. Splittar reyndar ekki diff. Ég hafði og hef reyndar mjög gaman að hripa inná vefinn og deila vissu með ykkur, en áður en ég vissi af þá var ég orðinn með harðari bloggurum í bransanum. Nánast færsla á hverjum degi, auk samkeppna og þar sem ég setti mig í stól Besserwissersins og svaraði utanaðkomandi pælingum frá almúganum. Nú þegar maður gerir eitthvað vel, þá er það samdóma álit allra sem njóta að svo skuli áfram vera, sem þýðir ekkert annað en aukin pressa á viðkomandi aðila. Þessari pressu hef ég fundið fyrir í auknum mæli uppá síðkastið, þar sem ég hef ekki verið jafn duglegur að uppfæra og áður fyrr. Setningar eins og "ertu dead", "á ekki að fara að henda inn pistli dagsins", "hvað er eiginlega málið", "djöfull ertu lélegur bloggari", "þú ert ómenni Ká" hafa heyrst varðandi skrif mín á blessaðan vefinn. Auðvitað hefur maður fengið hrós líka og er ég þakklátur fyrir það, en einhvernvegin þá hafa neikvæðu hlutirnir meiri áhrif á mann. Dag einn ákvað ég að setja mér markmið, ég hafði fengið nóg. Ná gestatölu á síðunni uppí 10 þúsund og láta þetta þá gott heita. Í dag, 161 degi eftir að ég byrjaði að blogga, er sá dagur runninn upp. Uppúr klukkan 16 datt tíuþúsundasti gesturinn inn og var það enginn annar en Raggio Valsson sem varð sá heiðursgestur. Óska ég honum til hamingju með það.
Nú dreg ég mig til hlés. Ég er með leiða á bloggi og á meðan svo er sé ég engan tilgang með því að hripa eitthvað niður. Velunnurum vefsins sem hafa haft samband við mig í dag og reynt að tala mig af þessari ákvörðun minni, þakka ég stuðninginn. Einnig vil ég þakka öllum þeim sem hafa lagt leið sína inná þennan vef sem og sérstaklega þeim sem hafa verið iðnir við að setja komment inn, en það hefur sett skemmtilegan svip á umræðuna. Gee Hözzl vil ég þakka fyrir að koma þessu á legg á sínum tíma og kenna mér alla fídusana og ekki síður vil ég þakka honum hans sterka sess innan liðarins Durgur vikunnar. Öllum Durgum vikunnar vil ég óska velfarnaðar og vona að þeir hafi fjárfest í axlaböndum og belti eða skeinpappír fyrir þrautagönguna miklu að velgengni í lífinu.
Shark Lee kveður að sinni. Ég vil benda ykkur á að setja í komment eða í gestabók ef þið hafið eitthvað fram að færa. Ég mun að sjálfsögðu fylgjast með því.
Ég vil þó benda á það að lokum, að ef Lee fær neistann aftur, þá mun Sharkurinn vakna til lífsins, stærri og sterkari en nokkru sinni fyrr.
Jæja nú nálgast endalokin, en einhverntíman sagði ég að þegar maður væri búinn að ná 10 þús gestum þá myndi ég hætta þessari bloggvitleysu. Núna eru 9950 hit komin og skv. háþróuðum útreikningum Lee mun þetta slá í 10 þús í dag eða kveld. Lokapistill er á næsta leiti.
Lee
mars 26, 2003 :::
Verð bara að koma að einni pælingu hérna. Af einhvurjum orsökum þá poppaði upp í hausinn á mér áðan sloganið “Mennt er máttur” sem tröllreið öllu hérna fyrir nokkrum árum. Tjah það er óhætt að segja að þetta eigi ekki við í dag, Mennt er bara ekki rassgat í bala í dag, þetta er mjög einfalt, spurning um framboð og eftirspurn bara. Það er endalaust framboð af háskólamenntuðu fólki í dag. Get ekki séð að mennt sé neinn sérstakur máttur. Svo var ég að spá líka ef ég hefði bara skippað þessu háskólanámi mínu á sínum tíma og ákveðið bara að vinna áfram. OK, kalt mat, segjum að ég hafi verið með 110 kall útborgað að meðaltali á mánuði þennan tíma meðan ég var í skólanum (nennekki að detta í eh. Vísitölupælingar). Ég var að leigja á þessum tíma, svo gott sem skuldlaus og hugsandi bara um sjálfan mig. Miðað við þetta skulum við segja að ég hefði lagt fyrir bara 30 þús á mánuði sem gefur manni rúma milljón á 3 árum. Svo bara til að hafa þetta ennþá meira fair þá skulum við segja að ég hefði eitt helmingnum af þessari milljón í ferðalög og annan munað. Ég ætti þá um hálfa millu í dag og líklegt að ég væri kominn með þau lágmarkslaun sem háskólamenntað fólk er að sækjast eftir í dag.
Eeeennn. Ég ákvað að fara í nám. Skellti mér í sveitina í 3 ár og svoleiðis bjartsýnn á það að brillera og hala inn peninga þegar ég væri búinn. Það var og.... Í staðinn er maður með nokkrar millur á bakinu í námslán og læti og kannski með örlítið hærri laun heldur en ég hefði verið með ef ég hefði haldið áfram bara að vinna. Svo þarf maður að vera að greiða upp lausaskuldir næstu misserin í stað þess að geta lagt fyrir eins og maður gæti gert ef maður hefði bara unnið áfram.
Ég segi nú bara eins og Fúll á móti 1985, “Finnst ykkur þetta hægt...haaa??” Fjandinn hafi það, á maður ekki bara að fara í mál við Ríkið, þetta er skandall. Og ég veit að þetta er ekkert svona með alla, en þetta er allþekkt dæmi.
Mennt er enginn máttur. Peningar eru máttur og þannig mun það alltaf vera.
“Time is money, money is power, power is fame.” Það er díllinn.
mars 25, 2003 :::
Verð að koma aðeins inná 70 mínútur á Popptíví sem ég sá í gær. Verð að hrósa þessum drengjum þar sem þeir koma mér oft til að hlæja, enda ekki furða þar sem ég er mjög einföld sál á þeim vettvangi, fyndnasta sem ég veit um eru ófarir annarra. Jæja ég kom heim í gær eftir bolta, búinn af líkama og sál eftir helgina og sá fram á dapurt kveld. Tjah, ég smellti á Popptíví. Þar í fyrsta lagi voru þeir kumpánar að keppa í sundi og var einn þeirra hreinlega að busla fyrir lífi sínu þarna í lauginni. Tróð hundasundið af þvílíkri þrautseigju og með angistarsvip að það heila væri yfirdrifið jess. Ég lá uppí rúmi og hreinlega veltist um af hlátri og þakkaði Guði fyrir þessa vitleysinga. Jæja það var ekki nóg. Þeir höfðu smellt sér í bæinn um helgina með kameru og voru að taka viðtal við fólk í mis annarlegu ástandi. Tjah þarna var einn drengur sem var svo mænuskaddaður og farinn af drykkju að það var aðdáunarvert. Minnti mig óneytanlega á góðan dreng sem ég ætla ekki að tíunda hér. Þessi gaur fór á þvílíkum kostum að það lá við að ég ældi og migi í mig af hlátri yfir þessu öllu saman. Úffff. Svo í þessum töluðu, þá eru þeir að mixa ógeðisdrykk sem þeir draga uppá hver á að drekka. Þegar ósyndi drengurinn þarf að drekka drykkinn, þá ælir hann undantekningarlaust og þá er litla Lee mikið skemmt. Já, ég segi það hér og nú að 70 mínútur á Popptíví er hið besta skemmtiefni. Ahahahhahaahah, ósyndi drengurinn þurfti ekki að drekka, en ákvað að leika hetju og ætlaði að húrra þessu í sig, sem endaði náttúrulega með góðu gubbi. Ahahahahah, það er svo gaman að vera svona einfaldur sem Lee er.
Hmmm, jámm, písfokkingát.
mars 24, 2003 :::
Tjah eitt núna, crazy focking weather yeah yeaaahhhh. Blizzard og twister og allur pakkinn bara. Nenni varla að tækla helgina. Skal samt segja ykkur að hverju ég komst þessa blessuðu helgi:
Dúettinn Niðurgangur er allur að koma til.
Var að tjútta með Chelsea-u Clinton, vissi bara ekki af því.
Ég hata sopann.
Mér leiðast ótrúlega sumar kellingar.
Tunglarar eru Hamarsmótsmeistarar, til lukku með það.
Hamarsmótið er lyftistöng fyrir íslenska knattspyrnu.
Hlemmurinn kallar ekki allt ömmu sína.
Nasa er að missa það.
Tarfur er Steve á ensku.
Otur er Stu á ensku.
Lee er Lee á ensku.
Helgarnar eru vinur minn.
Jámm, þetta er bara svona það helsa kæru vinir.
Punginn á ykkur.
mars 23, 2003 :::
Hallúúúú. Bara koma afmælisbarni dagsins að, en það er enginn annar en danska tröllið, kær frændi minn og guðsonur Júlían Hafstein. Innilega til lukku elsku vinur, með þessi tvö ár. Þú rúlar.
Aldeilis búinn að vera afmælismánuður. Dagur, Júlíus Þyngri, Mósi Lee, Amma Lee og Júlían. Húrra, húrra, húrrrrraaaaaaaa fyrir þeim.
mars 21, 2003 :::
Jæja, það duttu strax inn nokkrar spurningar. Hér koma þær og svör við þeim.
“ÞÚ ERT GEÐVEIKUR” er setning sem ég heyrði einu sinni konu skella í andlitið á þér Jakob. Nú hefur minni mitt brugðist mér, en hefur þessi kona eitthvað með það að gera að fylgja fram lögum og reglum þessa lands og hefur hún beitt þig þeim brögðum sem laganna verðir tileinka sér til að meðhöndla sakamenn?
Með von um heiðarleg svör.
Arnfinnur Teitur Ottesen
Árósum
Sæll minn kæri Arnfinnur. Þessari setningu gleymi ég seint, hún fékk mjög á mig og man ég vel að þér var skemmt. Þessi kona er að ég held í lögregluskólanum í dag, en ég man það að einu sinni reyndi hún að taka einhver brögð á mig en ég fleygði henni bara frá mér og sagði við hana "ertu vangefin mellan þín", þar með var málið útkljáð. Ef ég man rétt þá tókst þú í hönd hennar og bauðst henni í morgunmat (varst að taka grimma shoulder to cry on), en hún hafnaði því. Síðan þá hefur hún verið svarin óvinur okkar.
Lee
Sæll meistari Lee.Short and simple:
Hvurnig gengur gull-braskið ?
kv. Raggio
Sæll minn kæri. Gullbraskið gengur hægt en örugglega. Meðal annars komið til Venezuela. Peningarnir eru ekki enn byrjaðir að streyma inn en það styttist í það. Ef ég man rétt, þá eru þrír hlutir sem hækka í verði þegar stríðsástand er, en það eru dollar, olía og gull. Þannig það eru bjartir tímar framundan (veit þetta er illa sagt vegna stöðunnar í dag, en svona er þetta bara, alls ekki flókið).
Lee
Hvar er mojo-ið þessa dagana? Varð það eftir á Bifröst? Hvað veldur? Enginn heimavistarfílingur í borginni?
Gee
Sæll venur minn. Mojo-ið hefur aldrei farið neitt, hef bara átt í erfiðleikum með að meðhöndla það og vinna með því. Þetta veistu Gilli minn, óþarfi að tíunda það.
Nú hefur þú keppst við að kalla mann og annan durg síðustu misseri. Hefur það aldrei hvarflað að þér að þú sért durgur?
Gee
Sæll aftur minn kæri. Ég get ekki séð að ég sé durgur, annars er það annarra að dæma um það. Veit ég vel að það eru nokkrir menn sem hafa horn í síðu minni varðandi þetta mál sem eflaust kalla mig durg, þ.á.m. þú, sem ert óspar á fögru orðin í minn garð.
Lee
Afmælisbarn dagsins í gær var engin önnur en Amma Lee. Hún varð 80 ára og var stórglæslileg að vanda. Í tilefni þess var haldið á Hótel Holt í hádeginu. Það er ekki flóknara en það að Lee datt íða í hádeginu, eða þannig. Öl og hvítt og maður var bara að smella í gírinn fjandinn hafi það....hahahahha, djefull hatar maður þetta. Svo var ég bara að láta renna af mér fram að kveldi, fór þá í bolta kíkti svo á púbbinn og ætlaði að fá mér einn, en hugsaði þá. "Nei fjandinn Ká, þú geeeetur ekki dottið í það tvisvar á dag í miðri viku..." hahahah jámm, svoddan er livet!!!
Leiðinlegir síðustu dagar í evrópuboltanum. Æjæjæjæjæ, Liverpool og Arsenal bæði dottin út, þetta hlýtur að særa. Buhuhuhuhuhuhuhuh :)
Hamarsmótið á morgun, þá verður fjer... úff og obbosí segi ég bara. Getið fylgst með dagskrá og framgöngu mála hér.
Já kæru gestir, nú er komið að því. Nú gefst ykkur sá kostur að spyrja Lee um allt milli himins og jarðar. Ég mun svara samviskusamlega hver svo sem spurningin verður og nú er bara undir ykkur komið hvursu sniðugar spurningarnar verða og hvort það séu einhver leyndarmál sem ég þarf að upplýsa. Einstakt tækifæri fyrir ykkur til að komast að hvursu sómadrengur Lee í rauninni er. Sendið spurninguna á linkinn hér til vinstri "Spurðu Lee" og ég mun reyna að svara hið fyrsta.
Afmælisbarn dagsins er fröken Silja skvísípæ sem var hérna í heimsókn um helgina. Eins árs og innilega til lukku með það kæra fjölskylda í Norge.
Lítið annars að gerast, er að undirbúa mig andlega fyrir Hamarsmótið bara sem verður á laugardaginn. Svo ég skíri aðeins út hvað Hamarsmótið er, þá eru það 3 lið, Hamarinn, Villingarnir og Hunangstunglið sem háðu margar rimmur í gamla daga á malbiksvöllum borgarinnar. Fyrir 3 árum tóku svo Hamarsmenn sig til og keyptu glæsilegan bikar og stofnuðu sem sagt til þessa móts, sem hefur verið haldið árlega síðan. Er það haldið á gervigrasinu í garðabæ, 5 manna lið og tvöföld umferð. Skemmst frá því að segja að okkur Hamarsmönnum hefur ekki enn tekist að heimta bikarinn frá því við fjárfestum í honum. Tunglarar hafa unnið einu sinni og Villingar tvisvar. En dollan mun koma heim í heiðardalinn núna, það verður allt lagt undir. Nú síðan er sem sagt uppskeruhátíð um kveldið þar sem menn skála í brennivíni, nema Villingarnir, þeir mæta alltaf með landa. Þetta er sem sagt klassa dagur.
Annars ætla ég að koma með nýtt inná síðuna í dag. Kemur í ljós á eftir.
mars 18, 2003 :::
Dagurinn í gær var tóm leiðindi. Nett skjálftavakt allan daginn, fór í bolta um kveldið, þar sem ég gat ekki rassgat og datt síðan á leiguna um kveldið Signs með Mel Gibson og hún var ekki að gera neitt fyrir mig heldur. Pufff. Sofnaði 4 sinnum í sófanum milli kl. 22 og 03 einungis til þess að vakna 4 sinnum í svitabaði dauðans. Jamm þessi dagur fær 2 stjörnur af 100 mögulegum, en þessar 2 stjörnur fær hann einungis útaf pítsu sem ég fékk mér (16" með 4 á þússara sko :O) og hún var að gera fína hluti. Jæja fokkit þessi dagur er þó að baki og stefnir í betri dag í dag.
Þessi mynd Signs, hvaða rugl er þetta, gerist voða lítið. Samt voru allir sem eru búnir að sjá hana búnir að segja við mig að hún hefði verið ágæt, þannig maður var með nokkrar væntingar....pufff, þá verður fallið alltaf hærra. 3-4 kjánar í henni líka sko. Fór þó aðeins að velta þessu fyrir mér. Ég hef alltaf verið þeirrar skoðunar að það væri líf einhversstaðar annarsstaðar í heiminum. Ég held samt svei mér þá að ég skipti bara um skoðun. Ég meina auðvitað væru búnar að fást haldbærar sannanir fyrir því ef svo væri fjandakornið. OK það eru til eh myndir og videóklippur af einhverju drasli, en ekki hefur verið hægt að færa sönnur á það að það hafi ekki verið feik. Þannig ég ætla ekkert að kaupa þetta fyrr en ég verð vitni að þessu sjálfur, best þannig.
Hamarsmótið víðfræga næstu helgi. Uss, það verður eh. Líf farið að færast í umræðurnar á Hamarsmótssíðunni.
Afmælisbarn dagsins er enginn annar en Mósi sjálfur. Til lukku með daginn pabbi minn, still going strong. Viva la Mósi.
mars 17, 2003 :::
Úff og obbosí. Er tótallý dead núna. Jæja, brunaði suður með sjó á fimmtudag að sækja Nabba og Silju útá flugvöll. Tjah hún er fansý sú stutta það get ég vottað, þvílík skvísa alveg. Jæja, við sátum svo heima á fimmtudagskveld við tveir frændurnir og ræddum heima og
geima, enda ekki hist í eitt og hálft ár. Ætluðum bara að taka einn tvo, en það endaði auðvitað með því að við kláruðum tollinn, þ.e.
bjórtollinn. Vorum orðnir vel góðir og farnir að bragða á schnöppsum líka en vorum þó komnir í háttinn um kl. eitt.
Var nett ryðgaður á föstudeginum. Svo var dinner hjá Hillu og Sixmaster um kveldið, familígettúgeðer, sem var helv fínt og
skvetturnar ófáar sem duttu þar og maður orðinn vel góður. Var síðan á skralli eh frameftir.
Tjah laugardagur.... það var og. Ég og VIP brunuðum upp í Borgarnes einhverntíman uppúr hádeginu á leiðinni á árshátíð Bifrestinga,
Bifróvisjón. Byrjaðir í öl og skotum kl 14. puffff. Sátum þarna í nokkuð stífri drykkju og þarna mættu síðan Complex meðlimir og það er
bara eitt... no way out. Vorum komnir í 3falda G&T, Tanqueray 1 líter 47,3% takk fyrir og góða ferð, svona um kl.17. Næstu 12-14 kltímar eru í nokkuð þykkri móðu. Málið er að við vorum að flytja atriði sem við tókum í fyrra og ég skal segja ykkur það, ég MAN EKKI EFTIR ÞVÍ AÐ HAFA STIGIÐ Á SVIÐIÐ, hahahaha fokk, er ekki að meika þetta. Það versta er sennilegast að þetta var fest á videó...ohhhhh grimmur kjáni, held nebblega að þetta hafi fokkast upp og verið lamað. Best að fara að leita uppi myndatökumanninn og ræna bara spólunni áður en hún fer í fjölföldun. Svo var bara tjúttað fram eftir öllu og ég man það þó að það var helvíti gaman.
En dagurinn í gær var ekki gaman. Hann var djöfull og dauði. Og ekki dagurinn í dag mikið skárri. Vaknað kl.5 og skutlað feðginunum útá flugvöll, svaf svo oggupons yfir mig eftir það, svona ca 3 tímum :o)
Díses, maður elskar sig svo mikið stundum, að það á eftir að ganga af manni dauðum. Jájá, best að taka það á þetta bara, lifa hratt,deyja ungur.
Elska ykkur öll, er farinn að fá mér slöngu og kók.
Lee
Nú gerast heldur betur tíðindi í durg vikunnar. Í fyrsta skiptið í sögunni, er valinn durgur vikunnar maður sem hefur hlotnast þessi vafasami heiður áður. Já mínir kæru, það er sárt en satt, að Gylfi Steinn missti gjersamlega allt niðrum sig á ný eftir að hafa staðið sig svo vel í endurhæfingunni eftir að hafa verið valinn Durgur vikunnar fyrir fáeinum vikum. Hann var búinn að standa sig svo vel, en sprakk á limminu. Nú í vikunni hefur hann vísvitandi verið að gera lítið úr Hamarsmótinu, sem er hrein og bein hneysa og svo tók botninn úr í dag, þegar hann poppaði upp hjá mér á MSN og hóf samræðurnar. Umræðuefnið var vippa sem hann átti í handboltaleik með Hunangstunglinu í gær, sem ekki rataði rétta leið. Versigú:
GylfiSteinn.com says:
jæja það er gott að þú skemmtir þér í gær skíthællinn þinn Lee Haffa says:
hvað er að þér gilli minn GylfiSteinn.com says:
þú heyrðir hvað ég sagði Lee Haffa says:
skemmti mér hvað GylfiSteinn.com says:
þetta var fín vippa hjá mér Lee Haffa says:
fannst þér það GylfiSteinn.com says:
ekki fullkomin kannski GylfiSteinn.com says:
þú átt ekkert að vera að skella uppúr, Örn sagði að það hefði þurft að bera þig út Lee Haffa says:
sagði hann það já Lee Haffa says:
ég neita því ekkert að ég glotti við tönn GylfiSteinn.com says:
já þú ert þrjótur GylfiSteinn.com says:
en ég lofa 8 mörkum í kveld Lee Haffa says:
lofaðu því sem þú vilt GylfiSteinn.com says:
nú jæja já GylfiSteinn.com says:
"wanker" GylfiSteinn.com says:
W A N K E R Lee Haffa says:
gilli minn Lee Haffa says:
það er ekki mér að kenna að þú kunnir ekki að vippa GylfiSteinn.com says:
B L O O D Y W A N K E R GylfiSteinn.com says:
nei kannski ekki Lee Haffa says:
og er ég runkari útaf því GylfiSteinn.com says:
varst að þyrla upp moðreyk áðan Lee Haffa says:
ég var ekkert að því GylfiSteinn.com says:
Lee Haffa says:
lofaðu því sem þú vilt Lee Haffa says:
hvað er að GylfiSteinn.com says:
Lee Haffa says:
ég neita því ekkert að ég glotti við tönn Lee Haffa says:
ég bar þetta aðeins á góma í gærkveldi Lee Haffa says:
það var allt Lee Haffa says:
og studdi þig þá GylfiSteinn.com says:
það er ljóst að ég þarf að tækla 2 menn grimmt þann 22. Lee Haffa says:
en fæ svo þetta skítkast í andlitið GylfiSteinn.com says:
J.Hafstein says:
að þú hafir verið með skemmtiatriði inná leikvellinum í gær
J.Hafstein says:
allir hlegið að þér GylfiSteinn.com says:
er þetta frá þér komið ká? Lee Haffa says:
hahahahah Lee Haffa says:
nei gilli minn GylfiSteinn.com says:
bullocks GylfiSteinn.com says:
J.Hafstein says:
þetta var víst skammarlegt
GylfiSteinn.com says:
það er skömm að þér Jóhannes
GylfiSteinn.com says:
vertu ekki að ibba þinn gogg Lee Haffa says:
hahahah GylfiSteinn.com says:
þú ert í vondum málum Jakob, getur allt eins þrumað rýting í hægra hjartað á mér Lee Haffa says:
hvað er að þér gilli minn Lee Haffa says:
hvað nú GylfiSteinn.com says:
gasprandi í Jóa frænda GylfiSteinn.com says:
ómenni sá GylfiSteinn.com says:
það veistu Lee Haffa says:
gilli minn GylfiSteinn.com says:
vond mál Jakob GylfiSteinn.com says:
vond mál Lee Haffa says:
hann var bara að spyrja mig hvurnig leikurinn fór GylfiSteinn.com says:
jájá kobbi minn GylfiSteinn.com says:
ég minni á 22. mars Lee Haffa says:
þarft ekkert að minna mig á þann dag vinur GylfiSteinn.com says:
það er gott væni GylfiSteinn.com says:
ef þú heldur svona áfram Ká, þá hefst nýr dagskrárliður á steininum........ beinasni ársins Lee Haffa says:
hvað er að þér gylfi steinn GylfiSteinn.com says:
ekki neitt hér GylfiSteinn.com says:
miklu frekar hinu megin á línunni Lee Haffa says:
ég sagði honum hvernig leikurinn fór og að þú hefðir átt eina skemmtilega vippu, það var allt GylfiSteinn.com says:
jámm, jæja það verður kvittað fyrir hana í kveld GylfiSteinn.com says:
enda er ég fæddur sigurvegari GylfiSteinn.com says:
svo fær skepnan að finna til tevatnsins á fös.
Lee Haffa says:
já ég ætla að vona að þú rífir þig uppúr volæðinu Lee Haffa says:
hættir þessu væli og sýnir styrk gilli minn Lee Haffa says:
ég vil ekkert sjá frekar en að þér gangi allt í haginn GylfiSteinn.com says:
jájá en hugsaðu aðeins þinn gang... að vera beinasni er ekki öfundsvert hlutskipti Lee Haffa says:
gylli minn, ég er að segja að ég óski þér velfarnaðar, svo fær maður þetta trekk í trekk, skítkastið frá þé GylfiSteinn.com says:
þú klappar manni ekkert á öxlina og snýrð rýtingnum í bakinu á manni um leið góði Lee Haffa says:
sko, það er bara ekkert tiltökumál að ég hafi glott við tönn við vippuna, ég meina ég glotti við tönn mörg skipti í þessum leik, að ég hafi sagt jóhannesi þetta er bara ofur eðlilegur hlutur Lee Haffa says:
athugaðu þinn gang sjálfur þarna GylfiSteinn.com says:
æ nó... en Jóhannes er ómenni og durgur og þú átt að vita betur... en innst inni við beinið, ert þú, beinasninn, drengur góður Lee Haffa says:
þú ert semsagt að kalla mig beinasna Lee Haffa says:
tjahhh Lee Haffa says:
myndi fylgjast með sharknum í dag gilli minn GylfiSteinn.com says:
aahahahahhahahahahahaahahahahaah GylfiSteinn.com says:
því verður svarað ef þurfa þykir GylfiSteinn.com says:
með vöxtum Lee Haffa says:
hahahha Lee Haffa says:
hafðu það eins og þú vilt vinur
Jæja þar hafið þið það. Durgur vikunnar á ný, Gylfi Steinn Gunnarsson.
Af öðrum durgum er það að frétta að allir standa sig með sóma, nema kannski Daniel Bedingfield, hann lætur ekki segjast blessaður. Viðar Ingi er reyndar búinn að vera að misstíga sig örlítið, ekki alvarlega þó. Aðrir standa sig með prýði. En ég hef aðeins eitt að segja að lokum við Gylfa Stein.
Góðan og blessaðan. Vitiði ég hef ekkert að segja. Er að fara suður með sjó á eftir, Leifsstöð að sækja nafna minn Jakob Marínó og dóttur hans. Svo verður bara chill og eh. Familýdinner á morgun hjá Hillu sys, væntanlega teknar nokkrar skvettur þar, en þó innan hæfilegra marka....vonandi, maður hatar svo sopann skiljið þið. Maður þarf að vera tiltölulega brattur fyrir laugardaginn fyrir Bifróvisjon, sem stefnan er sett á. Fjer smjer.
Nýr Tunglari fæddist í gær. Huggulegur sá. Innilega til lukku Nonni og Berglind, mæli með nafninu Sjammón Jónsson.
Leiðist bloggið í dag. Er farinn að leita að durg vikunnar. Komiði nú einu sinni með ábendingar fjandenn hafi það.
Lee
mars 12, 2003 :::
Vúlevúggúseavechma sesvúa. Leiðinlegt lag maður, díses.. heyrði það í morgun og það er búið að glymja í hausnum á mér síðan.
Sörvævor í gær, lítið merkilegt, nú held ég hreinlega að kallarnir fari að valta yfir þetta. Ein pían svo háskælandi að hún væri búin á því og langaði að fara heim. En þær vildu ekki kjósa hana burt, kusu sterkasta leikmanninn í staðin og nú er hún háskælandi yfir því að hafa ekki verið kosin út af því hún var svo lasin. AF HVERJU KAUSTU ÞIG EKKI SJÁLF ÚT ÞARNA ÞÚ GRENJUSKJÓÐA, þá hefðirðu farið heim til þín. Nóg um það.
Frændi minn og kær vinur Jack Marino aka. Doktorinn er á leiðinni til landsins á morgun. Hann hef ég ekki séð í eitt og hálft ár og mætir hann með Silju, dóttur sína, sem ég hef ekki séð ennþá, en hún er að slá í fyrsta árið á næstu dögum. Það verður fjer og mun ég opna arma mína og heimili fyrir þeim á meðan þau eru stödd hér. Mjög gott mál.
Ætla þó að stinga þau væntanlega af á laugardaginn, þar sem ég er að spá í að skella mér á árshátíð Bifrestinga í Borgarnesi. Þetta hefur reynst hinn skemmtilegasti dagur í gegnum tíðina og tilvalið að skella sér í síðasta sinn, meðan móhíkanarnir eru þarna enn.
Hið árlega Hamarsmót verður svo haldið laugardaginn 22.mars, en þá munu hin fornfrægu félög Hamarinn, Hunangstunglið og Villingarnir leiða saman hesta sína. Sett hefur verið upp heimasíða fyrir mótið og munu umræður væntanlega verða með líflegasta móti þegar nær dregur.
Díssisss, hef ég ekkert fyndið að segja....
Gleður mig að VIP, fasteignasali, tarfur og fyrrum durgur vikunnar er byrjaður að blogga aftur.
Horfði á gamla fóstbræður þætti í gær... tjah þeir eiga fönný móment það get ég vottað, meig næstum því og skeit í mig af hlátri á tímum, þarf definetlí að renna í gegnum þetta frá upphafi.
Ætla að enda þetta á tveimur skemmtilegum setningum sem góðir menn áttu í vikunni.
"Málið er að ég er þvílíkt góður í að ríða..." ahahahahaha
"ég er að segja þér það, ég var á barmi oturs" aaaaaaaaaaaaaaaaaaaaahahahahah.... drepur
mars 10, 2003 :::
Já nei nei, fyrst það var ekkert að gerast um helgina þá var bara best að fara út bæði kvöldin og eyða einhverju af öllum þessum peningum sem maður á svo endalaust af. Föstudagurinn var planaður í að læna upp prógram fyrir Niðurgang og æfa eh af þessum lögum, gekk bara nokkuð skító sæmó, en þarf nokkrar æfingar til áður en fyrsta giggið fer í gang. Chandler lagði okkur lið og svo var kíkt í bæinn, teknar nokkrar skvettur og dottið í otrastarfsemi bara.
Laugardagurinn, þá var akkúrat ekkert í gangi, en nei svo duttu VIP og Chandler yfir og ginskvetturnar hurfu oní mann. Svo
þurfti náttúrulega að húrrast í bæinn og skvetta aðeins meira í sig, og það var sem fyrr, grimm otrastarfsemi í gangi. Alveg definetlý kveld sem skilur ekkert eftir sig.
Þar sem maður er að fara að gifta sig í sumar, þá var kíkt á brúðkaupssýninguna í Smáralind í gær með Weddahh og Gönnahhhh.
Ég skal segja ykkur það að það var tískusýning í gangi þarna og píurnar sem voru í henni ...... úfff og ýggg, rosalegar. Menn höfðu það á orði þarna inni að þeir væru allir að hólkast upp, og lái þeim hver sem vill. En maður var sem fyrr bara nagandi timbur þarna í staðin
fyrir að reyna að ná einhverjum eye-urum.
Grimmasti otur helgarinnar kom þó, þegar við Weddah vorum að reyna að ná í taxa á laugardaginn og biðum inní einhverju strætóskýli. Kemur ekki bara þessi most gordjus pía sem maður hefur séð lengi, þvílíkt myndarleg sko og staldrar þarna við hjá okkur. En neiiii, ekki var hægt að gefa sig á tal við hana, heldur var betra að finna sér timburklump bara og gæða sér á honum... og pían hvarf útí buskann.
Það er sárt en satt, ég er otur. Hef ekkert töts lengur, því þarf að breyta.
Lee
Já mínir kæru, durgur vikunnar að þessu sinni er Daniel Bedingfield. Hann sér sinn ósóma í því að trufla mig daglega með lagi sínu "If you´re not the one", sem mér finnst alveg hreint ótrúlega leiðinlegt. Hann er hreinlega á klt fresti í útvarpinu, svo toppar hann allt með því að mæta persónulega á skjáinn á kveldin og kasta á mann kveðju, og það engri venjulegri kveðju, heldur með eldingum, vindi, regni og með því að fleygja sér á hnéin. Úff, Daniel taktu þér tak, taktu forvera þína hér á þessari síðu til fyrirmyndar.
Annars er það að frétta að durgum síðustu vikna, að þeir eru bara allir að standa sig með stakri prýði. Engin durgslæti í langan tíma hjá þeim, sem er mjög gott. Mæli nú með því að þeir fari inná heimasíðu Daniels og sendi honum línu um það hvernig eigi að taka á þessum málum. Þið standið jú allir saman í baráttunni.
mars 06, 2003 :::
Ég skal segja ykkur það að ég er að drepast úr harðsperrum... í rassinum, takk fyrir það. Skemmtilegar hreyfingar í þessu skvassi. Svo er maður búinn að vera grimmur í bolta uppá síðkastið. Sko búið að vera eh hreyfing í gangi 7 daga af síðustu 9, aðallega bolti en
það splittar ekki, þetta er örugglega persónulegt met hjá mér. Svo er ég einn af þeim sem nenni aldrei að teygja og held hreinlega að ég sé fá það í bakið núna, voðalega stirður eh.... er þetta fokking aldurinn eða hvað?? Nei er ekki að sjá það, ég meina maður á besta
aldri. Svo er verið að reyna að plögga mann í bolta í kveld, geeeet ég það??
Úff fimmtudagur og þvílík blíða í gangi. Maður bara kemst í sumarfílínginn, langar að tilla sér eitthvað út með hélaða kollu..ohhhhh. Annars er þetta fyrsta helgin núna í mjög svo langan tíma þar sem ekkert er planað, spurning hvurnig maður vinnur úr því. Er það rólegheitin á þetta?? Tjah eitt get ég sagt ykkur, ef veðrið verður svona þá fer maður í blússandi gír, annað er bara rugl. Maður
kannski bara vígir golfsettið á helginni, tjah vert að pæla í því.
Er mikið að spá í hvern ég eigi að velja sem durg vikunnar. Allar ábendingar vel þegnar!!!
"Að pæla í brækurnar!" er skemmtilegur frasi. Spurning dagsins er sú, hvað þýðir þessi frasi?? Kolla í verðlaun, nema fyrir einn mann, en hann veit hvað þetta þýðir.
Lee@Lee.Lee
mars 05, 2003 :::
Tjah, Gee-Huzzl skoraði á Lee í skvass í gær og að sjálfsögðu tók ég því. Hafði ekki farið í skvass mörg mörg ár og minnti að ég væri nokkuð liðtækur í þessu sporti. Skemmst frá því að segja að Gee tók mig nokkuð örugglega 3-1 í hörku rimmum þó. Greinilegt að égþarf að vinna í sálfræðihliðinni. Gee er lunkinn leikmaður og með staðsetningarnar á hreinu og átti þetta fyllilega skilið. Til lukku minn kæri, enjoy while it lasts. En þetta er helv gaman og mikil átök, spurning að fara að stunda þetta meira.
Eftir skvassið hafði ég mælt mér mót við Mósann og ætluðum við að detta í saltkjet og baunir einhversstaðar, en vorum helst til seinir í því og allir staðir búnir að kötta á þetta. Skelltum okkur á Vegamót í staðinn og þar fékk ég eitt það besta sem ég hef fengið í langan tíma, Creola kjúklingurinn þarna er ROSALEGUR, úfff. Hef alltaf sagt það og segi það enn að Vegamót er klassa veitingastaður, mjög góður matur á hæfilegu verði. 2 ískaldir með kjúklingnum og þetta er alveg pottað dæmi.
Þegar ég kom heim sá ég mér til ómældrar ánægju að Judging Amy væri hætt á dagskrá... jibbí jibbí. Ekki mikið skárri þættir komnir staðin, Boston public....pufff, þó örlítið skárra en dómarabeyglan.
Svo kom survivor, tjah kellingarnar komu mér bara á óvart, svei mér þá. Það er að komast smá mynd á þetta hjá þeim bara og tóku báðar þrautirnar, hahahahah þessir melir eru alveg í tómu, þetta á eftir að svíða fram á vor hjá þeim. Fékk þó grimman kjána, eftir að kellingarnar höfðu unnið allskyns snyrtidrasl, sjampó og læti að þá þurftu 3 "huggulegstu píurnar", að þeirra eigin mati sko að fara saman að baða sig, af því þær voru flottari en hinar og væru svo ánægðar með líkama sinn og þær voru svo sætar og frábærar... allt að eigin sögn fjandenn. Það var ein sem heitir Heidi sem var að segja þetta og ég verð bara að segja, mér finnst akkúrat ekkert varið í þig Heidi mín, get a grip hérna. Hún er örugglega frænka bílasalans sem vann síðasta survivor, allavega með sama framstell, 2 númerum of stórt.
United - Leeds í kveld, leikur sem verður að vinnast, svo bolti, svo engin Amy.......´híííííííi´haaaaaaaa.
Ætla að fara að finna mér búning, eru ekki annars allir á leiðinni í bæinn.
BlzBlz
mars 04, 2003 :::
Bloggedí blogg. Voða lítið að gerast eitthvað. Tunglarar með glæstan sigur í gær í handboltanum, voru hreint stórgóðir blessaðir drengirnir... Einn bolti, ein veröld góðan daginn. Allt að verða vitlaust á milli Dabba og Baugsmanna, díses það verður fróðlegt að sjá hvurnig þetta endar. Mín pæling er sú, að menn hafi verið að skvetta í sig þarna útí Londres, þegar þetta fór allt fram og muni ekki alveg ferlið skref fyrir skref, en þetta hlýtur að skýrast á næstunni, það er allavega á kristal tæru að einhver á eftir að fara flatt á þessu.
Heyrðu, sprengidagur í dag, best að fara að bjóða sér í mat einhversstaðar.
Leiter on.
mars 02, 2003 :::
Rosalega leiðist mér að við skyldum liggja fyrir Púlurunum í dag. Þótt svo maður sjái ekkert sérstaklega eftir dollunni sjálfri, þá bara svíður það alltaf jafn mikið að tapa fyrir þeim fjandenn. En ég vil óska ykkur til hamingju Púlarar, haldiði síðan kjafti.
Tjah ein athyglisverðasta auglýsing sem ég hef séð var í DV í gær, undir smáauglýsingaflokknum "Ýmislegt". Man hana ekki orð fyrir orð en hún er sirkabát svona:
==
Hvar varst þú 24.maí 1994 Varst þú að fagna sigri R-listans í borgarstjórnarkosningunum. Hittirðu stelpu sem datt og fékk skurð á ennið? Fórstu með henni heim, svafstu hjá henni og varst síðan farinn þegar hún vaknaði. Þessi nótt gat af sér barn sem langar að hitta pabba sinn.
Já þetta er nokkuð magnað.... ahahahahahah. Jæja gæs, nú þarf að leggja hausinn í bleyti, hvar þið voruð þessa nótt???. Ég sjálfur var staddur í Portúgal að góna á tútturnar á bekkjarsystrum mínum ;-). En hvað er málið, núna 9 árum seinna, díses mar. Er að sjá að hún hafi rangfeðrað krakkann allan þennan tíma, ... rosa fínt... hef bara eitt að segja... women!!!