janúar 30, 2003 ::: Tjah, enginn vann í HM-leiknum í gær. 19 spár voru í gangi en engum tókst að giska á rétt. Ekki er þó öll von úti enn, því Spánarleikurinn er eftir og eins og staðan er núna, þá get ég unnið 20 kollur ef ég hitti á rétt, en þið sem fyrr bara unnið eina... múahahahahah. Annars er ég kominn með í magann fyrir kveldið, gæti jafnvel trúað því að þessi leikur myndi ganga af mér dauðum. Þvílík spenna sem þetta verður, úff bara segi ég. Ég hef alveg tröllatrú á þessu í kveld. Við höfum ekki enn dottið inná toppleik og ég hef góðan fílíng fyrir því að þessi toppleikur detti inn á móti Spánverjunum. Ef við tökum þá, þá eru það sennilegast Rússar eða Króatar sem við lendum á móti í undanúrslitum, djæses, erum við að tala um gullið hérna, erum við að tala um það fjandenn, má ég heyra... ERUM VIÐ AÐ TALA UM ÞAÐ???. Tjah það er allavega sénsinn til þess. Hef bara eitt að segja, hólýmólýmaccarónýælækjormoðergóhómnigger. Verð að sprauta mig niður hérna fjandakornið.
Aðeins að leiknum í gær. Leist ekkert á blikuna í upphafi seinni, en þeir sýndu karakter strákarnir. Tjah held það sé ekki á neinn hallað þegar ég segi að Dagur Sig. hafi verið maður leiksins. Mikið djefull var hann góður og þvílíkar neglur hjá honum. Það var líka kominn tími á þetta, man held ég ekki eftir því hvenær hann átti svona stórleik síðast, ef einhverntíman hefur verið. Hann hefur oft átt góða leiki, en þá í öðru hlutverki, sem dílari og varnarmaður og fleira, en það var magnað að fylgjast með honum þarna. Vonandi að hann haldi áfram á sömu braut í kveld og Óli detti á stórleik líka og hornin aktívari, tjah þá verður ekki að sökum að spyrja, við vinnum þennan leik.
Já er að sjá það, við dettum inná toppleikinn í kveld, og leyfi mér því að segja.... Velkomnir í undanúrslit.
Lee
janúar 29, 2003 :::
Fínasta þáttaka í HM-leik Mr.Lee. Voðalega skemmtilegt fyrirkomulag. Þegar ég skrifa þetta, þá eru 15 manns búið að skrá sig í leikinn. Þegar ég lít fljótt yfir þetta sýnist mér einungis 2 spá sömu úrslitum í Ísl. - Pól. en enginn spáir sömu úrslitum í Ísl. - Spánn. Út frá miklum tölfræðipælingum Lee, þá liggur þetta svona. Ég get í mesta lagi þurft að splæsa í 3 kollur. Þið getið í mesta lagi þurft að punga út 2 kollum og getið í mesta lagi unnið 2 kollur. Nú kemur skemmtilegi hlutinn af þessu öllu saman. Ef Lee hefur bæði úrslitin rétt, þá vinnur hann 30 kollur :o) jeee. Svo fer þessi tala bara hækkandi eftir því sem keppendum fjölgar. En þið getið alltaf bara unnið 2 kollur max.... uhuhuhuhu það hlýtur að vera sárt ;-)
Styttist í deadline, reyndar verður áfram hægt að spá um Spánarleikinn fram eftir degi á morgun.
Áfram Ísland.
Lee
janúar 28, 2003 :::
Hef voða lítið að segja núna. Smá HM-leikur. Gríðarlega mikilvægir leikir á morgun og hinn við Póllendinga og Spánverja, ef þeir klárast báðir þá eru það undanúrslit á þetta takk fyrir og góða ferð. Allavega, smá leikur í gang og hann er ekki flókinn, snýst um að spá fyrir um úrslit leikjanna. Til þess að þið verðið gjaldgeng í þessum leik þá þurfið þið að vera tilbúin að leggja 2 kollur undir, þ.e. eina kollu á leik. Ef einhver ykkar hittir á rétt úrslit, þá mun ég splæsa kollu á viðkomandi. Ef ég hitti á rétt úrslit þá þurfa keppendur að splæsa eina kollu á Lee. Þið getið tapað mest 2 kollum, ef ég skildi hitta á rétt úrslit í báðum leikjunum... líklegt hmmm, og unnið mest 2 kollur ef þið hittið á rétt úrslit í báðum. Það er hins vegar háð fjölda keppenda hvað ég get unnið og tapað mörgum kollum. Spá Mr.Lee er:
Ísland - Pólland 28 - 22
Ísland - Spánn 34 - 32
Endilega sendið spánna í "Ykkar pælingu" svo allir geti fylgst með.
Gerum okkar, gerum okkar, gerum okkar, gerum okkar besta.
Lee
janúar 27, 2003 :::
Má til með að benda ykkur á þetta. Hún er ekki óhugguleg hún Tia Carrere, en fyrir ykkur sem ekki vitið hver hún er, þá eru hennar helstu myndir Waynes world og True lies. Um leið vil ég leiðrétta þann misskilning að hún sé systir klámmyndastörnunnar Asia Carrere, það er sem sagt helber lygi.
Lee
Tók í gær "Varði goes Europe", íslensk heimildamynd um ungan mann sem fer til Evrópu að reyna að meika það sem gítarleikari á götum hinna ýmsu borga. Hafði ágætlega gaman af þessu, skemmtilegir karakterar sem Varði rakst á og einn sem mér fannst sérstaklega áhugaverður. Það var maður í París, af asísku bergi brotinn, sem ákvað fyrir einhverjum árum að gerast þungarokkari. Það er óhætt að segja að hann hafi farið alla leið blessaður, því hann er með sítt að aftan dauðans, topp, gaddaól um úlnliðinn og þrengstu fokking gallabuxur sem ég hef séð, aaaahahahahahahah. Svo var hann með kassagítarinn í París að taka lög eftir Iron Maiden og fleiri snillinga og var að öskra þessi ósköp að reyna að ná Bruce Dickinson, ahahhahah. Ofan á allt saman, þá var hann ca. 150 cm hár, en hann var með múvin á hreinu og hreinlega virðingarvert að horfa uppá svona menn.
"Varði goes Europe" er í rauninni sjálfstætt framhald "Varði fer á vertíð" sem sýnd var í sjónvarpinu fyrir 2-3 árum. Í þeirri mynd ætlaði Varði að reyna að hafa eitthvað uppúr sveitaballabransanum og gekk til liðs við sveitarinnar Tópaz. Sú mynd var mjög svo skemmtileg og mæli ég með því að þið reynið að hafa uppá henni. Þessar myndir eru mjög svo skemmtilegt framtak til íslenskrar kvikmyndagerðar.
Svo er bara spurning hvort maður skelli ekki gítarnum bara á bakið með hækkandi sól og herji á Evrópu.
Lee
Erfiður morgunn, ojbara. Búinn að vera hálf dead í dag. Bjargaði því reyndar að ég fór í léttan löns með Mósanum og Hillu systur í Þjóðmenningarhúsið. Þangað hafði ég ekki komið áður, en sá sem er að reka veitingasöluna er Jón K. B. Sigfússon vinur og stórsnillingur. Þetta er helvíti fansý þarna og þarna liggja ein mestu djásn þjóðarinnar, eins og Flateyjarbók og fleiri handrit. Frekar magnað að skoða þetta allt, en það er örugglega hundruð milljóna virði af munum þarna inni.
Get svarið það að þreytan er að buga mig núna. Spurning að maður skelli sér inní einhverja skúringarkompuna og halli sér. Jámm aldrei að vita.
United og Arsenal í 16 liða í enska bikarnum. Úff, það er leikur. Skiptir engu hvort að við mætum þeim núna eða síðar, það þarf að vinna þá hvort eð er til að landa þessum titli. En þetta verður leikur, það er ljóst.
Djæses. Andvaka dauðans hérna megin, er eeeekkki að meika þetta. Ligg bara hérna uppí rúmi í einhverju mógi. Óþolandi alveg hreint. Samt er ég alveg viðbjóðslega þreyttur. Ég mótmæli þessu fjandenn. Kannski maður geri bara gott úr þessu og stefni á eitthvað met í því að vera sem lengst vakandi, já kannski bara. Svo þegar augnlokin eru farin að síga, þá heftar maður þau bara uppá enni... rosa fínt, Guinnes á þetta bara. Persónulegt met mitt í að vera vakandi er tæpir tveir sólarhringar, frá 7 á föstudagsmorgni til 4 á sunnudagsmorgni. Það var í skíðaferðalagi í Versló. Þá var djammað alla föstudagsnóttina, farið beint á skíði um morguninn og skíðað allan daginn og svo eitthvað meira tjútt fram eftir morgni. Úfff, æ held ég leggi ekki í það aftur.
Best að fara að telja kindur og fara með stafrófið afturábak og áfram, hlýt að detta fyrir rest.
Góðan dag.
janúar 26, 2003 :::
Tjah óhætt að segja að Hunangstunglið hafi ekki riðið feitum hesti á firmamótinu um helgina. 4 leikir, 0 stig, eitt mark. Tjah ekki hægt að gorta sig af þessu. Samt sem áður margt gott. Þetta telur ekki neitt og gott að fá smá spark í rassinn, þetta snýst jú um það að toppa á réttum tíma, sem verður í sumar og eins og segir í laginu "enginn kemst undan þeim, færum dolluna heim." Nánar hægt að lesa um mótið hér.
Svo var farið á nett tjútt með Gee og Þjálfa. Byrjað var á Nasa, þar sem fyrir voru VIP og Gonnah og þar voru tekin nokkur vel valin dansspor eins og "Drakúla" og "Kanínan" við mikla hrifningu kvenþjóðarinnar. Gonnah hefur þróað og náð næstum fullkomnun í "Drakúla" og réðu stúlkurnar hreinlega ekki við sig þegar hann sveif um gólfið og tók þetta mjög svo skemmtilega múv. Spurning um að stunda ríbándið grimmt í kringum hann næst. Svo var haldið á Astro og skvett í sig einum, tveimur. Þar fór mest fram fræðarabb og ekkert skellt sér á gólfið þar. Svo var komið út og þá var Lee orðinn svangur og þá var tekin slanga með öllu, svo var tekin vaffla (vöfflurnar í Vöffluvagninum eru að gera það BIIIGTÆÆM) svo var farið til Gee og teknar 2 pizzusneiðar. Tjahh er enn saddur og hef ekkert sett oní mig í dag, utan smá gotterí yfir leikjunum. Svo var bara sófinn hjá Gee tekinn á þetta. Vaknað beint í Man. U. - West Ham, 6-0 takk fyrir og góða ferð. Svo Ísl.- Þýs. Misstum þetta í restina, en mætum Spánverjum og Pólverjum í milliriðli að mér skilst, sem er bara í góðu lagi. Er að sjá að við förum í undanúrslit, já eða bara alla leið. Ef einhverntíman það hefur verið séns þá er það núna.
Ekkert í kassanum núna. Ætli maður detti ekki bara á leiguna. "hmmm?? já, nei nei, svona er þetta bara kallinn minn, fyrirgefðu vanræksluna".
janúar 24, 2003 ::: Matarhornið Jæja ætla að bæta inn hérna nýjum lið, með auðveldum og bragðgóðum réttum, sem lítið mál er að græja. Ætla að byrja á smurbrauði sem ég kalla "Djúsí Lee". Eitt skal vera á hreinu, að ég set ekki kaloríufjölda fyrir mig. Til þarf:
Brauðsneið
Túnfiskssalat
Hotwings-sósu eða Tabasco
Skinkusneið
Ost
Svartan pipar
Agúrku eða papriku.
Þið takið brauðsneiðina, megið rista, og smyrjið hana vel og vandlega með túnfiskssalatinu. Því næst setjið þið Hotwings-sósuna eða tabasco-ið yfir salatið. Þá plantið þið einni skinkusneið fallega yfir og stráið yfir hana svörtum pipar. Næst kemur osturinn og loks sneiðar af agúrku eða papriku. Svo er bara að leggja sér til munns.
Já trúið því, þið verðið ekki svikin af "Djúsí Lee".
Júúúú, sælt veri fólkið. Jæja nú var maður að læna upp í gær árlegri laxveiði með Veiði- og lionsklúbbnum Smaart. Ætlum við að fara í Laxá í Refasveit þetta árið uppúr miðjum júlí. Það verður eitthvað. Fórum í fyrra í Stóru-laxá í Hreppum og var það hrein tærasta snilld, þrátt fyrir nánast algert fiskleysi. Hylurinn sem við stunduðum hvað mest þar var sennilegast bara heiti potturinn í veiðihúsinu :) Nú ætlum við hins vegar að bæta aðeins í budgetið og hafa þetta aðeins meira grand. Þetta verður magnað. VOL Smaart er hópur tómra snillinga sem verður kynntur nánar hér á þessari síðu þegar nær dregur. Það er smart að vera Smaart.
Datt inní síðustu mínúturnuar á Bachelor 2 í gær, díses hvað ég fæ mikinn kjána. Það var ein sem fékk ekki rós frá melnum og þarf þ.a.l. að hunskast strax heim. En hún var ekki sár... neeeeiii, hún sagði. "Mér finnst ekki eins og mér hafi verið hafnað af honum, mér finnst eins og ÉG hafi hafnað honum..." aaaaahahahah massa foj, ég meina sjammmón. Annars sá ég brot úr næsta þætti og þá var gaurinn bara að slumma þær allar og læti. Svo voru þær að rífast sín á milli og ein sagði við aðra "hvar eru nærbuxurnar þína??" og hin roðnaði niðrí rassgat, en þá sagði önnur "þær eru hjá Aron" hahahahah, hann ætlar greinilega bara að reyna að negla þær sem flestar, ég meina það þarf nú að prufukeyra tilvonandi eiginkonu sína, þetta er ekkert flókið.
Bóndadagur í dag. Ég er ekki bóndi á nokkurn hátt. Ekki bý ég útí sveit með mitt bú, enda væri ég kafnaður þá sökum ofnæmis, og ekki á ég konu, þannig að þessi dagur kemur mér í raun ekkert við og ég míg á hann. Vona samt að bændur nær og fjær fái sitt í dag, og þá vitiði hvað ég meina fjaaanndeeennn.
Föstudagur. Ég kann vel við föstudaga. Rokk og rólegheit í kveld, kannski nett markaðsvinna bara, en ekkert brennivín, max 2 kollur. Svo er líka stór dagur á morgun. Firmamót hjá Hunangstunglinu og lentum við í gríðarlega sterkum riðli skilst mér. Jæja við látum bara verkin tala. Þetta verður sweet meeeen, bolti allan daginn og svo nokkrir svellkaldir um kveldið, ohhh gaman að svona.
Enn breiðir Hunagstunglið út vængi sína. Vorum að festa í léninu www.hunangstunglid.com og einnig komið nýtt lúkk á síðuna. Það er enginn annar en Gee-Huzzl sem á alfarið heiðurinn af því, enda kann hann á lyklaborðið sá. Þú ert að gera góða hluti Gee minn og færð hér með eitt hrós frá sjálfum Mr.Lee.
janúar 23, 2003 :::
Djæses, síðast þegar ég leit á klukkuna í nótt, þá var hún að slá fjegur, sofnaði ca. hálftíma eftir það... rosa fínt. Nett ruglaður þegar ég vaknaði í morgun, en vaknaði almennilega þegar ég fór út í blíðuna ummm.... Ísland rúlar. Ætla að fara að stuðla að meiri gróðurhúsaáhrifum til að fixa þetta.
Fjórða stigamótið í pílu fellur niður í kveld, vegna utanaðkomandi aðstæðna. Það verður bara að taka tvöfalda umferð næsta fimmtudag, Veddahh og Gonnahh geta farið með bænirnar, já bænirnar segi ég.... bergmálar hérna inni.
Vil benda ykkur á að horfa á íslensku tónlistarverðlaunin í kveld, en þar mun stíga á stokk góðvinur minn og veiðifélagi Sveinn Geirsson og taka lag með Sálinni úr söngleiknum Sól & Mána, en hann fékk einmitt dúndur dóma fyrir frammistöðu sína í verkinu og þykir sýna snilldar tilþrif.
Hef annars voða lítið að segja. Eigum við ekki að segja þetta þá gott bara. Júúúúú, seegjum það.
Lee
Úfff, var að koma af þvílíkri æfingu hjá Tunglurum, gjörsamlega dead. Óþolandi hreint að koma heim eftir svona og mæta Judging Amy í kassanum, er brjál. Hef það ekki í mér að detta útá leigu, sem er sárt vegna þess að maður á aldrei eftir að sofna fyrr en svona um 3 leitið, líkamsstarfsemin á milljón.... fjaaaandeeeennn. En maður verður að fórna ýmsu fyrir frægðina, það verða læti á firmamótinu á laugardaginn, stefnum á sigur að sjálfsögðu, totalfokkingfootball skal það vera og gullmedalía um hálsinn.
Mínir menn í United stóðu sig vel í kveld, komust nokkuð örugglega í úrslit deildarbikarsins þar sem þeir mæta liverpúl eftir rúman mánuð, þá verður fjer. Tek við veðmálum í gegnum póstinn hvurnig það fer. Það þarf ekkert að taka það fram að ég tippa á mína menn. Kippa undir... menn?? ha?? púlarar eruð þið menn for helvete!!!
Góða fokking blíðan úti núna, skafrenningur og læti, er ekki að meiketta. Er bara ekki að meika þetta land í heild þessa dagana, freezing my bollox off hérna fjandahelvítiskornið. Svo er ég þeirri náðargjöf gæddur að vera alltaf kalt á tánum, og á dögum sem þessum, þá er mér ekki kalt á þeim heldur er kominn með kul í þær goddamnit. Er farinn að óttast að þær detti af ein af annarri og þá verður ekki gaman. En það skiptir kannski engu máli, ég meina hver er tilgangur tánna, það er ekki eins og maður sé að nota þær til að pikka á lyklaborðið eða smyrja samloku með majonesi, nei þær eru bara þarna og þjóna engum tilgangi. Æ mér er slétt sama, af eða á... splittar ekki diff.
"Hmmm... nei rólegur gæðingur, já spakur bara" , nei er bara að tala við kynfærin á mér.
janúar 22, 2003 ::: Nú var mér að berast fyrstu svörin við spurningakeppninni og var það enginn annar en Hlemmurinn ógurlegi sem sendi fyrstur inn. Til lukku með það Hlemmur.
Hola seniores & senioras. Lee voðalega eitthvað eirðarlaus í dag. Fékk komment frá 2 aðilum í gær að spurningakeppnin væri of erfið. Ég meina sjammón, þannig á það að vera. Þið fáið eitthvað fram í næstu viku til þess að leysa þetta. Það á ekkert að vera hægt að svara þessu einn, tveir og bingó og senda inn og eiga séns á glæstum verðlaunum. Ég setti þetta þannig upp að þið mynduð gefa ykkur oggu pons tíma í þetta, en ég get nú samt ekki séð hvursu erfitt þetta er þar sem eflaust er hægt að nálgast flest öll svörin á netinu. Þannig bara shove it up your júnówhat, svona stendur þetta. Meðal þess sem er í verðlaun er kampavínsflaska, mynd af sigurvegaranum með síðuhaldara á síðunni, quality time með Mr.Lee, gestapenni á síðunni í einhvern tíma og væntanlega meira til, þannig til gríðarlega mikils er að vinna. Jafnvel að ég taki þátt sjálfur.
Firmamót sem Hunangstunglið mun taka þátt í á laugardaginn og hefst þar með formlega undirbúningstímabilið. Það verður gaman að sjá hvurnig menn koma undan vetri. Svo verður skvett í sig einhverjum öllurum um kveldið og málin rædd, nú ef við vinnum mótið þá verður farið á TGI Friday og borðað og drukkið fyrir verðlaunin. Föstudagurinn verður sem sagt rólegur, spurning samt um smá markaðsvinnu fyrir laugardaginn, gera netta vettvangskönnun á föstudagskveldið, finna réttu markhópana o.þ.h.
Var verið að spurja mig hvort ég nennti að fara á mínar gömlu heimaslóðir á Bifröst og taka á því á morgun. Æ ég hreinlega veit það ekki. Það var nú alltaf fjer á þessum kvöldum reyndar, en minn tími er liðinn þarna, kálfarnir verða einhverntíman að fá að taka við af törfunum ;-) Það er reyndar verið að sjóða saman eitt númer sem gengur undir vinnuheitinu "Niðurgangur" og stefnir á að spila fyrir Bifrestinga á næstu mánuðum, maður mætir bara þá og kíkir á pleisið, held ég láti þetta eiga sig á morgun.
Annars er það spurningakeppnin sem rúlar þessa dagana. Allir að taka þátt.
janúar 21, 2003 :::
Jæja, þá er loksins komið að því. Spurningakeppnin dottin inn. Senda skal svörin á "Spurningakeppni" hér til hliðar. Tímamörk eru ekki komin á hreint ennþá, en þau verða tilkynnt á næstunni. Svo vil ég fá dúndur þátttöku hérna. Vegleg verðlaun í boði.
SPURNINGAKEPPNI MR.LEE
1. Nefnið 5 frægar manneskjur sem bera nafnið "Lee"?
2. Pabbi Jóns átti 3 syni, Rip, Rap og ..... ?
3. Úr hvaða lagi og með hverjum ? : "twisted thoughts that spin, around my head..."
4. Hvað er bjúgverpill ?
5. Fáni hvaða ríkis er ljósblár með hvítri stjörnu í miðjunni ?
6. Með hverjum er lagið Careless whisper ?
7. Hver sigraði ljóðakeppni Mr.Lee fyrir ekki svo löngu síðan ?
8. Stafarugl. Raðið þessum stöfum svo úr verði orð. ÓGURJELGBLU
9. Upphaflegt nafn hans var Temudjin, betur þekktur sem ....?
10. Hvert er annað lengsta fljót Evrópu ?
11. Hvað er "tatanka" og úr hvaða kvikmynd ?
12. Númer hvað er Lee hjá Hunangstunglinu ?
13. Í hvaða kvikmynd er þessi fleyga setning "1,2,3, look at Mr.Lee" ?
14. Er Lee huggulegur andskoti ?
15. Botnið að vild. Hér er hægt að ná sér í aukaprik, með skemmtilegri botnun. "Það er ekkert flókið mál, að þá sjaldan...."
Gjörið svo vel kæru vinir og gangi ykkur vel. Eins og sjá má eru þetta misjafnar spurningar, farið bara varlega.
Lee
Nú er það endanlega komið á hreint, það verður ekki farið til Venezuela og ég er foj. Þetta var sá hluti sem átti að rífa mann uppúr janúarskammdegisþunglyndinu. Reyndar er ekkert svo dimmt þessa dagana og maður gerir alveg greinarmun á því að daginn er farið að lengja, en það er andskotanum kaldara fjandahelvítiskornið. Ohhh, ef allt væri með felldu þá væri ég útí Vene núna í 28 gráðu hita, að svala mér á einhverjum fansý kokteil og læti... FJAAAANNNDEEEENNNN. Ekki orð um það meir.
Nú er maður farinn að spá í veiðisumarið, sá stóri skal falla í valinn í sumar, öllu undir 20 pundum verður hreinlega sleppt. Annars fer sumarið bara að fara að verða planað. 4 góðvinir mínir eru að fara að gifta sig, sem gerir 4 helgar. Aðrar 4 helgar fara svo væntanlega í það að steggja þessa drengi, þannig 8 helgar þegar komnar góðan daginn. Svo var planið að hella sér í golfið og svo einhverjir veiðitúrar, þannig er að sjá að sumarið sé bara lænað upp, og það í janúar takk fyrir. Ég segi nú bara, það er eins gott að maður eigi ekki konu, því þá væri skilnaður á næsta leiti væntanlega.
Spurningakeppnin kemur inn á morgun, eða síðasta lagi hinn, þannig farið að setja ykkur í stellingar.
Starfsemi Hunangstunglsins komin á fullt fyrir sumarið, m.a. er verið að fara að fjárfesta í nýjum, mjög svo gæjalegum búningum. Þá má sjá hér. Endilega kommenta á þá.
Smá tribute hérna. Stórleikarinn Richard Crenna var að smeygja sér undi sex fetin rétt fyrir helgi. Fyrir ykkur sem ekki vitið hver Richard er, þá lék hann lærimeistara mennsku stríðsvélarinnar John Rambo. Hvers vegna er Lee að sýna þessum manni virðingu?? Jú hann lék í magnaðri mynd sem fæstir vita af og ber þann skemmtilega titil "Lögregluforingja nauðgað". Ég hef reyndar ekki séð þetta meistarastykki, en titillinn DREPUR MIG.... AAAAAAAHAHAHAHAHAHAHH.
Listamenn. Sameinumst í sorginni. Skellum okkur út á næstu leigu og tökum "Lögregluforingja nauðgað".
AAAAAAAAHAHAHAHHAAHAHAHAHAH
Lee
Það er kalt á toppnum, ég get alveg vottað það eftir að hið árlega Tarfamót í keilu hófst sl. laugardag. Ég sem ríkjandi meistari var staðráðin í því að verja titilinn, en það fór nú heldur betur á annan veg. Það er greinilegt að allir vildu sigra meistarann og menn lögðu sig allir fram, líkamlega sem andlega. Lee þurfti að játa sig sigraðan, var engan vegin að gera gott mót og krýndi arftaka sinn, sem var enginn annar en Magnús Freyr, sem sigraði eftir harða samkeppni frá Törfunum sem mættir voru, Maximus er vel að þessum titli kominn. Jæja, því næst var haldið niðrá Amigos í tæra snilld. Þar var skvett í sig nokkrum tekíla ásamt margarítu, fansý dinner og öllurum og Lee sem formaður agamála, var farinn að prika menn grimmt í kladdann, fyrir dólgslæti, munnsöfnuð og annað slíkt, við misjafnar undirtektir. Eftir það var haldið á Sportkaffi, þar sem var búið að læna upp alls konar dílum m.a. tekíla á 150 kall. Úffff. Það hafa örugglega fokið 10 stk þar oní barkann á mér, sem varð til þess að maður tók uppá ótrúlegustu hlutum, sem ég held ég láti vera að telja upp hér, en þeir voru skrítnir, skal alveg viðurkenna það :o). Eftir Sportkaffi var svo farið á ýmsa staði og verið að eitthvað frameftir morgni. Kom svo heim með hausinn undir handarkrikanum einhverntíman í morgunsárið og svaf í fötunum...again. Tær snilld í alla staði þessi dagur og vil ég þakka törfunum sem tóku þátt fyrir gott gigg. Sjáumst að sama tíma að ári.
Dagurinn í gær var svo nettur á skjálftavaktinni, en nóttin furðu góð, ekkert svitabað sem ég á til að taka eftir svona langa laugardaga. Nú er það bolti í kveld og maður verður stálsleginn eftir það.
Ohhh, ekki spillir að HM í handbolta sé að byrja núna, bjargar þessu gjörsamlega, svo undanúrslit í enska deildarbikarnum á þri og mið, bolti á mið, 4. stigamót vetrarins í pílu á fim og síðan bara eftir að læna eitthvað upp um helgina, spurning um Sól og Mána á þetta jafnvel. Jamm vikan plönuð, strax á mánudegi....sem er gott.
Jæja, ætla að athuga hvort ég rekist ekki á einhverja í hádeginu sem vilji vera kærasta mín, tjah ekki hittir maður þær á djamminu, það er klárt.
Hoppiði síðan bara uppí júnówhatið á ykkur.
Kiss Kiss
Lee
janúar 17, 2003 :::
Annað stigamót vetrarins í pílu fór fram í gær á Sportkaffi. Keppendur voru sem fyrr Lee, VIP og Gonnahh. VIP var brattur fyrir þetta mót, var meðal annars með yfirlýsingar hér á þessari síðu í "Ykkar pælingu" í greininni hér fyrir neðan. Hann kom gríðarlega einbeittur til leiks og vann fyrsta ramman nokkuð örugglega. Gonnah hélt ró sinni, og kom hokinn af reynslu inn í næsta ramma, fór þetta á kúlinu og vann sigur í ramma tvö, en spilað var upp í 3 ramma að venju. Þarna voru þeir félagar byrjaðir að skjóta á Lee hvað það væri nú kalt á toppnum og allt það og að síðasta stigakeppni hafi bara verið grís. Þá sagði Lee einfaldlega "hingað og ekki lengra", tók 3 ramma í röð einn, tveir og bingó, takk fyrir og góða ferð og sigraði annað stigamót vetrarins þar með örugglega. Skildi þá bræður eftir með skítinn í buxunum og tárin í augunum og ég get vottað það þetta fannst þeim sárt og svíður sennilegast enn. Nú þar sem þetta tók örskamma stund, þá var nú barasta ákveðið að skella á þriðja stigamóti vetrarins beint í kjölfarið. Þar stefndi yet again í sigur hjá litla Lee, hann leiddi með tvo ramma gegn einum hjá Gonnah og engum hjá VIP. En þá sannaðist sannarlega sú kenning að aldrei skal slaka á í kappleikjum. Lee gerði það og var refsað, já refsað af VIP sem kom gríðarlega sterkur til baka og tók 3 ramma í röð og sigraði þar með 3 stigamót vetrarins. Eftir 3 stigamót sem sagt, er staðan sú:
Lee 10 stig
VIP 7 stig
Gonnah 4 stig
Næsta mót er að viku liðinni, haldið á Sortkaffi að venju. Vil ég hvetja fólk til að mæta og fylgjast með pílu af bestu gerð. Öl á spot prís líka.
Bifrastartarfagleðin hefst eftir ca 27 tíma...obbosí það verður eitthvað. 16 tarfa gettogether og verður stíft prógram. VIP er enn í sárum eftir að hafa tapað í keilunni í fyrra og er sem fyrr með yfirlýsingar þess efnis í "Ykkar pælingu" í greininni fyrir neðan. En hann mun éta það ofan í sig eins og allt annað. Keilutitilinn mun ég ekki láta af hendi, það er ekki svo flókið mál, reyndar bara sára einfalt.
Horfði á vínsmökkunina í Ísland í bítið í morgun. Djæses...hvað er málið eiginlega með þennan sérfræðing. "Finnið þið ekki???, þetta er svona sambland af eik og gúmmí"....Dööööö. "Það er nettur leðurkeimur af þessu með ögn af sveppa bragði". Hahahahahah, hvað er málið. Ætla að fara að koma mér á vínsmökkunarnámskeið, er að sjá að þessir sérfræðingar séu að fara með tómt bolóní. Allavega, mæli með þessu sem morgunskemmtun á föstudögum.
Gott í bili. Góða helgi mínir kæru. Ætla að fara að ..... bara eitthvað. klæajfhdælakjdaælkj
Lee
janúar 16, 2003 :::
Daginn kæru vinir. Lee er dáldið haltur í dag eftir bolta gærdagsins, högg á kálfa, 6-8 vikur...eða þannig. Byrjaður í bolta á miðvikudögum í Sporthúsinu (gamla tennishöllin) og þar er nýtt gras á vellinum sem við spilum á sem er alveg brilljant, svo er músík í gangi, þannig það er svona erlendur bragur á þessu. Nú er bara að koma sér í form. Engin stúlka búin að bjóðast til að vera aðstoðarmaður minn á sun, þri og fim, þannig þarf að finna mér eitthvað að gera þá dagana, spurning um sund á þetta, eruð þið að sjá það??? æ ég hreinlega veit það ekki. Ekki er nú skemmtilegra að skokka fjandenn, en eitthvað verður maður að gera, hef úthald á við 300 kílóa gölt þessa dagana. Maður fixar eitthvað.
Annað stigamót vetrarins í pílu með Gunnari og Viðari í kveld. Viðar er enn í sárum eftir síðasta mót og hótar stútun á þetta í kveld, við sjáum hvað setur, reyni að kæfa það í fæðingu bara. Gunnar er hins vegar leikmaður sem leynir á sér, með mjög svo skemmtilegan stíl og hann gæti komið sterkur inn. Úrslit verða birt hér á morgun.
Bókin á náttborðinu þessa dagana er Samúel eftir Mikael Torfason. Ágætis afþreying svo sem, á ekki svo mikið eftir og það verður fróðlegt að sjá hvurnig hún endar. Þetta er svona bók í rauninni ekki um neitt, bara hugarheimur eins karakters eiginlega. Allavega vonandi gerist eitthvað spennandi í lokin.
Ræman í tækinu er Spiderman, tók hana í gær en gafst bara upp, nennti ekki að horfa á nema hálfa myndina, svoldið mikið um væl og skæl og eitthvað. En hún er nú flott samt sem áður. Það hefur nú ræst úr Kirsten Dunst, eins og hún fór í taugarnar á mér í Interview with a Vampire á sínum tíma. Nú er þetta bara bráðmyndarleg ung kona, vel belgjuð og allt....sem er náttúrulega mjög gott :o)
Bifrastartarfadagurinn að verða helvíti flottur, lítur ca. svona út.
17 - Keilumótið + nokkrir öl
19 - Amigos:
Maragrita
Muchos Nachos
Tekíla
Chicken & Beef fajitas
Followed by Corona
22 - Sportkaffi, þar sem verður búið að læna upp megadílum
01 - Gaukurinn - Nasa - Sólon eða eitthvað bara
janúar 15, 2003 :::
Fór á LOTR í gær... aftur. Þessar myndir eru hreint magnaðar. Að öðrum karakterum ólöstuðum er Gollum nokkur senuþjófurinn...ohhh hann er algjer rífandi schnilld. Gæti trúað að kellingar mígi í sig yfir Aragorn og Legolas í þessari mynd, sem eru alveg helvíti flottir, en Gollum fer á æðra plan. En nóg um það. Þið sem eigið eftir að sjá hana....HUNSKISTI Í DAG.
Lét mig alltaf dreyma í gamladaga um að vera uppi á þessum tímum, það er víkingatímanum, og ég væri aðalhetjan á flottasta hestinum og allt það. En þegar ég hugsa þetta í dag, þá sé ég að ég hefði sennilegast ekki náð 15 ára aldri. Af hverju??? Af því ég er með ofnæmi fyrir öllu loðnu fjandakornið. Gæti ekki verið á hestbaki, eða verið í skálunum þar sem menn og dýr lifðu í samlyndi. Já ég er að sjá það, ég hefði verið kafnaður um 15 ára aldur og talinn hafa verið haldinn einhverjum ægilegum sjúkdómi. Eða þá bara orðið eins og Gollum, útstæð augu, rámur í röddu, nettur pirringur. Hey, nú er ég búinn að sjá þetta. Gollum var bara með ofnæmi eins og Lee, hann var ekkert svona klikkaður útaf hringnum, hahahaha hann var bara með ofnæmi blessaður kallinn, nú skil ég hann fyrst.
Sverrir Dungal Leifsson stórvinur minn og drykkjufélagi heldur af landi brott í dag. Hann var hér í rétt tæpan mánuð og náði að detta í það á rúmlega tveggja daga fresti, sem er mjög gott. Mjög fyndið þó, að hvern einn og einasta dag sem hann datt í það, þá hringdi hann svona um 7 leitið á morgnanna og talaði inná talhólfið hjá mér "Kobbi, hringdu í mig, er ekki partý einhversstaðar". hahahahha, góður drengur hann Sverrir. Góða ferð Sverrir minn...sjáumst í sumar.
Annar snillingur að fara af landinu í dag, Arnfinnur Teitur Ottesen, en hann kemur aftur eftir tvær vikur, eftir að hafa migið á danska menntakerfið.
Bifrastartarfagleðin á góðri leið. 15 tarfar búnir að melda sig inn, hver öðrum huggulegri. Það er greinilegt að það eiga einhverjar stúlkuskjáturnar eftir að kikna í hnjánum í Reykjavíkurborg á laugardag. Annað eins tarfastóð hefur ekki sést í manna minnum.
janúar 14, 2003 :::
Formið er ekki að gera neitt fyrir mig þessa dagana, held fjandakornið að ég hafi hreinlega aldrei verið í lélegra formi, enda er síðasti mánuður búinn að vera mikil keyrsla af glaum og gleði. En nú stendur það til bóta, er að fara að detta í bolta á miðvikudögum líka, þannig þá er maður kominn með hreyfingu á mán og mið. Spurning að græja eitthvað hina dagana líka. Heyrði það einhversstaðar að það að stunda kynlíf væri besta líkamsræktin, varðandi þol og brennslu. Jamm, best að redda sér bólfélaga á sun, þri og fim, þá er ég kominn með reglulega hreyfingu 5 daga vikunnar, frí um helgar, og verð í feyknaformi þegar tímabilið hefst hjá Tunglinu. Þetta er átak í lagi. Sjálfboðaliðar óskast!!!! :o)
Auglýsingar geta verið misjafnar og það er ein sem er klárlega leiðinlegasta auglýsing í heimi þessa dagana og er það auglýsingin frá happadrætti Háskóla Íslands. Skil ekki alveg pælinguna með því að búa til svona auglýsingar, er ekki að sjá að neinn hafi gaman að þessu, en þetta snýst jú að miklu leyti um skemmtanagildi. Það er hins vegar önnur auglýsing sem er að gera allt fyrir mig þessa dagana og hreinlega drepur mig í hvert sinn. Þar er verið að auglýsa myndbönd mánaðarins eða eitthvað álíka og er það leikarinn góðkunni Gunnar Jónsson (held hann heiti það, stóri gaurinn sem kom inn í Fóstbræður á sínum tíma) sem fer á kostum. Þar fer hann í líki Spæderman, Rocky og svarthöfða svo eitthvað sé nefnt, spæderman og svarthöfði hreinlega drepa mig, verðið að tékka á þessu.
Annars lítið sem liggur á mér. Bifrastartarfar fyrr og nú fá sendan póst í dag, varðandi lænöpp fyrir næsta lau, en þá verður fjer, m.a. keilumót þar sem Lee hefur titil að verja, mexíkódinner með tekíla og tilheyrandi og fleira til. Mönnum er hollast að fara með bænirnar bara strax.
Hippíkæjeyjmoðerfokker.
Lee
janúar 13, 2003 :::
Tjah, það var heldur betur fjer þessa helgina. GK kveld á föstudaginn, sem var alveg hreint magnað. Dagskráin var í fljótu bragði svo: g&t, kampavín, g&t, dinner af hæstu gráðu, nokkrar red, kvikmyndasýningar, kvikmyndagagnrýni og pælingar, kaffi og konni, umræður, g&t, g&t, g&t.... ctrl + alt + delete. Þetta var magnað max og þakka ykkur drengir mínir fyrir þetta kveld. GK rúlar.
Matarboð hjá Golla og Júlíu á lau. sem var líka alveg brillijant, nett ítalskt yfirbragð, já italiano segi ég, og kunni ég því vel því ég er jú hálfur Ítali. Svo var kíkt á tjúttið, á Nasa og Astro og farið síðan heim og sofnað í fötunum, gjersamlega búinn á því.
Sunnudagurinn fór svo í afslappelsi, eins og endranær. Hélt mér hefði tekist að næla mér í sótt á helginni, öll mín vit fylltust af hori í gær og sá ég fram á leiðindartíma. Núna er ég reyndar mun betri heldur en ég var í morgun og ætli ég hlaupi þetta bara ekki úr í boltanum í kveld, og verði stálsleginn á morgun, er að sjá það.
Annars er lítið að gerast þessa dagana. Ekkert Venezuela í gangi... á næstunni allavega, leiðist það. En nú verður farið að læna upp næsta laugardegi. Stefnir í árlega keilu og mexíkókveld fyrrverandi og núverandi Bifrastartarfa. Það verður send út tilkynning í vikunni.
Hvað er þetta annars, ætlar enginn að skrá sig eða einhvern í deitpottinn... djæses, ætlaði að fara með þessa þvílíku miðlun í gang... sjammón.
Lee
janúar 10, 2003 :::
Föstudagurinn 10. janúar 2003. Þessi dagur verður lengi í minnum hafður, vegna þess að það stefnir í eitt mesta GK kveld sögunnar. Já kæru gestir eins og komið hefur fram á síðustu dögum þá er GK kveld í kveld. Tæpir 7 tímar í að það hefjist með einum rótsterkum g&t, followed by anotherone, followed bæ fansý dinner, followed by 6 Red, followed by "Efni frá meistara Dungal", followed by kaffi og koníak, followed by mænuskaði. Ójá mínir kæru, þetta verður eitthvað, ef ég fer í bæinn, þá verður mænan skilin eftir heima, það er á hreinu.
Skellti mér í pílu í gær með Veddah og Gonnah. Það var fyrsta stigamót vetrarins, haldið á Sportkaffi. Spilaður var 301 og var sá fyrsti til að ná 3 sigrum sigurvegari. Ég var ekki líklegur framan af, var í tómu rugli og Veddah var að spila best. En þá kom held ég að vendipunkti leiksins. Þá kom eitt glæsilegasta útskot seinni tíma ( en þið sem ekki þekkið til pílu, þá þarf að skjóta sig út á tvöfaldri tölu, þannig ef þú átt 40 eftir, þarftu að skjóta í tvöfaldan 20...comprende???). Lee átti 130 eftir og var nokkuð á eftir keppinautum sínum, en gerði sér lítið fyrir og fór fyrst í tvöfaldan 20 og svo í þrefaldan 20 = 100 og átti þá 30 eftir og setti þá síðustu píluna í tvöfaldan 15... útskot takk fyrir og það á heimsmælikvarða, áhorfendur áttu ekki orð, enda voru þeir engir, en keppinautarnir voru orðlausir. Spennan var svo orðin óbærileg undir lokin, þegar allir voru búnir að vinna 2 ramma og úrslita rammi í gangi, sem tók góðan hálftíma. Það endaði með því að Lee skaut sig út í tvöföldum einum og fagnaði þar með sigri í fyrsta stigamóti vetrarins...Píla, tjah, það er sport.
Jæja þarf að einbeita mér að GK núna. Lifið heilir kæru vinir og eigið góða helgi.
Dart Lee
janúar 09, 2003 :::
a á b d ð e é f g h i í j k l m n o ó p r s t u ú v x y ý z þ æ ö,
nei bara segi svona, datt í hug að þylja upp íslenska stafrófið. Það er samt eitt í þessu, ef þið eigið erfitt með að sofna, þá er mjög gott trix að þylja þetta afturábak, svínvirkar. Virkar reyndar ekki lengur á mig, þar sem ég hef notað þetta oft og get farið með þetta blindandi....eða þannig.
Lee, fullur af pælingum
janúar 08, 2003 :::
Lee skellti sér í Nevada Bob í gær og keypti sér eitt stykki golfsett takk fyrir, Wilson kylfur (en fyrir ykkur sem ekki vitið, þá er það mjög góður kostur) og er þetta notað sett, sem ég fékk á gjafaprís, einungis 19 kall. Gamla settinu mínu var nebblega stolið árið 2001 í Húsafelli, einmitt þegar ég var að toppa á golfferli mínum og hef ég verið á leiðinni síðan að fá mér nýtt. Fékk poka og kerru í jólagjöf og ég sem sagt fyllti á það í gær. Er agalega stoltur núna, er að spá í að fara í göngutúr um hverfið seinnipartinn í dag með settið í eftirdragi og monta mig aðeins...verst hvað er farið að dimma snemma. Allavega geta golfarar nær og fjær farið með bænirnar, held ég sé óslípaður demantur í þessu sporti fjandennn :o)
Vikan hálfnuð og GK kveld á föstudaginn.... hólýmólýmaccaróní segi ég bara, það verður eitthvað. GK kveld er sem sagt þegar viss hópur spekúlanta hittist, gæðir sér á dýrindis máltíð og ræðir vissar tegundir kvikmynda, eigum við ekki að kalla það bara erótískar myndir ;o). Við verðum að öllum líkindum 6 í þetta skiptið og er skylda að allir komi með eina red og eitthvað meira til, svo verður væntanlega kaffi og konni og miklar spekúlasjónir í gangi. Ég ætla bara að tilkynna það strax að þetta er ávísun á mænuskaða, reyndar var þetta hóflegt síðast þegar þetta var haldið, en þá var það haldið á virkum degi, en þarsíðast, þegar þetta var haldið um helgi, þá voru menn farnir að kenna karate, gera einhverjar hugarorkupælingar og ég veit ekki hvað og hvað....úff hvað ég hlakka til. Fyrir ykkur svo sem kunnið að rekast á mig í bænum á fös kveld, ekkert láta ykkur bregða þótt að ég verði með brennivínsflösku í annarri og mænuna í hinni.....þetta verður bara einn af þessum dögum for helvede man.
Tiger Lee GK
janúar 07, 2003 :::
Daginn, daginn. Háðefokkislæf??? Bara skítósæmó, reyndar vottur af janúarþunglyndi að detta inn. Ef allt væri með felldu, þá væri ég á leiðinni til Venezuela eftir ca. viku, en neeeeiiiiii, Hugo Chaves greinilega ekki að gera góða hluti þarna, allt í volli og Fríða og Dýrið flúin land til Chile síðast þegar ég vissi, eða þannig. Venezuela sem sagt komið á hold og mér leiðist það. Jæja, þá verður bara bitið í skjaldarendur eða whatever...ætla mér eitthvað út á næstunni og þar skulu vera hvítir sandar, Cuba libra og fagrar meyjar, annað er ekki tekið í mál.
Var aðeins að hreinsa til í linkasafninu mínu. Breytti hinum geysivinsæla link "Bjóddu Lee á deit!" (eitt deit barst mér þar í gegn, og það frá karlmanni takk fyrir) í "Deitpott Mr.Lee" Þangað geta svo einstaklingar sent inn nafn sitt og númer og netfang og smá lýsingu á sér og ég mun svo velja saman eitthvað par sem ég tel að eigi vel saman, eða jafnvel bara af handahófi. Tjah það er einn maður kominn í þennan pott og hann heitir Lee sá, jújú, maður verður nú að sýna gott fordæmi. Nú verðið þið að hjálpa mér kæru netverjar og senda þetta á einhverja einstaklingana svo það verði nú góð þáttaka í þessu...kooommmaaa svvoooooooo.
Nú styttist loks í spurningakeppnina ógurlegu sem ég var búinn að lofa á sínum tíma. Hún þurfti því miður að sitja á hakanum vegna anna í desembermánuði, en ég er að vinna í spurningunum núna og kemur þetta vonandi inn í næstu viku.
janúar 05, 2003 :::
Árið á þetta kæru vinir. Það er aldeilis sem maður er búinn að taka á því sl. daga. Hreint ótrúlega gaman á gamlárs á Iðnó, er ekki frá því að ég sé ennþá með harðsperrur eftir öll múvin á dansgólfinu, Geirfuglarnir alveg brilljant. Á nýárs var tekið nett mens næt át á þetta, svo var náttúrulega aðeins tjúttað á helginni, endalaust prógram í gangi, hvers á maður að gjalda fjandenn. Líklegt að það verði nokkuð grimm skjálftavakt í nótt. Jæja, er búinn að ákveða nokkur áramótaheit. Bara þetta beisik, slípa á sér belginn eitthvað, verða ríkur, verða markahæstur Tunglara í sumar og haldið ykkur fast....finna mér konu, já konu fjandahelvítiskornið... þetta er bara svona. Allar hugmyndir vel þegnar :o) ..... já nú verður bara farið að deita takk fyrir og góða ferð. Eitt að lokum... HHHAAAAAAARRRRRRRUUUUUURRRRR
Lee