Svör við Pælingum!
Myndir
Afmæli Lee
Tarfagleði 2003
Hunangstunglið
Complex
Gee-Huzzl
VIP
Haglabyssan
Youngmen
Brekkan



Apríl 2004
Mars 2004
Febrúar 2004
Janúar 2004
Desember 2003
Nóvember 2003
Október 2003
September 2003
Ágúst 2003
Júlí 2003
Júní 2003
Mars 2003
Febrúar 2003
Janúar 2003
Desember 2002
Nóvember 2002
Október 2002



nóvember 29, 2002 :::
 
Jæja kæru gestir. Þá er netkosningu lokið. Ég mun nú fara vel yfir atkvæðin um helgina auk þess að gefa hverju ljóði svona u.þ.b. 30 mínútur af tíma mínum. Það er greinilega mikið verk að vinna. Einnig er greinilegt að menn hafi lagt sig misjafnlega fram í kosningabaráttunni, en tveir aðilar voru greinilega þar fremstir meðal jafningja. Ég læt þessu lokið að sinni, minni á að mitt vægi er 60% á móti 40% vægi netkosningar. Því þurfa höfundar ekki að fella tár, þótt svo þeir hafi ekki fengið nein atkvæði, þeir eiga ennþá séns á sigri. Úrslit koma inn á mánudag. Góða helgi.
Lee

::: posted by Lee at 19:29


 
Nú eru rúmir tveir tímar í að netkosningin verði tekin af. Baráttan er gríðarleg á milli Þeir fiska sem róa og Hrund. Ég vil þó minna á það kæru þáttakendur að netkosningin hefur einungis 40% vægi. Því gætu hæglega öll ljóðin enn sigrað.

::: posted by Lee at 16:59


 
Tjah það er kalt á toppnum, óhætt að segja það. Nú eru tvö önnur ljóð sem leiða keppnina, en það eru Hrund með 22% og Þeir fiska sem róa 20%. Annars allt útlit fyrir æsispennandi endasprett. Hafði samband við annað skáldið og spurði hann útí tölurnar. Hann svaraði orðrétt: "ég get ekki gert að því þó ég sé svona gott skáld,og þetta fylgi kemur mér hreinlega ekkert á óvart". Menn eru kokhraustir það er kristalklárt.


::: posted by Lee at 15:46


 
Það er gríðarleg spenna núna í netkosningunni. Það má segja að tvö ljóð séu að stinga af þessa stundina, en það eru Ljóð 1, sem er með 22% atkvæða, og svo Heilræðavísur Sjammón Lee með 18% atkvæða. Svo koma nokkur þarna í hnapp á eftir. Kosningin mun standa opin til ca. 19:30 í kveld. Ég veit til þess að menn séu með gríðarlegar kosningabaráttur í gangi og er það gott. Þó var eitt skáldið sem hafði við mig samband áðan og sagði við mig orðrétt: "þú verður ekki gott skáld bara á því að vera vinamargur", og er margt til í því. Ca. 5 tímar til stefnu, enn hægt að sópa saman helling af atkvæðum.
Lee


::: posted by Lee at 14:46


 
Buonas dias. Það er ljóst að keppnin verður æsispennandi. Veit ég til þess að menn/konur hafa farið í gang með grimmar kosningabaráttur sem greinilega eru að skila sínu. Vill minna á að netkosningin verður opin sennilegast til kl.19, en þá verður henni kippt út og atkvæði talin. Svo mun ég leggjast í ljóðalestur alla helgina. Úrslit verða tilkynnt á mánudag.
Lee

::: posted by Lee at 09:22



nóvember 28, 2002 :::
 
"Þú hefur alltaf verið dreamer!!!"
Jæja, þá er loksins komið að smá pælingu eftir ljóðafárið sem hefur gengið yfir. Allavega þá allt í einu í morgun rifjaðist upp fyrir mér setning sem Mósi (pabbi minn) sagði í ræðu sem hann hélt í stúdentsveislunni minni hér um árið. Nú þetta varð til þess að ég fór að velta fyrir mér lífinu og stöðunni í dag. Þetta var árið 1995, ég nýharðnaður stúdent svoleiðis pottaður á því að aldrei skildi stíga menntabrautina meir. Nú skildi sko aðeins lifa lífinu og svo finna sér alvöru vinnu, maður var jú kominn með stúdentspróf fjandakornið. Þá um haustið fór ég til Tékklands og dvaldi þar í 2-3 mánuði við leik og störf. Kom heim rétt fyrir jólin svoleiðis hokinn af stórborgarreynslu að það heila væri yes (hálfa væri no) (ohhhh get it....kjáni) ;o) Allavega ætlaði aldeilis að detta inní eitthvað súperdjobbið sem svo endaði með því að ég varð öryggisvörður hjá Securitas n.b. var númer 987. Þarna var allt á dulmáli og ef ég vildi fara inn í mat, þá var tekin upp talstöðin og sagt "987 í stjórnstöð, 987 í stjórnstöð, er X-7 í lagi?" og ég fékk svarað um hæl "X-7 í góðu lagi 987"...aaaaaahahahahah þetta drepur mig, ég í júníforminu með smellubindi, grátlegt að eiga ekki mynd af þessu. Allavega þetta var smá útúrdúr frá lífsleiðinni 1995-2002, en fannst rétt að deila þessu með ykkur. En í fljótu máli, þá fór ég haustið 1996 til Englands að vinna sem kokkur í 6-7 mánuði, kem heim fer að vinna hjá Orkuveitunni í 2 ár og byrja þá á Bifröst haustið 1999. Þarna inná milli eru milljón móment sem ég hreinlega skelli uppúr við tilhugsunina, t.d. þegar átti að meika það sem trúbadorar á Wunderbar ég og Gutti, en fengum starfslokasamning vegna óhófs, Fróðárferðir, þegar ákveðið var að sækja Nabba frænda til London fyrir alla trúbadorspeningana, nei nei, það var ekkert verið að sækja hann niðrá Hlemm eða Tjörn, bara skutlast til London. Svo var haldið menntaveginn að nýju, sveitin skyldi það vera, Bifröst. Leist ekkert á þetta fyrst, þekkti ekki kjaft, en það var fljótt að breytast. Þarna eignaðist ég góða vini og gekk í gegnum súrt og sætt....nei vitiði, eiginlega bara sætt. Það mesta súra var fokkoppið á BS-ritgerðinni í vor, tjah það var móment, en það fixaðist. Notaði þetta orð óspart "fixa" á sínum tíma. Mamma sagði ósjaldan, "það þýðir ekkert að segja alltaf bara fixa fixa...." en vitiði, einhvernvegin hefur mér nær alltaf tekist að fixa hlutina til. Næstu mál til að fixa eru fjármálin eftir skólagönguna. Námslánin eru reyndar ekkert svo há, en tjah yfirdrátturinn eða drættirnir öllu heldur eru í ágætlega vænni summu, en það verður fixað, er að vinna í því....hvernig?? ha?? með gulli mínir kæru. Í dag er ég bara vinnandi maður með ýmsar pælingar í gangi varðandi framtíðina.
Það sem kveikti allavega á þessari pælingu er setningin sem Mósi sagði fyrir rúmum 7 árum síðan og hún á sko ennþá við í dag skal ég segja ykkur, sem betur fer. Hún var svo: "Kobbi, þú hefur alltaf verið dreamer!!". Þessi setning kemur mér í gott skap. Pabbi, þú rúlar.
Lee

::: posted by Lee at 12:45


 
Júúúú sæl verið þið. Nú er netkosningin í fullum gangi og keppnin æsi spennandi.Þið getið séð hér til hliðar hvernig staðan er. Annars barst mér eitt ljóð eftir kl.16 í gær og skáldið sem sendi það verður bara að bíta í það súra jólaepli að fá ekki að vera með að þessu sinni. En það kemur keppni eftir þessa keppni, það get ég vottað. Allavega þá verður netkosningin opin í dag og á morgun og eitthvað yfir helgina og úrslit verða svo tilkynnt hér á mánudag. Líf og fjer.
Lee

::: posted by Lee at 10:00



nóvember 27, 2002 :::
 
Jæja, fresturinn rann út fyrir hálftíma. 16 ljóð bárust inn, 15 hlutu náð fyrir síðuhaldara, eitt þótti of gróft. Ég vil þakka ykkur kæru vinir fyrir frábæra þáttöku og minna ykkur á að netkosningin er hafin. Hún mun standa opin í 2-3 daga og úrslit tilkynnt eftir helgi. Öll ljóðin má finna hér á síðunni. Það er greinilegt að ég hef verk að vinna.
Lee

::: posted by Lee at 16:36


 
Klukkutími til stefnu, nú fer hver að verða síðastur.

Mellan
var á rölti í bænum,
sá mellu ganga fyrir hornið.
Hljóp til í einum grænum,
en hún var feet fjandakornið!

(Höfundur: Mella)


Andinn
sit og hugsa - hvar er andinn
já ég sagði andinn fjandinn
ætt'að éta það sem frýs úti
þorparinn hann Skúti
(Höfundur: Mella)

::: posted by Lee at 15:10


 
Daginn mínir kæru. Nú glöggir sem þið eruð, þá hafið þið tekið eftir því að lítið hefur verið um pælingar bæði frá mér og utanaðkomandi uppá síðkastið. Það er vegna þess að ég hef eytt dágóðum tíma í að spekúlera og spá í ljóðunum sem hafa borist í keppnina og því sitja pælingar á hakanum þessa dagana. Einnig hef ég verið að undirbúa netkosninguna um besta ljóðið og mun hún koma inn á milli kl.16 og 17 í dag, en eins og þið vitið þá stóð til að sú kosning myndi vega 50% á móti mínu vægi. Ég veit að það eru þónokkrir sem hugsa sér gott til glóðarinnar og ætla sér að "nauðga" kosningunni, með því að kjósa sjálfan sig trekk í trekk, en sérfræðingar eru að vinna í því að svo verði ekki hægt. Auðvitað eru einhverjir sem kunna að hakka svona, en við sjáum hvað setur. Því mun ég hafa varann á, netkosningin mun því hafa 40% vægi á móti 60% hjá mér og er það gert til þess að fyrirbyggja að kosningasvindl geti haft áhrif á sigurvegara þessarar keppni.

Að lokum vil ég minna á, að það eru rétt rúmir 6 tímar í deadline. 13 ljóð eru komin og hvet ég alla til að senda inn nú á síðustu stundunum. Gúd lökk.
Lee

::: posted by Lee at 09:55



nóvember 26, 2002 :::
 
Engin lát eru á ljóðunum, 21 tími til stefnu.

HRUND
Eigi heiti ég Hrund,
því það er kona
......ég snýst

Inn og út,hver fer,
hljótt í myrkri
....bara ekki Hrund

Fallegt er konuhjarta,
eins og Bíbí út í móa.
Hvar er Hrund?

Ég kíki við,
...........oj
Hvar er Hrund?
Hún er dauð!

(Morpheus)






::: posted by Lee at 19:22


 
Tjah, það er ekki lítið sem menn leggja á sig, ég á barasta ekki til eitt einasta aukatekið orð.

Heilræðavísur Sjammmón Lee

Eftir sveitanna ævintýrið
Þú ákvaðst að beisla dýrið
Til bæjarins hélst
En fyrir bakkusi féllst
Og ölvaður settist við stýrið

Þú telur þig vera lens
Og að jafnvel sért kominn á séns
En þá gamanið kárnar
Allar pekurnar fárnar
Eftir áfengi og ofaukið glens

Já raunirnar flæð´a upp úr brunni
Og streym´a inn að Sporðagrunni
Þetta gengur ei lengur
Þú fávísi drengur
Það er enginn sem að þér unni

Nema mamma í venesúela
Með dýrið, sem þú kallar þann dela
Að stífla með kænsku
Og læra smá spænsku
Og varast að allt fari að beeela

Þó gítarsins seiðmjúku sálmar
Dragi ófáar stúlkur á tálma
Engin fylling í því
Já allt glamr fyrir bí
Þú minnir á kött sem að mjálmar

Þú aumi vesæli drengur
Ég veit þetta gengur ei lengur
taktu þig tak
hnýttu þitt bak
og betur ég lofa, þér gengur

Þú verður að bæta þitt bú
Og auk þess að hafa á því trú
Að hagirnir batni
Og sáðlátið sjatni
Þá heyrir þú beib æ lov jú.

Þú þarft bara lengur að beeeða
Þá óðara færðu að reeeða
Og hafð´u á því trú
Engan von-eití-tú (Turk 182)
Þá betur þér fer á leeeða




Nú kannarðu nýjar lendur
Nú gullið skal streyma um hendur
Þú verður moldríkur
Þó frá staðreynd ei víkur
ert glópur við stúlknastrendur

Já hagnaður, gróði og full
Hendi af karata gull(i)
Veitir seðil í hönd
Já þér hald´a engin bönd
Ekkert hálfkák né aumingjans sull

En sú ástæða breytir ei því
Að þú verður að taka þér frí
Frá vitlausum mönnum
Með ónýtum tönnum
Hér skil verða gerð á því:

Hjá Tunglurum fékk skjótan frama
Hann snérist frá Hamarsins drama
Hann sést þar ei lengur
Sá ágæti drengur
Og okkur bar´a er ekki sama

Já misjafna vini þú velur
t.d. einn sem að mannorði stelur
þó það rími við lee
skaltu losna við gee
þá hlutskipti betri þú velur

Þú betra átt skilið en svo
að kúldrast með Tunglinu og co.
já og tískunni bleiku
með sálina veiku
nú af þeim þú þarft þér að þvo

Horf´ð á eigin upprunarætur
Í Hamar og Hvassaleitisnætur
Þú ert okkar fólk
Við þín brjóstamjólk
Og haft getum á þér gætur





Því er neyðin er stærst þá er hjálpin næst
Og þegar hjálpin hvað stærst upp í hendurnar fæst
Þá átt fjölskyldu ei smáa
né vinina fáa
Sem raunirnar burt geta hvæst

Nei gleymd´u ei þeim frændgarði góða
Sem er uppspretta fjölmargra ljóða
Íslands eina von
Kobbi Mósason
Okkar stolt meðal erlendra þjóða

lifðu í lífsins stormandi lukku
Ekki týnast í neftóbakskrukku
Þó þú missir þín hár
Skaltu lif´a í mörg ár
Laus við ellinnar hrukku.

(Höf. Bragi)


::: posted by Lee at 16:32


 
Jæja kæru netverjar, nú hef ég gert það upp við mig, að ljóðið sem var umtalað hér í morgun, hlýtur ekki náð fyrir augum mínum og mun þ.a.l. ekki birtast hér á síðunni, né öðlast þáttökurétt í keppninni. Þetta er alls ekki flókið, ég verð að halda mig innan vissra siðsemismarka. Ég vil hins vegar benda skáldinu á það að enn er rétt rúmur sólarhringur í deadline og því ekkert því til fyrirstöðu að hann sendi inn annað ljóð, hafi hann áhuga á því.
Lee hefur talað.

::: posted by Lee at 14:29


 
Enn bætist við flóruna, allt að gerast.

Birtir til
Logn á undan stormi,
gereyðing í nánd,
hún skellur yfir,
......þögn.

Vonleysið er algjört
enginn getur meir
.....skammdegi,

en ekki hengja haus!!

Því handan hæstu hæða
og bakvið hin dimmu ský,
er dagur...
sem kemur á ný.

(Sergei)



::: posted by Lee at 14:05


 
Nú eru rétt rúmir 27 tímar í deadline í keppninni, ljóðin farin að telja tuginn að ég held og stefnir hraðbyr í annan tug. Hér er eitt nýtt.

5. sek.
Rigningin lemur gluggann
Lon og don
Hann er orðinn leiður á þessu
Sífellt laminn í klessu
Því vild´ann væri á Havana
Þar eigir hann einhverja von

(Gabríel)


::: posted by Lee at 12:56


 
Hér er svo annað sem mér var að berast. Nokkur dónaleg orð þar, en sennilegast ekki hálfdrættingur á við fyrrnefnt ljóð. Þannig þetta er kannski prófsteinn á það, hvað fólk telur innan marka og hvað ekki. Endilega kommenta.

"laugardagskveld"
Með Vísa í vasa
ég valsa niðrá Nasa
gleypi í mig Gin
mér er sama um öll hin

nú dúndrast ég í dólginn
með delann minn bólginn
konur eru merar
beztar allsberar

bakkus nær nú taki
ég dansað get á þaki
ohh þetter svo gott
nú langar mig í tott

fa fa fa fa fjandinn
fjárans vínandinn
hann gengur af mér dauðum
ég gæti riðið sauðum

svo synjaði posinn kortinu
nú ligg ég hér í portinu
yfir belginn búnað æla
hvað var ég að pæla

síminn er ded
ég kemst ekki fet
get æluna af mér skafið
og hent mér svo í hafið

(VIP)

::: posted by Lee at 09:31


 
Góðan daginn kæru vener. Tjah nú er síðuhaldari í smá bobba. Honum var að berast ljóð, sem er nokkuð í dónalegri kantinum. Þar sem ég hef verið að reyna að fá sponsor á síðuna get ég hreinlega ekki sett ljóðið inn.... strax, að minnsta kosti, þar sem það hæglega getur sært blygðunarkennd almúgans. Því mun ég leggja höfuðið í bleyti í dag. Samt er nú málið það, að þessi síða hýsir hugsjónir sjálfs míns og þar sem ég held þessa ljóðakeppni, þá er mér í raun skylt að birta öll þau ljóð sem mér berast....en samt sem áður þá verða mörkin að verða dregin einhversstaðar. Endilega setjið í "Ykkar pælingu" komment ef þið hafið einhver.

::: posted by Lee at 09:25



nóvember 25, 2002 :::
 
Þetta verður hreinlega æsilegasta ljóðakeppni í manna minnum.

Söknuður
Kæru bræður og systur
ég er orðin dáldið þyrstur
Hef ekki snert bokku lengi
og hitt hressa drengi

Nú auglýsi ég eftir partei
Eitthvað sniðugt jibbíjei
Þar skal ég galdur sýna
Þegar ég klára bokku mína

En nú er Jutinn sár
er hann ritar þetta pár
Því í heilan mánuð meira
bokkuna fær ei að dreira

Hann er dapur veruleikinn
þegar maður er illa leikinn
og asnast til að gleyma
að maður á ekki að láta sig dreyma

Prófin ganga fyrir
og bokkan hún er fyrir
Gleði, stuð og fjér
Hentar ekki mér

En allt tekur á enda
Ég á við prófin - þennan fjenda
Og þá tekur gleðin við á ný
Og enn og aftur jíibbbíííí

Ég skal þá segja ykkur bræður og systur
þá verð ég ekki lengur þyrstur
Gleði, fjér og grín
og ég mun drekka eins og svín

Við skulum þó muna eitt
sama hvað við verðum þreytt
að yfir bokkunni verður ekki dottað
ÞAÐ GET ÉG VOTTAÐ!!!

(JutROSE®)


::: posted by Lee at 16:17


 
Enn eru að berast ljóð og fagna ég því. Barst smá bréf með þessu ljóði sem ég lælt fylgja.

Kæri hákarl!

Ég samdi limru(ljóðform) í gær en á í erfiðleikum með að finna út um hvað það fjallar, held að ég hafi farið ansi djúpt oní ræturnar því að ég féll eiginlega í trans þegar ég skrifaði það. Kannski þú getir hjálpað mér.

kær kveðja,

Hjalti (dulnefni)


Svenni Pönkari
Hann Svenni hann er pönkari
hann var fæddur til að gefa okkur
smá
af sinni
sál.



::: posted by Lee at 14:51


 
Hrósið
Hrósið í dag fá Sálin og Sinfó. Fór á laugardaginn, tjah, þetta var hreint út sagt magnað. Þetta byrjaði á að sinfónían tók nett sessjón í háftíma-þrjúkorter, sem var hið besta mál og róaði mann aðeins niður því eins og gefur að skilja þá var nokkur spenningur í loftinu. Síðan stigu Sálverjar á svið og þá ætlaði allt um koll að keyra. 9 glæný lög voru frumflutt auk tveggja gamalla og óhætt er að segja að þau hafi öll hitt í mark. Glæstar melódíur þar á ferðinni og útsetningar til fyrirmyndar. Þeir klikka ekki þessir drengir. Bíð spenntur eftir að þetta verði gefið út.

Annars var síðan farið til Gee í innflutnings/afmælispartæ og var þar mikið fjer. Svo tók Nasa við og þar var tjúttað eitthvað frameftir. Fór reyndar jakka-, síma- og lyklalaus heim, þar sem ég týndi fatahengismiðanum og reyndist ómögulegt að finna jakkann þarna í mannmergðinni. En það er búið að kippa því í lag núna.

Sem sagt klassahelgi, nú mánudagur til mæðu. Frekar ryðgaður, en whaddafakk, þetta var vel þess virði.

::: posted by Lee at 12:43


 
Enn berast mér ljóð. Vill minna áhugasama á það að skilafrestur í keppnina er á miðvikudaginn, deadline kl.16.

Þankagangur!
Þankagangur við gluggan
sit og hugsa,
hvar er síðasta tuggan
til að troða vörina í.

Þankagangur við gluggan
sit og hugsa,
hvert stefnir duggan
kannski óöldina í.

þankagangur við gluggan
sit og hugsa,
hvað gerði ég við moggan
er hann tunnunni í.

Þankagangur við gluggan
sit og hugsa,
best að drífa sig.

(Höf. Óþekktur!!)


Logn í austri
Landið rís og rís..
..fjöllinn hækka og hækka..
..Hlynsi Motta kaupir ís..
..og Secci heldur áfram að stækka.."

(Nína túkall)





::: posted by Lee at 12:27



nóvember 22, 2002 :::
 
Tjah, átti samtal við einn aðdáenda síðunnar, sem var að velta fyrir sér að taka þátt í ljóðakeppninni. Ég ætla að birta brot úr þessu samtali hér, en vegna alvarleika málsins hef ég ákveðið að nafnbirta ekki einstaklinginn sem ég var að tala við. Þess í stað skulum við kalla hann Berg. Grípum við nú inní mitt samtal:

Bergur: "en hverju ertu að fiska eftir (í ljóðinu), ádeilu, hugsunum, upplifun?

Lee: "ef ég segði þér það Bergur minn, þá væri ég að gefa þér forskot á hina......skamm"

Bergur: "ha, ég er bara að reyna að undirbúa mig eftir fremsta megni"

Bergur: "auk þess geturðu fengið helminginn á móti mér ef þú leyfir mér að vinna!"

Þar hafið þið það lesendur góðir, menn grípa til allskyns örþrifaráða til þess að vinna ljóðakeppnina, enda skiljanlegt, gríðarlegur heiður í boði ásamt glæstum verðlaunum. Já þetta er harður heimur. En engar áhyggjur, ég mun ekki glepjast. En þrátt fyrir að bergur hafi hlaupið á sig þarna, þá vona ég að hann standi enn við það að senda inn ljóð í keppnina.
Lee


::: posted by Lee at 14:09


 
Úúújeee, föstudagur og gott veður. Elska föstudaga með góðu veðri, "allt er svo auðvelt, allt er svo einfalt" eins og skáldið sagði. Stefnir allt í fína helgi. Ætla að borða með karli föður mínum í kveld og líklegt að við rennum niður nokkrum dropum af léttu (Gee ef þú ætlar eitthvað að fara að rífa kjaft yfir því, af því ég sagði um daginn að ég ætlaði að kötta á léttvínið, þá bara skipp itt, er búinn að viðurkenna það að ég hljóp á mig í yfirlýsingunum og ekki orð um það meir). Ætli maður taki svo ekki netta vettvangskönnun á skemmtistöðunum í kveld fyrir morgundaginn, en þá verður fjer. Sálin og Sinfó á þetta. Ætla sem sagt að tjóðra mig niður í Háskólabíó með 1000 öðrum sálum, 1001 náttúrulega. Svo er plan að fara í innflutnings/afmælispartæ hjá Gee, þ.e.a.s ef allt gengur eftir og svo skrölt á Nasa væntanlega og tjúttað... já ég ætla að tjútta.
Lee

::: posted by Lee at 11:28



nóvember 21, 2002 :::
 
Skilafrestur í ljóðasamkeppni
Skilafrestur í ljóðasamkeppnina hefur verið ákveðinn. Það er miðvikudagurinn næsti, tuttuguastiogeitthvað nóvember. Úrslit verða kunngerð örfáum dögum eftir það. Ekki er enn komið á hreint hver verðlaunin verða, en líklegt er að það tengist einvherju í fljótandi formi og jafnvel "quality time" með Mr.Lee. Það kemur í ljós síðar. Að sjálfsögðu fær svo sigurvegarinn birta mynd af sér, hér á síðunni, ásamt síðuhaldara. Gangi ykkur vel kæru vinir, það er til mikils að vinna.
Lee

::: posted by Lee at 14:20



nóvember 20, 2002 :::
 
Hrós vikunnar
Hrós vikunnar fær veitingastaðurinn Heitt & Kalt, Grensásvegi, þar sem Pizzahúsið var áður. Fór þar í gærkveldi og gerði það alveg stormandi lukku. Þetta er ekki kannski sá allra fansýasti staðurinn, en þarna er þægilegt að vera og gott og ódýrt að borða. Þarna er dýrindis súpuhlaðborð, með milljón tegundum af brauði og pestó og 6-7 tegundir af súpum á aðeins 890.kr. Mjög veglegur saladbar á sama prís. Svo geturðu tekið þetta hvorutveggja og kjöt og fiskhlaðborðið líka á einungis 1390 krónur, tjah það er díll að mínu skapi. Þarna var til að mynda í gær ýsa, lax, snitsel, núðlur, hamborgarhryggur ofl. ofl. Algjör klassi gef þessu alveg hiklaust 3 stjörnur af 5 mögulegum í það minnsta.
Lee

::: posted by Lee at 15:56


 
Það svoleiðis húrrast inn ljóðin, hér koma næstu tvö. Gaman að sjá hvað þetta eru glæsileg ljóð allt saman og fjölbreytt.

Þeir fiska sem róa

Það eru góð laun í boði
gull gull gull
hvað er í boði
gull gull gull

hvað er í boði
er það ást
er það ást
nei það er soðningur

ástin er fiskur
fiskur sem rær

(Skítafýlan)


Þú

Ég sem að sigldi yfir hafið
skoðaði marglita fiska
sem að minntu mig á sólina

Ég sem að flaug í gegnum skýin
mætti framandi fuglum
sem að buðu góðan daginn

Ég sem að gekk yfir hæðir
en ég sá ekki hvaðan ég kom
né hvert ég stefndi

Ég sem að fór hvergi,
þú hvíslaðir
og hjarta mitt sló hraðar
þú

(Miro)


::: posted by Lee at 14:33


 
Hólý shift. Ég er nú Jackson maður og hef alla tíð verið. Þegar ég hugsa til kynþroskaáranna þá er þrennt sem kemur mér fyrst í hug. Fyrsta punghárið, fyrsti sleikurinn og Jackson. Já hann hafði áhrif á mig kóninn sá. Ég hef staðið með honum í gegnum súrt og sætt, en verð bara að viðurkenna núna að hann er ekki með fulle fem. Hann hefur alltaf þvertekið fyrir lungan af þessum lítaaðgerðum á sér og nebbanum sínum. Tjah teikalúketðis. Greyið kallinn, það er að detta af honum nefið. Og ekki bara nefið og nú vitna ég í Begga heimsfræga. "ég meina lítiði á manninn, sjáið hvernig hann er"...hann er alveg farinn blessaður, en samt minn maður. Ætla að taka nokkur spor á helginni í virðingu við þennan mann, ætla að dansa til styrktar honum á Nasa á laugardaginn, öllum frjálst að leggja fram fjárframlög....ég meina... Sjammmmóón Lee, þetta er það minnsta sem maður getur gert.

::: posted by Lee at 12:28


 
Ljóðasamkeppni Mr.Lee að gera góða hluti
Það er greinilegt að ljóðasamkeppnin er að gera rífandi lukku. Strax samdægurs bárust mér tvö ljóð og hvet ég ykkur kæru vinir að leysa úr læðingi sköpunargáfu ykkar á ljóð-vellinum. Vill líka minna ykkur á að skíra ljóðin ykkar. Þeir einstaklingar sem eru nú þegar búnir að senda inn ljóð sem eru nafnlaus, geta sent mér nafnið og ég kem því inn. Þangað til númera ég bara ljóðin.

Hér eru allavegana fyrstu tvö sem bárust.

Ljóð 1
Hví er ég kveldinu að týna
Er minni mitt að minnka
Hvar er stúlkan, hvar er Stína
Eða skylldún kallast skinka.

Læri lögð að fótum mé
Lítil eru þau ekki
Það vildi að ég vær’ekki hér
Að bíða þessa hnekki

Að villast gata á milli
er góðra drengja hagur,
því kvenpeningsins hylli
nýtur sá sem þykir fagur
og nýtt er sú hola
sem fáar konur þola.

(Nesetto)


Ljóð 2
Regnboginn er rennubraut.
Það var sólin sem kjaftaði frá,
hún var seinna meir handtekin

Og rigningin brosti og flaug
því hún er orustuþota.
Og blessuð sólin sem elskaði allt
var bara handtekin í gær.
Ég er gagntekinn af þér

(Ylur)







::: posted by Lee at 09:43



nóvember 19, 2002 :::
 
Ljóðasamkeppni
Jæja, nú fer keppni í gang, ljóðasamkeppni. Reglurnar eru einfaldar. Þið sendið mér frumsamið ljóð ásamt eigin nafni og dulnefni. Ég mun svo birta ljóðið ásamt dulnefninu svo lesendur geti velt því fyrir sér. Síðan þegar allavega 6 ljóð hafa borist mér, þá fara fram kosningar hér á vefnum og þið getið kosið sigurvegarann. Reyndar mun netkosningin vega 50% á móti mínum pælingum varðandi ljóðið. Verðlaunin verða ekki af verri endanum, en þau verða auglýst síðar. Gangi ykkur vel.
Lee

::: posted by Lee at 16:16


 
Ljóð vikunnar
Hér eftir verður birt ljóð einu sinni í viku eftir sjálfan mig og jafnvel aðra líka. Ætla að skella inn ljóðalink... djefulsins linkaflóra verður þetta.

Ríkisbubbinn
Rigning í Skuggasundinu,
fullt af einmanna fólki,
sem líkist helst pappakössum,
ég hlæ..

Rigning í Skuggasundinu,
fullt af einmanna fólki + 1
já plús ég,
ég græt....

Hví????
Því ég er ríkisbubbi...
(Lee)




::: posted by Lee at 16:00


 
Sælir mr.Lee,
þannig er mál með vexti að ég næ ekki taki á ítölsku, því merkilegt sem það er þá tala ég reiprennandi spænsku en ekki stakt orð í ítölsku. Vonandi getur þú frætt mig um þessa meinloku sem ég hef fyrir ítölsku máli.

Kveðja,
Haukur Þorsteinsson
Viðskiptafræðingur


Sæll minn kæri Haukur og þakka þér skemmtilega pælingu. Nú ég sem lingua experta geri mér ekki alveg grein fyrir þeirri meinloku sem fólk á gagnvart erlendum tungumálum á tíðum, þar sem flest öll tungumál liggja nokkuð vel fyrir mér og er ég altalandi á 7 og mellufær á svona 25-30. En ég var staddur á Ítalíu fyrir rúmu ári síðan að lappa uppá ítölskuna mína, sem þó var næstum hnökralaus, en það sem hjálpaði mér hvað mest var að kafa ofan í menningu Ítala. Þarna var ég á slóðum Cesars og Maximusar og fleirri mætra manna og öðlaðist hið ítalska eðli. Ég mæli með að þú skellir þér til Rómaborgar við tækifæri og þá eru þín vandamál leyst. Ef ekki, þá er það bara Ítalska 101 sem fæst í næstu Eymundson.
Ciao bello,
Lee




::: posted by Lee at 13:13



nóvember 18, 2002 :::
 
Kveldið kæru netjar. Jæja það voru engin loforð gefin fyrir þessa helgi, enda hættur þeirri vitleysu. Það var nú samt ekkert á stefnuskránni, stefndi allt í chill bara. En svo þegar maður kom úr vinnunni á laugardeginum þá fannst manni maður eiga svo skilið eitthvað að gera eitthvað af sér, þannig það var fengið sér aðeins. Gee kíkti á mig og svo var haldið á Nasa. Tjah hafði ekki komið þangað eftir breytingar og þetta er alveg að virka núna,.. það var bara helvíti gaman þarna og fullt af pæks. Svo þurfti maður nú líka að kíkja á VIP en hann var að byrja að rúla á efri hæðinni og var að gera góða hluti. Sem sagt Nasa að gera stormandi lukku og ekki kemur mér á óvart að maður kíki þangað næstu helgi. Og bæ ðe wei, meðan ég man, kellingar eru kreisí. Annars var bolti í gær og ég tapaði öllum mínum leikjum aðra vikuna í röð....fjandahelvítiskornið, er ekki að meika það. Þarf greinilega að fara líta aðeins í eigin barm varðandi minn leikstíl. Er í vinnunni núna.. að missa af survivor, jæja fokkit, næ ríröninu á morgun, sest þá niður í rólegheitum, geri mér góðan dag með mysu og blóðmör með sinnepi. Nokkrar pælingar sem bíða svara, reyni að húrra þeim inn í kveld eða á morgun. Reyndar ein kannski frekar dónó, en samt líffræðileg pæling sem vert er að spá í....við sjáum hvað setur, hvort hún hlýtur náð fyrir augum nefndarinnar.
Rock on mínir kæru....
Lee

::: posted by Lee at 19:33



nóvember 14, 2002 :::
 
Það er nú ekki flóknara en það að ég er búinn að fá tilboð um deit takk fyrir. Tjah og það sem meira er að það er frá kalrlkynsaðdáanda síðunnar. Þetta er reyndar frá góðum vini mínum sem er grasekkill þessa dagana og því ekkert óeðlilegt við það að hann skuli bjóða Lee á deit. Já við getum bara kallað það deit næst þegar við fáum okkur kollu, sem sagt fyrsta cyber-deitið mitt að verða að veruleika, takk fyrir það og góða ferð.

Annars fékk ég líka spurningu í gegnum deit-linkinn frá kvenkynsaðdáanda síðunnar, þannig að þessi linkur er greinilega eitthvað að kveikja.... allavega var spurningin svona.

Eru Jakob V. Hafstein og Mr.Lee sami maðurinn??

Þjóðsagan segir að ég og þessi Jakob séum ekki einn og sami maðurinn, heldur tvíburabræður sem nærumst á hvor öðrum. Ég vill ekkert orðlengja það meira, en eitt get ég sagt þér að við erum mjög nánir og vinnum vel saman.
Lee...a living legend.

::: posted by Lee at 23:27


 
Tjah nú er deit linkurinn búinn að vera opinn í bráðum 2 daga og ekkert deit hefur mér borist ennþá. Gef þessum link smá breik, svo fer miðlunarþjónustan á fullt í gang. En hugmyndinni á bakvið hana verður flaggað síðar. Annars lítið um pælingar hjá mér, bara búinn að svara utanaðkomandi pælingum í dag, 3 stykki takk fyrir, svo var einhver að segja að ég væri ekki duglegur að uppfæra...Þið sem sögðuð það....SHUFFIT UP YOUR BOLLOCKS...
Lee

::: posted by Lee at 15:32


 
Enn kemur utanaðkomandi pæling.

Sæll litli pungur.

Ég hef eina netta pælingu fyrir þig. Um er að ræða vandamál sem frændi minn á við að stríða en það lýsir sér í of bráðu sáðláti. Nú veit ég fyrir víst að þú ert jú kvennamaður mikill og hefur eflaust þurft að glíma við þennan vanda og e.t.v. sigrast á honum !?!?.

Pælingin mín er því eftirfarandi:

Hvað veldur of bráðu sáðláti og hvernig er hægt að koma í veg fyrir það (fyrir utan það að klípa fast í rass sem reyndar er mjög áhrifaríkt trikk) ??

Ragtoin


Sæll minn kæri ven og þakka þér fyrir skemmtilega og bráðnauðsynlega pælingu. Ég vil nú byrja á því að einhversstaðar heyrði ég að þegar menn væru að spyrja um eitthvað fyrir frændur sína eða vini, þá oftar en ekki eru þeir að tala um sjálfa sig, en það skiptir víst ekki máli hér. Of brátt sáðlát er merkilegt fyrirbæri og gerist eingöngu þegar tveir einstaklingar takast á í kynferðislegri glímu. Allavega veit ég ekki til þess að einstaklingar fái of brátt sáðlát þegar þeir hafa samfarir við sjálfa sig (sjálfsfróun) og efast um að nokkur maður geri. Nema maður sé náttúrulega að gera þvílíka hluti fyrir sjálfan sig :o). Svo eru til líka ótímabær sáðlát t.d. í svefni eða í rússíbana (já ég þekki dæmi um það), en það er ekki umfjöllunarefnið hér... of brátt sáðlát skal það vera. Það sem veldur er samverkun margra þátta, spennu, gífurlegrar hormónastarfsemi, heiladingull alveg á milljón, mótherji sem heillar mann uppúr skónum o.fl. sem veldur því að maður getur hreinlega ekki haft stjórn á sér. Fyrsta ráð mitt er að gera reglulegar grindarbotnsæfingar. Veit ekki alveg hvernig á að útskýra hvernig það er gert, en það er mjög auðvelt t.d. er ég að gera svoleiðis núna. Það má lýsa þessu kannski helst þannig að þú reynir að lyfta pungnum aðeins með vöðvanum fyrir neðan hann. Þetta geturðu svo nýtt þér í kynlífinu, kreppt þennan vöðva af og til og þá lengist úthaldið. Að fara með 3-4 daga loaded gun inní kynlífsleiki er ávísun á of brátt sáðlát og er á bannlista. Trixið að klípa í rassinn á sjálfum sér svo fast að það stingur er líka gott og dreifir athyglinni. Var búinn að gleyma þessu trixi sem gamall skólabróðir minn kenndi mér. Önnur trix eru ýmis sem menn segjast nota, t.d. hugsa um Opruh eða Roesanne Barr....en ég meina hver er tilgangurinn þá, ef þú ert að böðlast á einhverri drottningunni að fara að hugsa um einhverjar beyglur, maður á að njóta mómentsins, þótt svo það sé stutt ;-). Einbeiting er líka mikilvægur þáttur, maður verður aðeins að fókusera á hlutina en ekki tapa sér í gleðinni og taka loftpressuna á þetta (loftpressa kemur í orðabók Mr.Lee innan skamms). Svo lærast þessir hlutir með tímanum, en maður verður aldrei alveg laus við þennan draug. Hann á alltaf eftir að poppa upp af og til og þá minn kæri vin tekurðu bara breik í 5 mín og svo beint í næsta round.
Stuð og standpína,
Lee

::: posted by Lee at 12:58


 
Tjah svo er hérna ein nokkuð smellin

Hvað stjórnar lit á hægðum og þvagi fólks?

Sixmaster Six


Sæll minn kæri Six og þakka þér áhugaverða pælingu á þessum nótum. Það eru ekki margir sem hefðu þorað að koma svona beint fram og sýna hvað þeim þykir í raun og veru vænt um hægðir sínar og þvag. Nú ég sem næringarfræðingur hef nokkuð greinargóða skýringu á þessu. Ég vil þó byrja á því að koma því á framfæri að úrgangur frá mannkyninu fer sjaldnast eftir litarhætti matarins sem fer ofan í mann. Ég held ég fari örugglega með rétt mál að steinefnin í líkamanum hafi einna mest áhrif. Ég man nú ekki á hvorn veginn það er, en held að ef þú ert ríkur af steinefnum einn daginn, því dekkri verður úrgangurinn hjá þér og öfugt. Steinefnin að ég held brjóta niður fæðuna og er misjafnt eftir fæðu hversu mikla orku þarf að nýta til að brjóta hana niður. Liturinn ræðst sem sagt af því hlutfalli steinefna sem er í líkamanum og því hlutfalli sem fer í að brjóta niður fæðuna. Ef sem sagt ekki er nóg hlutfall af steinefnum í líkamanum til að brjóta niður einhverja fæðu, þá held ég að þú getir lent í leiðindum, ekki bara með óeðlilegan litarhátt heldur líka varðandi niðurgang og harðlífi. Myndi nú samt dobbúltékka þetta, er ekki alveg 110% viss ;o).
Lee



::: posted by Lee at 10:09


 
Júúú góðan dag. Alltaf er manni að berast utanaðkomandi pælingar og ég biðst afsökunar á því hvað svör við þeim berast stundum nokkrum dögum of seint.

Sæll alvitur,

Ég var að velta því fyrir mér, í Leikfangasögu (Toy Story), vill Bósi ljósár (geimlögga), ekki viðurkenna að hann sé leikfang, af hverju hreyfir hann sig þá ekki og talar þegar mennskir eru í kringum hann?

Þindarlaus


Sæll min ven og þakka þér skemmtilega pælingu. Nú er það orðið frekar langt síðan ég sá þessa mynd og man því ekki nákvæmlega hvernig Bósi var að haga sér. En hitt veit ég að það er eðlilegt að hann hafi talið sig yfir önnur leikföng þar sem hann er glæstur á velli og mikill. Löngun hans til þess að vera mennskur er það mikil að hann er hættur að gera greinarmun á því hvar mörkin liggja. Innst inni er hann sár, því honum finnst ferð hans á þessa jörð vera sneypuför fyrst hann getur ekki tjáð sig og sýnt á meðal mennskra. Annars hef ég alltaf átt erfitt með að sálgreina leikföng. Því legg ég til minn kæri að þú sendir vel orðað bréf til framleiðenda Toy Story 3 þar sem þú kemur á framfæri þessari áhugaverðu pælingu, þannig að þeir láti glepjast og láti hreinlega eitt leikfangið í þeirri mynd spyrja Bósa hvurs vegna hann hreyfi sig þá ekki þegar mennskir eru í kringum þá. Þá gæti farið að tikka inní peningakassann.
Lee

::: posted by Lee at 09:44



nóvember 13, 2002 :::
 
Daginn kæru netverjar. Hef ekki verið alveg nógu duglegur að henda inn pælingum uppá síðkastið, en það er bara kreisí dúin at work núna og næstu dagana, en maður reynir bara að vera á tánum. En nú er deit linkurinn kominn inn, það verður spennandi að fylgjast með því, ætla að biðja ykkur um greiða vinir mínir og það er að senda slóðina á einhverja vini og kunningja, svo verður bara blænd deit í beinni fjandakornið...Ætla síðan að hanna eitthvað skemmtilegt í kringum þetta, t.d. vera með miðlunarþjónustu á deitum, en það er allt á þróunarstigi. Annars dapur þáttur af Survivor í gær. Fékk nettan kjána þegar gamla kellingin var að jarða haus og lappir af hænsninu sem þau voru að éta, hún er komin með svona pet-semetery og svoleiðis háskælandi ville vekk. Hún ætti nú bara sjálf að skella sér undir sex fetin í þessum kirkjugarði sínum, væri best geymd þar. Annars var pían með sílíkon tútturnar kosin út og er það sársaukalaust af minni hálfu, hafði nú samt nett gaman af því að góna á hana á bikiníinu....af hverju ??? ha??...af því ég er karlmaður fjandenn hafi það. Miðvikudagur..hmmm, tveir dagar í helgi og hvað geri ég þá...segi það ekki, ekki í bili allavega. Svo er ég að fara á gullgrafara fund í kveld, já er sem sagt búinn að kaupa mér gull og nú fer maður bara útí rífandi bisness. Segi þetta nú bara gott í bili...lifið heil.
Lee

::: posted by Lee at 12:50



nóvember 12, 2002 :::
 
Jæja, djefull leiðist mér að vera ekki netaður upp í vinnunni, en ég nenni ekki að grenja það. Það hefur verið baunað töluvert á mig útaf því að ég hafi ekki staðið við orð mín varðandi helgina. Mér er slétt fokking sama. Það er bara þannig með mig að ég má ekki keyra framhjá Hlemmi, þá er ég kominn í gírinn. Svo kom Gutti líka með fínan punkt. "Brennivín var skapað til þess að drekka það, ekki til að geyma uppí hillu eða fela undir rúmi". Ætla allavega að passa á yfirlýsingarnar núna aðeins. Monta mig bara af einhverjum afrekum eftir á, þá getur enginn sagt neitt. Tjah, það er að koma nýr linkur inn hérna hjá mér, sem er eingöngu ætlaður kvenþjóðinni. Hann mun heita "Bjóddu Lee á deit!". Þar geta svo konur nær og fjær klikkað á og boðið mér á deit með ímeili. Svo kannski birti ég einhver bréfin (undir nafnleynd að sjálfsögðu) og pæli aðeins í þeim. Sjáum hvernig það virkar. Þið getið nú líka hjálpað mér kæru lesendur með að senda síðuna mína á einhver fögur fljóð....tjah þetta verður fjer.

::: posted by Lee at 19:35



nóvember 11, 2002 :::
 
Það er alveg aðdáunarvert hvað ég hef mikla sjálfsstjórn. Þið munið pistilinn varðandi að setja tappann í flöskuna og heilbrigt líferni og eitthvað álíka mambó jambó sem ég setti inn fyrir viku síðan. Tjah hefði alveg eins getað tekið hann að troðið honum uppí júnówhatið á mér. Hellti uppá bæði kvöldin, borðaði pizzur og remúlaði og bætti á belginn...rosa fínt Lee... djefull kann ég að standa við stóru orðin. Best að segja sem minnst, fæst orð bera jú minnsta ábyrgð. Þó bót í máli að ég var ekki mænuskaddaður eða með minnisleysi eða álíka.....aðeins dansað uppá borðum bara :o). Tölvan í fokki garagó.
Lee

::: posted by Lee at 14:19



nóvember 08, 2002 :::
 
Föstudagur, er það dagur föstu eða festu?? Allavega ekki föstu hjá mér, var að úða í mig Bæjarins bestu, með öllu nema remúlaði (veit að það er skrifað remolaði, það er bara massa glatað. Mörður, gastekki hent remúlaði í nýju orðabókina þína, það hefði glatt mitt gamla hjarta.) Jæja nenni ekki útí málfarspælingar hérna. Föstudagur sem sagt dagur festu hjá mér í dag....hmmm, hvurnig festu. Jú var búinn að lofa því að vera spakur þessa helgina, það er nú festa að standa við það. Mig langar samt agalega að fá mér eins og einn öl eða svo. Ætla að breyta aðeins dílnum. Allt undir kippu telst ekki fyllerí. Get því fengið mér með góðri samvisku 5 og hálfan bjór í kveld. Annars talandi um kippur, þá var ég nú kallaður Kobbi kippa á sínum tíma. Það er komið af þvi, að á sextánda ári eftir samræmdupróf var ákveðið að sýna umheiminum að maður gæti drukkið eins og maður. Lét kaupa fyrir mig 3 kippur af litlum bjórum. Tjah það var nú ekki flóknara en það að þegar ég var búinn með kippu, þá fór allt að hringsnúast, ég að tala tungum, svimi, ógleði og allur pakkinn, sem endaði á því að ég skreið inná klósett og smúlaði all svaðalega yfir alla baðinnréttinguna....sofnaði svo í öllu gúmelaðinu ef ég man rétt...já Kobbi Kippa. Þetta eru rúm 12 ár síðan. Er aðeins sjóaðri í dag. En sem sagt, festudagur í dag. Stend ég við stóru orðin???? er bara hreinlega ekkert of viss. Var að fá símtal, Gunnar að plögga gítarkveld í kveld, æfa prógram sem á að trylla landann einhverntíman á næstunni...get ég það, haa, get ég það fjandahelvítiskornið????,....hvað með festuna Lee...ohhh. Get nú kannski réttlætt þetta með því að ég er að fara að kaupa gullið mitt á eftir, eina únsu (31 gr.) Já búinn að redda pening fyrir því, þarf að punga út rúmum 40 spírum, og núna vinir mínir er ég að fara að meiking millions, ég meina maður græðir ekkert nema að taka sénsa. Ef þið viljið fræðast nánar um það hvurnig Lee ætlar að verða millioner, þá bara endilega sendið mér póst. Já fjandakornið, verð ég ekki bara að halda uppá það í kveld að ég sé að verða millioner....svei mér þá, held það bara fjandakornið....enda þegar öllu er á botninn hvolft þá heitir þetta ekkert festudagur, heldur föstudagur, ok, fasta þá bara það sem eftir er af degi, líka voða fínt að drekka á fastandi maga...... ;o) Rokk on mæ frends.
Lee

::: posted by Lee at 12:41



nóvember 07, 2002 :::
 
Sælir kæru netverjar. Jæja nú hefur gullæðið gripið Lee. Nú fara heldur betur peningarnir að tikka inn. Mér líður eins og Terence Hill og Bud Spencer í stórmyndinni Goldrush. Er að spá í að fara að fjárfesta í gullklumpi, einni únsu takk fyrir og góða ferð. Kostar reyndar smá slatta, en fjandinn hafi það, hlýt að getað kríað fyrir því... gerist bara gigalo í smá tíma, fylgdarþjónusta litla Lee...hmmm hvurnig sándar það....pæling. Allavega þá skal ég kynna ykkur fyrir þessu seinna og jafnvel boða ykkur á fund.....spread the word fjandakornið. Er strax farinn að fantasera sjálfan mig með fulla vasa af gulli.... ohhhhh....hey sjammón Lee, teiktiísí men. Jæja dollaramerkin farin úr augunum á mér... í bili. Lítið um djúpar pælingar hjá mér í dag, heilinn á mér gjörsamlega flatline-aður, þ.e. gerir ekkert sem krefst smá aukavinnu, kannski það sé gullið...kling, kling,....can you here it coming.....CAN YOU ????? Ohh þarf að sprauta mig niður hérna, bryðja smartísið. Annars Hunagstunglið að gera góða hluti í handboltanum. Tapaði sjötta leiknum í röð í gær, hvaða rugl er þetta. Skiptir kannski ekki öllu máli þar sem þetta hafa allt verið æfingaleikir nema einn. Það er nú samt örugglega farið að hitna aðeins undir bossanum á þjálfa, en ég vil benda á sjónvarpsviðtal við hann inná heimasíðunni (viðtal við Örn), hægt að glotta við tönn yfir því. Bið ykkur annars bara vel að lifa kæru vinir. Ætla að fara að kaupa mér rassamæli og sjá hvort ég sé nokkuð með hita, er eitthvað voða skrítinn í dag.

Hey Hrönnsa í Dansku á afmæli í dag 25, til lukku Hrönn mín og Gutti og Júlían líka.
Gold Lee

::: posted by Lee at 14:34


 
Sæll meisari Lee
Meðfylgjandi er pæling mín sem mér bráðliggur á að fá ráð, eldri og reyndari, við.

Veit ég um ungan mann sem er á næstu misserum að flytja í "borg óttans". Til að geta aðstoðað þennan unga mann langar mig að pæla með þér hvar í umræddri borg sé best að búa ? Hvar ætti þessi ungi maður að kaupa sér húsnæði ?

Kv, Raggio


Sæll kæri Raggio og þakka þér þessa einlægu pælingu. Borg óttans hefur margt að bjóða, spurningin er bara hvernig status er á þessum unga manni, er hann einhleypur, er hann í sambúð, eða er hann í sambúð með börn. Ef þessi maður er piparsveinn, þá mæli ég með svæði 101. Þar bjó ég á sínum tíma og kunni því afskaplega vel. Stutt í allt og stutt líka að fara heim ef eitthvað skyldi vera að bíta á öngulinn if jú nó what æ mín ;). Ef hann er í sambúð, þá er í rauninni allt sem kemur til greina, og skiptir ekki öllu máli hvar búið er, mæli samt ekki með Breiðholtinu, því þar búa villingar. Ef hann er í sambúð með börn, þá mæli ég með svæði 104 (svæðið í kringum Laugardalslaugina), svæði 108 (smáíbúðarhverfið í og kringum Fossvoginn) eða svæði 103 (Hvassaleiti og þar í kring). Hef búið á öllum þessum svæðum og hef kunnað því vel. Annars er ég ekkert skeptískur á það hvar ég vil búa, aðallega að það sé vestan við Elliðaár. Hver er sinnar gæfusmiður í þessum efnum og ef búið er til gott heimili, þá skiptir engu máli hvort það sé á Arnarnesi eða Hlemmi.
Lee

::: posted by Lee at 14:18



nóvember 06, 2002 :::
 
Jæja, er að spá í að taka linkinn á svör við pælingum út bara, og setja þær beint inn, þetta endar annars með tómu rugli. Nýr fídus kominn við hverja pælingu, þar sem hægt er að pæla í pælingum mínum í stuttu máli. Var að berast pæling.

Sæll K. Lee hér er ein pæling sem mér hefur reynst ómögulegt að fá botn í. Nú hef ég pælt all lengi í því hvor sé betri lagahöfundur Gene Simmons eða Paul Stanley. Pælduíessu fyrir mig.
Bjössi Guð
.

Sæll minn kæri Bjössi, mér leiðist ekki pæling þín. Það er eðlilegt að Kissari eins og þú eigir erfitt með að gera upp á milli þessara tveggja snillinga. Í fljótu máli virðist það vera Paul Stanley sem sé betri, þar sem hann samdi helstu smellina, eins og Forever, Heavens on fire, I was made..., Lick it up o.fl. Veistu ég man ekki í fljótu bragði heiti á einhverjum af lögum eftir Gene, heyrðu jú See you tonite, Deuce og Nothin to loose, og eru þetta lög sem almenningur kannast ekki við, en það þekkja allir smellina sem Stanley kom að (með öðrum reyndar oft á tíðum). Ég get ekki heldur gert uppá milli þessara tveggja drengja, en eitt veit ég að þeir vinna vel saman og kunna að rokka fjandenn hafi það. Ace Frehley og Peter Criss voru líka að semja, en ekki í eins miklum mæli, en Criss samdi uppáhalds Kiss-lagið mitt í dag, Beth, og það Bjössi minn munum við taka á gítarinn í næsta partýi.
Lee


::: posted by Lee at 11:24



nóvember 05, 2002 :::
 
FJAAAANDEEENNNNN. Var að setja inn nýja utanaðkomandi pælingu og týndi öðrum á meðan...ohhh, fokkinghelvíti. Jæja, sjáum hvað ég nenni að gera í þessu.


::: posted by Lee at 20:49


 
Nú hefur Lee ákveðið að taka sér pásu frá skemmtanalífinu. Tappinn í flöskuna allavega út nóvembermánuð. Maður kíkir væntanlega eitthvað útá lífið, en þá verður félagi Bakkus skilinn eftir heima. Og fyrst maður er að þessu þá getur maður alveg eins farið að hreyfa sig aðeins líka, já fjandinn hafi það, reyna að taka einhver grömm af belgnum, ég skal í kjólinn fyrir jólin, eða þannig. Svo náttúrulega læt ég ykkur vita hvurnig þetta gengur allt saman. Verður maður samt ekki að passa þá mataræðið líka....fjandakornið mér leiðist það. Það er líka Megavika hjá Dominos, það kann ég að meta og get ekki verið þekktur fyrir að láta það fram hjá mér fara, skyndibitafrömuðurinn sem ég er. Skal fara á vigtina í kveld og dúndra inn nýjustu tölum, svo bara sjáum við til hvurnig þetta fer. Eru ekki annars allir í stuðiii, eru ekki alllir S E X Í..... yeahhh.

::: posted by Lee at 14:29


 
Survivor Pæling
Jæja, þá er komið að hinni vikulegu Survivor pælingu. Tyllti mér fyrir framan kassann í gær kl. 20 og setti á Skjá 1. Prik dagsins í Survivor fær stjórnandinn sjálfur, man ekki alveg hvað hann heitir, en hann hreinlega tók ættbálkana báða í óæðri endann. Lét þau halda að það væri búið að sameina flokkana og lét þau búa saman á einni strönd. Allir fóru sem sagt saman eftir fundinn með stjórnandanum og þar beið þeirra svaka veisla, ostar, ávextir og læti og svo brennivín. Tjah það sem kom mér skemmtilega á óvart var það, að þarna á meðal er gömul kelling sem heitir Jan, og mér finnst hún einstaklega leiðinleg. Heyriði, haldið þið ekki að það komi í ljós í gær að hún sé bytta blessuð merin, ahahahahah stóð ekki í lappirnar eftir nokkra sopa og var komin á "stigið" fljótlega. Hrundi í jörðina og læti, þetta gladdi mitt gamla hjarta. Síðan voru einhverjir sem gubbuðu eftir að hafa fengið sér aðeins of mikið..... ég var að fíla þetta. Fyrst að þau héldu að væri búið að sameina ættbálkana þá fóru einhverjir að reyna að mynda ný bandalög og svíkja gamla ættbálkinn, aðallega þó hún Shi Ann, asíska pían, og var í rauninni ekkert svo mikið að reyna að fela það fyrir gömlu félögunum. Heyrðu svo eru þau kölluð á fund og allir halda að það sé fyrsta einstaklingsfriðhelgin í gangi. En tjah... þá kom SPRENGJA, stjórnandinn sagði "ég sagði aldrei að það væri búið að sameina ættbálkana, heldur að þið mynduð búa á sama staðnum hér eftir", snilldin ein, og fólkið var ekki að meika þetta, síst af öllu Shi Ann, sem hreinlega meig og skeit í sig þarna í beinni, enda rétt svo byrjuð að stinga félaga sína í bakið. Nú það er skemmst frá því að segja að ættbálkur Shi Ann tapaði friðhelginni og hún var kosin út og send beinustu leið heim á hrísgrjónaakrana. Hún var nú eitthvað að reyna að malda í móginn, þegar var verið að kjósa og svoleiðis að ljúga hin uppfull af einhverju crappi, en það skipti engum togum, go home you dodgy bitch, voru skilaboðin sem hún fékk. Ég játa það, að ég var aldrei Survivor maður fyrr en í 3 seríu, en núna er ég alveg að fíla þetta, nú fer líka að koma sá tími að fólk fari að stinga í bakið ville vekk, þannig þetta verður bara betra. Reyndar eitt sem slær mig, hvað sumar píurnar eru alltaf hreinlegar, fullkomlega plokkaðar augabrúnir, alltaf allar nýrakaðar undir höndunum og svolleis, sem sagt það eru tæki þarna sem eiga ekki að vera. Jæja fokkit, ég gleymi því í svona aksjón eins og var í gær, plott á plott ofan er að gera það fyrir mig...já, ójá.
The tribe has spoken,
Lee

::: posted by Lee at 10:33



nóvember 04, 2002 :::
 
hæ, ég vona að það sé í lagi að ég biðji þig um að svara örlítilli pælingu.... ég hef verið að kíkja inn á síðuna þína af og til og dottið inn í heim pælinga og varla ratað til baka (sem er gott, nema stundum..skiptir ekki öllu)... svo ... má ég spyrja.... hvað er málið með kvenlegt innsæi?? Er þetta kvenlega innsæi ofmetið.. ?? (Það vandfundið á þinni síðu :o)....enda ertu karlmaður...) Are you better off with out it? Er kvenlegt innsæi bara til þess að flækja hlutina.....?
kær kveðja
Maja pæja


Sæl Maja pæja og takk fyrir síðast og takk fyrir tjah svo ekki sé meira sagt, mjög svo krefjandi pælingu. Ég er nú ekki viss um hvað það er sem þú ert nákvæmlega pæla, innsæið útfrá körlum eða konum. Allavega í fljótu máli sagt varðandi karlpeninginn, þá hafa þeir fæstir kvenlegt innsæi í einhverjum mæli, nema náttúrulega að þeir séu hommar. Innsæi ykkar kvenna er að mínu mati stórlega ofmetið, kallaðu mig karlrembu, en ég hef bæði lent í og orðið vitni að hegðun kvenfólks sem er hreint ótrúleg. Ég er auðvitað ekki að alhæfa og þekki auðvitað góð dæmi líka. En þau dæmi sem ég veit um þar sem kvenlegt innsæi fer útí öfgar fær forgang í þessari pælingu. Ég ætla ekkert að fara að telja þau upp, en get sagt þér það að það er hegðun sem flestum mönnum myndi ekki detta einu sinni í hug að gera, tjah allavega ekki mér. Það er nú vel þekkt að frekja hjá konum er algeng sem og þrjóska og hafa þessi tvö atriði oftar en ekki áhrif á innsæi kvenþjóðarinnar og leiðist mér það óendanlega. Lokasvar mitt er því á þennan veg. Mér leiðist kvenlegt innsæi, ég er pottþétt "better off without it" (því að reyna að skilja konur stundum er bara ekki hægt) og já, svo sannarlega flækir það hlutina. Það verður tekið "Talk to the hand" á þetta næst þegar ég lendi í samræðum við einhverja konuna á innsæis stiginu ;o). Allavega er þetta skoðun mín í dag, en hún gæti svo sem breyst einn daginn.
Lee@femin.is

::: posted by Lee at 21:18


 
Fa fa fa fjandeenn. Sælt veri fólkið. Klassa dagur í gær, þar sem var fansý dinner hér í grunninum. Það var nú ekki flóknara en það, að kappið fór með mig og uppúr kl. 22 er eins og einhver hafi ýtt á ctrl-alt-delete í hausnum á mér. Ég náði sem sagt í gær upp hámarks stigi ölvunar án þess að lúta í gras. Allt frekar glopótt sem gerðist eftir kl.22. Fór víst í partý einhversstaðar, fór víst á Kaffi Viktor, las víst einhverjum óheppnum blökkumanni pistilinn þar og fór víst heim um kl.2:30. Voða fínt að fá aðra til að segja sér hvurnig maður skemmti sér, en mér sem sagt skilst af öðrum að ég hafi skemmt mér konunglega og fagna ég því. Er búinn að sjá það, að þegar ég drekk léttvín í einhverjum mæli þá fer einhver vírus í harða diskinn í hausnum á mér. Er því búinn að ákveða að leggja léttvínið á hilluna, sem er sárt og á væntanlega eftir að svíða fram á haust, því mér leiðist ekki að dreypa á því. En svona er þetta bara. Allavega verður tappinn settur í flöskuna núna næstu 2-3 helgar. Það er bara fínt, kem bara grimmur til leiks eftir það ;o). En núna er ég að pæla í því að detta á skjálftavaktina. Buonas noches seniores and senioritas.
Lee - skrásett vörumerki.

::: posted by Lee at 00:56



nóvember 01, 2002 :::
 
Ég ætlaði að spyrja þig kæri viskubrunnur um eftirfarandi:

Frelsi er talinn sjálfsagður fylgifiskur í vestrænum nútíma, og því spyr ég hvað er fullkomið frelsi, er það ákjósanlegur kostur? Er það mögulegur kostur? Ef ég nýt fullkomins frelsis og það hefur áhrif á ákvarðanir náungans, hver er samnefnari frelsis í slíku samfélagi? Er fullkomið frelsi það sama og fullkomið stjórnleysi, glundroði? Þetta vildi ég bara vita.

Með kveðju,
Þórhallur


Kom sæll minn kæri Þórhallur og þakka þér áhugaverða og mjög svo djúpa pælingu. Frelsi er afstætt hugtak og stendur sjaldan eitt og sér. Oft er talað um málfrelsi eða tilfinningafrelsi eða annað í þeim dúr og þá oft talað um fullkomið tjáfrelsi og þess háttar. En eins og ég greini pælingu þína minn kæri ven, þá ert þú að tala um frelsi eitt og sér, séð út frá mannkyninu í heild. Fullkomið frelsi er að mínu mati hvergi til í heiminum. En ef það væri til þá væri það án efa það sama og fullkomið stjórnleysi eða glundroði eins og þú kemst svo skemmtilega að orði. Fullkomið frelsi jafnast á við það, að mínu mati, að allir í heiminum væru heilalausir, þyrftu ekki að hugsa neitt, gerðu það sem þeim myndi detta í hug og það myndi aldrei ganga. Eina mögulega leiðin til þess að fullkomið frelsi myndi ganga upp á jörðinni er sú að allir jarðarbúar myndu hugsa nákvæmlega eins, og það mun aldrei gerast. Þú spyrð: "Ef ég nýt fullkomins frelsis og það hefur áhrif á ákvarðanir náungans, hver er samnefnari frelsis í slíku samfélagi?" Ég get alveg sagt þér það, að þar sem þú hefur áhrif á ákvarðanir náungans, þá væri samnefnari þess frelsis sannarlega ekki fullkomið frelsi, heldur kannski öllu heldur valdníðsla. Fullkomið frelsi er og verður aldrei til þegar litið er á samfélög í heild. Fullkomið frelsi með vissum forsendum er hins vegar til og hvet ég alla til að njóta þess, á hvaða hátt sem er.
Frelsið er yndislegt ég geri það sem ég vil.
Kveðja Lee



::: posted by Lee at 16:09


 
Mig langaði að láta ykkur vita af því að ég dissaði dælukallinn frá bensínstöðinni í gær. Ætla sko ekki að borga honum neinn fjandans 2000 kall. Er alveg búinn að sjá þetta. Í fyrsta lagi, þá voru þetta hans mistök, menn þurfa að bæta fyrir sín mistök sjálfir. Í öðru lagi, hvað haldiði að þessir kallar kunni ekki að svindla á kerfinu, hann er þaul vanur þessi örugglega og þarf ekki að punga út einum einasta eyri sjálfur. Í þriðja lagi, þá var hann að reyna að höfða til samvisku minnar með því að segja með sorgmæddum róm "ég borga þetta bara sjálfur" til þess að fá auka aur í vasann....hann var að reyna að hözzla mig helv.. melurinn. Þetta er bara glæpamaður. Ég stakk undan olíurisanum og er stoltur af því.... viva la islandia.
Annars er farið að hrannast svo mikið inn af utanaðkomandi pælingum að ég á fullt í fangi með þetta. Reyni að svara eftir besta megni í dag, ef ekki, þá verður þetta komið inn á mánudag.


::: posted by Lee at 13:24


 
Tjah nú eru tíðindi. Mér var að berast fyrsta pælingin frá kvenkyns aðdáenda síðunnar og kann ég því vel. Ekki nóg með það, þá er þessi pæling einnig frá Danaveldi, sem gerir 3 pælingar þaðan í röð takk fyrir það. Allavega er þessi pæling frá henni Hrönn stórvinkonu minni, athafnakonu og fegurðardís. Hún er eftirfarandi.

Sæll Kobbi minn! Hrönn hér
Það er enn ein spurning úr danaveldi!

Hvernig stendur á því að sonur minn er ljóshærður, þar sem bæði ég og Júlli erum mjög dökkhærð???? og afhverju var fyrsta nafnið sem hann lærði að segja "KOBBI" Kannast þú eitthvað við þetta????
Bara smá pæling hjá mér
kveðja
Hrönn næstum mágkona ;-)


Heil og sæl kæra Hrönn takk fyrir mjög svo áhugaverða pælingu og skemmtilega. Ef við byrjum nú á hárlitnum, þá er ofur eðlilegt að hann Júlían skuli vera ljóshærður þrátt fyrir að þið bæði séu dökkhærð og dökk yfirlitum. Börn geta sótt hárlit sinn langt aftur í ættir og ef ég man rétt, þá var hann Júlíus barnsfaðir þinn rauðbirkinn mjög þegar hann var dvergur. Einhvernvegin finnst mér samt ég greina kaldhæðni í pælingu þinni, þar sem ég er jú ljóshærður og jú mikið rétt, kallaður Kobbi. Mér finnst sem þú sért að leiða að því líkum ð ég sé faðir drengsins. Svo við komum í veg fyrir misskilning lesenda þá er það líffræðilega ómögulegt. Eigi að síður þá get ég svarað þessum pælingum á sómasamlegan hátt. Ég er guðfaðir drengsins og tískulögga og því ekkert óeðlilegt við það að hann taki upp eftir mér tískubylgju og segi nafn mitt fyrst allra manna. Þú þarft ekkert að hafa áhyggjur af því þótt svo ljósir lokkar séu aðaltískan hjá Júlían í dag og að hann hafi sagt nafn mitt svo fljótt. Það er ofur eðlilegt mál. Ég heyrði þess dæmi um að tveir albínóar hefðu eignast svertingjakróa, tjah það eru aðtæður til þess að hafa áhyggjur af...ég segi nú ekki annað.
Bið að heilsa Sören Laerby,
Lee

::: posted by Lee at 11:49