Já durgur vikunnar að þessu sinni er Jóhannes Júlíus Hafstein yngri. Hvað veldur því að hann fái þennan titil?? Ég skal segja ykkur það. Hann er búinn að vera að úthúða honum Gylfa Steini á spjallsíðu Hunangstunglsins uppá síðkastið. Þetta þykir mér sárt að sjá, því eins og alþjóð veit, þá var Gylfi Steinn valinn durgur vikunnar um daginn og var loksins farinn að athuga sinn gang og stóð sig með sóma. Það er á svoleiðis stundu sem menn þurfa stuðning, en Júlíus sem oft er kenndur við Djúpulaugina, Danaveldi eða banana, kemur bakatil að honum og reynir að brjóta hann niður eftir að hann hafði átt stórleik með Tunglinu í vikunni. Þetta framferði er engum mönnum til sóma Júlíus, taktu þér tak.
Af fyrri durgum vikunnar er það að frétta að Svanur Þór hefur staðið sig með miklum ágætum og greinilegt að durgstitillinn hefur gert honum mjög gott, hann tók á þessum málum strax og gerði það vel. Viðar Ingi stendur sig líka með mikilli prýði, reyndar misstígur sig af og til, en það er svo sem skiljanlegt þar sem vegur velgengninnar er stórgrýttur. Áður er nefnd frammistað Gylfa Steins og er hann á réttri leið. Það tók smá tíma fyrir hann að átta sig á þessu en hann hefur staðið sig með miklum sóma uppá síðkastið.
Tjah, datt aðeins inní Ísland í bítið í morgun. Viðtal við ungfrú Ísland og líka Íris eh. (pían sem er eins og barbí og er í Hagkaupsbæklingunum). Jæja ef við byrjum á ungfrú Ísland, jújú, myndarpía og skrokkur dauðans, en ég sá hana á Kaffibrennslunni í vikunni og hún var bara fokuð, svona ótiltekin... held þetta hafi örugglega verið hún :o). Finnst það ætti að setja upp eina svona keppni þar sem sparsl og önnur hjálpartæki eru bönnuð. Svo hin, barbí pían, ég meina verður hún að taka þátt í þessu forever, ég bara spyr? Var hún ekki í öðru eða þriðja sæti í ungfrú ísl. fyrir 2-3 árum og er enn í einhverjum keppnum sem bera voða fansý nöfn, Miss Tropicana, Miss young northern europe, Miss Hawaian Bollocks og ég veit ekki hvað og hvað. Já er að sjá það, hún á eftir að verða eilífðarfegurðardrottning, flott hjá henni. Hún var líka með einhverjar pælingar sem gáfu mér grimman kjána....æ er hættur við að dissa þær, þetta eru örugglega bestu skinn, bara fer í taugarnar á mér svona lagað, bjútíeitthvaðjúnówhat!!!
Tjah, gaurinn sem ég sagði ykkur frá í gær, Daniel Begenfield, tjah sá videoið með honum í gærkveldi. Þar er hreinlega allt saman sem gerir gott myndband skal ég segja ykkur. Close up á andlitið á honum þegar hann syngur með sorgarsvip, rigning, vindur, eldingar og að sjálfsögðu detttur hann á hnéin eins og sönnum listamanni sæmir svo eh sé nefnt. Ahahahah þetta er rosalegt. Endilega reynið að horfa á popptíví á næstunni og sjá þetta, jámm, Daniel Begenfield heitir melurinn, leggið þetta á minnið.
Gonnahh og Weddah dissuðu pílumótið í gær, og ég hreinlega veit ekki hvurnig ég á að taka á því. Jæja skellti mér í pílu með Chandler og nokkrar kollur með náttúrulega. Þetta er auðvitað rólegheitarsport, en þarna var fullt hús af háskólanemum þar sem var kosningavaka Vöku, félags lýðræðislegra stúdenta að ég held, en beisiklí æ dónt give a fokk. Óttalegir plebbar þarna inná milli, uppstrílaðir með bindi og í frökkum og læti og gengu um eins og mafíósar, æ ég hreinlega veit það ekki, persónulega er ekki að gera neitt fyrir mig. Voru reyndar nokkrar skjátur þarna inná milli, sem að sjálfsögðu límdust við píluspjaldið til að sjá tarfana að verki :-) grimm pressa í gangi, sem við stóðum af okkur með sóma. Lee tók þetta 3-1 eftir skemmtilega rimmu og þá voru merarnar farnar að slæda til í sætunum, jamm þetta er bara svona. Svo komu Weddah og Gönnahh og við sátum þarna eh frameftir og gæddum okkur á ódýrum öl. Sárt að segja frá því að Sportkaffi er að fara að leggja upp laupana, síðasta helgin núna sem það verður opið og ekki vitað hvað tekur við. Já þetta særir.
Durgur vikunnar kemur innan skamms, ásamt fréttum að durgum síðustu vikna.
´till ðen
punginn á ykkur
febrúar 27, 2003 :::
Buonas dias bellas & bellos. Ítölskufræðingurinn ég. Jæja wazzap??? Lee nokkuð góður bara. Var að koma úr löns með Complexmeðlimum, nánar tiltekið Gelfý, Chandler og Raggio, þar sem rædd voru heimsyfirráð, kvenhylli, rokk og ról og annað fræðilegt. Very good. Lítið títt annars. Stefnan helst sett á 5. stigamót vetrarins í pílu í kveld, eeeeen!!! runkararnir Weddahh og Gönnahh tóku upp á því að fara í bolta á fim. kveldum, akkúrat þegar pílumótið á að vera í gangi. Það er reyndar ekki alveg komið á hreint, en þetta framferði þeirra er fyrir neðan allar hellur, þ.e. að íhuga það einu sinni að vera í bolta á þessum tíma. Jæja við spyrjum að leikslokum.
Helgin að detta inn, tjah og fyrsti æfingaleikur Hunangstunglsins á laugardag. Í Laugardalnum kl. 18 fyrir ykkur allra hörðustu. Svo verðu gleði eftir á, víúúvíúú. Skal setja eitt mark fyrir ykkur fyrst þið endilega viljið, og það mun vera í glæsilegri kantinum. Knattspyrnufélagið Ufsinn er mótherjinn, og er þeim hollast að fara með bænirnar bara núna.
Verð aðeins að koma inná eitt versta lag sem ég hef heyrt í langan tíma. Það er með kóna sem heitir Daniel Begenfield eða Engenfield eða eh álíka og er alveg með ólíkindum vont. Man ekki hvað það heitir, held "You´re not for me". Svo er sagt að kellingarnar séu að gera í brækurnar yfir þessu lagi... er eeekkkii að kaupa það fjandenn.
Á í smá vandræðum með að velja durg vikunnar. Allar ábendingar eru vel þegnar í kommentin, þ.e. ef þessi fargans komment fari nú að virka einu sinni.
Leiter on.
Lee
febrúar 26, 2003 :::
Erum við að tala um að þetta kommenta kerfi sé endalaust í tómu fokki.... rosa fínt. Nú fer ég alvarlega að athuga minn gang varðandi það hver fær heiðurinn að hýsa kommentin hjá mér, já útboð á þetta fjandenn.
Survivor,.... það var og. Hvað er málið með þessar kellingar, búnar að vera þarna í 5 daga og ekki ennþá búnar að byggja sér skjól og varla að reyna, bara chilla og rigna niður og þvo nærfötin... frábært. Unnu þó aðra keppnina í röð á móti köllunum, hahahahah þeir voru foj, sjálfstraustið í molum, náðu þó loksins að vinna þriðju þrautina og myndi ég tippa á það að þeir vinni ca. næstu 5 þrautir. Þvílíkur pirringur í gangi í kvennabúðunum, ein negrabeyglan í tómu tjóni, attitúd dauðans. Hellti sér svoleiðis yfir heyrnalausu stelpuna, sem fór náttúrulega að grenja yet again (tveir þættir búnir og hún allavega búin að fara að grenja fjórum sinnum) hahhahah tók bókstaflega "talk to the hand" á hana, setti lúkuna fyrir andlitið á sér og blaðraði og blaðraði og greyið heyrnalausa hefur örugglega ekki haft hugmynd um hvað hún var að segja, þar sem hún les varir, en lúkan sem sagt huldi þær.... ahahhahahaha. Svo er þessi heyrnarlausa líka svoleiðis að drepast úr sjálfsvorkun að það hálfa væri miklu meira en yfirdrifið nóg. Ekki misskilja mig og halda að ég sé með einhverja fordóma gagnvart heyrnarskertum, held bara að hún sé á rangri hillu í lífinu þarna í Amazon og eins og svo margir aðrir sem ég þekki, gjörsamlega með allt niðrum sig. Jæja það verður allavega fróðlegt að fylgjast með framhaldinu.
Átti athyglisvert samtal áðan sem ég ætla að enda þetta á:
Lókur: " Hvað hef ég eiginlega gert þér? "
Lee: " Nú hvað er að vinurinn? "
Lókur: " Hvað er aaað?? "
Lókur: " Ég skal segja þér hvað er að!! "
Lókur: " Ég er orðinn samvaxinn bolloxnum á þér...."
Lókur: " Það er það sem er að....$&%#)((&$# "
Lee: " Láttekki eins og kjáni, þetta er bara svona..!"
Lókur: " Æ, góði þegiðu."
febrúar 25, 2003 :::
Spurning hvort maður sæki ekki bara um óperustjóra stöðuna. Greinilegt að það þarf viðskiptafræðing í það job, svo kann maður smá í músík líka, er að sjá það, ætli hann sé ekki með svona 400 kall á mánuði, ég gæti alveg sætt mig við það í byrjunarlaun, örlítið hærra en það sem ég er með núna :o/. OK, kalt mat, sett upp einhver svaka ópera og þótt það sé uppselt á allar sýningar þá er það útséð mál að það muni alltaf vera rúmlega milljón krónu tap af hverri sýningu, hmmmm hagkvæmt. Já svona á að stjórna batteríi. Ætla að fara að æfa einhverjar aríur og mæta svo grimmur og sækja um... Ooooo sooolemiiioooo.
Djöfull þarf maður að fara að gera eitthvað til að eignast alvöru peninga, nennessekki, langar bara í haug af peningum. Sko einhver sagði að "peningar væru ekki allt", fjandahelvítiskornið nei, en þeir eru ansi mikið, 90-95%. Það er bara vitað mál að öllum líður betur ef þeir hafa fjárhagslegt öryggi. Svo er þetta alltaf sett upp að það sé annaðhvort eða... vinir og fjölskylda eða peningar, æ þetta er bara ekki sambærilegt. Allavega þá er kominn tími til að gera eitthvað, setja hugmyndir í gang. Maður er svosem búinn að vera með ýmislegt í startholunum í gegnum tíðina, en aldrei látið verða að því. En það verður einhverju hrint í gang á þessu ári, það get ég vottað.
Þegar öllu er á botninn hvolft, þá er þetta ekkert spurning um hvað þú getur, heldur hvað þú GERIR.
Lee
febrúar 24, 2003 :::
Verð að koma með eina smá pælingu hérna og vonast til að einhver eðlisfræðingurinn geti kommentað á.
Hvernig er það hægt að vera með fullt bjórglas, missa það í jörðina, en samt sem áður fá meirihlutan af bjórnum framan í sig. Lenti í þessu á lau. á dansgólfinu, get svarið það að það var bara eins og einhver hafi staðið fyrir framan mig og skvett framan í mig. Ótrúlegt alveg. Endilega einhver að skýra út fyrir mér mátt höggbylgjunnar. En þetta var fönný það get ég vottað. Perlaður í framan af öl, rroooosssa fínt.
Júúúú sælt veri fólkið. Þrítugsafmæli hjá Gonnahh á helginni, helv fín veisla á Astro. Glæstar veitingar í föstu og fljótandi formi, voðalega leiðist manni það. Gonnah bar sig vel og sinnti gestum af kostgæfni og fór svo síðan bara heim uppúr miðnætti, var eitthvað þreyttur blessaður, já skynsamur er hann. VIP stýrði veislunni af festu og gerði það vel, gaman að sjá menn sem hafa verið með allt á hælunum rífa sig uppúr volæðinu og koma sterkir inn. Þetta ættu aðrir að taka sér til fyrirmyndar. Allavega þá var þetta voða fín veisla, til lukku með daginn aftur Gonnahh.
Hef akkúrat ekkert að segja, einhver mánudagsleiði í manni og tómheit.
HOOORRRUUURRRRR.
lee
febrúar 20, 2003 :::
Jæja Gee-Hözzl, durgur síðustu viku er einstakur maður. Hann þverneitar að vera eitthvað uppstökkur og með dólgslæti trekk í trekk. Jæja, ég birti nú bara samtal sem ég átti við hann fyrr í dag. Þá er ég nýbúinn að benda honum á að hann sé búinn að eignast nýjan sálufélaga í Durg vikunnar og að greinilegt væri að hann væri ekki búinn að athuga sinn gang síðan hann var valinn Durgur síðustu viku. Dæmi hver fyrir sig hvort Gee sé uppstökkur durgur eður ei.
GylfiSteinn.com says: og hvað er þetta Ká?
Sjammón says: bara líka´að benda á umsögnina um þig
GylfiSteinn.com says: uppstökkur?
Sjammón says: hahahahahah
GylfiSteinn.com says: þetta er fokkans lygi
Sjammón says: nei gilli minn það veistu best sjálfur
GylfiSteinn.com says: það er VIP sem gengur um með munnsöfnuð
Sjammón says: sbr. þegar ég spurði þig einfaldrar spurningar, þá raukstu uppá háa C-ið
GylfiSteinn.com says: já með hæðnistón
GylfiSteinn.com says: slíkt er ekki liðið Ká
GylfiSteinn.com says: en tja.. góð mynd af durginum
Sjammón says: jesss
GylfiSteinn.com says: þú ert kjáni Ká.. og frændi þinn líka
Sjammón says: prúvs mæ point
GylfiSteinn.com says: point? jæja væni
GylfiSteinn.com says: ég ætla nú ekki að eyða orðum í þennan ólátabelg sem þú ert orðinn
Sjammón says: hlustaðu á sjálfan þig
Sjammón says: heyrðu hvernig þú ert
GylfiSteinn.com says: blessaður þambaðu drullu með Begga Heimsfræga fituhlunk
GylfiSteinn.com says: góðir saman
Jæja, hvað finnst fólki um Gee. Vill líka benda á að sá sem hann kallar Begga Heimsfræga fituhlunk, er enginn annar en okkar ástsæli Víkingur og fyrrum landsliðsþjálfari í handbolta Þorbergur Aðalsteinsson. Gilli minn, brækurnar í hreinsun núna takk.
Lee
Það þarf engum að koma það á óvart að durgur vikunnar að þessu sinni er Svanur Þór Valdimarsson aka. Chandler. Það ætti það að vera öllum kunnugt sem lesa þessa síðu afrek hans síðustu vikuna. Það var sem sagt að ganga um háskólaþorpið á Bifröst kl. rúmlega 6 að morgni föstudags gargandi í gjallarhorn, leitandi að partýi. Svo þegar einhver reyndi að stela af honum gjallarhorninu, tók hann sig til og smallaði rúðu hjá sama aðila með vænu karatesparki. Þetta kallar maður durg.
Annars er það helst að frétta af fyrri durgum vikunnar að VIP er búinn að standa sig með sóma og er greinilega búinn að athuga sinn gang og hefur gert það vel. Hann er nýr og breyttur maður og gaman að sjá þegar menn ná að hysja upp um sig brækurnar. Önnur og síðri saga er af Tísku Gilla, sem hefur greinilega ekkert gert í sínum málum sl. viku. Hann er jafn uppstökkur og er með dólgslæti sem fyrr. Hann ætti að taka VIP sér til fyrirmyndar.
Dobrí den kæra fólk. Háðefokkislæftrítíngjútúdei? Bara nokkuð fæn hjá mér takk fyrir. Undarlegt hvað mér líður alltaf betur seinnipart vikunnar, já þá stefnir í eitthvað skemmtilegt. Búið að vera kreisí dúin sl. helgar to sei ðe líst. Já þetta er bara svona, ég viðurkenni það alveg að maður lifir fyrir helgarnar, ég meina hvað annað, ungur maður fullur af hormónum. Stefnan kannski að róa þetta aðeins, en ég hef nú lært það að vera ekkert að koma með einhverjar yfirlýsingar hérna, þar sem Tísku-Gilli, durgur síðustu viku, þarf alltaf að koma með einhver leiðindi. Maður lætur þetta bara ráðast.
Sportkaffi í gær með Mósanum, qualitytime hjá feðgunum yfir kollu, börger og Man.U. Helv. fínt. Mínir menn svo gott sem búnir að tryggja sig í 8 liða úrslitin og það eftir 3 leiki af 6, well dön það. Hafði gaman að því að sjá hann Beck´s minn gera þessa fínu hluti í gær, þessi drengur er alveg að gera það. Svo fór ég í bolta eftirá og ég skal sko alveg margítreka það hér að börger og bjór fyrir bolta er ekki góð blanda, díses átti fótum mínum fjer að launa í miðjum leik, þegar ég hreinlega var næstum búinn að míga í mig og það ekki með tettlengnum... ónei ;o). Jæja kom heim og auðvitað var Judging Amy í kassanum... again, alltaf verð ég jafn pirraður, þessir þættir eru alveegtótallýoff, segi og skrifa.
Hins vegar var ég hrifinn af fyrsta þættinum af sörvævor um daginn. Tjah þetta stefnir í mjög svo skemmtilega þáttaröð ef heldur áfram sem horfir. Jámm nú er þetta kynjaskipt. Kokkí gaurar dauðans þarna, sem þurftu svo að éta allt oní sig þegar þeir töpuðu fyrstu friðhelginni ahahahaha, djefull voru þeir foj. Þetta verður most interesting. Og kellingarnar, tjah ein heyrnarlaus þarna, sem á væntanlega eftir að koma henni í bobba. Jæja splittar kannski ekki diff. Það sem ég hjó helst eftir hjá þeim, var tvennt. Fyrst það, að á öðrum degi, þá var ákveðið að fórna einhverju af vatnsbirgðunum til þess að sjóða nærfötin sín uppúr... aaaaaaaaahahahahahahah sjammón lee. Er ekki allt í lagi. Það voru nú ekki allar sem tóku þátt í þessu en þetta finnst mér magnað. Annað var það, að tvær þeirra fóru að veiða á bát og hentu neti út. Fengu einn lítinn fisk, sem ég held örugglega að hafi verið píranafiskur. Allavega þá datt þeim það snilldarráð í hug að stinga árunum oní botninn á ánni, sem var svona hálfs meters djúp, á meðan þær voru að losa fiskinn. Tjahh svo tók smá tíma að losa´nn og þegar það var búið, þá var þær búið að reka smá spöl frá árunum. Vitiði það, þarna kafnaði ég næstum því úr hlátri, sá fram á að þær myndu fara að vaða að árunum og píranafiskarnir myndu éta af þeim lappirnar, ahahahahahahahahaah, það hefði verið eitthvað. Og vitiði ég held að það hafi vel getað gerst ef allt kameru krúið hefði ekki verið þarna með. En jæja, thats reality TV. Fokkit, þetta á eftir að verða hin mesta skemmtun og mæli ég með þessu hiklaust. Survivor Amazon.
Durgur vikunnar kemur inní dag, ásamt fréttum af fyrri durgum.
Þangað til, gangið bara á Guðs vegum.
Lee
febrúar 19, 2003 :::
Geeet ég þetta blogg. Ég meina nú er ég búinn að vera að blogga síðan 17.október, og ætlaði að sjá hvað maður myndi þrauka lengi. Nú eru liðnir rétt rúmir 4 mánuðir og ég hef sennilegast bloggað að meðaltali einu sinni á dag sem eru um 120 blogg. Díses.... og hvert blogg kannski að meðaltali um 200 orð. 24000 orð takk fyrir, sem slær hátt í sama orðafjölda og er í 3 BS-ritgerðum. Ef ég hefði nú bara verið búinn að átta mig á þessu bloggi í fyrra þegar ég var að böðlast í ritgerðinni. Þá hefði ég gert þetta að fyrstu opinberu lokaritgerð á landinu eða jafnvel heiminum. Hefði hripað inn 2-300 orð daglega um viðfangsefnið, haft síðan kommentakerfið og gefið þannig fólki færi á að fylgjast með og kommenta á það sem ég væri að fara með mínar pælingar. Eruð þið að sjá þetta??? Eða maður gæti líka bara látið nokkra vel valda aðila fá slóðina að síðunni og látið þá um að kommenta. Djöfull er ég að sjá þetta. Mæli með þessu við síðustu móhíkanana á Bifröst, ef þeir eru í tómu. Ég get svarið það, ef ég fer í masterinn, þá ætla ég að prófa þetta, mér finnst þetta brilljant.
Annars ef ég held áfram með þetta bloggerí, nennir maður að standa endalaust í þessu. Rúmlega 7000 gestir komnir inn, sem er eitthvað um 60 á dag að meðaltali. Jæja fokkit, ætla að byrja á því að þrauka uppí 10000 og sjá svo til. Kannski maður fari bara að hætta þessari vitleysu.
Golli og Júlía eignuðust sitt fyrsta barn á laugardag, lítinn snáða, innilega til hamingju elsku vinir. :o) Well dön.
febrúar 18, 2003 :::
Jæja, best að hripa niður smá ferðasögu hérna. Fimmtudagurinn hófst á því að Lee, Raggio og Chandler brunuðu uppá Bifröst. Planið var að tjalda þar til einnar nætur og húrra sér síðan norður yfir heiðar á föstudagshádegi. Við tókum túr um svæðið, sem hefur breyst töluvert mikið síðan ég var þarna fyrir um 10 mánuðum, gaman að sjá þetta, voða fansý. Skvettum í okkur nokkrum öllurum í Hraunbæ (mitt gamla heimili), kíktum svo á hreiður þeirra Ragtoin og Önnu Lilju í osta og fínerí og svo farið á kaffihúsið. Þar var dúndur stemning, karókí í gangi og læti og ég neita því ekki að maður fékk nett deisjavú þarna, helvíti gaman bara, jámm stundum saknar maður skólalífsins. Svo var haldið í Hraunbæinn og þar fylltist kofinn og partý frameftir öllu, bara alveg eins og í ðí óld tæms, fjer, fjer, fjer. Seinna meir þennan morgun kom svo að áðurnefndum þætti Chandlers, þar sem hann fór hamförum á gjallarhorninu.... "ER ÉG EINN Á SVÆÐINU"... aahahahahahah magnað max, sem fór misvel í íbúana á svæðinu. Einhvernvegin endaði þetta með brotinni rúðu á einni íbúðinni og ekki veit ég hvernig það gerðist, en sjónarvottur sagði:"ég sá bara háan, dökkhærðan, myndarlegan mann taka tvöfalt hringspark með krók og svo heyrði ég brothljóð". Jámm, ferðin var hafin og það með stæl.
Föstudagur og nú var Bendt klár líka og hollið sem sagt fullmyndað. ´"Ætlarðu með alla þessa tösku" sagði Raggio við Chandler þegar hann var að pakka oní tösku sem var rúmmeter af stærð..... ahahahahah "alla þessa tösku" snilld. Jæja taskan kom með, enda vorum við á Speismóbíl og nóg pláss. Nú í tilfefni Valentínusardagsins, þá fannst okkur tilvalið að taka puttaling, huggulega snót frá Bifröst sem þurfti að komast norður. Við vorum nú ekki meiri herramenn en það að við hentum henni bara í skottið, hahahah já það er satt, en sem fyrr segir þá var þetta stór bíll og fínt að vera í skottinu, og svo var skipst á að vera þar, bara svo það sé á hreinu að við séum ekki algjörir dólgar :o). Jæja, næsta stopp, Blönduós. Teygja úr sér og fá sér eina slöngu. "Díses, hafiði nokkuð séð veskið mitt?"...segir Chandler háalvarlegur. "Þú ert að fokka í mér??" segi ég og hann svarar, "Nei maður díses, jæja þú verður að lána mér fyrir appelsín" aaaaahahhahaah. "Jæja, þú verður þá bara edrú á Akureyri, það er ekkert flókið" segir Raggio, Chandler hristir hausinn og dæsir, ahahahahahahah, get ekki hamið mig af gleði þegar ég hugsa um þetta allt saman. Jæja en þetta var þó hið minnsta mál, bara millifært og gert og græjað og allt í orden. Áætlaður lendingartími á Akureyri var kl.16:00, við renndum inn fyrir bæjarmörkin 16:01, jámm "Complex, always on time!!". Beint á Kaffi Akureyri í kollu, en það er hefð sem verður ekki brotin. Svo var farið í ÁTVR með tilheyrandi leikþætti og verslað og uppí íbúð sem var hin fínasta. Dinner, Pizza og red, svo G&T sungið og trallað, Crazy Weather samið, drykkjuleikir, mænudeyfing og svo Kaffi Ak. Þar var sko fjer og dansað af krafti og greinilegt að innfæddar voru varar við new meat in town, en við erum ekki einhver kjötstykki, við erum tilfinningaverur fjandennnn. Svo buðum við einhverjum skjátum í partæ og allt var í orden, þangað til þær fara eitthvað að kyssast og rjúka svo á dyr. Við eftir.... hólkaðir. Svefn.
Laugardagurinn, vaknað uppúr 11 og beint á pöbbinn í Man U. - Arsenal sem verður ekkert fjölyrt um hér. Nema þá kannski aðeins um pöbbinn þar sem við horfðum á leikinn, en hann hét Mongó. Já ekki veit ég hvort það er dregið af nafninu mongólíti, kæmi mér svosem ekkert á óvart. Svo var tekin nettur rúntur um pleisið, aðeins að sjúga í sig norðlenska menningu og svo bara heim í afslappelsi. Svo var bara sturtað sig og sturtað í sig og skellt sér í glansgallann og nett Júróvisjón stemning á þetta, með red og baquette og læti og svo vænar skvettur af G&T, Captein og hvað eina og menn tilbúnir að mála bæinn rauðan. Ófarir Chandlers voru greinilega ekki á enda, því hann tók ástfóstur við postulínið seinnipart dags og fór hreinlega á skeljarnar fyrir það, í orðsins fyllstu. Það komu einhverjar skjátur í júróvisjón partýið og kunnu þær vel að meta kúltíverað yfirbragð Complexmanna. Svo var skellt sér á Kaffi Ak. en Chandler hafði náð sér í einhverja sótt og varð eftir. Auðvitað var það mikill missir fyrir okkur hina drengina að fá hann ekki með okkur á tjúttið þetta kveld, en ekki síðri er missir norðlenskra kvenna, sem gráta væntanlega enn þann dag í dag að Chandler hafi ekki heiðrað þær með nærveru sinni þetta laugardagskveld, en það kemur ferð eftir þessa ferð. Eftir Kaffi Ak. var farið á Sjallann þar sem átti að reyna að fá frítt inn. Ekki var beyglan í miðasölunni á því, þannig að það var gripið til the Complex way. Bendt hafði með snilldartilþrifum komið sér frítt inn, en við Raggio ennþá fyrir utan. Ég hringi í símann hans Raggio og bið hann um að láta dyravörðinn fá símann. Nú dyravörðurinn kemur í símann og ég kynni mig sem eiganda Sjallans og hvort hann vilji ekki hleypa tveimur vinum sínum inn. "Þú ert ekkert eigandi Sjallans" segir dyravörðurinn og ég svara "jújú, þekkirðu mig ekki, er bara svoldið rámur". "Sko eigandi Sjallans er besti vinur minn" segir hann þá og við erum eitthvað að þræta um þetta hvort ég sé Sjallaeigandi eða ekki. Ég stend svo fyrir utan Sjallan að reyna að sannfæra gaurinn, þegar hann kemur út og stendur við hliðiná mér og við að tala saman í símann með svona ca. hálfan meter á milli okkar. Ahahahahah, hann fattaði það ekki og ég ekki heldur strax, en þetta endaði sem sagt með því að hann skellir bara á. Jæja Raggio vippar upp veskinu og við förum inn, (graci raggio, ég borga 2004 :o). Alltaf gaman að koma í Sjallann og tjúttað frameftir. Svo var bara haldið heim á leið, enda bensíntankurinn því næst því að verða tómur eftir 3ja daga törn.
Sunnudagur fór í nett móg bara, kíkt á gömlu hjónin og svo bara videókveld, en við vorum sem sagt veðurtepptir. Jámm, það var Crazy focking weather yeah yeah.
Brunað í bæinn á mán.morgun, puttalingurinn kom aftur með og að sjálfsögðu var henni hent í skottið :o)
Ég þakka fyrir mig drengir mínir, þetta var klassi.
Sama tíma að ári.
Lee
Buonas dias eða whatever. Hvað segist kæra fólk? Já er það? En frábært. Tjah, sofnaði yfir Jay Leno í gær, vaknaði yfir practice ca. hálftíma síðar, sem er náttúrulega ekkert merkilegt nema fyrir utan það að ég var í svitabaði dauðans. Er að segja ykkur það, man ekki eftir að hafa lent í öðru eins. Hvernig er hægt að svitna svona hreyfingarlaus á hálftíma... ótrúlegt alveg. Og ég sem var búinn að vera í bolta fyrr um kveldið og svitna eins og svín. Jamm hreinsunarstarfsemi líkamans að standa sig eftir helgina heldur betur. Svo svaf ég bara á mínu græna til hálfníu í morgun og er bara stálsleginn, bjóst við að þurfa alla vikuna til að jafna mig, en það er nú öðru nær ójeee.
Það er nú fátt leiðinlegra en að koma í bæinn eftir svona vel heppnaða helgi og veðrið eins og það var í gær, viðbjóðslega grátt, rok og rigning m.ö.o. Kreisí fokking weather yeah yeahhh. Talandi um það, þá lögðu Complexmeðlimir lokahönd á lagið Crazy Weather um helgina, en það er búið að vera í bígerð núna í um eitt ár. Menn voru almennt ánægðir með útkomuna og greinilegt að Complex er margt til lista lagt. Lagið kemur von bráðar inná Complexsíðuna.
Annars má ég til með að segja ykkur frá smá leikþætti sem var settur á svið í ÁTVR á Akureyri á föstudag. Málið er að við vorum búnir að safna í smá sjóð fyrir þessa ferð og Bendt var með kortið og við með fulla körfu af brennivíni fyrir ca. 20 kall. Jæja Lee stendur við kassann og er að draga upp veskið:
Bendt: "Nei heyrðu, ég tek þetta bara" Lee: "Nei láttekki svona maður, þú tókst flugið" Bendt: "Já nei nei, þetta er ekkert mál, þú græjar bara svítuna" Lee: "Jæja ok, segjum það þá" Afgreiðslumaðurinn: ".............." (sem sagt átti ekki orð)
Maðurinn fyrir aftan okkur í röðinni : "pufffff",.. (og hristi hausinn)
Allt fólkið í versluninni: .....(stuna, andvarp)
Ahahahahah, já Complex voru mættir, það var greinilegt. Þetta fannst okkur agalega fönný.
febrúar 17, 2003 :::
Úfff. Erum við að tala um eina tærustu snilld, sem þessar Akureyrarferðir er. Og vorum veðurtepptir eina nótt til, djefull leiddist manni það :o). Veit ekki hvort maður á eitthvað að vera að henda ferðasögu niður á prent, held bara varla. Hér eru nokkrir glænýjir frasar sem hafa orðið til á sl. dögum.
"Er ég einn á svæðinu" ...ahahahahaah. Svanur kl. 06:30 á föstudagsmorgun. Þetta þarf kannski ekki að vera svo fyndið, nema vegna þeirra aðstæðna þegar þessi orð voru sögð. Tjah. Svanur inní miðju háskólaþorpi og með gjallarhorn gargandi þessi ósköp.. ahahahahahaahha.
"Það eru tveir menn að elta mig með stóla" ...aaaaaaahahahahahah. Svanur í símann við mig, kl. ca. 06:42 þennan sama morgun. ahahahahahahah. Greinilegt að menn voru að fíla misjafnlega gjallarhornið.
Æji, hendi inn fleiri frösum á morgun. Er ennþá í kasti þegar ég hugsa um þetta og á þá erfitt með að pikka inn.
febrúar 13, 2003 :::
And there is a God after all. Jamm held bara svei mér þá að vörin á mér hafi aldrei litið betur út. Örlítið aumur í henni innanverðri og það er spurning hvurnig hún bregst við áreiti salts og sítrónu og meððí, en ekkert utanvert lýti, sem er mjög gott. Nú get ég einbeitt mér að öðru, en það er að stinga af í hádeginu, heim að pakka, dóla mér eitthvað, keyra uppá skaga, keyra uppá Bifröst, setjast niður og fá mér kollu. Morgun, Akureyri 2003 takk fyrir það og góða ferð.
Blezz.
Lee
Tjahhh, er í nettu stresskasti núna. Var í bolta og fékk vænt olnbogaskot beint á trantinn. Sprakk vör, þó lán í óláni að hún sprakk innanfrá og því sést áverkinn ekki. Aðal áhyggjuefni mitt er sem sagt það hvort vörin bólgni upp í nótt og ég þurfi þá að vera með þennan óboðna gest fyrir norðan. Dííísesss, geeet ég það. Hugsa til þess með hryllingi að ég verði með tvöfalda vör á Akureyri. Ohhhh ég meina sjammón, þetta er skandall. Best að fara með bæn.
Kæri Guð. Hef nú ekki beðið þig um neitt í mörg mörg ár, eða síðan ég bað þig um fyrsta penghárið á gelgjuskeiðinu. Viltu vera svo vænn að láta neðri vörina á mér vera normal þegar ég vakna á morgun, ég meina sjammón, þú getur ekki gert mér það að ég fari krambúleraður í Sjallann. Geeerðu það.
Þinn vinur,
Ká Lí.
Já það er komið að durg vikunnar. Það er enginn annar en Gylfi Steinn Gunnarsson. Þessi leikmaður hefur sýnt allt annað en ásættanlegt framferði síðustu dagana. Drengurinn hefur verið uppstökkur með eindæmum og það má teljast til undantekninga ef hann svarar manni, þegar maður býður honum góðan dag, með öðrum orðum en "þegiðu Lee", "haltu kjafti Ká", "mella" eða annað í þeim dúr. Ekki veit ég hvað veldur, því Gee er nú þekktur fyrir það að vera dagfarsprúður maður og samkvæmur sjálfum sér. Greinilegt er að hann hefur að geyma annan og durgslegri mann og þann mann þarf að beisla svo ekki illa fari fyrir blessuðum drengnum. Svo tók nú botninn endanlega úr þegar hann vald mig í dag sem "agaleysi vikunnar" á síðunni sinni, sökum saklausra yfirlýsinga minna sem hafa ekki alveg staðist á síðustu mánuðum. Nú þarf Gylfi Steinn að gera það sama og durgur síðustu viku, Viðar Ingi, en það er að leggjast undir feld, líta í eigin barm og hysja upp um sig brækurnar, því þær eru greinilega niðrá ökkla þessa dagana.
Tomorrow, tomorrow I luv yah, tomorrow...lalalalalalal. Jamm er búinn að vera með þetta lag úr hinum stórskemmtilega söngleik Annie á heilanum síðan ég vaknaði. Fjandenn, þetta er að fara að bresta á. Langar helst að fara heim og taka svefntöflu núna og vakna bara á morgun. Jæja fokkit, þraukaðu aðeins Lee, já þraukaðu fjandakornið. Lítið að frétta annars. Pabbi bauð mér í dinner á Kringlukránna í gær. Hef alltaf kunnað vel við þá knæpu, þægileg og nett erlent yfirbragð svo er þetta náttúrulega orðin dúndur restaurant líka. Nauta prime steik á þetta .. ohhhhh, þvílík snilld. Smakkaði líka þorrabjórinn, sem er alveg hinn ágætasti. Mæli eindregið með Kringlukránni, þótt svo ég láti það eiga sig að fara þangað á djammið enda lítið gefinn fyrir eldri kellingar :-)
Þarf að velja durg vikunnar í dag, því ég stórefast um að ég nenni því á morgun. Er með einn í huga, en hann er búinn að vera svo uppstökkur uppá síðkastið að maður hefur varla fengið breik. Hendi þessu inn á eftir. Það er annars að frétta af durg síðustu viku að hann virðist eitthvað vera að taka sér tak og athuga sín mál, sem er vel.
Ég er tómur, get greinilega einbeitt mér bara að einu í einu.
Adios amigos.
Lee
febrúar 11, 2003 :::
Ekki á morgun heldur hinn, já mínir kæru þá verður höfuðborgin kvödd að sinni. Einhverntíman seinnipart fimmtudagsins munum við Raggio bruna uppá Bifröst og hitta þar drengina okkar og skvetta nokkrum svellköldum í okkur. Svo verður brunað fljótlega uppúr hádegi á föstudeginum til Akureyrar, lending þar um kl.16 og fyrsti áfangastaður sem fyrr Kaffi Akureyri í 2-3 kollur. Ohhh, það hlakkar í mér fjandenn. Svo verður farið að versla fyrir barinn, og uppí íbúð og leikar hefjast...jeeeeeee. Tjah, Valentínusardagur á föstudaginn, hef alltaf haft óbjóð á þeim degi, en maður kannski reynir að breyta því núna fyrst maður er á Akureyri skrambinn. Ég meina kannski eru allar tzjellingar þar vitlausar í Valentínusardaginn, hvað veit maður. "Júúú, sæl Valentínus heiti ég, hvað heitir þú??" hahahah er að sjá það. Best að hringja í Valdísi Gunnars og biðja um góð ráð. Þetta verður magnað, er að spá í að kynna þá Complex meðlimi sem fara norður, hér á síðunni í kveld eða á morgun.
Annars liggur ótrúlega vel á mér í dag. Gott veður, bjart og fínerí. Stendur til að fara að taka upp 1-2 lög í kveld með Viðari Þór, jamm verður maður ekki að reyna að meika það ;o). Aldrei að vita nema maður hendi þeim svo hérna inn við tækifæri. Annars á ég bágt með að einbeita mér að öðru en komandi helgi. Ætli maður skelli sér ekki í andlitsbað, vax og læti, jamm vaxa á mér pengenn, það hlýtur að vera gott.. úff. :o)
Held ég hætti nú bara þessu bloggi í bili, er að detta í einhverja vitleysu. Ætla að enda þetta á fleygum setningum sem hafa átt sér stað á Akureyri sl. 2 ferðar.
"Drullaðu þér út kona" - Raggi Vals að reka einhverja kellingu úr partýi hjá okkur.
"Ég skal sjá til þess að þú þurfir að finna þér aðra vinnu" - hahahah Raggi Vals við dyravörðinn á Sjallanum sem vildi ekki leyfa okkur að taka myndir inni.
"Vorum einmitt að klára nýtt myndband með Sálinni" - Lee og Ragtoin við einhverjar kellingar á Kaffi Akureyri.
"Á ekkert að tala við almúgann hérna" hahahaahah - Gylli Harðar við söngvara Papanna fyrir utan Sjallann.
"Við erum ekkert í einhverri bisness ferð, við erum bara á Bifröst" - H.H., þegar við vorum búnir að hanna einhverja mega lygasögu og vorum að segja einhverri píu. (Ruglaðist aðeins fyrst og sagði að Chandler hafi átt þessa setningu, en það var að sjálfsögðu H.H. sem stendur fyrir Herra Heiðarleiki, sem átti hana, en sá maður er týndur og tröllum gefinn í dag).
Ahahahah eru milljón frasar í viðbót, þeir hljóta að poppa upp, þá koma þeir inn.
Lee
febrúar 10, 2003 :::
Jæja best að leggja í að tækla helgina... again, er ekki að fargins meika það að þetta hafi dottið út áðan. Jæja, föstudagurinn fór í músíkpælingar og gítarglamr með listamanninum Viðari Þór (hann er ekkert skildur Viðari Inga sem var valinn durgur vikunnar.) Það voru teknir nokkrir öllarar og svo whiský on the rocks, sem ég hefði betur látið vera, létt mænudeyfing í gangi. Kíkt klukkutíma í bæinn og svo bara heim, enda partæ daginn eftir og lítið að gerast í bænum.
Afmælispartæ hjá Feita bak. á lau. Helvíti fín veisla og gaman. Jámm hann er orðinn þrítugur blessaður, farið að slá í hann :) Það var fjer í partæinu og var maður þar til eitthvað um 3 og þá var kíkt í bæinn, en sem fyrr var döpur stemmning þar. Maður lét það þó ekki aftra sér í því að tylla sér í nokkrar ginskvettur á Astro og 22, svo var kveldið endað með vöfflu, ohhhh þessar vöfflur eru að gera það.
Sunnudagurinn fór sem aldrei fyrr í afslappelsi. Svo um kveldið var kíkt til Gylfa Harðar og Hörpu, þar sem þau voru að skíra frumburð sinn. Helena Rún var það, mjög svo smekklegt og fallegt nafn. Til lukku með þetta kæra fjölskylda.
Mánudagur í dag. Ekki á morgun, ekki hinn, heldur hinn, tekur við mega helgi. Jámm, Akureyri 2003 að detta inn. Stefnir allt í að við hefjum gleðina á mínum gömlu heimaslóðum á Bifröst á fimmtudagskveldið. Tökum nokkrar kollur þar og brunum svo uppúr hádeginu á föstudag norður yfir heiðar með fullan bíl af græjum. Díses, hvað þetta verður traust. Sem minnir mig á það, þarf að fara að rifja upp helstu verkefni Complex ehf. sl. árið fyrir ráðstefnuna sem verður á Fiðlaranum á laugardag. Jamm, þetta er jú allt saman bisness bara.
Lee
Það hefur verið að skjóta upp í kollinn á mér, fleygar setningar sem maður hefur heyrt í gegnum tíðina. Þykir rétt að deila sumum þeirra með ykkur.
"Maður fer ekki óklipptur í Sjallann" - Gylfi Harðar, nokkrum dögum fyrir fyrstu Akureyrarferðina. Bifröst 2001
"Ég er gjörsamlega kominn af mönnum" - Júlíus Hafstein jr. - í þynnku dauðans á Fróðá 1998. Talið er að hann hafi ætlað að segja "Ég er gjörsamlega búinn á því".
"Hvað er þetta, það er ekki eins og ég sé huggulegur sjálfur." - Ónefndur snillingur eftir að hafa sést til hans vera að kyssa miður fallega stúlku. - 1999
"Já ég er durgur, ég veit það vel" - Viðar Ingi Pétursson - Hlemmur 2003
"Lee, á ég að rústa á þér hnéspótunum?" - Tísku Gilli, þegar ég var að reyna að koma honum saman við einhvern alkahólistan - Astro 2002
"Hvað er eiginlega að henni??" - Chandler, þegar einhver pía sem var hrifinn af honum, sendi honum tölvupóst - Bifröst 2001
Hahahahahahahhaha, þetta kemur mér í gott skap.
Lee
Fæjæjæjæjaandennnn. Var búinn að skrifa þvílíkan pistil svo fokkaðist allt upp og hvarf. Rosa fínt þegar þetta gerist. Er ekki að meika að byrja uppá nýtt, hendi kannski einhverju inn í dag eða kveld. Tjah hef eitt að segja allavega, Kreisí fokkíng weather yeayeahhh.
Nýr liður á Sharknum og það er durgur vikunnar. Það þarf engum að koma það á óvart að Viðar Ingi Pétursson sé fyrsti durgur þessarar síðu. Hans framferði, yfirgangur og dólgslæti í gær, svo ekki séu nefndar tíðar morðtilraunir á Gunnari verða til þess að hann verður þessa vafasama heiðurs aðnjótandi. Vonandi verður þetta til þess að hann athugi sinn gang, ég meina drengurinn verður hreinlega að fara að hysja upp um sig brækurnar ef ekki á illa að fara. Einnig má sjá betri myndir af durg vikunnar hér og hér.
Familýferð á bíó í gær, ég, Mósi, Hilla, Birnir og Dagur, og Spy kids 2 var það heillin. Hún er alveg áhorfanleg þessi mynd, bjóst við verra, en dvergarnir skemmtu sér konunglega og þar með er tilgangnum náð. Grimm kjánamóment í gangi þarna þar sem ég átti erfitt með að hemja gæsahúðina, en það er eitt atriði í þessari mynd sem draaap mig gjersamlega og það er þegar aðal naggurinn í myndinni fer að dansa ballet. Hló örugglega í korter á eftir. Veit ekki hvað gefa skal henni í stjörnum, en dvergarnir myndu væntanlega gefa henni 3-4.
Eftir mynd, fór ég á fund utandeildarinnar með Skepnunni fyrir hönd Hunangstunglsins, þar sem línur voru lagðar fyrir komandi tímabil og fleira til. Margt jákvætt á þessum fundi og hugur í stjórn. Tunglarar stefna ótrauðir á úrslitakeppnina í sumar, en við misstum naumlega af henni í fyrra og það mun ekki koma fyrir aftur. Annars er það að starf Hunagstunglsins er í blóma þessa dagana, verið að versla nýja búninga útí Thailandi, nýtt lúkk á síðuna komið í gang og nú er verið að fara að vinna í að finna sponsora. Allt í gangi.
Nú eftir fundinn fór ég í pílumótið sem er búið að fá sína umfjöllun og enn og aftur minni ég á framgöngu Viðars, hann er greinilega með allt niðrum sig þessa dagana.
Í gær var því slegið föstu að fara hina árlegu Akureyrarferð Comlex ehf. næstu helgi. Erum búnir að fá fansý íbúð á spottprís og allt að smella. Reyndar setur smá svartan blett á ferðina að tveir meðlima komast ekki, þannig að við verðum bara fjórir í þetta skiptið, fámennt en afskaplega góðmennt. Þessar ferðir eru tærasta snilld og ég held að það sé alveg óhætt fyrir Akureyringa að krjúpa á kné og leggjast á bæn. Vill svo til að við erum allir piparsveinar og það af dýrari gerðinni, þannig að ef þú lesandi góður ert Akureyringur og átt konu eða dóttur á besta aldri, þá myndi ég bara flýja bæinn næstu helgi eða læsa þær inni, annars eru yfirgnæfandi líkur á því að þær lendi í klóm Complex :o)
Helgin að detta inn. Rólegheit í kveld, svo heldur stórvinur minn og veiðifélagi Halldór Jónsson aka. Feiti bakvörðurinn afmæli og það ekkert smotterí, 30 jámm þrjátíu fokkings ára, sjetturinn... time flies when you´re having a boner. Til lukku með þetta kúturinn, sjáumst á morgun.
"Hmmm, nei nei, dettur þér það í hug??"
Lee
Vóóóó, tæm át hérna. Jackson þátturinn í sjónvarpinu. Þetta særir mig og nýstir í hjartastað að sjá hvernig er farið fyrir manninum, gamla idolinu mínu. Í stuttu máli, hann er aaaaaaaaaalveg farinn. Þarf að senda einhvern með stjörnuskrúfjárn og fiffa aðeins uppá heilann á honum, jámm sárt að segja en satt er. Spurning hvort þulurinn ætti ekki að spyrja fleiri spurninga um nefið á Jacko, tjah sjálfur var hann með nebbaling sem líktist skíðastökkpallinum í Lillehammer. Hann hefði nú alveg getað sýnt Michael smá samúð og deilt aðeins af nefinu á sér, þá væru þeir báðir með fullkomið nef í dag, en það er annað mál. OK, hann er í tómu tjóni, en ég hef ennþá smá ríspekt fyrir honum, það er bara þannig. Á einhversstaðar mynd af mér þar sem ég er 12 ára uppá borði í rauða Jackson leðurjakkanum með grilljón rennilásum og skal skanna hana og setja hérna inn ef ég finn hana. Og ég skal segja ykkur það, hún á eftir að drreeeeppaaaa ykkur öll, grimmir broddar í gangi þar og sítt að aftan.
En að öðru og mun alvarlegra máli. 4. stigamót vetrarins í pílu fór fram í kveld og fór VIP með sigur af hólmi, vann 3 leiki, ég einn og Gunnar engann. Þetta væri nú ekki frásögu færandi nema fyrir utan þá hegðun og dólgshátt sem Viðar sýndi fram á í kveld. Ég þakka nú bara Guði fyrir að hafa ekki verið að gera á undan honum, en Gunnar lenti í þeirri aðstöðu og satt að segja efast ég um að hann eigi eftir að bera þess bætur. Í hvert skipti sem Gunnar var búinn að gera og var að skrifa stigin sín (en maður skrifar stigin á töflu við hliðiná píluspjaldinu sjálfu) þá rauk Viðar upp og byrjaði að dúndra á spjaldið, þannig að millimetrum munaði að hann gæfi Gunnari 3 ókeypis göt í eyrun hverju sinni. Skiljanlega fibaðist Gunnar mjög svo við þessar morðtilraunir og náði sér aldrei á strik. Þess að auki var Viðar askvaðandi fram og til baka til að trufla andstæðinga sína og það tókst honum. Við sáum aldrei til sólar í þessari viðureign og ný og sérdeilis ódrengileg taktík VIP skilaði honum tilætluðum árangri, sigri sem aldrei verður minnst fyrir nokkuð annað en dólgslæti, níðingshátt og morðtilraunir, ekki einu sinni, heldur trekk í trekk. Ef ég hefði verið á undan melnum hefði ég brett uppá augnlokin á honum og fest þau uppá enni, með sitthvorri pílunni. En sem agamálafulltrúi mun fara yfir þessi mál fyrir næsta mót og mun þá setja harðar reglur og ákveða hæfilega refsingu. Í samtali sem ég átti við Gunnar eftir mótið sagði hann: "Ég er sár og vonsvikinn, ég taldi meira í viðar spunnið en þetta. Það er vegið að sál minni og trausti gagnvart gömlum vin og ég veit hreinlega ekki hvar þetta endar.". Já þetta er háalvarlegt mál og aldeilis ekki víst hvort Viðar verði boðaður á næsta pílumót. Svo einfalt er það.
febrúar 06, 2003 :::
Brrrum brrrummm, brunaði Lee uppúr Grunninum í morgun :o) yesss, sumardekkin svona að svínvirka. Er með fína taktík, ef ég finn að ég sé að fara að stranda, finn ég stað þar sem bílar hafa staðið og gatan auð og renni mér þangað og fæ þannig grip og þeysist áfram. Annars sýnist mér bara að botnlanginn heima sé verst stadda gatan í bænum varðandi hálku og slen og leiðindi, aðrar götur líta næstum út eins og um sumartíma. Engin ástæða að fara á nagla ;o).
Er búinn að vera með smá sting í annarri ilinni sl. 2-3 daga og hef í rauninni ekkert spáð í það, hélt þetta væri bara eitthvað smotterí tímabundið. Svo eftir bolta dauðans í gær, þá var þetta farið að stinga mun meira í og ég fór að tékka á þessu og þá sá ég að ég var búinn að næla mér í eitt stykki glerbrot í löppina. Jæja, nú þurfti að bregðast eitthvað við. Málið er það að ég er stirðasti maður í heimi og þurfti helst að sýna einhverja gúmmítakta til að komast almennilega að þessu. En ég bý einfaldlega ekki yfir þeim hæfileika að geta fett mig og brett að vild, nema þá kannski með því að brjóta bein og sennilegast hef ég komist annsi nálægt því í gær. Var sem sagt að hamast á ilinni á mér í dágóðan tíma í mjög svo vafasömum stellingum fyrir framan spegilinn. Hahahahah, skellti nú uppúr fyrir rest, en glerbrotinu náði ég, allavega einhverju af því, er enn soldið aumur í þessu í dag, tjah og sting aðeins við, sem n.b. er ekki sérlega tarfalegt. Jæja fokkitt, viss áfangasigur fyrir mig varðandi stirðleika og teygjuæfingar.
Fékk sent passwordið að www.islendigabok.is í gær og ætlaði heldur betur að fara að grúska í gærkveldi. En neeiii, það var ekki hægt að komast inná hana, eitthvað fokkopp í gangi. Var frekar foj. Ætlaði svo að kíkja á hana núna þegar hún er loksins dottin inn, en neinei, auðvitað er lykilorðið heima.... döööhhhhhh... sjammón Lee. Fer spenntur í þetta verkefni í dag.
Commentakerfið ennþá í fokki, setti inn prufu í gær, sem dottin er út núna og þau komment sem horfin voru í gær eru komin aftur, djefuls roknarugl er þetta. Haloscan.com gersamlega með allt niðrum sig þessa dagana, eins og sumir.
4. stigamót vetrarins í pílu í kveld, at last. Búið að falla niður sl.2 fimmtudaga en það er sem sagt komið að því. Ég leiði nokkuð örugglega eftir fyrstu 3. mótin og ætla að halda áfram á sömu braut í kveld. Veddahh og Gonnahh, hef aðeins eitt að segja við ykkur fyrir kveldið.... "Fariði með bænirnar runkararnir ykkar and æ læk jor mooððððerrrr..."
Ætla að slá botninn í þetta með setningu gærdagsins, en hana las ég á textavarpinu í gærkveldi:
Bikarkeppnin: Liverpool úr leik
febrúar 05, 2003 :::
Er í bobba núna. Tók þá frábæru ákvörðun einhverntíman fyrir áramót að sleppa því bara að fara á nagladekk ef ég kæmist af framyfir miðjan janúar. Tjah verð nú aðeins að athuga minn gang, er fokking fastur hérna niðrí botlanganum fæjæjæjanndennn. Kom heim í dag hálf fimm og það var farið að hlána eitthvað, ætlaði svo útí Nóatún áðan og komst ekki fjandans fet, slabb dauðans í gangi og tilheyrandi. Það eru reyndar hlýindi fram að mánudegi og ég treysti á það að þetta verði farið að mestu í fyrramálið, svo ég þurfi nú ekki að labba í blíðunni. Reyndar þarf þetta að vera búið að minnka nokkuð vel fyrir kl.21:30 í kveld, en þá fer ég í bolta og mér leiðist að missa af honum. OK, geri díl hérna, ef ég kemst ekki uppúr Grunninum í kveld, þá smelli ég mér á nagla.... .
Allavega ég ætlaði að fara og fylla aðeins á ísskápinn, en komst ekki. Þannig ég tók bara gamaldags dinnerinn á þetta, sauð egg, brauð og skyr og það var bara helvíti fínt, langt síðan maður hefur tekið þessa blöndu, en ég tók hana grimmt í gamla daga. Jámm, ætla að fara að stunda þetta meira, ætli maður splæsi ekki bara í grjónagraut á morgun, djæses, man ekki einu sinni hvunær ég fékk grjónagraut síðast, það eru komin nokkuð mörg árin skal ég segja ykkur.
Commentakerfið búið að vera í tómu fokki í dag og er enn sýnist mér, það reyndar datt aðeins inn áðan og þá gat ég ekki betur séð en einhver gömul komment voru fokin út, sem splittar kannski ekki diff. Bara stundum tómt vesen í kringum þetta kerfi og það gengur ekki.
Jæja, ætla að athuga hvort ég hafi unnið eitthvað í Víkingalottóinu, kannski eins og fjeritíu mills, ummmm rosalega væri það leiðinlegt.
Piss piss og pelamál, púðursykur og rjóma.
Lee
18 ára víxill Ég verð að koma með eina pælingu hérna varðandi 18 ára víxilinn, þar sem mér finnst þetta concept alveg hreint óheyrilega fyndið. Svo ég skýri þetta aðeins út fyrir ykkur sem ekki náið þessu, þá er verið að líkja saman því að eignast barn utan sambands og skrifa undir víxil til 18 ára, þar sem (að mér skilst) maður þurfi að borga meðlag með barni sínu til 18 ára aldurs, ahahahahah. Hef reyndar ekki hugmynd um lög og reglugerðir meðlagsgreiðslna, en það splittar ekki diff, mér finnst þetta slatta fyndið og segir líka allt sem segja þarf.
Þá er komið að öðrum hluta þessarar pælingar. Það eru dæmi þess sem menn geta lent í og í rauninni skrifað undir 18 ára víxil án þess að vita af því. Dæmi um það tek ég Boris Becker, tennisleikarann geðþekka, sem lenti í því fyrir nokkrum árum að einhver konan sagði að hann væri búinn að barna hana. Boris harðneitaði og sagðist aldrei hafa haft mök við þessa konu og féllst á að fara í blóðprufu til þess að sanna sitt mál. En viti menn, blóðprufan passaði alveg við króann og útilokað annað en að hann væri faðir barnsins. Málið er að Boris hafði aldrei haft samræði við þessa konu, hins vegar hafði hann farið með henni inní fataskáp í einhverju partýi og þar hafi hún haft munnmök við hann.... ahahahah takiði eftir hvað ég fer fínt í öll dónó orðin :o) djæses. Síðan er víst tilfellið að hún hafi geymt sæði uppí sér og sett uppí leggöng sín eftirá og þannig orðið ólétt. Er ekki 100% á að þetta hafi verið Boris, en minnir það endilega, þetta er allavega sönn saga. Hvernig veit ég að hún er sönn?? Það er vegna þess að móðir mín kær sagði mér hana og ekki lýgur hún. En ég get alveg sagt ykkur það að mér leið ekkert allt of vel þegar hún var að segja "gleypa sæði" og eitthvað í þá áttina, já þá var Lee farinn að ókyrrast, ahahahahah en mér finnst hroðbjóðslega fyndið þegar ég hugsa um það í dag að hún hafi sagt þetta.
Jæja þriðji hluti pælingarinnar er hvurnig megi koma í veg fyrir það að skrifa óvart eða óaðvitandi undir 18 ára víxilinn ógurlega :o). Jámm, maður bara safnar og frystir einn tvo lítra af sæðinu úr sér og lætur síðan taka sig úr sambandi. OK, ég er ekki nógu vel að mér læknisfræðilega í þessum efnum, að ég viti hvort þetta hefur einhver áhrif á fullnægingu karlmannsins, eflaust einhver, en allavega þá er áhættan á undirskrift að víxlinum góða orðin engin. Og það er ekki eini kosturinn. Haldiði ekki að það sé hagkvæmt að eiga úr sér sæði frá því maður er á prime time þegar maður er kominn eitthvað á aldur og getur svo notað það hvenær sem er þegar þig langar að eignast barn. Svo er náttúrulega hægt að stunda kynlíf ville vekk, án þess að vera með víxilinn á heilanum. Jamm, ég er að segja ykkur það, þetta er díllinn ;o)
Verst hvað þetta er víst dýrt, en það má kippa því í liðinn. Er maður ekki alltaf að reyna að spara líka???
Er farinn inná bað núna, með krafttöng, stjörnuskrúfjárn og logsuðutæki.
Jebbs, græddur er geymdur eyrir.
febrúar 04, 2003 :::
Verð aðeins að koma inná þetta mál hjá Eiði Smára, en þið getið lesið smá um það bæði hér og hér. Ok ég er ekki að segja að þetta sé heilagur sannleikur en eflaust er eitthvað sannleikskorn í þessu. Og ég er ekkert að reyna að verja Smárann, framhjáhald er cheap, það er deginum ljósara. Ég er bara að spá í þessa píu aðeins. Henni fannst voðalega vænt um hann og læti og fer svo með söguna í slúðurblöð tjallans, sjammón. Svo líka það, nú á hún ekki eftir að fá breik frá Íslendingum sem hitta hana á förnum vegi svo ég tali nú ekki um á djamminu. Landsþekkt andlit á einni nóttu, en það er kannski það sem hún er að sækjast eftir, nú nema hún hafi ekki hugsað svo langt, heldur bara í peningana sem slúðurblöðin hafi látið hana fá fyrir söguna og hvað ætli það sé mikið 1000 -2000 pund kannski í mesta lagi. J'a 'eg held h'un hafi hlaupi[ 'a sig. hahahah lyklabor[i[ 'i t'omu h'erna, kve[ a[ sinni. ahahahahah
Lee
febrúar 03, 2003 :::
Það var sem ég hélt. Hef lengi haldið því fram að Kristína Agílera væri sparslstúlka dauðans. Fáir hafa verið mér sammála því enda enginn séð skjátuna ómálaða. Rétt í þessu var ég að sjá hana í sjónvarpinu og einn þulanna sagði "það er bara eins og hún sé myglað lík" hahahah, segir allt sem segja þarf. Já hún var ekki par hugguleg. En þetta er viðurkennt um allan heim, konur mega villa á sér heimildir með sparsli, wonderbra og ég veit ekki hvað og hvað, og mér er líka slétt sama. Sé í gegnum þetta. En ég ætla að koma með krók á móti bragði næst þegar ég fer á tjúttið, já takk fyrir, það fer eitt stykki 12 tommu agúrka oní brækurnar á mér, helst svo stretsbuxur líka, við spyrjum að leikslokum.
Fagna því að stórsnillingurinn og eyjapeyjinn Steini Youngman er byrjaður í bloggheiminum. Þarna fer ungur maður á uppleið og mælskur mjög. Fer mjög svo fögrum orðum um Kolbrúnu Halldórs og einnig góður pistill um Eið Smára og veljum íslenskt. Húrra fyrir Youngman.
Tjah Hilla systir ólétt af sínu þriðja. Já, Sigurður nokkur, oft kenndur við sítrónu og Ólafsfjörð, mundaði fallbyssuna yet again og það þarf ekki að spyrja að því... BANG. Jæja 3-0 sem sagt fyrir Hillu á móti mér, en fyrir eiga þau stórsnillingana Birni og Dag. Nú fer maður að sá sínu konunglega fjandinn.... je ræt :o) ónei, held ég geymi það bara, enda engin hætta eins og staðan er þessa dagana, ég meina þetta særir að vita til þess að samkynhneygðir eigi meira breik í kellingarnar en maður sjálfur, sjálfstraustið í molum hérna skrambinn!!!. Fyrir ykkur sem eitthvað gengur betur hjá, vil ég segja eitt, fariði varlega, því ein gusa á vitlausum tíma getur jafnast á við undirskrift á 18 ára víxli, ahahahahah heyrði þetta um daginn og það drap mig, 18 árra víxill ahahahahahahah.
Það er reyndar einhvur predikari hér á landinu, svartur á hörund sá og á að gera kraftaverk. Hann er að mér skilst búinn að lækna einhvern af alnæmi, lifrabólgu, lömun og allan andskotan. Er eeekkkkkiiiii að kaupa það, en ef allt fer í þrot, þá kíkir maður á hann og biður um mojo-ið aftur ;o)
febrúar 02, 2003 :::
Geeet ég þetta. Er gjörsamlega dead eftir helgina... again fjandenn. Þetta er náttúrulega óþolandi ástand eftir að þessum opnunartíma var breytt = drekkur meira, eyðir meira og man minna. Jæja fokkit, þetterbarasvona. Allavega þá var helginni startað með fordrykk í Grunninum á föstudaginn með Gutta og Hrönnsu og svo haldið á Sól og Mána sem var alveg hin ágætasta skemmtun. Kalt mat þá slefar þetta í 3 stjörnur, hefur sína kosti og galla sem ég nenni ekkert að fara nánar útí. Verð þó að koma inná frammistöðu stórvinar míns og veiðifélaga Sveins Þ. Geirssonar. Það er ekkert flókið mál að hann sýnir snilldar takta og er að gera góða hluti. Well dön það. Það voru ófáar ginskvetturnar sem fuku þetta kveld sem er vel. Vegamót voru tekin á þetta og svo var farið á 22 tjah og þar var fjer. Tónlist að mínu skapi á efri hæðinni, G´nfR, Kiss og annað rokk og ról, jeeeeee. Þarna var líka góður maður í sleik á almanna, ætla ekkert að nefna nein nöfn, en hann veit uppá sig skömmina og þarf að líta í eigin barm, en eins og allir vita þá er sleikur á almannafæri á bannlista. 22 var lokað rúmlega 6 og þá var haldið í partý, djæses, haldiði að þetta sé heilbrigt. Jæja allavega þá var gítar í partíinu og Lee ætlaði nú heldur betur að heilla skjáturnar sem voru þarna, en neeeiiii, þarna voru 2 strákar sem voru hommar og áttu þeir athygli þeirra alla. Fjandennn, á maður ekki breik í þessu lífi, þegar samkynhneigðir menn eru farnir að hözzla frá manni kellingarnar þá er eitthvað meira en lítið að, neeeeiiii þeir eru svo frábærir vinir... döhhhh, á ég að æla núna??? já æla segi ég &($%&(/=(&/""#$.
Laugardagurinn, svaka fansý dinner hjá Gönnahh, sem var mjög góðmennt. Svo var haldið á Nasa og svo Astro. Tjah þar var góður maður líka í sleik á almanna, greinilegt að hann er með allt niðrum sig þessa dagana og þarf heldur betur að athuga sinn gang. Veit reyndar ekki hvað ég er að rífa kjaft, það eru þó kellingar að sýna einhvern áhuga, en það er annað en hjá mér, þar taka þær kynvillinga fram yfir sjálfan Lee, þetta er skandall Bragi. "Siggi, komdu hérna sem fyrirliði". Jæja síðan var smá teiti en ég var gjörsamlega búinn á því og hunskaðist í háttinu einhverntíman í morgun og svaf síðan af mér helvítis leikinn, ohhh, það var að gera lukku. Er ekki búinn að gera jack shit í dag og þá meina ég ekki neitt, nema fara á KFC ohhhhh KFC. Kom með slogan fyrir KFC fyrir nokkrum árum, skil ekkert í því af hvurju þeir vilja ekki nota það, en það er : "Ken, is my frien.......d". sem sagt d-ið ekki sagt fyrr en 2-3 sekúndum á eftir hinu. Bylting í auglýsingagerð :-)
Frönsk sunnudagskrabbameinsmynd á RÚV núna. Á víst eitthvað að fjalla um kynlíf. Ha?? kynlíf?? hvað er það ????, nei ég meina er furða að maður spyrji????
Fokkoffðenn
Lee