Gunnar nokkur Samloka skrifaði þetta fyrir hart nær 6 árum. Frumkvöðull í bloggheimum þar á ferð.
"Nautshausar eru ekki gefins í dag. Skottprís fæst hvergi. Hvernig er hægt að stækka máltíð en to og tre. Stækkar maður franskar kartöflur? Hvernig stendur á því að heimsfrægir tennisleikarar koma aldrei í heimsókn til Íslands. Er ég ekki nógu heiðarlegur leikmaður í þennan helvítis leik? Risavaxinn borðtennis með öðruvísi reglum og öðruvísi talningu. Ég ætla ekki að höggva í sama knér en mann skal ég drepa og annan. Ég fór í Lindasmárann í dag. Skíta verzlunarmiðstöð með ömurlegum búðum í. Ég byrjaði á því að fara í Hagkaup. Þar eru alltaf sömu hlanduglufötin á rándýru verði. Innan um þennan viðbjóð fólust síðan einhverskonar framandi matvörur. Matvörur til að sinna öllum þeim innflytjendum sem komnir eru hingað. Kryddleginn bambus í kókoshnetuhrísgrjónahíði frá Thaaaaailandi.Sólþurrkaðir kamelþarmar frá suðurhluta Túnis og víðar um Sahara mörkina. Kryddleginn Serbareður með króatískum endaþarmshakki. Pólskar járntöflur bornar fram með dassi af yfaraskeggi og síðan en ekki síst. Laufléttur nígerbúi með RuwandaEbólu og skæðri klamedíu af Arangúta. Eftir Hagkaup fékk ég nóg og fór og hafði mök við sjálfan mig, gegn mínum vilja."
Það var ekki laust við að þjóðarstoltið gerði vart við sig í gær. Jahérna hér og jeddúddamía segi ég nú bara. Þetta var gjersamlega magnað max og gott ef maður skráir sig ekki bara í þennan nýja stuðningsmannaklúbb þótt svo ég viðurkenni það fúslega að ég hafi hérumbil verið tilbúinn að míga á liðið eftir tapið á móti Úkraínu. En einungis hérumbil. Lifi Hrindingarnar.
Það er nú vissulega allt í blíðu hjá drengjunum í Þýskalandi þessa stundina. Það sama er ekki hægt að segja með undankeppni júróvisjón sem hófst á laugardag. Ef það er eitthvað sem einhverntíman hefur verið í stríðu þá er það þessi keppni. Hvernig í fjandanum komast svona lög í úrslitakeppnina?? Ég heimta að dómnefnd komi fram og standi fyrir sínu máli. Það er bara útilokað að þetta sé það skásta úr hva?? 200 lögum sem reyndu að komast inn. Skandall.
Þýsku HM aulýsingarnar annars að gera það. Það verður seint sagt að hann reyni ekki að heilla kellingarnar í lyftingunum þessi skeggjaði. Og að leggja líka svona svaðalega inn fyrir vin sinn í heita pottinum. Bwuauaahahha, þetta er svo falleg vinna.
Hvursu þægilegt ætli það sé að vera á 200 km hraða á leið niður 90° halla og fá fugl í smettið á sér? Bwuahahahahahahahaha, tjah hann er foj og sár hann Fabio þarna. Eins og hann er glaður í upphafi.
Já eitt albesta jólalag sem ég hef heyrt komið á netið. Stórveiðimaðurinn, niggarinn og drykkjufákurinn Ottó Tynes með jólahittarann í ár. "Blankur um jólin" heitir það. Tékk it át.
Lee kemur hlaupandi að stöðumælaverðinum þegar hann er að setja sektina í plast.
Lee: Æ kommon, ég er mættur, var í 3 mínútur. Stöðumælavörður: Þú lýgur því, ég var hálfa mínútu að skrifa sektina. Lee: 3 mínútur sagði ég. Stöðumælavörður: Það varðar mig ekkert um. Lee: Sjammán hérna, nú er ég mættur, gemmér smá breik. Stöðumælavörður: Ég sé bara núll á mælinum Lee: Ertu ekki til í að gefa mér séns? Stöðumælavörður: Nei, ég er búinn að skrifa miðann. Lee: Æ kommon maður. Stöðumælavörður: Ég sé bara núll á mælinum. Lee: Og ætlarðu ekki að gefa mér breik fyrst ég er mættur? Stöðumælavörður: Nei Lee: Dísess maður. Æ læk jor moððerrahh. Stöðumælavörður: Ha? Lee: Ekkert.
Leiðinlegasta fólk heims. Það er bara þannig.
Annars mæli ég með því að fólk horfi á Sigtið í kveld. Orð götunnar segir að karakterar þar séu byggðir á Lee og Gutta.
Sá í fréttum um daginn fólk sem gekk á höndum og fótum. Þetta var ættkvísl í Úzbekistan eða einhvur fjandenn og afkomendur hjónakorna þaðan. Það var sem sagt vinklað og gekk um eins og skepnur. Vísindamenn unnu baki brotnu við að reyna að hjálpa þessu fólki að ganga upprétt með lyfjum, göngugrindum, heillaráðum og ég veit ekki hvað og hvað. Það gekk fremur illa. Kannski útaf þeirri staðreynd að hjónakornin góðu voru systkin og afkomendur þeirra héldu uppteknum hætti í tilhugalífinu. Meiriháttar.
nóvember 24, 2006 ::: Beverly Hills níunúlltveireinnnúll
Það er margt forvitnilegt í henni veröld okkar. Þó fátt jafn áhugavert og amerísk unglingamenning. Sá mæti þáttur Beverly Hills 90210 hefur verið tekinn til sýninga á ný. Þar er alveg magnað að sjá hvursu stálpaðir 16-17 ára unglingar eru. Sérstaklega er gaman að fylgjast með ástarmálum þessara táninga. Ójá þeir eru mjög svo grimmir að segja "æ lov jú" frá dýpstu hjartarótum við einhverja sem þeir hittu kannske í fyrradag. "I think I love you" eða "you are the one for me" eða eitthvað í þessum dúr kemur iðulega frá fyrirmyndar unglingunum að vestan. Er ekki að sjá þetta hérna á fróni. Helstu línurnar hjá manni á þessum tíma voru kannske "til í sleik?" eða "viltu vanga" eða "átt þú þessa kókómjólk" sem bæðevei gríðarsterk lína til að brjóta ísinn. Nóg um það. Það er aldur aðalleikaranna í þáttunum sem slær mig svona nett. Flestir voru kannske rúmlega tvítugir sem er svo sem allt í lagi. Þó eru tveir leikarar þarna sem skara framúr í aldri. Að sjálfsögðu kyntröllið með krumpuennið hann Luke Perry. Ætli hann hafi ekki verið eitthvað rúmlega þrítugur. Gott og vel. Svo er það eftirlæti allra, en það er sú sem leikur hana Andreu (dúxinn/nördinn með gleraugun, grimmt óþolandi týpa). Hvað erum við að tala um þar? 52ja ára að leika 18 ára stúdent. Mergjað alveg og (h)rós í hnappagatið þar hjá henni Andreu minni. Innilega alveg með þetta.
Svo muna nú allir eftir honum Ralph Macchio í Karate Kid. Hvað var hann?? 36 ára eða eitthvað??
Lýk þessu nú á einni alvöru línu sem Bond, þ.e.a.s. James, tekur í nýjustu myndinni. "whatever I am, what ever is left of me. I´m yours". Nota þessa næst. Gæti trúað að viðkomandi stúlkur slædi oggupons í sætinu sínu þegar ég tek hana.
Ég sá þátt í sjónvarpinu um daginn sem náði til mín, þar sem ég er annálaður hlunkur og listamaður, sem heitir The Biggest Looser. Þarna eru ca. 20 hlunkar (300-400 pund hver), kellingar og karlar, sem reyna að skafa af sér lýsið og majonesklessurnar eins og þau eigi lífið að leysa. Jább, þetta er keppni í megrun takk ferer. Svo sem allt í gúddí með það. Það sem vakti athygli mína var hvursu mikið karlpeningurinn fer að grenja í þessum þáttum. Virðast vera tilfinningaríkar skepnur þessir karlhlunkar frá Ameríku. Einn brotnaði saman þar sem hann sagðist hafa verið svaka tarfur fyrir einhverjum árum, en hafi svo misst tökin og skyndilega bætt á sig 250 pundum. Óheppilegt?? Hann ætlaði síðan hreinlega að grenja úr sér lifrinni og lungum þegar hann var að tala um að hann ætti engan séns í kellingar lengur... hann sem hafði verið svo duglegur að blikka, nikka og fara í sleik á almanna þegar frægðarsól hans skein sem skærast. Bwuahhhahahahah, þetta var móment. Svo voru hinir kallarnir að grenja yfir hinu og þessu, eins og að það væru físibaunir í matinn, að þeir gætu ekki gert 1/4 úr armbeygju, gátu ekki gengið án þess að vagga eða bara af því að það var smá rigning úti og andvari. Síðan var það ein keppnin þar sem þeir áttu að hlaupa fram og aftur í einhverri lest til að vinna einhver verðlaun. Fyrrnefndur fyrrverandi Herra Ameríka var þá að þeysast fram og aftur um lestina þegar hann tognaði á kálfa blessaður. En það lét hann ekki á sig fá. Hann hélt ótrauður áfram. Vaggandi, haltrandi og svoleiðis háskælandi til þess að innbyrða sigur fyrir sitt lið, sem og hafðist. Þetta er svolítið sem ég á aldrei eftir að gleyma. Gott ef þeir grenjuðu síðan ekki allir í kór þegar sigurinn var í höfn.
Legg ég því til að þýðingin á The Biggest Looser verði Grenjandi Hlunkar á hlaupum.
Já það liggur fyrir að þær eru að fara að meika það oggupons stúlkurnar í Nylon. Hita upp á Bretlandstúr fyrir eitt stærsta boy-bandið í dag er ekki slæmt. Jújú, við skulum samfagna þeim, sannarlega vel gert hjá Einsa Bangsa og hans krú. Hér kemur þó aðal pælingin. Mér skilst að þær séu allar í sambandi í dag, við hina indælustu menn. Sumir þeirra eru jafnaldrar stelpnanna, aðrir helmingi eldri og enn aðrir fastagestir á Hrafnistu borðandi barnamauk og mysing. En það er önnur saga, indælis drengir væntanlega allir saman. En nú skal ég leggja bolloxinn minn undir. Smátt og smátt með aukinni frægð fer grasið að verða grænna hinumegin við og karlpeningurinn í samræmi við það. Ríkari, frægari og myndarlegri menn fara að reyna að fara í sleik á almanna við þær og þær sjá ekki, né hugsa almennilega sökum frægðarljómans. Spáin er sú að fyrir árs lok verður helmingur Nylon búinn að sparka núverandi melum. Hinn helmingurinn gerir það á næsta ári... gjersamlega alveg pottað. Það eina sem gæti fokkað þessu upp er að þær myndu allar slíta sig lausar á þessu ári, sem er alveg eins í inni í myndinni og myndi kannski ýta heldur undir náðargáfu mína á þessu sviði. Allavega bíð ég spenntur.
Hef ákveðið að setja saman strákabandið Smile-On. Leita því eftir 4 mönnum sem geta sungið, raddað, dansað, horft getnaðarlega í myndavél, grátið og leikið. Einn þarf að vera hommi. Þetta verður svona í anda Take That, Boyzone, Blue og N´sync og svo verður lagt í frumleg verkefni eins og að taka coverlög eftir Maríu Carey, Elton John, Phil Collins og Geira Ólafs. Skothelt dæmi. Garenteruð kvenhylli og ríðing. Endilega hafið samband við Franklín Stæner varðandi frekari upplýsingar.