október 31, 2002 :::
Sko, nú er ég búinn að vera með bílpróf í 11 ár og 13 daga, nei fyrirgefiði, gleymi einu, 10 ár og 13 daga og aldrei hef ég lent í því að fá svo mikið sem einn auka dropa þegar ég set bensín á bílinn. En vitiði hvað, fer á bensínstöð í hádeginu, hendi þússara í dælumanninn og loka aftur. Tjah kemur ekki einhver skutla og biður hann um að kíkja á olíuna hjá sér á eftir og er eitthvað að spjalla við hann. Haldiði ekki að gaurinn gleymi sér. Bankar hjá mér þegar hann er búinn, og segir "heyrðu, ég setti óvart rúmlega tvöþúsundkall yfir" (nákvæmlega bensín fyrir 3.476.-kr.)
Lee:"Haaaa, nei er það"
Dælari:"Jámm (frekar foj)"
Lee: "Veistu ég er bara ekki með seðil á mér núna"(sem var ekki alveg satt).
Dælari: "Jæja þetta er mín sök, haltu bara áfram vinur".
Lee:"Jæja þá, takk fyrir", er náttúrulega alsæll með að hafa stungið undan olíurisanum, en heyri þá í dælaranum, "Ég borga þetta bara sjálfur". Fjjaaaandeeennn, rúmlega fimmtugur kall, með gott viðmót að dæla bensíni fyrir Olís í þessum geðveika kulda, ætlar að borga brúsann fyrir mig. Nú er ég með nagandi samviskubit. Var sigri hrósandi fyrst, en er ekki að meika þetta núna. Skelli mér til hans á eftir og læt hann fá tvo þússara. Þetta er engin pæling, heldur góðverk vikunnar skrambinn hafi það.
Góðan og blessaðan kæru lesendur. Aftur var mér að berast pæling frá Danaveldi, en í þetta skipti frá honum Júlíusi Hafstein frænda mínum, stórvini, sjónvarpsstjörnu og skemmtikrafti. Bréfið sem mér barst er svo:
Sæll frændi!
Nú er ég búinn að fá mér tvo þrjá ,og vildi leggja fyrir þig eina pælingu?
Af hverju hefur ekkert heyrst í Cindy Lauper síðustu ár??
Sæll minn kæri frændi og þakka þér fyrir áhugaverða pælingu. Tjah Cindy Lauper man tímana tvenna. Gott ef ég kallaði hana ekki dóphóruna hér á sínum tíma þegar frægðarsól hennar skein sem skærast, sökum útlits og subbuskapar. Allir muna jú eftir smellunum "Girls just want to have fun" og "True colours". Hún náði nokkrum lögum inná vinsældarlistana og því ekki hægt að kalla hana "One hit wonder". Kannski öllu heldur hægt að kalla hana "One album wonder" því að mig minnir, þá voru þessi lög á sömu plötunni sem slógu í gegn. Eftir það var hún alltaf að sýsla eitthvað í músíkinni, og gerir reyndar enn, en hefur ekkert verið að meika það, kannski rétt náð svona semi-smellum. Cindy fékk líka mikla athygli útá útlitið, sem var svona subbudóphórulegt, og hún greinilega stígur það mikið í vitið, að hún ákvað bara að dópa meira til að fá röffaðra lúkk svo hún yrði ennþá vinsælli...Cindy mín, sjammón. Þessi neysla varð henni að falli og er þess valdandi að ekkert heyrist frá henni í dag. Einhversstaðar heyrði ég að hún væri komin með gervilifur og gervinýru. Einnig sagði lítill fugl við mig um daginn að hún væri farin að selja sig á Hlemmi, en ég sel það ekki dýrara en ég keypti það.
Vona ég að þetta svari pælingu þinni Gutti minn, nú er rétt svo einn og hálfur mánuður þar til við hittumst og þá getum við skeggrætt þessi mál nánar. Kær kveðja til Hrönnsu og Júlíans.
Lee
október 30, 2002 :::
Jæja, nú voru mér að berast ansi skemmtilegar pælingar úr Danaveldi frá Arnfinni Teiti Ottesen stórvini mínum og óðalsbónda frá Ytra Nefi. Þær hljóða svo:
Það er reynsla mín af kynnum mínum við þig, minn kæri Jakob Valdemar Hafstein að þér sé kleift að svara flestum þeim spurningum sem kunna að vakna um lífsins gang.
Hvernig má það vera að þá sjaldan menn lyfta sér upp, endar það með vitleysu. Svart úti(blac out), uppgangur, almenn hegðun sem ekki er til eftirbreytni eru allt þættir sem menn kynnast ef menn blanda geði við óheillakróann Bakkus.
Get ég ekki dregið þá ályktun að það sé Bakkus sem er hálfvitinn en ekki sá sem hans neytir?
Komdu sæll minn kæri Arnfinnur og þakka þér fyrir áhugaverða og mjög svo skemmtilega pælingu sem liggur mér svo nærri. Bakkus blessaður hefur verið við lýði frá örófi alda og eru það margir sem vilja launa honum lambið gráa. Hann þarf þó ekki að vera alslæmur, því eins og flestir vita þá gaufgar hann jafnan málbeinið hjá því fólki sem ákveður að njóta félagsskapar hans. Þessu mér til stuðnings vil ég benda á það að Egill Skallagrímsson, sem var mjög svo góður kunningi Bakkusar, samdi sínar fyrstu stökur og rímur aðeins 5 ára gamall og er ég þess fullviss að hann hafi verið í samfloti með Bakkusi þá, því venjulegt 5 ára barn gæti ekki fyrir nokkra muni kveðið svona meistaraverk án þess að vera búið að fá sér aðeins neðan í því. Bakkus var svo samferða Agli alla hans tíð og Egill er einn fræknasti Íslendingur allra tíma og vil ég meina að það sé vegna þess hvursu hann og Bakkus voru nánir. En nóg um það. Þegar einstaklingur ákveður að bjóða Bakkusi uppí dans, þarf sá hinn sami að vera þess fullviss að geta stigið dansinn til enda. Ég vil ekki segja að Bakkus sé alfarið hálfviti, heldur kannski öllu heldur klókur djefull og undirförull. Hann er meistari í sjónhverfingum og lætur alla hluti líta út mun auðveldari en þeir í raun og veru eru. Ég er nú ekki mikið fyrir sopann eins og þú veist Arnfinnur, en ég hef brennt mig á félagsskap Bakkusar. Hann hefur narrað mig út í ótrúlegustu vitleysu, og það versta er að ég virðist stundum ekki læra af þeim mistökum. Hann er áhrifagjarn og daginn eftir selskap með honum er hann iðulega kosinn óvinsælasti maður í heimi og slær þar við ekki ómerkari mönnum en Hussein og Bin Laden. Svo kannski nokkrum dögum seinna er hann orðinn manns besti og jafnvel eini vinur eina ferðina enn. Mín niðurstaða er sem sagt sú, að Bakkus er ekki hálfviti. Mundu það bara að ef þú ætlar að bjóða honum upp í dans, þá er hreinlega ekki nóg að kunna "hliðar saman hliðar". Þú þarft að geta stigið dansinn til enda.
Kær kveðja,
Lee
Rétti upp hönd sem eru ennþá á sléttum dekkjum....fjaaaandenn. Tjah hönd mín er uppi. Svo getur maður ekki skroppið bara í hádeginu að láta setja naglana undir..nei, það húrrast náttúrulega allir í einu á dekkjaverkstæðin, og maður þarf að gefa þessu 2-3 tíma. Held ég geymi þetta eitthvað fram í næstu viku þegar þetta er farið að róast, tek sénsinn á því. Voða fínt gluggaveður annars, já best að njóta þess að vera inni og horfa á veðrið og segja reglulega "oh hvað er fallegt veður"....díses hver fann eiginlega upp gluggaveðrið, þarf aðeins að eiga við þann mann nokkur orð. Verð síðan að minnast aðeins á skemmtilegasta sjónvarpsþátt í heimi, Judging Amy. Fjandeennn hvað það er leiðinlegt. Hef lent í því sl. vikur að lenda hreinlega alltaf á þessum þætti á þriðjudagskvöldum. Ekki nóg með það að ég sé langt fram á miðvikudag að pirra mig á því að þetta efni sé í sjónvarpinu, heldur er ég oftast á Tunglaraæfingu á miðvikudagskvöldum og kem alveg dead heim og kveiki þá náttúrulega á kassanum. Nema hvað, þá er verið að endursýna þessi ósköp og þá verð ég alveg brjál. Amy er sem sagt í huga mér þri.-fim. í hverri viku og ég er ekki að meika það fjandafokkingkornið.
október 29, 2002 ::: Orðabók Mr.Lee Vegna fjölda áskorana hef ég ákveðið að setja upp smá orðasafn, svo fólk geti áttað sig betur á þeim frösum sem líta hér dagsins ljós. Mun ég bæta inní þar og uppfæra reglulega svo allir geti fylgst með af nákvæmni.
Lee/Mr.Lee : Það er sem sagt ég sjálfur. Nafn sem mér hlotnaðist á KFC fyrir nokkrum árum í kjölfar þess að tvær asískar gleðikonur að ég held fóru á fjörurnar við mig (þetta er dagsatt). Tísku Gilli á heiðurinn að þessu nafni.
Tarfur : Hefur í raun sömu meiningu og töffari, sleði, spaði og annað slíkt, en samt örlítið hafið fyrir ofan þessa titla. Tarfur nýtur kvenhylli. Lee er tarfur.
Sjammón : Dregið af enska orðasambandinu come-on. Berist fram eins og þegar Jackson tekur það í lögum sínum. Meiningin er eiginlega "hvað er málið", þegar maður segir sjammón.
Kjáni : Stytting á orðinu kjánahrollur. Kjánahrollur er þegar maður verður vitni að einhverju ótrúlega kjánalegu mómenti og fær gæsahúð út af því. Fékk til dæmis rað-kjána ef ég horfði of mikið á The Bachelor.
MG : Skammstöfun á Morning Glory, sem er orðatiltæki úr ensku. Lausleg þýðing Lee => Kynmök á morgnanna.
T&A : Tits and ass => Brjóst og rass.
Endajaxlar : Sterkustu tennur mannsskepnunnar. Eru aftast í tanngarðinum.
Snjórinn mættur bara. Hvít jörð í morgun. Gaddfreðnar rúður á bíl = skafa í hálftíma fjandenn. Þó bót í máli að það er mun hlýrra núna heldur en uppá síðkastið, já snjórinn mildir kuldann, gaman að því. Annars á Hildur systir afmæli í dag, til lukku Hilla mín, hugsaðu aðeins útí það að nú ertu orðin rúmlega þrítug...muahahahah. Horfði á Sörvæver 5 í gær. Díses, fékk nettan kjána á þetta. Annar ættbálkurinn tapaði um friðhelgina og þau voru ekki að meika það, fóru til baka á ströndina sína drukku eitthvað vín sem þau höfðu unnið um daginn og fóru á grimmt trúnó... tár og læti. Robb (súpertöffarinn á svæðinu) var með massaða strategíu í gangi. Hann var búinn að sjá að hann væri kominn á hálan ís og væri líklegast næstur út úr hópnum. Hann tók svo grimman sentimentalpakka á þetta til að reyna að bjarga sér að það var ekki sniðugt. Málið er að þau hin keyptu þetta allt saman og fóru að háskæla og sögðu að hann væri bestur, svo kusu þau hann öll út....grimm sjúkheit :-) Hinn ættbálkurinn er náttúrulega svoldið tognaður í haus. Að týna bátnum sínum er eitt. Að fara að leita að honum sama dag og keppni um verðlaun eru í gangi, með því að synda 6 mílur...ég meina sjammón, allir kallarnir fóru í "sundtúr" og voru síðan dead þegar að keppninni kom seinna um daginn, djefuls snillingar eru þetta. Svo þegar þau týndu bátnum. Ted (Feiti svertinginn sem var að nudda sér utaní skemmtilegu svertingjakellinguna um daginn) sagðist hafa bundið bátinn niðrí fjöru. Hey Ted, hefurðu heyrt um að vatnsfall sjávar hækkar og lækkar. Það kallast flóð og fjara og nær hámarki tvisvar á sólarhring og einnig lágmarki...háflóð og háfjara. Þetta er engin pæling, þetta er fróðleiksmoli dagsins fjandakornið.
október 28, 2002 :::
Jæja, þá hefur mér borist fyrstu utanaðkomandi pælingarnar sem verða birtar hérna. Þær eru frá engum öðrum en spekúlantinum Gee-Huzzler. Þær eru eftirfarandi:
1. Hvaða týpur eru það sem skemma strætóskýli? (Það voru einhverjir snillingar sem rústuðu 20 stykkjum á einu kvöldi á dögunum).
2. Við þekkjum svona 1/10 af okkar sólkerfi. En það eru til svona 1.000.000.000.000.000.000 önnur sólkerfi. Sem þýðir að við þekkjum 0.000000000000000000001% af heiminum. Hvað er í gangi á hinum stöðunum sem við þekkjum ekki???? Og hvar endar nú allt draslið?
Sæll minn kæri Gee og þakka þér fyrir áhugaverðar pælingar. Svo við byrjum nú á strætóskýla-húlígönunum, þá er það greinilegt að þetta eru týpur sem ekki eru eins og fólk er flest. Ég hef nú seint lagt stund á sálfræði, en gæti helst til trúað því að þarna væru á ferðinni unglingar sem eitthvað voru að misskilja aðstæður. Mín helsta skýring er sú að þeir hafi verið að koma frá túninu fyrir framan Höfða og þar hafi þeir verið að úða í sig einhverjum sveppakokteilum sem svo hafa brenglað skynfæri þeirra. Líklegt þykir mér að þessir unglingar hafi fundist þessi skýli verið kynferðislega örvandi og farið á fjörurnar við þau, en þegar þau hafi ekki endurgoldið þær tilfinningar, þá hafi þeir brugðist illa við og lagt hendur á blessuðu skýlin okkar. Sjálfsagt eru þessir unglingar búnir að vera að hreykja sér af því út um allan bæ, að hafa buffað hóp kynkaldra einstaklinga. Gaman að vita af því að þetta er æska vors lands.
Tjah, síðari pælingin er ekki af minni gerðinni og fagna ég því að þú skulir leggja hana undir mig, því helstu mikilmenni mannkynssögunnar hafa staðið ráðþrota gagnvart henni í aldanna rás og gera enn. Þegar ég var dvergur fyrir um 18 árum, var ég staddur á Majorka og gáfu þá foreldrar mínir mér í afmælisgjöf stjörnukíki einn sem ég tók ástfóstri við. Síðan þá hef ég spáð í þessa hluti af og til. Ég er alveg klár á því að þarna úti er fullt af lífi. Það er pottþétt mál að eitt sólkerfið þarna úti er nákvæmlega eins og okkar, og er ég væntanlega þar núna að dúndra þessum pælingum inn, munurinn er einungis sá, að þar er ég kona, því þar er kynjavíxlun, miðað við okkar jörð, þ.e. allir sem eru karlmenn hér á jörðinni eru konur þar og öfugt. Þar myndir þú sem sagt ekki heita Gee Huzzler, heldur Geena Hooker. Svo eru hinar ýmsar útgáfur af þessu. Pælingin er sem sagt sú að við erum til í hinum ýmsu formum eftir því í hvaða sólkerfi við erum, t.d. karlkyns í einu, kvenkyns í einu, dýrategund í einu og strá í einu svo eitthvað sé nefnt.
Hvar þetta endar er náttúrulega stór spurning. Í mínum huga er óendanlegt ekki til, þannig að ég geri ráð fyrir að það sé veggur sem lokar á okkur bara....hmmm já múrveggur með veggfóðri frá Ingólfi Péturssyni. S: 8992144
Nú er ég kominn með hausverk af þessum pælingum og ætla að fá mér 13 asperín.
Jæja þá...byrjað að snjóa og ekki er ég að fíla það. Vildi að það væri sumar. Reyndar er planið að stytta veturinn hjá sér aðeins. Vonandi að maður skelli sér þá út í janúar, til Venezuela takk fyrir. Þar ætla ég að kíkja á móður mína og mann hennar sem búa þar í góðu yfirlæti. Ekki spillir það að konurnar þarna er gourgeous í meira lagi. Þær hafa oftast verið valdar ungfrú heimur, bara svo við höfum þessa hluti á hreinu. Hmmm, er að sjá þetta alveg, 25 gráðu hiti, cuba libra, alvöru vindlar og skvísur á bikiní. Tjah eitt orð. JEEEEEEEEEEEEE. En geymum þessar pælingar þangað til nær dregur. Var að tala um veturinn. Get þó huggað mig við það að það er væntanlega ögn hlýrra hér heldur en á mínum gömlu slóðum á Bifröst. Þar er svo kalt að það lítur út fyrir að vera frosið "undir" mínum gömlu sambýlingum og félögum, þeir eru eitthvað svo óttalega uppstökkir þessa dagana. Smá pæling varðandi það. Hita smjörlíki og mysu og bera á "tólin" (þeir sem eru ekki að kveikja, þá eru tólin = kynfæri í þessu tilfelli) og láta liggja á í 2-3 tíma. Þrífist síðan af með stálull og sandpappír og loks blása á með hárblásara, volgan gust. Þetta er heillaráð dagsins.
Góð helgi á enda og ég bara alveg eiturhress aldrei þessu vant á mánudegi. Það var skellt sér í bústað á föstudag austur fyrir fjall og var það mjög gott mót. Svo var útskrift hjá hinum Þindarlausa á laugardag sem heppnaðist í alla staði mjög vel. Til lukku aftur minn kæri ven. Þó verð ég að minnast á það að Gee-Huzzl átti línu kveldsins og stal athyglinni á tíma. Fer ekki nánar útí það hér, þetta var svona "had to be there" moment. Aldeilis læti að geras hjá hinum virta klúbb Complex ehf. Allt að verða vitlaust þar, skemmtilegar og harðorðar deilur í gangi á ritvellinum, verður fróðlegt að fylgjast með framgöngu mála á þeim vísgstöðvum. Annars eru engar alvöru pælingar komnar í hausinn á mér ennþá. Sá hluti heilans sem sér um rökhugsun og annað slíkt er greinilega ekki vaknaður, endalaust snooze í gangi á þeim bænum. Ætla að reyna að plögga inn eitthvað spjallborð hérna svo þið getið komið með ykkar pælingar ef eitthvað liggur ykkur á hjarta og ég mun þá reyna að pæla aðeins í þeim með ykkur. En til að byrja með, þá getið þið bara sent á mig póst á kobbilee@hotmail.com og þið fáið pælingarnar birtar og svör við þeim, þ.e. ef ekki er gengið of langt á blygðunarkenndina hjá fólki.
október 25, 2002 :::
Verð líka í tilefni pistils míns hérna fyrir neðan að koma aðeins inná flutning Stöðvar 2 á þessari frétt. Sko ég kom þarna aðeins inná feilinn hjá Snorra, þar sem hann virtist hreinlega ekki vera að hlusta á söguna sem Ron var að segja, ég meina kannski var hann stressaður, en sjammón fréttamenn verða að hlusta. Stórveiðimaðurinn og vinur Halldór Jónsson aka. Feiti Bak benti mér svo á það, að engu væri líkara en að Stöð 2 væri að réttlæta það að fá klámstjörnu í þáttinn, með því að sýna í upphafi einhverja sketsa úr erlendum sjónvarpsþáttum með snillingnum, ok alveg innan marka, fönný samt. Vindum okkur þá að Guðrúnu Gunnars. Hún var fjarverandi vegna síns princips. Sko ég hélt að fréttamenn ættu að taka á öllu með sama hugarfari. Feiti Bak komst svo skemmtilega að máli "Hún hefði getað verið fulltrúi kvennþjóðarinnar að spyrja hann út í siðferðisspurningar en beilaði út af einhverju principi hjá sér. Fréttamenn eiga að tala við alla sama hvað þeir gera, hvernig þeir líta út að hvern annan andskotan sem að þeim getur verið". Það er ansi margt í þessu. Ég meina, fréttamenn eru að tala við morðingja, handrukkara og nauðgara og það er ekkert mál. Svo kemur stærsta klámstjarna í heimi og þá er allt í einu farið að væla yfir einhverju prinsippi....sjammón Lee... ótrúlegt alveg. Allavega er pönslænið það að fréttamenn eiga að vera á sama stalli gagnvart öllum sínum viðmælendum. Ef einhverjum finnst þægilegra að tala við dæmdan morðingja heldur en klámstjörnu, þá er eitthvað mikið að á þeim bænum. Þetta er pæling fjandinn hafi það.
Verð að henda inn hérna smá pistli sem Ron nokkur Jeremy smellti framan í alþjóð í gær í Íslandi í dag. Ok, gott og vel það var verið að ræða um klámiðnaðinn og því tengdu, sem var alveg sársaukalaust af minni hálfu. Sjálfsagt hefur þetta farið fyrir brjóstið á einhverjum kellingum útí bæ, en ekki hjá mér, sennilegast vegna þess að ég er karlmaður. Allavega var díllinn sá að Ron var að rifja upp einhverja sögu þegar hann var í spjallþætti hjá einhverri sjónvarpsdrottningunni í USA, og með honum í þættinum var Gene Simmons (en fyrir þá sem ekki vita hver það er þá er það bassaleikarinn í stórhljómsveitinni KISS, þessi með tunguna,....skamm þið sem ekki vitið hver þetta er.) Allavega þá spyr konan hvað þeir hafi sofið hjá mörgum kellingum og Ron segir um 4000 og Gene segir sömu tölu. Málið er að Ron er klámstjarna en Gene rokkstjarna. Allavega Ron hélt áfram og sagði " Sko við höfum báðir sofið hjá ótrúlega fallegum kellingu, en málið er að þegar Gene er ekki í vinnunni og fer á djammið, þá nær hann sér í kellingar eins og Pamelu Anderson. En þegar ég er ekki í vinnunni og fer á djammið, þá næ ég mér í kellingar sem líta út eins og Gene Simmons" aaahhahahahaha, þetta er snilld. Og málið er að Snorri Már sem var að taka viðtalið náði þessu ekki og hélt bara beint áfram og greyið Ron var ekki alveg að meika það, reyndi að redda þessu með einhverju látbragði, sem var hálf kjánalegt. Snorri, þú átt að hlusta á viðmælendur þína, lágmarks kurteisi hérna fjandenn. Annars fær þessi feiti dvergur stórt prik hjá mér, hann er alveg með þessa hluti á hreinu.
Ohhh, stöðumælaverðir, hvað er díllinn eiginlega. Lagði bílnum í morgun rétt hjá brunahana. Ok, ég viðurkenni það að bíllinn náði svona 1/3 yfir á gulu línuna á kantinum. Og viti menn, þegar ég kem út í hádeginu þá er miði, já miði segi ég fjandinn hafi það, á framrúðunni. Djefulsins merkikerti eru þetta. Svo heimta þeir morðfjár fyrir þetta. Skal með glöðu geði greiða 1/3 af þessum ósköpum, ætla beinustu leið uppá löggustöð á eftir og lesa þeim pistilinn. Síðan er einfaldlega ekki nóg af stæðum í miðbænum fjandakornið. Sko, smá pælingar til borgarstjórnar. Steypu í tjörnina...pæling. Underground....pæling. Burt með stöðumæla....pæling. Burt með borgarstjórn...pæling, já fargans pæling hérna, segi það og skrifa.
Jæja já, nú það er eitt fyrirbæri sem fylgir blessaða vetrinum og það er helv... sóttin. Hérna er fólk allt að hrynja í kringum mig, hóstandi sýklum útí loftið og reyna að smita mig, er ekki að meika þetta, leiðist sóttin óendanlega. Enda er ég farinn að taka Jackson á þetta, er með slæðu fyrir andlitinu og sólgleraugu, voða fínt og lúkka vel svona inn á meðal almúgans. Annars er ég ekkert að stressa mig á þessu núna, heldur hlakka frekar til dagsins, er að fara í bústað takk fyrir það og góða ferð. Reyndar nokkrir Complex meðlima sem ekki komast vegna þess að þeir eru með allt niðrum sig þessa dagana, en það skiptir ekki máli, það verður fjer. Svo er hann stórvinur minn og Hamarsmaður Þórhallur Þindarlausi að útskrifast á morgun úr HÍ, partæ hjá honum og af nógu að taka þessa helgina sem aðrar...þá sjaldan maður lyftir sér upp fjandenn hafi það. En til lukku með þetta Þindarlaus, þetta er well dön. Endum kannski saman í framhaldsnámi á Spáni..., nei bara pæling.
október 24, 2002 :::
Handbolti...voða fínt. Skellti mér á æfingu hjá Hunangstunglinu í gær. Þetta er reyndar alveg ágætis hreyfing, en ég held ég geti sagt það alveg skuldlaust að þarna liggi framtíð mín ekki. Fyrir þá sem ekki vita, þá notar maður harpix á puttana til þess að ná betra gripi á boltanum. Nú ég klíndi á mig nokkrum klessum, örlítið of mikið greinilega, því þegar ég var að gefa boltann, þá losnaði hann ekki úr lúkunum á mér fyrr en allt of seint, og ég dúndraði bara beint í jörðina og mitt lið missti náttúrulega boltann...svakalega fínt Lee. Fór reyndar einu sinni hálfpartinn inn af demantnum, (en að fara inn af demantnum er það, þegar maður stekkur inn í teiginn nánast frá endalínu) allavega var mér fyrirmunað að skora úr þeirri stöðu, þannig ég veit ekki af hverju ég er að segja þetta hérna fjandeennnn.... Æfingin skapar meistarann, segir einhversstaðar, held þetta eigi ekki við mig. Júú það er sárt að horfast í augu við það, en ég viðurkenni það þó... þetta er og verður ekki mitt sport. Ætla samt að æfa með í vetur og koma sterkur til leiks í utandeildina í fótbolta næsta sumar. Þar þarf ég að bæta upp fyrir það að hafa átt mesta klúðrið síðasta sumar... og það mun ég gera. En þrátt fyrir það, lifi Hunangstunglið....Einn bolti, ein veröld.
október 23, 2002 :::
Úfff, Vetur konungur, hvað er málið með þennan gaur eiginlega. Engu líkara en hann ætli að skella á eins og einu stykki ísöld. Það er hroðbjóðslega kalt hérna fjandinn, þegar maður fer út, það nýstir hreinlega í andlitið. Ein pía hérna áðan sem skrapp í bæinn í hádeginu, ætlaði nett bara að kíkja í búðir og fá sér góðan göngutúr og ferskt loft. Tjah hún mætti til baka svo frostbitin í andlitinu að hún leit út eins og illa hreystruð ýsa, gat nú samt ekki annað en glott við tönn. Þetta er samt háalvarlegt mál með þennan kulda og vind og ógeð, þetta gerir engum gott og ég mótmæli hér með. Norður og niður með Vetur konung.
október 22, 2002 :::
Keila, skemmtilegt það. Skellti mér í keilu í gær með 3 törfum, Vidda og Bödda frá Bibbó, og Gunnari nokkrum sem oft er kenndur við auglýsingar og samlokur. Ákveðið var að taka 3 leiki. Og ekki var að því að spyrja, Lee var í bullandi gír í fyrsta leiknum, stakk piltana af í 6. eða 7. ramma og rúllaði þessu upp. Næsti leikur hófst og þá kom berlega í ljós hvursu kalt getur verið á toppnum. Ég hreinlega meig í mig og endaði á botninum, úff það var sárt. Í 3ja leik ætlaði ég svo að hysja upp um mig brækurnar, og koma með comeback. Djefull tókst það ekki, endaði með brons, og yfir heildina, aðallega sært stolt. "Keila er vinna, ef þú vinnur ekki, þá taparðu, ég vil vinna..." Annars var sennilegast sigurvegari dagsins hann Viðar, má segja að hann hafi komið bakdyramegin að sigrinum, kláraði síðasta settið með stæl og endaði með gull, silfur og brons, slapp alveg við botninn fræga. Hugga mig þó við það að ég átti hæsta skor dagsins, en það telur víst ekki. Annars fær Gunnar prik fyrir snúningsboltana, glæsilegur stíll þar. Og fyrst við erum að tala um keilu, þá mæli ég með myndinni King Pin, snilld í alla staði, Bill Murray fer alveg hreint á kostum. Spurning um að gera íslenska keilumynd....pæling.
október 21, 2002 :::
Nú er þetta allt saman að smella. Það tekur mann alltaf góðan tíma að skríða saman eftir svona skemmtihelgar. Finn að heilinn á mér er svona að taka við sér, greinilegt að hann hefur bara verið á hold í gær og í morgun. Mænan er farin að gróa og lifrin er að taka sinn eiginlega lit aftur. Reyndar er nett eftirskjálftavakt í gangi, en það er nú ekkert alvarlegt. Talaði við Ragnar skjálfta áðan, og hann sagði að þetta væri eðlilegt, þetta kemur í hrinum. Hann líkti mér við reykjanes-undirlendið, hef ekki heyrt það áður en fyrst Skjálfti segir það, þá hlýtur það að vera gott. Annars var löggan í USA að handtaka mann í hvítum sendibíl, sem var reyndar ekki neitt líkur þeim bíl, sem svokölluð vitni þykjast hafa séð, en ég meina, jú never nó. Og nú er löggan þarna úti farin að verða frekar vonlítil, þannig að þeir eru farnir að biðja leyniskyttuna að hringja vinsamlegast í sig... eða þá að hún gefi þeim númerið hjá sér svo þeir geti verið í bandi, er alveg að sjá þetta.... "jú þetta er sjálfvirkur símsvari hjá leyniskyttunni, er á skytterí, vinsamlegast skiljið eftir skilaboð".... en þetta er nú bara pæling.
Mánudagur til mæðu, pufff, blæs á það, af hvurju er þetta ekki mánudagur til mænu. Alla vega er mænan mín nokkuð sködduð eftir helgina, en það fylgir þessu víst. Djefull er annars farið að kólna, úfff, er ekki að meika þetta, maður bara byrjaður að skafa af bílnum á morgnanna, voðalega leiðist mér það. Leiðist reyndar flest á mánudögum, það er bara þannig. Alveg hreint stórskemmtilegir hlutir á Hunangstunglssíðunni núna, þar sem hægt er að hlusta á Þjálfa Grétars tala út. Svo verð ég nú líka að minnast á hann Gee sem hjálpaði mér með þessa síðu, kom með þetta fína lúkk líka, enda kann hann á lyklaborðið sá, hann er með helv... kúl síðu. Er ennþá tómur í hausnum, þannig lítið um pælingar, en þær detta vonandi inn í dag. Munið þið annars eftir þessu slogani, "Hvað ertað pæla, sól er sæla, sími 5646456", þetta kallar maður djúpa pælingu.
október 20, 2002 :::
Voðalega leiðist mér stundum sunnudagar. Þessi helgi var alveg hreint stórfín. Tók vínsmökkun á þetta í gær, red og fínerí. Endaði á tjúttinu og dansaði af mér allt vit á Thorvaldsen, tjah merarnar voru að fíla það, það get ég vottað. Er samt voða tognaður eitthvað í hausnum í dag, lítið um pælingar í gangi, bíð bara í rólegheitum eftir því að detta á skjálftavaktina og svitabaðið. Verð samt að minnast aðeins á ´Djúpu laugina, því það var móment þar um daginn sem drap mig hreinlega. Tjah það voru 3 gaurar og ein stúlkukind. Hún spyr, "Hvað myndirðu gera til að láta mig kikna í hnjánum". Gaurarnir komu með einhver lömuð svör eins og "koma með handjárn í rúmið" eða eitthvað álíka. Nema gaurinn í miðjunni, tær snilld þar. Hann var rauðhærður fír, og var ekki í vandræðum með þetta. Hann sagði, "Viltu eitthvað til að kikna í hnjánum.....ok, hefurðu séð rauð punghár???" aaaahahahahah, þetta finnst mér fönný. Annars standa þau sig alveg fínt, sem sjá um þetta núna. Samt ekki eins góð og hann Gutti frændi minn sem sá um þetta, en nú er hann í Danaveldi að meika það, well dön það, ætla að kíkja á hann við tækifæri. Allavega myndirnar frá tarfapartæinu komnar, versigú.
október 19, 2002 :::
Úfff, afmælisdagurinn búinn og Airwaves í gangi....í hausnum á mér fjandeeeennn, líður eins og það séu rokna tónleikar þar núna, en á samt ekki miða. Annars gekk tarfaveislan í alla staði mjög vel, menn voru í blússandi gír. Þeir sem mættu voru strákarnir sem voru með mér á Bibbó, liðsmenn Hunangstunglsins, stórveldið Hamarinn og svo Veiði- og lionsklúbburinn Smaart. Fór fram áðan og hugsaði bara "hólý shift" er ekki að meika að fara að taka til, annars er þetta ekki alslæmt, mikið um dósir og flöskur sem maður fer bara með í endurvinnsluna og krúnkar svo saman í eina rækjusamloku með extra majonesi. Allavega þá var ótrúlega gaman, myndir koma innan skamms. Alltaf gaman að eiga afmæli. Bíð spenntur eftir næsta ári, þótt svo ég verði 29, tjah þá á ég afmæli á laugardegi og lofa öðru partæ, ætli maður leyfi ekki merunum að fylgja með í það skiptið, tjah kannski ég haldi bara mera-partæ, ég einn með 20 kellingum....jeeeee.....bara pæling.
október 18, 2002 :::
Til hamingju með daginn kæra fólk. Fjandenn hvað það fer í taugarnar á mér að ég skuli ekki getað látið klukkuna virka á þessari síðu, en hver spáir í því. Díllinn er allavega sá að enn á ég afmæli, dagurinn sjálfur runninn upp og akkúrat ekkert frábrugðinn öðrum. Málið er samt að ég byrjaði að vinna á Hagstofu Íslands sl. mánudag og allt í gúddí með það. Maður er svona að aðlagast aðstæðum og reyna að leika einhvern tarf sem er fær í flestan. Á miðvikudaginn átti einn svo afmæli hérna og allir fóru að syngja og hann keypti kökur í kaffinu og læti og allir bara eins og one big happy family. Þá hugsaði ég "fjandenn, djefull nenni ég ekki að standa í svona löguðu á föstudaginn, enda litlar líkur á, því hér veit akkúrat enginn hvunær ég er fæddur". Ekki misskilja mig og halda að ég hafi eitthvað á móti fólkinu hérna, síður en svo þá er þetta fínasta fólk, mér bara leiðist svona uppákomur. Allavega til að vekja ekki upp neinar grunsemdir, þá mætti ég í nákvæmlega sömu fötum í vinnuna og í gær og lék af fingrum fram og þóttist bara vera rólegur, sem er voða erfitt þar sem það er alltaf viss fiðringur í manni þegar maður á afmæli, ég var bara búinn að gleyma honum í gær þegar ég var að setja inn pistlana. Svo er ég líka fullur tilhlökkunar fyrir kveldið og Tarfasúpuna sem verður heima.........jeeeeeeee. Lenti reyndar í svoldið neyðarlegu áðan, þegar yfirmaður minn brosti eitthvað til mín og var að fara gera sig líklegan til að segja eitthvað, og ég náttúrulega hélt að hann ætlaði að fara að afhjúpa leyndarmál dagsins, þannig að ég var fyrri til, tróð jógúrtdollu uppí hann, sem ég var með, snéri hann niður og dró hann inná klósett og sagði.."grjóthaltu kjafti maður, enga vitleysu hérna". Tjah eitt get ég sagt, hann var ekki sáttur. Og ég sem var svo ánægður að vera kominn með vinnu. Við spyrjum að leikslokum. Ég meina, er maður eitthvað paranojaður...nei, bara pæling.
Jæja, þá er klukkan slegin og ég 28 ára. Og ekki byrjar það gæfulega. Var að spjalla við nokkra vini mína á msn-inu, nánar tiltekið Tísku Gilla, Hjössa feita og Laxa Þrumu. Svo ég geri nú langa sögu stutta, þá var ég næstum búinn að hætta við að bjóða Hjössa og Gilla í partæið hjá mér í kveld, en Laxa er sko hægt að stóla á. En svona er þetta bara, sumir hafa gullfiska minni og aðrir ekki. Annars líður mér nákvæmlega eins núna og þegar ég var 27, engar stórvægilegar breytingar í gangi, nema kannski að ég hafi fengið nokkur aukahár á punginn, og ekkert við því að gera. Annars er veisla í kveld, nánar tiltekið tarfaveisla í tilefni dagsins og það verður fjer. Helstu tarfar, refir og melir bæjarins mæta og ræða lífsins leyndarmál og skiptast á klámsögum. Síðan verður hunskast í bæinn og þá fyrst getur kvenþjóðin farið með bænirnar... úfff, þetta er ekki flókið. Svo kannski endar maður bara í kóngsins Köben eða á Egilsstöðum..... bara pæling.
október 17, 2002 :::
Jæja, Lee byrjaður að blogga... það var og, tækniundrið sem ég er. Eina pælingin sem kemst að hjá mér núna er sú að ég á afmæli eftir 47 mínútur og er að reyna að forðast það eins og heitan eldinn. Ég meina 28 ára eftir einhverjar mínútur, þetta er náttúrulega bara grín. Nú fyrst fer að slá í mann fjandakornið. Ég man þegar ég var 15 ára, þá fannst mér 20 ára vera fullorðið fólk. Þegar ég var svo 20, þá fannst mér 25 vera ansi gamalt og 30 ára hreinir ellismellir. En maður flýr þetta víst ekki, er bara hér í staðinn og bíð örlaga minna og læri að blogga, díses, ég sem var búinn að reikna það út að ég væri milljóner þegar ég væri orðinn 28 ára, þegar ég var tvítugur. Ég hef þó ennþá nokkrar mínútur til þess að næla mér í þessar milljónir, en ætli ég játi mig ekki bara sigraðan og gefi þessu 10 ár í viðbót. Já fjandinn hafi það, skal vera milljóner þegar ég verð 38 ára, segi það og skrifa. En kannski verð ég mun vitrari á eftir, enda árinu eldri og hokinn af reynslu... Kannski verður maður fyrst tarfur þegar maður er orðinn 28... ég meina...pæling.