desember 31, 2002 :::
Verð að koma að hérna einni pólitískri pælingu svona í lok árs. Það er varðandi borgarstýruna Ingibjörgu Sólrúnu. Sko ég er nú skráður sjálfstæðismaður en er mjög svo lítið virkur í því starfi, en ég hef alltaf haft mikið álit á Ingibjörgu sem pólitík(us) þótt svo hún teljist "óvinurinn" í þessum bransa. Það veit hver sem er að þetta er þrælklár kona. Ætlar einhver að segja mér að þetta sé ekki plott hjá henni. Hérna er mín pæling. Hún hefur greinilega haft hug á því að hasla sér völl í landspólitík og sá sér þarna leik á borði. Hún tilkynnir þetta opinberlega að hún ætli sér að fara í landspólitíkina ásamt því að sitja sem borgarstjóri. Það skal enginn segja mér það að hún hafi ekki búist við þeim svörum sem hún fékk frá "samflokksmönnum" sínum varðandi þetta mál....ónei, hún er klárari en það blessunin. Ef hún hefði haft meiri hug á því að sinna borginni heldur en að fara á landsvísu, þá hefði hún verið búin að þaulkanna þetta útí gegn og þetta mál hefði aldrei þurft að koma upp. Það getur vel verið að hún hefði talið smá líkur á því að þetta myndi ganga í gegn, sem bæði borgarstjóri og (vara)þingmaður, en ég er nokkuð viss um að hún hefði frekar búist við þeim viðbrögðum sem hún fékk svo að lokum. Hún grípur þetta tækifæri og segir sem svo að henni hafi verið stillt upp við vegg og í rauninni verið að bola henni út sem borgarstjóra. Og hvernig kemur það út fyrir almúgan...jú hún er hetjan sem vildi gera allt gott en var að lokum hrakin frá völdum. Það lítur nokkuð betur út heldur en ef hún hefði bara sagt skammlaust ætla að yfirgefa skútuna og herja á ný mið. Ef hún hefði gert það, þá hefðu margir misst álit á henni, en eins og hún tæklaði þetta í dag, þá hefur hún vakið upp samúð og hetjudáð (já hetjudáð segi ég, því það eru margir í þessum geira sem tapa sér yfir hrifningu á stjórnmálamönnum...steikt) hjá mörgum sem er ekkert annað fleiri kosningaatkvæði á hennar hlut, þegar kemur að landspólitíkinni í vor. Já, hún er að herja á landið, þetta var þaulplanað hjá henni. Það er allavega áramótapæling Mr.Lee
Gamlársdagur mættur bara. Það verður sko chill í dag, aðeins að skreppa í ríkið, en annars bara chillað heima í lestri eða yfir imbanum bara. Við feðgar erum boðnir í mat til vinafólks okkar í kveld, tjah mæting uppúr kl.16 takk fyrir, því karlpeningurinn á að sjá um að græja matinn, sem verður ekki af verri endanum, villibráðaveisla...ohhh æ lov it, hreindýr, gæs og rjúpur og einhvur andskotinn. Fyrstu rjúpurnar sem ég fæ í ár, ótrúlegt þar sem maður hefur verið alinn upp við þetta á jóladag síðan í gamla dag, ætli maður slátri ekki eins og 5-6 bringum af þeim. Svo verður rétt kíkt uppúr áramótum á Hillu og Sigga, til foreldra Sigga og kastað á þau kveðju yfir eins og einu kampavínsglasi. Síðan liggur leiðin niðrí Iðnó, þar sem Geirfuglarnir eru að spila, þar verður án efa svaka fjer. Maður tekur nú kannski púlsinn einhversstaðar líka, þar sem maður er einu sinni meistari í því að fixa sér inná staði gegnt ótrúlegustu lygasögum ;o) allavega traust að vera kominn með miða sem maður getur dottið inn og út. Þetta ræðst bara allt saman, ekkert stress í gangi. Allavega, 3 og hálfur tími í fyrsta bjór hjá mér....er það ávísun á mænuskaða...nei ekkert endilega fjandenn, dett í vatnsglös inná milli (ef ég man eftir því) þá verður maður helvíti góður. Áramótaheit??? Kannski maður standi bara við stóru orðin sem féllu hérna um daginn, og finni sér kvonfang,...haaaa...??? Kannski bara dís minna drauma mæti mér í kveld, spurning hvort maður verði bara of mænaður til að taka eftir henni :o)
Allavega gleðilegt nýtt ár kæru vinir og takk fyrir það gamla. Maður kannski hendir inn annál ársins 2002 inn á næstunni og einnig Völuspá ársins 2003 (vantar sjálfboðaliða í það starf)... bara gaman að því.
Leef og fjer.
Lee
desember 29, 2002 :::
Jæja, heljarinnar djammtörn að baki núna. Dansað frá sér allt vit á fimmtudaginn á Jagúar, svaka fjer þar. Alvöru kúrekafyllerí tekið á föstudag, þar sem m.a. var farið í sjóarapartý í Hafnarfirði, símanum týnt (fundinn aftur..hjúkkit) og ég villtist í lyftu...aaaalveg farinn :o) Svo var spilakveld í gær hjá Jut Martan og Helgu fögru, þar sem þau hjú fóru á kostum í smurbrauðsgerð, hef sporðrennt ca. 36 snittum takk fyrir. Þar var róleg en mjög góð stemning í gangi. Kíkti í bæinn eftir það og hitti góða menn, Gee, Gonnahh, VIP, Dungalinn, Emmcee, Wasserman og fleiri (hahahah, þessi nöfn fjandenn). Var bara chillaður, var sem sagt með mænuna með mér í þetta skiptið ;o) og ég er að segja ykkur það, kellingarnar eru að sensa það og fíla það....grimmir eye-arar í gangi, ekki var maður samt að fylgja því eftir, tognaður í haus sem maður er. Tjah húkkaði upp leigubíl á lækjartorgi, þar fram í sat sekkjapési kvk. ca. 300 pund og andskotanum leiðinlegri. Aftur í var síðan stelpa og strákur. Allavega ég treð mér þarna inn og spyr hvort ég megi ekki fljóta með, en sekkurinn var á leiðinni í Grafarvog, og þau öll í rauninni á leið í eitthvað partý. Jæja ég stekk út rétt hjá heima og hendi fimmhundruð kalli í fitubolluna og þakka fyrir mig, en neeeeiiii, þá vill hún að ég borgi líka fyrir allan bílinn uppí Grafarvog, ég hló bara að henni, en þá trylltist hún og segist ekki eiga pening og eitthvað og þurfi að komast heim, eins og það kæmi mér eitthvað í andskotanum við. Heyriði, haldið þið ekki að hún stígi út úr bílnum labbi að mér og gefi mér bara einn á lúðurinn, hahaaha já einn gúmoren takk fyrir. Ég ýti henni eitthvað frá mér og ætla bara að labba í burtu, heyrðu, þá reynir hún aftur eitthvað að reyna að slá mig og þá varð Lee foj og var alvarlega að spá í að svara í sömu mynt, en hin sem voru í bílnum komu í veg fyrir það, og þetta endaði með því að helvítis rjómabollan var svoleiðis hágrenjandi alveg að kafna í eigin spiki. Er að segja ykkur það að ef ég hefði verið vel við skál þarna, þá hefði ég hent þessari meri í stéttina og migið yfir hana, án gríns....það er sem ég segi með sumar kellingar....kreisí bitsjes. Rather funny though. Pása á morgun, svo gamlárs og nýárs og svo helgi...úffff...þá sjaldan jú nó.
desember 26, 2002 :::
Annar í jólum. Tjah þetta er ekki lengi að líða. Hátíðirnar búnar á morgun bara og vinnudagur hjá flestum. Hélt pínu jólaboð í gær, bauð snillingunum og stórvinum mínum Gunnari Sigurðssyni og Viðari Inga Péturssyni uppúr hádeginu í morgunverðarhádegisjólaeitthvaðdæmi. Maður lagði í heitt súkkulaði svo var hent upp litlu breakfast buffet og að sjálfsögðu hangikjet. Þetta var helvíti fínt og málin rædd undir kertaljósi og menn belgjuðu sig út. Svo var ákveðið að spila Scrabble sem var hreint ótrúlega spennandi og muna menn vart eftir annarri eins spennu. VIP fór að lokum með sigur af hólmi, mjög svo naumlega þó. Nú drengirnir yfirgáfu svæðið þegar klukkan var farin að nálgast 17 og þá var maður bara eitthvað að dóla sér fyrir næsta jólaboð, sem var hjá Júlíusi þyngri og Ernu Haks. Blanda sem klikkar aldrei þar, graflax og lambahryggur og úðaði maður í sig eins og vindurinn sjálfur. Sem sagt bara algjer klassa jóladagur. Nú er maður bara uppí rúmi að blogga en er að fara að húrra mér fram að kveikja á kertum og setja músík á, já mínir kæru, það er eitthvað við þetta, kerti og músík um miðjan dag, er alveg að fíla það.
Djamm í kveld?? Já ætli þaggi bara, nokkuð betra að gera, ungur maður eins og ég, fullur af hormónum :o)
Lee
desember 24, 2002 :::
Vááá. Þvílík veisla. Var hjá Hillu systur og Sigga og dvergunum þeirra Birni og Degi. Einnig var Mósinn þarna og amma, sem sagt einvala lið snillinga. Boðið var uppá humar í forrét og dádýrakjöt frá Nýja Sjálandi í aðalrétt góðan daginn....fjaandeeennn hvað það var hroðbjóðslega gott, djæses... á varla orð, dádýrakjöt er málið mínir kæru það get ég vottað. Svo var hjemmelavet rjómaís í desert og það toppaði þetta alveg. Tók nýja taktík á þetta, borðaði nokkra konfektmola yfir daginn bara svona til að halda belgnum við, þannig maður var í sínu besta formi þegar tekið var til matarins og hesthúsaði ég að sönnum karlmannasið. Svo var komið að pökkunum, þar sem dvergarnir voru í essinu sínu, þvílíkt pakkaflóð í gangi og maður fékk nokkra góða sjálfur, verí verí fæn. Nú er maður sem sagt kominn heim, henti hangikjeti í pottinn í dag og get varla beðið eftir að smakka það á morgun. Þetta var bara í alla staði perfect sem sagt. Kannski manni vanti helst að eiga konu núna til að klappa á bakinu, tjah ætli maður fari bara ekki að vinna í því á nýju ári fjandakornið. Jæja, nú er það lestur á einni af jólagjöfunum, húrra sér undir jólarúmfötin sem eru að gera það bigtæm og detta í lestur.
Jámm jólin eru komin elsku vinir, til lukku með þau og hafið það sem allra best.
Lee....loksins í jólahug.
desember 23, 2002 :::
Jæja elsku vinir. Þar sem ég er heimsins aktívasti maður í jólakortasendingum, og sendi að meðaltali 0,0 jólakort á ári, þá langar mig að óska ykkur gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári hérna á veraldarvefnum. Takk fyrir allt gamalt og gott og allt það. Það er vonandi að nýja árið verði að gera einhverja hluti, en ég á ekki von á öðru satt að segja.
Ho ho ho....
Christmas is coming you know,
hopefully it will be good for you and me,
so merry Christmas from Mr.Lee
desember 19, 2002 :::
Það er nú löngu kominn tími til að koma inn Hamarssíðunni hérna. Fyrir ykkur sem vitið ekki, þá er Hamarinn uppeldisfélag mitt í knattspyrnunni og er ég ásamt öðrum meðlimum á æviráðningarsamning við félagið. Þessi síða hefur reyndar ekki verið uppfærð í tvö og hálft ár, en stefnan er að þeir komi sterkari sem aldrei fyrr inná ritvöllinn á ný. Þarna er marg skemmtilegt að finna, m.a. mynd af Lee þegar hann er 14 ára kálfur o.fl.
Njótið vel.
HAMARINN KEMUR, HAMARINN ER, HAMARINN LIFIR.
5 dagar til jóla. Nú er ég alveg búinn að plana þetta. Ætla að klára að krota niður innkaupalista í dag. Þrif í kveld, annað kveld og laugardagsmorgun. Gjafir keyptar á milli jólaballa á laugardag. Pakkað inn á mánudag og keyrt út á aðfangadag. Svo er líka planið að fjárfesta í malt og appelsín, mandarínum og vænni flís af feitum sauð. Jeeee, þetta fer bara allt að smella. Æi fjandenn, vantar skreytingar á sketjúalið,...jæja hlýt að geta fleygt einhvurju upp, en það verður ekki mikið skal ég segja ykkur.
Fínt jólaball í Kringlunni í gær sem við héldum og unglingarnir létu okkur alveg í friði í þetta skiptið, fyrir utan einn, sem fékk kveðju á erlendan máta frá sveinka..."piss off" hljóðaði hún og það tók hann hálfa sekúndu að hverfa. Ykkur finnst þetta kannski full gróft, en þetta verður bara að vera svona, svo þessir krakkar eyðileggi ekki stemmninguna fyrir yngri börnunum. Annars voru tveir snillingar mættir þarna í gær, þeir Birnir og Dagur systursynir mínir, með afa Mósa. Málið er að fyrir 4 árum þegar Birnir var tveggja ára, þá lék ég í fyrsta skiptið jólasvein í fjölskylduboði og tókst mér ekki betur til en svo að hann þekkti mig þá blessaður dvergurinn, var ég kosinn lélegasti jólasveinninn það árið og hét því að klæðast gallanum rauða aldrei aftur. Annað kom nú á daginn. Allavega þá vorum við eitthvað þarna uppá sviði og Birnir svoleiðis góndi á mig, að ég var pottaður á að hann þekkti mig og leist satt að segja ekkert á blikuna þegar ég sá hann nálgast og hélt hann ætlaði að fara uppljóstra leyndarmálinu fyrir öllum krökkunum að ég væri ekkert sveinki, heldur bara Kobbi frændi. En nei, hann grunaði þetta ekki, var bara að syngja og tralla með í gúddí fílíng. Degi hins vegar lét fátt um finnast og var bara að telja línurnar í gólfinu eða eitthvað álíka, en hann er 4 ára. Frétti síðar meir að hann sagði við afa sinn eftir þetta..."þetta eru bara óttalegir hálfvitar"... svo mörg voru þau orð.
desember 18, 2002 :::
Nú eru sléttir 2 mánuðir síðan þessi blessaða síða opnaði. Gaman að því, þá fór einmitt 4000-asti gesturinn inn á hana áðan, á afmælisdeginum sjálfum og fagna ég því.
Hunangstunglið á að keppa í kveld í Pepsi-deildinni í handbolta og verða mótherjarnir ÍR-2. Vil ég hvetja alla unnendur handbolta og glæstra karlmanna að mæta í Smárann kl.22 og hvetja Tunglara.
Vil einnig benda á eitt best geymda leyndarmál skyndibitamenningar hér í borg. Það er staðurinn Thai-matstofan í Faxafeni. Ég sem sérlegur áhugamaður um skyndibitafæði get vottað það, að þið verði ekki svikin af matnum sem borinn er þarna fram.
Erum við að tala um að íslenskir krakkar á aldrinum 10-13 ára séu þeir leiðinlegustu í heimi, já ég held það svei mér þá, þótt ég hafi ekki mikinn samanburð, en ég held þau hljóti að komast ansi nærri því. Þeim leiðist ekki að bögga jólasveininn, það er víst alveg á tæru. Hanga svoleiðis utan í manni eins og blóðsugur og rífa kjaft og eru með leiðindi...tjah og voru farin að henda í mann smápeningum í gær undir rest. Skal segja ykkur það að það styttist í að sveinki gefi einhverjum óhörnuðum unglingnum vænt olnbogaskot í síðuna eða fésið og það verður sko alveg óvart. Svo sér maður líka hvað einmitt þessi aldur er heilbrigður á einhverjum íþróttaviðburðum, þegar þau eru hoppandi og skoppandi og ég veit ekki hvað á bakvið íþróttafréttamanninn sem er að taka viðtal. Man ekki til þess að hafa séð þessa hegðun einhversstaðar erlendis hjá krökkum. Indverjar hafa reyndar þróað þessa aðferð aðeins (og fleiri lönd á þeim slóðum), en þar er það fullorðnafólkið sem er að reyna að troða sér í mynd, ekki með dólgslátum þó, heldur mjög lúmskt með því að troða sér eitthvað inná rammann hjá kamerunni. Þetta er mjög fyndið og svona prófessional útgáfan af krakkagemlingunum frá Íslandi. Mæli með að þið tékkið á þessu, næst þegar þið verðið vitni að einhverju viðtali þarna fyrir suð-austan.
6 dagar til jóla...fafafafafjandenn. Enn á Lee eftir að gera allt, ég er nefnilega þeim hæfileika gæddur að slá öllu svona stússi á endalausan frest. Mér leiðist þessi tími, rétt fyrir jólin óendanlega. Af hverju í andskotanum læt ég aldrei verða að því að gera þessa jólahluti snemma einu sinni. Æ fokkit, þetta fixast allt, grimm undirbúningsvinna í dag, svo keypt á morgun eða hinn, og pakkað inn um helgina og keyrt út á aðfangadag, keine problemó....en þá eru þrifin eftir....FJAAAAAAAAANNNNNDDDDEEEEENNNNNN.
Ebenezer Lee
desember 16, 2002 :::
Var rétt svo búinn að stúta mér áðan, eða öllu heldur einhver ökusnillingurinn búinn að stúta mér. Var að koma úr Mekka Dauðans (Kringlunni) og var að keyra Sundlaugarveginn, þegar einhver mongólítinn kemur askvaðandi úr einni hliðargötunni, beinustuleið útá götu, þegar það er svona 2 metrar í mig. Einhvernvegin næ ég að sveigja til vinstri og þar blasti við umferðareyja með skilti á, þannig ég þarf að rykkja strax aftur til hægri og er þá kominn á beinubrautina aftur. Þetta gerist á svona sekúndubroti, sem ég tek þetta netta zikzak á þetta og ég get svarið að ef prófdómari hefði verið að fylgjast með þessu þá hefði ég fengið Ökuleikni 2002 fyrir þessi ósköp.
Heyrði í útvarpinu áðan talað um fávita dagsins og ég hreinlega ætlaði að kafna. Það var einhver iðnaðargaur að vinna hjá einhverju kompaníi sem gaf sig út fyrir að vera með fremstu starfskraftana. Allavega þá var hann fenginn í að innrétta einhvern kjallara og kallinn sem að réð hann í vinnu þurfti að fara út og ætlaði að kíkja á hann seinnipartinn. Jæja, þessi blessaði iðnaðarmaður hófst handa, en það gekk ekki betur en það að honum tókst að saga af sér framhandlegginn með rennisöginni. Sársaukinn var svo óbærilegur að hann ákvað að ljúka þessu bara, binda endi á kvalirnar. Hann var þarna með naglabyssu og ætlaði að klára þetta þannig. AAAAAAAAAHAHAHAHAH. Svo kom eigandinn heim og fór niður í kjallara, og fann þá greyið manninn útí horni, hálf skælandi eitthvað, með einn handlegg og 12 NAGLA Í´HAUSNUM Á SÉR .... AAAHAHAHAHAHAHAHAHAHAH, þetta gjörsamlega drepur mig. Það var svo farið með hann á spítala þar sem hann var naglhreinsaður og eitthvað reynt að lappa uppá handlegginn á honum. Úff segi ég bara, ef þetta er ekki móment þá veit ég ekki hvað... ég meina hvað ætli gaurinn hafi verið að hugsa eftir að hafa dúndrað í sig 10 nöglum og ekkert gerst ennþá.....aaaaaaaaaaaaaaaaaaaahahahahahah sjammón lee.
Langar bara að benda ykkur á það að það er mynd af engum öðrum en Skúta skemmtilega í Fréttablaðinu í dag, bls. 34. Frægðarsól hans ætlar aldrei að dvína greinilega.
Heyriði, eitt í viðbót hérna, þá til kvenkynsaðdáenda síðunnar. Er algengt að kvenfólk fantiseri um sveinka?? Þetta er maður að heyra hmmm...Ykkar pæling takk.
Daginn kæru vinir. Er ekki rétt þá að tækla helgina. Föstudagurinn fór bara í chill og fínerí, var farinn snemma í háttinn og svaf á mínu græna til 10 á laugardeginum. Þá var tekin smá þrifaskorpa svo var farið að sveinkast uppúr hádeginu. Var kominn aftur heim rúmlega 18 og einhver gír í mér, enda stefnan sett á að hitta drengina um kveldið og skvetta örfáum öllururm í sig. Jæja, drengirnir mættu síðan í Sporðagrunninn og áður en ég vissi af var ég búinn að stúta ca.10 bjórum og kominn í rótsterka G&T, svoleiðis löngu búinn að gleyma því að ég ætlaði að vera svoldið spakur þetta kveld. Jæja splittar ekki diff. Allir voru í gúddí fílíng. Maður fann hvurnig mænan hægt og bítandi gafst upp undan áreiti Bakkusar og já mínir kæru.....mænuskaði varð staðreynd. Það var kíkt aðeins á Nasa en svo var fært sig yfir á Gaukinn og geri ég ráð fyrir að það hafi verið fjer á báðum stöðunum :o) hef greinilega ýtt óvart á ctrl-alt-delete þarna einhverntíman um 4 leytið, það verður bara að hafa það. Var kominn heim eitthvað um 6 með hamborgara í annarri og mænuna í hinni, svo var látist um stund og vaknað á hádegi til að sveinkast, tók Gingám á þetta...rosa fínt. Svo var það bara skjálftavaktin í gærkveldi og spennitreyjan í nótt.
Lee
desember 13, 2002 :::
Er búinn að vera foj núna í dágóðan tíma. Mit liv som en hund. Ætla að fara niðrá Bæjarins Beztu og fá mér eina slöngu og kók, það kemur mér vonandi í gott skap. Hvor er livet???????
Haldiði síðan kjafti.
Lee, ekki lee-fsglaði.
Fafafafafjandeeeennnn. Verð víst að draga aðeins úr yfirlýsingum mínum varðandi tjúttið á morgun. Málið er að einn af virtari sveinkunum var að slasa sig og er off alla helgina jafnvel alla jólatörnina, það er á tandur. Þetta þýðir það að það hrannast upp hjá mér gigg á morgun og hinn og þar gengur sko ekki neitt að vera rónasveinn. Fer reyndar á fund í kveld með Grýlu og Leppalúða og þá skýrast málin betur. Allavega þá verður þessum bjórum sem átti að slátra fækkað úr 12 í 6 til að byrja með, jafnvel færri...FFJAAAAAAAAAAAAANNNNNNNNDDDDDDDDDEEEEEEENNNNNNNNNNNNN. En eigi skal ég grenja það. Tek þessu með jafnaðargeði, já JAFNAÐARGEÐI SEGI ÉG ERUÐ ÞIÐ HEYRNARLAUS??????????? ...
Baráttukveðjur til Sæma, vonum það besta.
Lee
Föstudagurinn 13....úff... ef það er fullt tungl líka, þá er nú heldur betur voðinn vís. Týni yfirleitt mænunni minni þegar ég fer á tjúttið fös.13. þannig held ég láti það bara eiga sig í kveld, reyndar jólaglögg hjá vinnunni í dag, en ég segi bara blessunarlega þá er ég að fara að sveinkast og kúpla mig þannig útúr þessu. Jámm rokk og rólegheit skal það vera í kveld....en á morgun??? ÓNEI...NÓWEI. Skrall tekið á morgun, skálað fyrir heimkomu Gutta, Hrannar og Júlíans. Hef heyrt utan að mér að einhverjir Tunglarar ætli að taka langan laugardag á þetta. Verð sjálfur að sveinkast eitthvað frameftir, en kem svo strong inn. Jólabjórinn frá Tuborg tekinn grimmur á þetta, þið sem ekki hafið smakkað hann, frestið því ei lengur, þetta er hreint magnaður mjöður. Eru einmitt 12 svolleis kvekendi heima núna, svoleiðis hríðskjálfandi farandi með bænirnar, því þeir vita sem er, að þeir á fund forfeðra sinna á morgun, já allir 12 fjandenn hafi það. Sálin á Gauknum alla helgina, það væri nú alveg sársaukalaust af minni hálfu að kíkja þangað aðeins. Er að sjá Nasa til kl.3 svo Gaukurinn til 5, sofnaður 6, vakna á hádegi = 6 tíma svefn = enginn rónasveinn á sun = þarf ekki að byrja á því að skola barkann á mér uppúr edik á sun :o)...jámm skothelt plan.
Smá fréttir úr bloggheiminum. Raggio og Hunang að koma strong inn þessa dagana, með allt frá dagdraumum uppí þjóðfélagslegar pælingar...rock on.
Smá leikur í lokin. Það hafa allir væntanlega fengið sent til sín jólablað Kringlunnar. Inní því blaði er mynd af einum hlut sem Lee á. Sá sem finnur út hvaða hlutur það er, vinsamlegast hafi samband og ég mun bjóða þeim einstaklingi uppá kollu, næst þegar leiðir okkar liggja saman....Leitið og þér munuð finna.
Lee
Þá kom loks að því, Temptation Island var í kvöld og hafði ég beðið með nokkurri eftirvæntingu. Eins og þið munuð þá var ég að úthúða tveimur kellingum hérna fyrir viku útaf afsökunum þeim sem þær gáfu upp við kærastana sína. Jæja, skemst frá því að segja að kærastarnir kokgleyptu afsakanirnar að mér sýndist, en ég er ekki að kaupa þær fyrir fimm aura. Splittar ekki öllu, bara tekið love is blindness á þetta...gott og vel hjá þeim. Reyndar er nú einn af kærustunum að tapa sér. Hann er búinn að vera utaní og með einni og sömu píunni frá því day 1 og greinilega búinn að vera að gera eitthvað örlítið meira en að klappa henni á bossann. Skyndilega snýst honum nú hugur og byrjar að dissa þessa píu og segir að aldrei neitt hafi gerst, hann elski kærustuna sína og bla bla og me me. Hann er greinilega eitthvað tognaður í haus líkt og stallsysturnar á hinum kantinum, því það eru myndavélar útum allt þarna, en kannski gerir þetta fólk sér ekki alveg grein fyrir því. Hann sem sagt neitar öllu en hún (þ.e. pían sem er búin að vera með honum frá day 1) segir að hann sé svikahrappur og sé búinn að halda framhjá kærustunni sinni af því hann tók hana út í runna eitt kvöldið og slummaði hana af krafti. Aftur bla bla og me me. Nenni ekki að spá meir í því og þessu fólki. Það sem ég er að spá í núna er það, hvort í andskotanum ekkert gerist eftir allt saman og öll pörin haldi saman heim á leið, ekkert gerist nema smá kossaflens og allir fyrirgefi öllum. Reyndar verða einhver sörpræs í næsta þætti samkvæmt trailernum fyrir hann. Muna að fylgjast með því. En fjandenn að ekkert krassandi skuli hafa gerst allan þennan tíma, fyrir utan einhver vafaatriði þar sem engum tekst að sanna neitt á neinn, finnst mér glatað. Mæli með að næsta sería verði tekin hérlendis, það myndu pottþétt einhverjir hlutir gerast, Íslendingar eru svo léttir á bárunni víst :o) segir sagan allavega. Já ég segi veljum íslenskt, burt með Temptation Island, inn með Temptation Iceland.
Lee
desember 12, 2002 :::
Jæja best að koma sér. Sveinkast á eftir duhhhh, alveg að nenna því. Hef ákveðið að fresta þrifum fram í næstu viku, þar sem gæti komið til smá gleðskapar á helginni. En þá verður líka tekið á því fjandenn. Kveð ykkur að sinni með smá textabroti eftir Ný dönsk... tjah smellnir textar þar, ætla að taka þetta næst fyrir einhverja kellingu, sjá hvort hún verði foj :o)
Ég kann vel við þig
en ég kann betur við vinkonu þína.
Hún er fyrirmyndareintak af góðum kvenmanni.
Og þú ilmar vel,
en ég tel
að hún ilmi betur
og það er auðveldara að muna hvað hún heitir....
Skemmtilegar pælingar hjá Ný dönskum... ( . ) ( . ) (þetta eru túttur)
Hérna er smá pæling kæru vinir. Þið munið öll eftir jólalaginu með Band Aid "Do they know it´s Christmas time". Já já, tötsí og allt það, sungið til styrktar hungursneyð í Eþíópíu 1985, vel gert það. Samt er það þessi lína í laginu sem er að bögga mig.."well tonight thank God it´s them instead of you.." (Bono gargaði þetta ef ég man rétt). Gamla góða umhyggjan fyrir náunganum. "Fjandinn hafi það, það er eins gott að þau séu að lenda í þessari hungursneyð en ekki ég..". Þessi lína á bara alls ekki heima þarna. Ykkar pæling takk, og ekki væri verra ef þið kæmuð með tillögu af annarri setningu sem myndi leysa þessa af hólmi.
Band Lee
Smellti mér á Sportkaffi í gær að góna á leikinn með Mósanum. Að gömlum sið var pantaður börger og öl, við á besta stað og leikurinn að fara að bresta á og allt í lífsins stormandi lukku. Þá mætir á svæði Júlíus nokkur Þyngri. Akkúrat þegar hann er að tilla sér, þá koma börgerarnir okkar Mósa og það er eins og við manninn mælt, Þyngri ljómar allur upp og segir "nei nei nei, hægt að fá svona hér???". Nú hann pantar sér kollu og börger og spyr afrgreiðslupíuna hvað þetta taki langan tíma, "svona 10 mínútur" segir hún. "Ég verð nú bara að fá að taka nokkrar kartöflur hjá þér Kobbi, þangað til.." sagði hann þá og það var bara svo lítið mál, maður getur nú séð af einni og einni töflu fjandakornið. Jæja eftir svona 3-4 mínútur byrjar hann að snúa sér við reglulega og líta í átt að eldhúsinu, greinilega að skyma eftir sínum heittelskaða borgara. Bjórinn kemur og greinilegt að honum finnst það smá sárabót að geta dreypt aðeins á honum, en greinilegra var þó að leikurinn átti ekki athygli hans alla, heldur var það borgarinn sem var númer "en, to, tre". Nú það líður og bíður, rúmlega korter síðan pantað var og enginn borgari sjáanlegur og sá Þyngri farinn að snúa sér enn reglulegra að eldhúsinu (7-8 sek. fresti). Svo heyrist í honum "skohhh". Þá er afgreiðslupían á leiðinni með tvo diska, labbar að okkar borði og Júlíus setur sig í stellingar, en neeeiiii, hún labbar framhjá fjandinn.....þarna er Lee farinn að glotta við tönn. Hann horfir frekar vonsvikinn á eftir henni, en ekki er öll nótt úti henn, hún tekur þarna einhvern rúnt á milli borða en finnur ekki réttu aðilana og snýr við og nálgast borðið okkar aftur. Minn maður er þarna orðinn viss um að hún sé með hans borgar og nær athygli hennar, en hún hristir bara hausinn og finnur loks réttu kúnnana. "Fáðu þér bara fleiri franskar Júlli minn" segi ég með glettnistón og hann sér að mér er skemmt. Hann glottir yfir þessu öllu saman, við skálum bara og í þeirri andrá kemur börgerinn hans kæri...já börgerinn var kominn heim til sín, það var greinilegt. Góður drengur hann Þyngri.
Jæja við horfum á leikinn, þar sem mínir menn voru að leika helvíti fínan bolta og var sigurinn síst of stór. Við svo fögnum sigrinum undir lokinn með einni skál, enda allir miklir United menn, ég, Mósinn og Þyngri.
Svona í lokin, þá er sonur Júlíusar Þyngri, hann Júlíus yngri, kær frændi minn og venur á leiðinni til landsins á morgun eftir útlegð í Danmörku. Við erum svarnir drykkjufélagar þannig það þarf ekkert að tvínóna við það hvað verður gert á laugardaginn. Gutti minn, spáðu í því að það eru næstum 5 mánuðir síðan við drukkum saman síðast, tjah það hefur örugglega ekki gerst síðan, tjah síðan við hófum drykkjuferil okkar fjandenn hafi það...;o)
Lee
desember 11, 2002 ::: Ungfrú Gylfisteinn.com/Bond - úrslit
Jæja, þá eru komin úrslit í keppninni hans Gee um flottustu Bond-píuna. Eins og alþjóð veit, þá urðu mikil læti þegar Halle Berry var vikið úr keppni vegna svindla eins ákveðins aðila. Það þýðir ekki að gráta það, en úrslit keppninnar má finna hér.
Einnig var Gee með keppni um mesta smekkmanninn sem var ekki síður hörð og má sjá úrslit þeirrar keppni hér.
Nú þegar þið eruð búin að kíkja á úrslitin um smekkmanninn, þá hafið þið náttúrulega séð að undirritaður vann þá keppni, naumlega þó. Það er sannur heiður að hlotnast þessi verðlaun, skal sanna það um helgina að ég sé þeirra verður ;o)
Svo eru síðustu Móhíkanarnir á Bifröst (Gelfý, Ragtoin og Chandler) í prófum núna, baráttu- stuð og standpínukveðjur til þeirra.
Smekk Lí
Stöðumælafokkingverðir....ohhhh. Spurning hvort maður fari ekki bara að taka strætó í vinnuna. Var miði á bílnum áðan....fyrir hvað??? ha?? fyrir að leggja of nálægt vegamótum, en þar gildir víst 5 metra reglan......fafafafafjandeeeennnn. 2500 kall takk. Hvenær datt kerfið út þegar maður gat farið strax í bankann og borgað bara 500 kall eða eitthvað. Norður og niður með stöðumælaverði....og þessi 5 metra regla, tjah...FOKK OFFF.
Good morning my dear friends, this is captain Lee speaking. Já líður eitthvað svo útlenskt í dag, veit ekki hvað það er. Vikan hálfnuð og 13 dagar til jóla. Þessir dagar eiga eftir að vera pain in the ass, vinnulega og innkaupslega séð, en það sem bjargar þessu er það blessunarlega að skemmtilegir hlutir gerast líka. Gutti og familía er að koma heim frá Dansku á föstudaginn, þannig að það er 140% líklegt að maður fari á eitthvað gott tjútt á lau. djöfull nenni ég ekki að blogga núna....
desember 10, 2002 :::
Sumarblíða bara í Reykjavík City og ég er að fíla það, kannski helst til dimmt, en whaddafakk, finnst þetta í góðu lagi. Stefnt á bolta bara í kveld, testa nýtt gervigras við austurbæjarskóla...ohh draumaaðstæður, flóðljós og rigningarúði, eða töffararigning eins og við köllum það...fátt skemmtilegra en að spila í svoleiðis aðstæðum.
Ætla að taka jólaþrifin í vikunni. Þrífa eina einingu á dag í íbúðinni, hátt og lágt, byrja á eldhúsinu í dag og fægi það til dauða. Ætla bara að vera búinn að klára þrifin undir lok vikunnar, þannig ég þurfi bara rétt að dusta af á Þorláksmessu. Svo verður stefnt á að klára innkaup og annað slíkt í næstu viku og sleppa einu sinni við bévítans jólastressið....löngu kominn tími á það, jólastress er ekki að gera neinn skapaðan hlut fyrir mig. Eyddi jólunum 1996 í stórþorpinu Arundel (1500 íbúar eða eitthvað álíka) á Englandi, þar sem ég var að vinna á hóteli. Þá var bara unnið eins og geðsjúklingur til kl.18 á aðfangadag og svo bara tekin upp ginflaskan og gítarinn og skrallað öll jólin bara. Fínasta tilbreyting alveg. Ok þótt það jafnist ekkert á við aðfangadagskveldið sjálft hérna heima með familíunni, þá var maður allavega laus við jólafárið sem var mjög gott. Það þarf að setja einhverja reglu á jólin hérna heima, fólk hreinlega tapar sér í gleðinni... eða stressinu öllu heldur. Og Kringlan...men, nú er ég búinn að vera þarna sl. tvær helgar og býð hreinlega ekki í það að vera þarna daglega fram að aðfangadag, sjetturinn, þetta verður eins og illa skipulagt maurabú í Azerbadjan. En fokkit, þetta líður hjá.
Er búinn að vera Ný dönsk aðdáandi síðan 1989. Reynar hafði áhugi minn farið dvínandi með síðustu plötum, en hann sannarlega vaknaði aftur þegar ég hlustaði á nýju plötuna og svo sá ég tónleikana á laugardaginn, tjah, fékk bara gömlu góðu gæsahúðina af og til. Þetta er nýjar útsetningar á gömlum lögum alveg firnaflott og mæli ég með þessu fyrir þá sem hafa áhuga á gæðapoppi eins og það gerist best, ég ætla allavega að heimta þennan disk í jólagjöf eða í skóinn eða eitthvað, annars kaupi ég hann, það get ég vottað. Æ, best að fara að gera eitthvað.
Lee
desember 09, 2002 :::
Nú er ég í mánudagsmógi. Er gjörsamlega flatline-aður, það verður sko ekki ein aukatekin áreynsla á heilann í dag, það er á kristal. Það var helvíti gaman á laugardag, slátrað nokkrum Tuborg-jólabjórum, sem bæ ðe vei, er alveg hrikalega góður og svo var skellt sér á Nasa og var mun skemmtilegra núna en á fös. Var í för með VIP og Gonnah, svo hitti maður slatta af fólki þ.á.m. Tísku Gilla slatti af Bifrestingum sem voru að klára misserisverkefnin o.fl. Það var eitthvað í loftinu skal ég segja ykkur, allir í jollígúd fílíng, tzjellingar útum allt, keppandi um hver væri í þrengsta, flegnasta eða whatever dressinu...já það er gaman að þeim blessuðum, kæmi mér ekki á óvart að einhverjir melir þarna inni væru farnir að hólkast allir upp yfir þessum merum. Svo var kíkt aðeins á Astro og maður var að skvetta í sig eitthvað fram eftir.
Átti ekki að fara að sveinkast fyrr en kl.14 í gær, en neeeiiiii, var hringt í mig kl.11 þar sem einhver hafði klikkað og maður þurfti að rjúka út og taka eitt gigg, lítið um jólasvein þá, rónasveinn öllu heldur myndi ég segja. Svo var tekinn grimmur bolti eftir sveinkastússið, og þar er ég kominn heim kæru gestir, vann alla leikina, sem var kannski eins gott, því niðursveiflan var farin að setjast á sálina á mér fjandenn,,,,
Svo helltist allur pakkinn yfir, seinnipartinn í gær, nett skjálftavakt of læti. Tók rerunið á Temptation á þetta, tjahh, ótrúlegt alveg með þessar kellingar, gat nú ekki annað en glott við tönn yfir þessu núna, verð að mæla með að þið reynið að sjá þennan þátt þegar þær eru að ljúga uppí opið geðið á öllum heiminum.....segi bara eitt.....Van Girls.
Lee
desember 07, 2002 :::
Kveldið mínir kæru. Gerði eitt í gær sem held ég láti ógert á næstunni, það er að fara á skemmtistað því næst sem edrú. Ok, ekki misskilja mig ég hef gaman að því að skella mér á pöbb og taka eina tvær kollur og fara síðan heim, en að skella sér á dansstað, æ vitiði ég hreinlega veit það ekki. Maður var ekki að fitta alveg inní og ég fékk bigtæm kjána þegar ég horfði á sviðið á þessum blessaða dansstað og fólk að dansa af krafti, var nebblega í þeirra sporum síðustu helgi, í þvílíkum Jackson fílíng á sviðinu....ohhhh var ekki að meika það að sjá þessar aðstæður í skíru ljósi....haahhaha fjandennn...
Svo var grimmur sveinki á þetta í dag í Kringlunni. Helvítis límið sem notað er til að halda skegginu er svo leiðinlegt að ég er ekki að meika það. Það er ekki sérlega gott og skeggið fljótt að losna, en það er erfiðara en andskotinn að ná því af sér...ætla að prófa stálull á þetta á eftir fjandenn. Eins gott að maður komist ekki á séns í kveld, myndi límast við píuna bara, taka nettan síamstvíbura á þetta..."fólk aðskilið með vélsög á Nasa"...þetta er ekkert UHU lím, neeeiii, tonnatak takk fyrir það og góða ferð.
Man.Utd. á þvílíkri siglingu þessa dagana, L´pool tekið síðustu helgi og Gunners í dag, elska þessa stráka. Loksins er þetta farið að virka eitthvað og breiddin farin að segja til sín, en fyrir ykkur sem vitið ekki, þá vantaði ekki ómerkari menn en, Keane, Butt, Blanc, Ferdinand og meistara Becks svo einhverjir séu nefndir. Er að sjá þetta fara að smella af krafti.
Bara eitt jólagigg á morgun, klukkutími, er feginn því. Ætla að bragða á jólaölinu í kveld, Jóla-Tuborgin víst að gera það, er að kæla nokkur kvekendi sem geta farið með bænirnar....já galeiðan skal það vera í kveld.
Stuð og standpína.
Lee
desember 06, 2002 :::
Ég er sorrý, svekktur og sár. Það er búið að víkja Halle Berry úr Bondpíukeppninni hjá Gee. Fjandeeennnnn. Og það útaf svindlspekúlantinum Sessa Gerviauga. Sessi þú ert fantur og fúlmenni. Er farinn að sveinka þetta úr mér fjandakornið. Góða helgi mínir kæru...allir nema Secci.
Lee
Verð að koma inná eitt hérna sem ég hreinlega fékk gæsahúð yfir í gær, þá er ég að tala um verri gæsahúð en Kjána. Málið er að ég var að horfa á Temptation Island í gær og díllinn er sá að það var búið að nappa tvær stelpurnar inní herbergi með gaurum, í sitthvoru lagi. Ok, það var ekki komið að þeim í miðjum sprengingum, en önnur var uppí rúmi undir sæng með gaurnum, í fötunum reyndar, en hin náðist ekki uppí rúmi, heldur strunsaði hún út strax og kamerumaðurinn opnaði hurðina og gaurinn á eftir henni rennandi upp buxnaklaufinni. Kærastar þessarra stúlkna sáu myndir af þessum atburðum og spurðu þær í gegnum vídeó hvað væri eiginlega í gangi og þeir voru ekki par sáttir skiljanlega. Tjah svörin frá þessum píum voru ansi paþettik. Sú sem náðist uppí rúmi sagðist hafa verið veik og að gaurinn hafi komið uppí til að hlýja sér og styðja hana og að þessir gaurar sem væru þarna, væru til þess að veita þeim stuðning. HALLÓ....Augljóslega á vídeóteypinu er hún vel mökkuð, ekki með mikið veik þar greinilega og í öðru lagi þá er hún á eyju freistinganna. Það vita allir í heiminum að gaurarnir eru þarna til að reyna að komast á hana, en neeeeiiiii.... þeir eru þarna til að veita andlegan stuðning eða hvað í andskotanum það var sem hún sagði. Hin kom með voða fínt svar líka. Sagðist fundið einstaklega góðan vin og sálufélaga og einhvern fjandann og þau hafi farið inní herbergi því það voru svo mikil læti frami, til að tala betur saman. Svo segist hún hafa spurt hann hvað hann hafi verið að gera við buxnaklaufina....."hún var búin að vera biluð allan daginn og hann var alltaf búinn að vera að renna henni upp"....eruð þið að fokka í mér....halda kellingar virkilega að karlmenn séu svona miklir hálfvitar eða hvað??? OK ástin er blind og allt það, en fyrr má nú aldeilis fyrr fokking vera....görls sjó some ríspekt hérna. Hún veit kannski ekki þessi sama skjáta að það náðist af henni örstutt skot þegar hurðin var opnuð, þá sat hún á rúminu og stökk eitthvað til, tjah ekki var hún að ræða málin við kauða þá. Vitiði ég er farinn að halda að það sé eitthvað ríkjandi gen í sumum kvenmönnum sem hreinlega lætur þær segja eitthvað án þess að vita hvað þær eru að segja...veit að það eru nú einhverjir sammála mér um það...endilega að kommenta á það.
Annars var mér sýndur leikur í gær fyrir þá sem hafa ekkert að gera eða vilja gleyma sér um stund. Og ef þeir vilja taka heiladauða á þetta þá er um að gera að hafa sándið á.....hahahahah....þessi leikur var að gera það bigtæm fyrir mig í gær, spáið í því.
Daginn kæru vinir. Ætla að byrja þennan dag á því að hrósa einum manni, en það er Gee-Huzzl. Hann er búinn að hanna líka þessa ótrúlega kúl könnun um það hvaða Bond-pía sé flottust. Getið tékkað á þessu hér og vil ég eindregið hvetja ykkur til þess að taka þátt. Við erum búnir að elda grátt silfur saman um það hver sé flottust og munu úrslit þessarar könnunar látin ráða, þannig að spennan er gífurleg. Ég ætla ekkert að vera með áróður, en það eru nokkrar þarna sem standa uppúr, það get ég botnað.
desember 05, 2002 :::
Það er greinilegt að frægðarsól mín ætlar aldrei að dvína. Það var verið að spila lag eftir mig í útvarpinu í fyrradag, Fylkislagið eftir mig og Gutta. Þetta hljómaði víst um allan Árbæ líka, yfir bikarleik Fylkis og Vals. Var samið vorið 1999 þegar Fylkir komst upp í efstu deild í handboltanum og þótti tímamótaverk á sínum tíma....en vitiði, ég hreinlega veit það ekki, læt það alveg vera ;o). Spurning um að fara að rukka stefgjöld fjandinn hafi það.
Jæja, þá lenti Lee í tvífaraklíkunni ógurlegu á Tunglarasíðunni. Þetta bréf barst mér í kjölfarið:
það væri nú ekki ónýtt ef þú kobbi litli myndir bjóða upp á raunveruleika tíví eins og tvífari þinn í vesturheimi, ja ég myndi sko eyða kvalití tæm fyrir framan imbann fyrir slíkt, það er á tæru!!
Já þetta er pæling sem vert er að athuga. Allavega gaman að þessum tvíförum, sláandi líkir...eller hvad???, nú saknar maður lokkanna.
Var á msn áðan að tala við kunna kappa. Greinilegt er að öfund hefur gripið um sig meðal nokkurra manna vegna velgengni Þórhalls Þindarlausa eftir sigur hans í ljóðakeppninni. Hér verður birt samtalið, en aðalpersónur eru undirritaður, Gee, Þórhallur og svo Donnie Brasco. Gríp ég inní þar sem Gee getur ekki lengur setið á sér, varðandi tilfinningar sínar að hafa tapað ljóðakeppninni.
GEE says: og ég legg til að þú, Þórhallur, horfir þér nær, þú lifir ekki á þessari svindl-ljóðakeppni endalaust..... sá sem vinnur ungfrú bond.gylfisteinn.com er sá sem mun tróna
Þórhallur says: ha?
LEE says: gylfi minn
LEE says: svindl hvað
LEE says: ætlarðu að taka þetta til baka vinur
LEE says: áður en ég verð vondur
LEE says: TIL BAKA SEGI ÉG
GEE says: menn voru að keppast við að svindla á netinu, það vita allir
LEE says: gilli minn, þú veist alveg hvernig þessu var háttað 60-40
Þórhallur says: þessi ljóðakeppni var gífurlega hörð, mörg öflug skáld, framkvæmdin til fyrirmyndar, og stjórnandinn hélt vel utan um allt, og by the way, BESTA LJÓÐIÐ VANN!!!
LEE says: ertu tognaður í haus
GEE says: svo heyrði ég á götunni að verðlaunin hafi ekki verið afhent af Lee, heldur hafi hann þegið ókeypis munnmök í skaftahliðinni
LEE says: jæja
Þórhallur says: dóni geturðu verið!
Brasco says: ég hef heyrt það líka
LEE says: nú eruð þið að hlaupa á ykkur
GEE says: jájá besta ljóðið vann, ég er sammála því
Þórhallur says: þetta er nú fullmikið
GEE says: en það er netkosningin sem var skandall
Þórhallur says: gilli taktu þetta til baka
LEE says: hvað er að þér gee
GEE says: og minnti á skagamenn
GEE says: munnmök sagði ég
LEE says: þess vegna gilti hún ekki meira, því það var vitað að menn myndu reyna þetta,
Þórhallur says: kobbi ég tek ekki þátt í svona,
LEE says: taktu nú hausinn næstu útúr rassgatinu á þér áður en þú lætur eitthvað frá þér
GEE says: geri það ekki neitt
LEE says: nei hann er kannski best geymdur á bólakafi þar
GEE says: þið eru voða vandræðalegir með þetta
Þórhallur says: gee er sennilega bara sorry af því a) hann getur ekki rass í handbolta og /epa b) enginn les þessa aldöpru síðu hans og því tekur hann það út á þér sem ert með vinsæla skemmtilega síðu!!!
GEE says: munnmök sagði ég
GEE says: smá grín hérna.. vildi bara sjá hver myndi fatta.... ekki gerði Lee það!
Þórhallur says: nú svaraði hann þér ekki fullum hálsi,
LEE says: gilli er bara ungur, hann er bara kjáni hann gilli
Þórhallur says:þú ert nú meiri harmleikurinn
GEE says: hahahaahhahahhaha
GEE says: fjandennn hafi það
GEE says:slíðrum sverðin drengir og snúum bökum saman...
Þarna er greinilegt að Gee er búinn að sjá að sér, enda á hann við ofurefli að etja. En öfundin er svört, það er á tæru.
Ps. Brasco fær Óskarinn fyrir besta framistöðu í aukahlutverki, kemur mjög svo sterkur inn í þessum samræðum.
Þrjú jólalög í röð í útvarpinu þegar ég var á leiðinni í vinnuna, djæses, og rigning og rok. Ekkert í gangi sem minnir mig á jólin, nema kannski það að ég sé byrjaður að klæðast búningnum rauða af og til og reyna að skemmta börnunum. Ætlaði ekki nú að verða eldri sl. sunnudag. Var á vappi um Kringluna með gítarinn og Stekkjastaur bróður mínum. Vorum búnir að húrra saman krakkaskara og vorum í bullandi sveiflu að syngja Ég sá mömmu kyssa..., allir í svaka fílíng. Svo í miðju lagi, þá er ég eitthvað á innsoginu og viti menn, yfirvaraskeggið (sem er langt og virðulegt) sogast lengst oní kok á mér og ég skyndilega með fullan trant af ull, sem er komin langleiðina ofan í maga. Nú ég kúgast þarna eitthvað og hósta, en held þó áfram að spila, en svo var orðið erfitt að anda og ég eitthvað að reyna að mæma með og var farinn að sjá líf mitt í hnotskurn, hélt ég væri að syngja mitt síðasta í orðsins fyllstu, samt var ég í kastinu yfir því hvað þetta væri hrikalega fönný aðstaða. Náði allavega að klára lagið og náði þá loks að draga þessi tvö kíló af ull úr kokinu á mér, en þá var ég orðinn fjólublár í framan. "Sveinki lést í Kringlunni"
Annars hefur jólabarnið farið minnkandi í mér með árunum. Svo eftir að ég byrjaði í þessu sveinkastússi, þá er það nánast ekkert. Efast um að ég nenni að skreyta heima hjá mér fjandinn, en maður kaupir nú kannski nokkrar mandarínur til að geta boðið uppá.
St.Lee
desember 04, 2002 :::
Þótti rétt að láta ykkur vita af tvífarakeppninni á Tunlgarasíðunni, en fyrsti maðurinn þar er enginn annar en Þórhallur Þindarlausi, sigurvegari ljóðakeppninnar. Dæmi nú hver fyrir sig :o)
Daginn kæra fólk, blessuð blíðan úti fjandenn. Þeir sem hafa þekkt mig sl. 4 ár muna kannski eftir því að ég gsm-væddist 1998 með aldamótasímanum góða (fyrir þá sem ekki vita, þá var ég staddur í hádegisbjór á Kaffibrennsluni sumarið 1998, var búinn að fá mér nokkra og allt einu blasti fyrir mér Landssímahúsið og mér fannst bara ekkert sjálfsagðara en að tölta yfir og kaupa mér síma. En ekki nóg með það þá keypti ég Ericsson 888, dýrasta símann á svæðinu, 50 kall, með infrared og öllum pakkanum og skellti honum á Euro-rað til janúar 2000 og fékk hann þar með nafnið aldamótasíminn). Allavega, þá varð batteríið mjög fljótt alvega afburðarlélegt og var ég hreinlega alltaf batt low. Þessi sími týndist svo á Gauknum í mars 2001 við gríðarlegan söknuð ;o) og þá var farið og fjárfest í nokia 3310 sem átti að vera með svaðalegu batteríi. En það var sama sagan, hörmulegt batterí og batt low mjög svo reglulegt. Gee fékk nóg einn daginn á þessu batt low fári mínu og hefur kallað mig Batt Lee síðan mér til ómældra trafala í viðskiptalífinu. En viti menn, konur og börn...bíði dauða, án bjargar eigi enga von.....eigi enga voooon. Lee fékk nýtt batterí í fyrradag, sem á að vera eitthvað svakalegt, er búinn að hlaða hann í 24 tíma og bíð nú spenntur eftir að sjá hvað það endist, stefni á að hlaða hann næst á aðfangadag. Gee, nú getur þú, minn kæri vin, tekið batt Lee og SHUFFITUPYOURBOLLOX.
"hann Nói minn er dáinn Kobbi!! ánægður?" Þetta eru sms sem ég fékk í gær frá honum Viðari stórvini mínum. Já kæru gestir Nói kötturinn hans er dáinn, lést í bílslysi aðeins nokkurra mánaða gamall. Þrátt fyrir ungan aldur var hann búinn með 8 líf áður en hann lenti í slysinu hörmulega og var lögreglunni það hulin ráðgáta hvurnig svo ungur köttur gæti lifað svo hratt. Verið er að kanna sinnepslagerinn heima hjá Viðari núna. Samhryggist ykkur innilega Viddi minn og Helga, átti einu sinni páfagauk, hef ekki hugmynd um hvernig ykkur líður. Hægt er að lesa smá tribute til Nóa hér.
Að lokum vil ég benda ykkur á www.brekkan.net en það er síða sem Arnfinnur nokkur Teitur Ottesen óðalsbóndi og nokkrir ungir hugsjónamenn af Skaganum standa fyrir. Skemmtileg lesning þar.
desember 03, 2002 ::: Bond....hvaða Bond?....nú James
Góðan daginn kæru vinir. Lee skellti sér á Bond í gær með Mósanum. Var búinn að heyra að hún væri nú frekar léleg, þannig ég fór alveg chillaður á hana og bjóst svo sem ekki við miklu. En tjah, annað kom nú aldeilis á daginn. Ég skemmti mér alveg konunglega og Bondarinn var alveg í essinu sínu, held bara svei mér þá að þetta sé sú besta með Pierce Brosnan sem ég hef séð. Hún fær alveg hiklaust 3 Lee hjá mér.
Svo er náttúrulega helvítenni Halle Berry, djefull er þetta huggulegt kvekendi. Missti reyndar allt álit á henni eftir að hún tapaði sér á Óskarnum, en það er að koma smá til baka núna....úffff, hún er að gera það BIGFOKKINGTÆM. Held að James litli ætti bara að setjast í helgan stein fyrst hann er kominn með svona huggulega píu uppá arminn, hann er ekkert að fara að toppa þetta blessaður. Segi það og skrifa að þetta er langsamlega huggulegasta Bondpían ever, það er ekki flókið. Ef einhver ætlar að halda öðru fram, þá skal hann vinsamlegast krota það í "Þín pæling" og skilja eftir síma og heimilisfang og ég mun elta hann uppi.
Annars vorum við feðgar hæstánægðir með þessa bíóför okkar að við skelltum okkur á Ask og héldum uppá velgengni njósnarans knáa og fengum okkur svaka fína máltíð og meððí. Askur fær prik í kladdann líka.
En nú ætla ég að fara að skrá mig í njósnaraskóla hennar hátignar svo ég nái mér nú í tzjellingu eins og Halle Berry og setjist svo í helgan stein.
Dobble 0 Lee
desember 02, 2002 ::: Úrslit í ljóðakeppni veldur uppnámi!
Mér var að berast bréf frá einu skáldinu sem virðist ekki alveg vera sáttur við niðurstöðu keppninnar. Hér er bréfið í heild:
SKANDALL.....ömurlegri ljóðasamkeppni er nú lokið og ég er sár og svektur. Ég hélt að það væri meira í þig spunnið kæri LEE. Þú hefur núll vit á skáldskap...NELLLLL VEEEET...svo ekki sé meira sagt. Svo sem í lagi að ljóðið eftir SELINN vann netkostningu en að þú skyldir ekki geta séð sóma þinn í að lesa listasmíðinna í innihaldi(svo ekki sé minnst á listalega útfærslu Limru ljóðformsins) SVENNA PÖNKARA er SKANDALL BRAGI. Ég vil bara minna þig á að ég átti afmæli í gær og þér tókst gjörsamlega að eyðileggja daginn fyrir mér og fjölskyldu minni. Dóttir mín sem er 8.mánaða grét allan daginn vegna þessa....já hún grét.....og já hún er 8.mánaða LEE og hún er farinn að þekkja muninn á Ljóðlist og Pönnukökubakstri. Ljóðið sem sigraði er pönnukökubakstur og ekkert annað og þegar betur er að gáð þá er það líka stolið...beint upp úr 4 bálka Disney rímna og 3 erindis af Heims um ból....og hér er ég ekki að setja út á höfundinn persónulega....þetta er ekki honum að kenna því hann veit ekki betur....en þú átt að vita betur kæri LEE og bara svo að við höfum allt á hreinu þá ert ÞÚ Svenni Pönkari...þetta ljóð var samið um þig þarna UGLAN ÞÍN sem gólar í myrkrinu..........
.....Jæja það þýðir ekki að skæla meira yfir þessu DÖNN IS DÖNN.
Ég óska bara öllum lesendum síðunnar gleðilegra Jóla og Heims um ból....læt heyra í mér síðar.
kveðja,
Hjalti 4-ever (nýtt dulnefni)
Kæri Hjalti. Þú mátt ekki gleyma að bryðja smartísið á hverjum degi, þú veist hvað það fer í skapið á þér.
Kær kveðja,
Lee
Jæja þá er jólabisnessinn hafinn yet again, en fyrir ykkur sem ekki vitið, þá leikur Lee sveinka yfir hátíðarmánuðinn. Maður var sem sagt að sveinkast í gær og fyrradag í Kringlunni og gekk það bara nokkuð vel. Alla vega var fólk almennt mjög ánægt og mömmurnar alveg vitlausar í að kyssa jólasveininn, enda ekki skrítið, huggulegur sveinki sem maður er. Þessi jólgigg í Kringlunni í gær urðu til þess að ég missti af leiknum L´pool - United. 3ju fokkans jólin í röð sem ég missi af þessum leik útaf jólaharkinu, ekki alveg að meika það. En mikið gladdi það mig fjandenn að heyra úrslitin. Púlararnir sem voru byrjaðir að fagna í október meistaratitlinum eru þagnaðir, þetta á eftir að svíða fram á vor. Það er alltaf sama sagan með flesta Púlara, þeir byrja að fagna á haustinn, þegar þeim tekst að tróna í smá tíma, svo endar þetta alltaf með því að þeir fara að háskæla á vorin.... but basically, I don´t giva a fuck. Allavega til lukku United menn.
Tekið var nett tjútt á laugardag. Farið í dinner, Einn tveir og elda varíantinn tekinn á þetta og var það alveg le superb. Svo var kíkt á Hverfisbarinn, Nasa og Thorvaldsen svo eitthvað sé nefnt og tekin nokkur vel valin dansspor eins og "Kanínan" og "Drakúla" við tryllta hrifningu kvenþjóðarinnar ;o) En svo var ákveðið að koma sér heim áður en sólin færi á loft, svo að sveinki myndi ekki anga eins og Skipperinn. Ekkert tzjellingavesen á manni, enda maður löngu kominn með leið á þeim :-) eða þannig, ætli maður setji ekki bara inn kerlingahornið hérna inn og fari að deila með ykkur tarfasögum...hmmmmm.
Í tilefni jólaharksins, þá var ég í myndatöku í sl. viku og er byrjaður að birtast í blöðum landsmanna. Ætla að setja smá leik í gang varðandi það. Þeir/þær sem finna mig og þekkja á myndunum, geta klippt hana út og geymt. Þegar svo búið er að safna 3 myndum af Lee sem jólasveini, þá skal koma þeim til mín og það verða skemmtileg verðlaun í boði. En það er hægara sagt en gert að finna mig, þekkti mig varla sjálfur, en fyrsta birting var um helgina.
Nú er ljóðakeppninni lokið og gekk hún framar vonum. Í vikunni mun byrja ný keppni, spurningakeppni sem verður svaðaleg og sannarlega vert að taka þátt í. Það verður nánar auglýst síðar. Babararbabbabarara Babbararababbaraa have a nice day...
Lee
desember 01, 2002 ::: Úrslit í Ljóðasamkeppni Mr.Lee 2002
Gott kveld kæru síðugestir. Jæja nú er komið að því sem allir hafa beðið eftir, úrslit eru ljós í ljóðakeppninni. Netkosning stóð yfir í 3 daga og greinilegt að fólk var að leggja sig mismikið fram í kosningabaráttunni. Til að gera langa sögu stutta þá Sigraði ljóðið Þeir fiska sem róa eftir Hrannar Sel Gíslason í netkosningunni með 34% atkvæða. Ljóðið Hrund eftir Júlíus Hafstein varð í öðru sæti með 31% atkvæða. Jöfn í 3-4 sæti voru svo ljóðin Ljóð 1 eftir Arnfinn Teit Ottesen og Heilræðavísur Sjammón Lee eftir Þórhall Ágústsson. Þótt svo að Þeir fiska sem róa hafi sigrað netkosninguna verð ég að syrgja höfund þess með því að segja að ljóðið sigraði ekki keppnina. Eins og allir ættu að vita nú þá gilti kosningin einungis 40% af heildarkeppninni en mitt vægi 60%. Ég las vel og vandlega öll ljóðin og átti ekki í miklu basli með að velja sigurvegara, en verð þó að segja að öll ljóðin voru hreinlega til fyrirmyndar og eiga allir keppendur hrós skilið. Sigurvegari Ljóðasamkeppni Mr.Lee 2002 er ljóðið Heilræðavísur Sjammón Lee eftir Þórhall Þindarlausa. Það er hrein listasmíð og greinilegt að drengurinn er náðargjöf gæddur. Síðuhaldari fór nú í kveld til Þórhalls með verðlaunin sem voru ekki af verri endanum. En það var kampavínsflaska, tilboðskort á Sportkaffi með glæstum tilboðum og síðast en sannarlega ekki síst eiginhandaráritun frá Mr.Lee sjálfum. En verðlaunin eru þar með ekki upp talin. Því Þórhalli mun hlotnast stund með síðuhaldara innan skamms og kallast það "Quality time með Mr.Lee". Hér má sjá myndir frá verðlaunaafhendingu og einnig af Þórhalli við skrif sín.
Síðuhaldari átti nett spjall við Þórhall.
Lee: Til hamingju elsku venur, hvernig er þér nú innanbrjósts?
Þórhallur: Ég er stoltur hrærður, ákaflega upp með með mér, en fyrst og fremst hamingjusamur um að hafa náð gleðja nokkrar sálir.
Lee: Áttirðu von á þessum úrslitum?
Þórhallur: Nei alls ekki, þarna var fullt af færum yrkismönnum og skáldum. Þetta er nú einu sinni eins og í öllum keppnum, það þarf einhver að vinna, en við erum allir sigurvegarar
Lee: Hverju þakkarðu þennan áfanga?
Þórhallur: Það er erfitt að segja hvað það er sem hvetur skáldið áfram á hans erfiða vettvangi. En ætli maður verði ekki að þakka vefstjóranum fyrir þann vettvang sem hann hefur skapað fyrir ungskáld.
Lee: Er eitrthvað að lokum?
Þórhallur: Nei. Ég er ævinlega þakklátur gagnvart öllum keppinautum og er glaður maður í dag.
Ég vil óska Þórhalli innilega til hamingju með sigurinn, hann er vel að honum kominn. Einnig vil ég óska öllum keppendum til hamingju með frammistöðuna, hún var glæsileg. Þetta er sigur fyrir ljóð-listina í heild.
Lee